Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
7
Viðskipti
Skýrsla matsnefhdar Utvegsbankans á leiðinni
200 milljónir töpuðust
vegna gjaldþrots Nesco
Gjaldþrot Nesco Manufacturing hf. lendir af miklum þunga á rikissjóð vegna
gamla Útvegsbankans. Það sem gerir málið flókið er það að Nesco fyrirtæk-
in eru sex, þar af þrjú stofnuð á liðnu ári. DV-kort Samúel
Matsnefnd Útvegsbankans mun nú
fara að skila skýrslu sinni til fjár-
málaráðherra en í skýrsluni munu
koma fram heildarskuldir þær sem
ríkissjóður mun þurfa að taka yfir
vegna hruns bankans. Væntanlega
mun margt koma í ljós við lestur
skýrslunnar.
Einn af stærri útgjaldaliðum vegna
bankans er án efa vegna gjaldþrots
Nesco Manufacturing hf. sem átti sér
stað um áramótin síðustu. Útvegs-
bankinn var helsti viðskiptabanki
fyrirtækisins sem átti í mjög um-
fangsmiklum viðskiptum hér og
erlendis. Erfitt hefur reynst að afla
nákvæmra upplýsinga um hve mikil
skuld fyrirtækisins var við Útvegs-
bankann. í samtölum við Óla Anton
Bieltvedt, sem var forstjóri og aðal-
eigandi Nesco Manufacturing,
kemur fram aö gjaldþrotið er upp á
rúmar 300 milljónir kr. Vafasamt er
hins vegar hve miklar eignir koma
þar á móti. Samkvæmt heimildum
DV þykir ljóst aö allavega 200 millj-
ónir kr. falla á ríkissjóð vegna Nesco
Manufacturing hf.
Sex Nesco fyrirtæki
Það sem gerir málið flóknara en
ella er aö Nesco fyrirtækin eru sex
að tölu og innbyrðistengsl þeirra
hafa orðið tilefni rannsóknar hjá
bústjóra, Gesti Jónssyni lögfræðingi.
Þrjú þeirra voru stofnuð á síðasta
ári, Nesco Laugavegi, Nesco Kringl-
unni og Nesco Xenon. Að sögn Óla
Antons Bieltvedt var nauðsynlegt að
stofna þessi fyrirtæki til að fá nauð-
synlega bankaþjónustu. Taldi hann
aö með stofnun þessara fyrirtækja
hefði verið hægt að milda mjög áhrif
gjaldþrots Nesco Manufacturing hf.
t.d. með sölu vörubirgða og trygg-
ingu viðskiptavilda. Þessi fyrirtæki
eru sjálfstæð fyrirtæki og eru Óli
Anton og hans fjölskylda stærstu
hluthafarnir.
Nú er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt
við það að bústjóri athugi tengsl hins
gjaldþrota fyrirtækis og þeirra ný-
stofnuðu - það mun yfirleitt tíðkast.
Athugað er í því sambandi hvort við-
unandi verð er greitt fyrir eignir og
viðskiptavild.
Nesco á Laugavegi keypti rekstur-
inn hér heima á 20 milljónir kr. en
Nesco-Xenon keypti erlenda rekstur-
inn á 12 milljónir.
Óvissa með hlutafé
í upphafi var hlutafé Nesco
Manufacturing 25 milljónir gamalla
króna. í upphafi árs 1986 var eina
hlutafjáraukning félagsins þegar
nýtt hlutafé upp á 38 milljónir kr. var
skráð í sjóði félagsins.
Einhver óvissa viröist vera með
þessa hlutafjáraukningu, að sögn
Gests Jónssonar bústjóra. Undir það
tók skiptaráðandi, Ragnar Hall hjá
borgarfógeta. Samkvæmt heimildum
blaðsins mun óvissan stafa af því að
á bak við hlutafjáraukninguna var
skuldabréf til 10 ára með heldur
ótryggar íjárskuldbindingar á bak
við sig. Er talið öruggt að þetta bréf
standi ekki undir þeirri hluta-
íjáraukningu sem átti sér stað.
Eigið fé lagt undir
Það kom fram í máli Óla Antons
Bieltvedt að hann verður fyrir gífur-
legu persónulegu tjóni vegna gjald-
þrotsins. Sagði hann að fasteignir í
eigu fiölskyldu hans myndu ganga
upp í gjaldþrotið enda hefðu þær ó-
spart veriö notaöar sem veð fyrir
skuldum fyrirtækisins. Undir þetta
tók Sigurjón Ragnarsson, sem átti 'A
í Nesco Manufacturing. Sagðist hann
þurfa að ráðast í miklar eignabreyt-
ingar vegna gjaldþrotsins. Hann
mun ekki lengur vera hluthafi í
neinu Nesco fyrirtækjanna.
