Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988. Segir fasistavinnubrögð viðhöfð í norska þinginu PáU Vilhjálmsson, DV, Osló: Útlönd Formaður norska Framfara- flokksins, Carl I. Hagen, líkir starfsháttum stórþingsins viö stjórn fasista á Ítalíu á millistríðs- árunum. Hagen fær eindóma fordæmingu annarra þingmanna fyrir þessa samlíkirigu en hann vill ekki taka orð sín til baka. Formaður Framfaraflokksins gagnrýnir harðlega þau lög sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins keyrir nú gegnum stórþingið í sam- vinnu við stjórnarandstöðuna, að undanteknum Framfaraflokknum og Vinstri flokknum. Lögin eru sétt í samvinnu við alþýðusambandið og samtök atvinnurekenda og eru forsenda fyrir kjarasamningum sem nýlega voru gerðir. Aðeins er gert ráð fyrir að stórþingið fái þrjá daga til að samþykkja lögin. Hagen segir að stórþingið fallist á sömu ólýðræðislegu samvinnuna á milli ríkisstjórnar, verkalýðs- félaga og atvinnurekenda og ríkis- stjórn Mussolinis stóð fyrir á Ítalíu á þriðja og fjórða áratug þessarar aldar. Anægðir að loknum fundi III.. I III Eftir ágreining um orðalag í yfirlýsingu um vopna- búnað náðist að lokum í Brussel í gær samkomulag sem allir leiðtogar aðildarríkja NATO kváðust án- ægðir með. Forðast var að nota orðin endurnýjun á vopnum í yfirlýsingunni. í stað þeirra mátti lesa að varnarstefna bandalagsins byggðist á fælingu þar sem stuðst yrði við kjarnorkuvopn og hefðbundin vígbúnað „sem áfram yrði af nýjustu gerð þar sem það væri nauðsynlegt". Bandaríkjamenn og Bretar höfðu lagt mikla áherslu á endurnýjun skammdrægra kjarnorku- flauga sem flestar eru staðsettar í Vestur-Þýskalandi. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Mitter- rand Frakklandsforseti, voru andvígir endurnýjun og var hún aðaldeiluefni fundarmanna. Vestur-Þjóðverjar óttast að þeir verði frekar skot- mark Varsjárbandalagsins ef kjarnorkuvopn i Vestur-Þýskalandi verða endurnýjuð. Carrington lávarður fullyrti að orðalagið í yfirlýs- ingunni væri ekki gert óljóst en það fór samt ekki fram hjá neinum að þrátt fyrir ósamkomulag virtust allir ánægðir með niðurstöðuna. Það var hressilegur blástur þegar Reagan Bandaríkjafor- seti kvaddi í Brussel í gær að loknum leiðtogafundi aðildar- ríkja NATO. Simamynd Reuter íjíí í. rtöl Ibiúia-M Myrtu þrjátíu og einn Panjab Indland Þrjátiu og einn maður féll og yfír þrjátíu aðrir særðust þegar hópur vopnaðra manna réðst á þátttak- endur í trúarhátíð í þorpinu Kari Sari í Panjab á Indlandi í gær. Tal- iö er að öfgamenn úr rööum sikha hafi staðið aö árásinni. Lögreglan á svæðiriu segir að fimm eða sex vopnaðir menn hafi ráöist inn í þorpið skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi og hafið skot- hríð á hóp fólks sem var að fylgjast með atriðum trúarhátíöar. Stórsigur stjórnarinnar Svo virðist sem stjórnarflokkur- inn í Bangladeah hali unnið stor- sigur í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Sigur þessi kemur ekki á óvart þar sem allir helstu stjómarandstöðuflokkar landsins höf'ðu hvatt stuðnings- menn sína til þess að hundsa kosningarnar. Mikið var um átök og ofbeldisaö- gerðir á kj ördag og féllu aö minnsta kosti þrettán manns í þeim. Talsmenn stjórnarinnar fullyrða þó að aöeins fimm manns hafi fall- ið í átökum tengdum kosningun- um. Hætta varð við kosningar á um eitt hundrað og sjötíu kjörstöðum í landinu vegna ofbeldis, folsunar á kjörseðlum eða skorts á eftirlitsmönn- um. Þrátt fyrir átökin í gær vö'ru kosningar þessar fremur friösælar miöað við fyrri kosningar í