Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Page 9
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
9
Utlönd
-perla
íslensks
skemmtanalífs!
Nú mæta allir Mánaklúbbsfélagar og gestir
þeirra timanlega því heilmikið er um að vera um
helgina.
Hinn frábæri Tommy Hunt skemmtir á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Guðmundur Haukur annast tónlistarflutning
föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld.
í „A LA CARTE" salnum er kominn nýr og spenn-
andi matseðill. Munið að panta borð i tíma.
L Opnunartímar
Mánaklúbbsins:
‘t Fimmtudaga 18.00-01.00
Föstudaga 18.00-03.00
Laugardaga 18.00-03.00
Sunnudaga 18.00-01.00
Brautarholti 20, símar 23333, 23335 og 29098
Danir framselja nýnasista
Guimar Kristjánsson, DV, Kaupmannahö&i:
Eftir nokkra vikna íhugun hefur
Erik Ninn Hansen, dómsmálaráö-
herra Danmerkur, ákveöiö að
framselja nýnasistann Thies Chri-
stophersen til Vestur-Þýskalands.
Vestur-Þjóöverjar hafa í um mánaö-
artima krafist þess aö fá nýnasistann
framseldan því þeir vilja lögsækja
hann fyrir yfirlýsingar hans um
heimsstyrjöldina síöari.
Thies Christophersen er nú stadd-
ur í Kanada á ráðstefnu nýnasista
þar sem hann meðal annars ætlar
aö vitna um aðstæöurnar í þýskum
fangabúðunum. Hann heldur því
meðal annars fram að engar útrým-
ingarbúðir hafi verið í Auschwitz.
Thies Christophersen hefur þriggja
daga frest til aö kæra ákvörðunina.
Ole Espersen, þingmaöur sósíal-
demókrata, er mjög ánægöur meö
ákvöröun dómsmálaráðherra. Hann
telur að Danmörk eigi ekki aö vera
griðastaður fyrir erlenda nýnasista.
Espersen er einnig þeirrar skoöunar
að ákæra eigi danska nýnasista eftir
sömu lögum.
Dómstóll Evrópubandalagsríkja
leggur áherslu á að bandalagsríkin
meðhöndli sína eigin þegna á sama
hátt og útlendinga, segir Espersen.
Borgarstarfsmenn í Panamaborg vinna að hreinsun gatna borgarinnar eftir
mótmælaaðgerðir undanfarinna daga. Simamynd Reuter
Óttast eigna-
upptöku
Flugfélagið Air Panama hefur
ákveðið að hætta flugrekstri á leið-
um til Bandaríkjanna um sinn af ótta
viö að bandarísk yfirvöld taki far-
þegaþotur þess eignamámi. Banda-
rísk stjórnvöld hafa nú ákveðið að
beita Panamabúa efnahagslegum
þrýstingi sem beinist gegn Manuel
Antonio Noriega, yfirmanni hers
Panama og raunverulegum stjóm-
anda landsins. Bandaríkjamenn hafa
ákveðið að koma í veg fyrir að Nori-
ega geti tekið fjármuni Panama út
úr bandarískum bönkum og er á-
kvörðun þessi tekin að beiðni Eric
Arturo Delvalle, fyrrverandi forseta
Panama, sem settur var af í síðustu
viku.
Stjórnarandstaða Panama ákvað í
gærkvöldi að aflétta allsherjarverk-
falli því sem boðað hafði verið til
þess að knýja á um afsögn Noriega.
Er verkfallinu aflétt vegna ótta um
þær efnahagslegu afleiðingar sem
þvingunaraðgerðir Bandaríkja-
manna kunna að hafa í Panama.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sagði
í gær að þessar aðgerðir Bandaríkja-
manna hefðu komið sér verulega á
óvart.
Bæjaifulltrúar kærðir
Gunnar Kristjánsson, DV, Kaupmannahöfn:
Tólf af bæjarstjórnarmeðlimunum
í Ishöj, sem er eitt af úthverfum
Kaupmannahafnar, hafa verið kærð-
ir til lögreglunnar fyrir kynþáttamis-
munun. Ishöj-nefndin gegn útlend-
ingahatri stendur að baki ákærunni.
A fundi hjá bæjarstjórn á þriðju-
dagskvöld greiddu tólf atkvæði gegn
tillögu bæjarstjórans um að sækjast
eftir því að enn íleira fólk af erlend-
um uppruna setjist að í Ishöj.
Nefndin telur að með þessu móti
hafi bæjarfulltrúar ásamt borgar-
stjóranum brotið gegn sáttmála
Sameinuöu þjóðanna um afnám kyn-
þáttamismunar. Álítur nefndin að
hér séu dönsk hegningarlög brotin
að sama skapi sem getur þýtt allt frá
sekt til sex mánaða fangelsis. Þeir
sem eru ákærðir eru bæjarfulltrúar
sósíaldemókrata, íhaldsmenn og rót-
tækir vinstri menn.
í Ishöj eru tuttugu þúsund og fimm
hundruð íbúar. Þar af eru 12,4 pró-
sent innflytjendur og er það stærsta
hlutfall innflytjenda í bæjarfélagi í
Danmörku. í Ishöj eru helmingi fleiri
innflytjendur en Danir atvinnulaus-
ir.
Bæjarfulltrúarnir, sem greiddu at-
kvæði gegn tillögu bæjarstjórans,
halda því fram að Ishöj geti ekki tek-
ið á móti fleiri innflytjendum vegna
þess að hættan á myndun fátækra-
hverfis er yfirvofandi.
Fellur stjómin
á einni krónu?
PáK Viihjálmsson, DV, Osló:
Samningar, sem fela í sér einnar
krónu launahækkun á tímann,
gætu fellt minnihlutastjóm norska
Verkamannafiokksins. Með hjálp
ríkisstjórnarinnar gerðu alþýðu-
sambandið og samtök atvinnurek-
enda launasamning nýverið. Til aö
greiða fyrir samningunum beitir
ríkisstjórnin sér fyrir lagasetningu
sem bannar launahækkanir um-
fram samninga atvinnurekenda og
alþýðusambandsins.
Ríkisstjórnin fær stuðning borg-
araflokkanna við lagasetninguna.
Hægri flokkurinn neitar stuöningi
við launalögin nema með því skil-
yrði að launþegasamtökum gefist
kostur á að senja um allt að fimm
prósent launahækkanir. Forysta
alþýðusambandsins segir að nái
þessi krafa Hægri flokksins ífam
að ganga muni sambandiö ekki
staðfesta nýgerða launasamninga.
Fari svo er grunnurinn að efna-
hagsstefnu ríkisstjórnárinnar
hruninn og mestar líkur á að
minnihlutastjóm Verkamanna-
flokksins segi af sér.
Á næstu dögum kemur í Ijós
hvort krónusamningurinn verður
rikisstjóminni að falli.
Gott verð.
Framúrskarandi gæði
Opið allar helgar.
TM-HUSGOGN
Siðumúla 30 - Sími 68-68-22