„Ég hygg að aldrei hafi einkaaðilar
orðið fyrir jafnmiklu tjóni vegna falls
eins fyrirtækis," sagði Óli Anton Bi-
eltvedt um leiö og hann tók fram að
eigendur fyrirtækisins hefðu aldrei
skýlt sér bak við hlutafélagsformið.
Þess má geta aö að helmingur
Nesco-hússins við Laugaveg var
seldur á nauðungaruppboði 3. nóv-
ember og keypti Útvegsbankinn þá
húsið á 9,5 milljónir kr. en bankinn
var aðalkröfuhafmn. Mun bankinn
vera að leggja drög að því að kaupa
hinn helming húsins af Sigurjóni
Ragnarssyni. Nesco Laugavegi hefur
verið í þessu húsi sem löngum hefur
verið tákn fyrirtækisins en að sögn
Óla Antons hefur fyrirtækið hugsað
sér til hreyfings.
Verðgildi vörubirgða
Vörubirgðir Nesco Manufacturing
munú vera helsta trygging fyrir
skuldum félagsins. Mikil óvissa ríkir
um verðgildi þessara vörubirgða. Óli
Anton Bieltvedt kvað þær vera um
150 milljóna kr. virði en samkvæmt
öðrum heimildum blaðsins þá mun
það vera mjög ofáætlað.
Vörur eins og þær sem Nesco seldi
og framleiddi hafa almennt séð stutt-
an líftíma og falla skjótt í veröi. Þá
mun samsetning vörulagersins ekki
vera sem heppilegust og yfirhöfuð
óvíst hve vel gengur að selja hann.
Þetta munu vera tæki sem framleidd
eru undir nafni Nesco sem gerir það
að verkum að fullkomlega óvíst er
um hvort nokkur tekur að sér hluti
eins og varahlutaþjónustu.
Að sögn bústjóra vantar gífurlega
mikið upp á að lagerinn standi á
móti veðum. Reyndar mætti þakka
fyrir ef hann stæði undir fram-
leiðslukostnaðarverði. Vörulager
þessi er í Kaupmannahöfn og að sögn
Óla Antons er hann að verða upp-
seldur. Ætti því söluverð hans aö
geta legið fyrir fljótlega.
Útvegsbankinn enn einu sinni
Þaö er ljóst aö það er Útvegsbank-
inn gamli sem situr í súpunni og
þykir víst mörgum nóg um sein-
heppni bankans með viðskiptavini
sína. Þetta styður reyndar þá skoðun
að til bankans hafi þeir helst leitað
sem enga fyrirgreiðslu hafi fengið
annars staðar.
90% skulda Nescp Manufacturing
eru gagnvart Útvegsbankanum
gamla en hann sagði upp viöskiptum
sínum við Nesco 1985 en þjónaði fyr-
irtækinu fram tfi 1986. Engin við-
skipti munu vera við Útvegsbankann
hf. en hann mun þó hafa yfirtekiö
eitthvað af skuldum Nesco við gamla
Útvegsbankann.
Einhver viðskipti mun Nesco eiga
í Búnaðarbankanum en að sögn Stef-
áns Valgeirssonar, stjórnarfor-
manns bankans, munu trygg veð
vera fyrir öllum þeim viðskiptum.
Að sögn Óla Bieltvedt eru erlendar
skuldir fyrirtækisins engar en það
er þó ljóst áð hluti af þeim skuldum
sem fyrirtækið skilur eftir sig hjá
Útvegsbankanum eru tilkomnar
vegna erlendra lána sem Útvegs-
bankinn sá um. Enn hefur lítið af
erlendum kröfum borist til bústjóra
sem er ekki óeðlilegt því kröfufrestur
er til 29. mars.
Þá má geta þess að Nesco-Xenon,
sem tók viö viðskiptum Nesco
Manufacturing erlendis, hefur fengið
inni í dönskum banka, Privatbanken.
-SMJ
Hin árlega útsala Teppalands hefst á Nú er einstakt tækifæri því verslunin grásteinn og skífur, parket, parket-
laugardaginn. Það hefur aldrei verið er full af útsölu-gólfefnum, s.s. gólf- afgangar, gólfkorkur og veggdúkur.
eins auðvelt að gera eins góð kaup á teppum, stökum teppum, mottum,
gólfefnum á stórlækkuðu verði. dreglum, bútum, teppaafgöngum,
Við höfum lækkað verðið um allt að gúmmímottum, gólfdúk og gólfdúkar-
50% - það munar um minna. bútum. Einnig fyrsta flokks flísar,
Það vilja allir spara - nú er tækifærið.
Opi<§ frá kL 10:00 — 14:00 laugardag.
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 83577 og 83430, Rvík.