Bangladesh. í héraðsstjórnarkosningum í febrúar- mánuði féllu að mmnsta kosti hundrað fimmtíu og tveir og um átta þúsund særðust. Bush og Jackson Skoðanakannanir i Bandarikjunum benda til þess að George Bush muni vinna sigur í forkosningum repúblikana á þriöjudaginn í næstu viku og að Jesse Jackson gæti orðið ofan á í baráttunni innan demókrata- flokksins. Gengið veröur til forkosninga í tuttugu fylkjum Bandaríkjanna þennan dag og er talið að niðurstöður þeirra geti gefið afgerandi vís- bendingar um hveijir verða forsetaframbjóðendur flokkanna tveggja í haust. •, Skoðanakannanir þessar benda til þess að meöal repúblikana hafi Bush áberandi meira fylgi en Robert Dole öldungadeildarþingmaður. Dole reyn- ir nú allt hvað hann getur til aö saxa á þetta forskot varaforsetans og í gær barst honum góöur stuðningur þegar Jeanne Kirkpatrick, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti yfir stuðningi við hann (sjá mynd). Meðal demókrata viröist Michael Dukakis njóta svipaðs fylgis og Jack- son en Richard Gephardt, sem talinn hefur veriö líklegasta forsetaefni demókrata, viröist njóta mun rýrara fylgis. Búa sig undir átök ísraelski herinn býr sig nú undir aukinn óróa meðal Palestínu- manna á herteknu svæöunum á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu í tengslum við komu George Shultz, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, þangað. Shultz er nú í annarri heimsókn sinni til Miðausturlanda á fáeinum dögum. Mun ráðherrann hafa i hyggju að knýja á um að fá ákveöin svör frá ísraelskum ráða- mönnum um afstöðu þeirra til tillagna Bandaríkjamanna um frið í þessum heimshluta. Undanfarna þtjá daga hefur allt verið með kyrrum kjörum á her- teknu svæðunum. Styrkja vamir sínar Argentinumenn skýrðu frá því í gær að þeir væru nú að styrkja varnir sínar vegna aukinnar spennu á Suður-Atlantshafi í tengslum við þá ætlan Breta aö flyfja aukið herlið og orrustuþotur til Falklandseyja. Breska vamarmálaráöuneytið segir hins vegar að þessum liösflutning- um sé ekki ætlaö að ögra Argentínumönnum og þeir liafl ekkert að óttast. beinar viðræður ef Miguel Obando Y Bravo kardínáli yrði viðstaddur við- ræðurnar. Ortega forseti rak á miðvikudaginn kardínálann sem milligöngumann og bað samtímis um beinar viðræður milli fulltrúa skæruliða og fulltrúa sandínista undir forystu bróður síns, Humberto Ortega hershöfðingja. Skæruliðar fóru einnig fram á að samþykkja þurfl fyrirfram hvað rætt verði. Vilja þeir hafa á dagskrá al- menna sakaruppgjöf, lýðræði vopnahlé. Ortega vill hins vegar að viðræöurnar snúist fyrst og fremst um skilyrði fyrir vopnahléi. Segir hann það vera allt og sumt sem kraf- ist sé af honum sé miðað við friðar- samkomulagið sem hann undirritaði í Guatemala í ágúst ásamt fimm öðr- um Mið-Ameríkuforsetum. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings felldi í gær tillögu um aðstoð til kontraskæruliða í Nicaragua og sjá þeir nú ekki fram á neinn stuðning í nánustu framtíð. Leiðtogar kontraskæruliða í Nic- aragua samþykktu í gær tillögu Daniels Ortega forseta um beinar friðarviðræður í landinu sjálfu. Þeir settu þó ákveðin skilyrði. Eftir dagslangan fund gáfu kontra- leiðtogarnir út yfirlýsingu þar sem" þeir kváðust myndu samþykkja Jim Wright, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins, ásamt tveim öðrum þingmönnum deildarinnar, eftir að tillaga um aðstoð við kontrahreyfinguna í Nicaragua hafði verið felld í gær. Símamynd Reuter Samþykkja beinar vidræður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.