Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Síða 3
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
3
Fréttir
Halldór útskrifaður:
Hefiir
þyngst
um þrjú
kíló og
líður vel
„Það er skrýtin en um leið stórkost-
leg tilfinning að vera aftur kominn
heim til fjölskyldunnar eftir árs legu
á sjúkrahúsi," sagði Halldór Hall-
dórsson, hjarta- og lungnaþegi, en
hann útskrifaðist af Harefield
sjúkrahúsinu á fostudag.
„Nú er ég á eins konar göngudeild
og þarf að fara í rannsókn tvisvar í
viku. Mér finnst frábært að þurfa
ekki að mæta oftar en þetta á sjúkra-
húsið þar sem ekki eru liðnar nema
fjórar vikur frá aðgerðinni," sagði
Halldór.
Halldór sagði að þaö væri smám
saman verið að draga úr lyfjagjöf hjá
sér. Nú væri hann kominn á þau lyf
sem hann þarf að taka inn reglulega
í framtíðinni, það er lyf sem koma í
veg fyrir að líkaminn hafni nýju líf-
færunum.
„Ég hef alltaf verið bjartsýnn og
hjá mér var planiö aö dæmið gengi
svona hratt og vel upp. En ég vissi
þó að allt gat farið á annan veg. Og
ég er ekki alveg sloppinn, enn geta
komið bakslög en líkurnar á þeim
minnka eftir því sem lengra líður frá
aðgerðinni," sagði Halldór.
Hann sagðist vera að íhuga þann
möguleika að komast á „völlinn” en
HaUdór er mikill knattspyrnuáhuga-
maður. Hann vill þó enga áhættu
taka og mun þvi bíða þar til hlýnar
í veðri.
„Og ef allt gengur að óskum, eins
og það hefur gert hingað til, kemst
ég heim til íslands í maí,“ sagði
Halldór Halldórsson í samtali við
DV.
-ATA
Gljáandi
HARKA
með
Kópal
Geisla
Veldu Kópal
með gljáa við hæfi.
* ■ 1
J
1 \ T f Æ
x \
f \ ys|/\\ o
J
Milljónir á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111
<
in
c
ro
n
c
o
Q.