Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
Spumingin
Hvaða skoðun hefur þú á
launagreiðslum til Guð-
jóns B. Ólafssonar?
Sveinn V. Sveinsson: Ég fylgist lítiö
meö því máli.
Laufey Bjarnadóttir: Enga.
Guðlaug Guðjónsdóttir: Ég vil ekki
tjá mig um það.
Þorgeir Jóhannsson: Þaö verður að
skoöa launin í viðara samhengi.
Hörður Svavarsson: Það væri
óskandi að fleiri fengju góð laun í
landinu.
Björgvin Sigurðsson: Ég tel þetta
ekki réttar ásakanir á hann.
Lesendur
Ríkisrekstur:
Ríkisskip og fjárveitingar
ísfirðingur skrifar:
Ég hef verið að velta því fyrir
mér hvers vegna Skipaútgerð ríkis-
ins er haldið gangandi ár eftir ár,
löngu eftir að séð er aö fjárhags-
staða fyrirtækisins er vonlaus og
þjónusta þess er nánast svipur hjá
sjón frá því sem áður var þegar
fólk á landsbyggðinni hafði mun
meiri þörf fyrir þessa þjónustu.
Hér á árum áður, þegar farþega-
skipin Esja og Hekla, ásamt minni
skipum, t.d. Skjaldbreið og Herðu-
breið, voru í rekstri útgerðarinnar
má segja að fólk hafi átt svo til allt
undir því að þessi rekstur væri við
lýöi því að skipin voru einnig notuð
sem samgöngutæki fyrir fólk á
landsbyggðinni til að komast milli
staða, ekki síst til og frá Reykjavík.
í þá daga var talsverð reisn yfir
Skipaútgerð ríkisins. Skipin voru
vel útbúin fyrir farþega, stóðu er-
lendum ferjum og farþegaskipum
ekkert að baki hvað aðbúnað varð-
aði og viðurgjörning allan. Esja og
Hekla voru t.d. fullbókaðar fyrir
farþega frá því snemma á vorin og
langt fram á haust. Þetta veit ég
gjörla því að ég var sjálfur skips-
maöur á öðru þessara farþegaskipa
um talsverðan tíma.
Ég gat nú aldrei skilið ástæðuna
fyrir því að þessir farþegaflutning-
ar voru aflagðir hjá Skipaútgerð
ríkisins og skil hana ekki ennþá.
Einhverjir hafa gert því skóna að
aðrir rekstraraöilar í samgöngu-
málum, svo sem flugmálum og
hópferðum, hafi gengiö hart fram
í því að fá farþegaflutninga sjóleið-
is hér við land og éinnig til og frá
landinu, einkum frá Reykjavík, af-
lagða með öllu.
Nú er það svo að margur er ríkis-
reksturinn sem ekki ber sig hér en
er samt „látinn“ ganga, ef þá hægt
er að tala um „gang“ í því sam-
bandi. Stundum er viðkomandi
ríkisrekstur þarfur, stundum ekki.
En stundum er viðkomandi ríkis-
rekstur einnig vinsæll, ef svo má
að orði komast, þannig að þótt
umtalsvert tap kimni að vera á
honum þá vill fólk ógjaman missa
þann þátt úr þjóðlífmu. Um slíkan
rekstm- má taka sem dæmi Þjóð-
leikhúsiö sem fáir myndu vilja
leggja niður þótt ekki sé þar að
finna ofsagróða fyrir ríkiskassann.
- Sama var uppi á teningnum með
Skipaútgerð ríkisins á sínum tíma.
Hún var rekin með tapi en fólk taldi
fyrirtækið ekki beinan ómaga
vegna talsverðra vinsælda með hin
góðu og vel útbúnu farþegaskip
sem sigldu með farþega og vörur
kringum landið.
Nú gegnir allt öðru máli. Skipaút-
gerðin er komin með vanskila-
skuldir upp á nokkur hundruð
milljónir króna og fyrirtækið veitir
enga þjónustu, nema á sviði flutn-
inga með ákveönar vörutegundir
milli hafna. Ef hins vegar því væri
til að dreifa að fyrirtækið héldi
einnig uppi farþegaflutningum á
sama hátt og áöur væru menn ekki
svo mjög að fjargviðrast um erfiða
stöðu fyrirtækisins.
Mér finnst það því ekki vansa-
laust ef áfram á að halda úti fjár-
veitingum til Skipaútgerðarinnar á
fjárlögum án þess aö þessi skipa-
rekstur bjóði þá þjónustu sem
vinsælust var og er enn, farþega-
þjónustu um borð í skipum sínum.
I dag er ekki til eitt skip sem getur
boðið farþegáflutninga frá Reykja-
vík til landsbyggðarinnar, nema
Akrahorgin. Heldur ekki til og frá
landinu. Þetta er náttúrlega óverj-
andi hjá eyþjóð sem býr við erfiðar
og óvissar aðstæður til samgangna
á landi og í lofti mikinn hluta árs-
ins.
■s\
f
Á dögum farþegaskipanna var reisn yfir rekstri Skipaútgerðar ríkisins. - Skipin voru fullbókuð frá því snemma
á vorin. - Farþegaskipið Esja sem síðar var selt til Bahamaeyja.
íslensk tunga:
Þátturinn Daglegt mál
Útvarpshlustandi skrifar: hvað væri rétt mál eða rangt. Sagði
Mikiö hefur verið rætt og ritað oftast að umburðarlyndi væri gull-
um íslenska tungu undanfarnar vægt í þessu eða hinu tilvikinu
vikur og mánuði og fólk veriö hvatt
til þess að halda vöku sinni. Öllum
er vonandi í fersku minni ágæt
áminning og hvatning forsetans
okkar í síðasta nýársávarpi.
Einn elsti og vinsælasti þáttur
útvarpsins heitir „Daglegt mál“.
Oftast hafa hæfir menn annast
hann í tímans rás, og sumir raunar
verið frábærir og hlotið hljóða
þökk margra hlustenda.
Nú á síðustu misserum bregöur
svo við að meira og minna van-
hæfir menn koma þarna við sögu
og er það óbætanleg slysni. Mikinn
hluta sl. árs var þarna við stjórn
náungi sem annaðhvort sakir van-
þekkingar eða ímyndaðs „fjjáls-
lyndis“ tók sjaldnast af skarið ura
o.s.frv. Venjulega er nú mál annaö-
hvort rétt eða rangt og þáttar-
stjórnendur eiga að leiöbeina fólki
- til þess er þátturinn.
Nú hefur algjörlega tekið stein-
inn úr. Núverandi stjórnandi -
(karlkyns) - viröist enga getu hafa
til að annast þáttinn á þann veg að
hann megi vera fólki til þess gagns
og þeirrar ánægju sem vænta
mætti.
Ekki er undarlegt þótt tungutaki
og málfari svokallaðs langskóla-
gengins fólks hraki séu margir
kennarar í íslensku á framhalds-
skólastiginu ekki hæfari en þetta.
- Útvarpið verður að halda betur
vöku sinni í þessum efnum.
Þiggjum meira þungarokk
Þungarokksaðdáendur skrifa:
Við viljum hyrja á því aö taka und-
ir bréfið sem var birt fyrir skömmu
á lesendasíðu ykkar og íjallaði um
þungarokk. Eins og þar var sagt er
lítið sýnt af þungarokki í sjónvarpi.
Það eru margir íslendingar, og það
á öllum aldri, sem hafa gaman af
þungarokki og vona ég að sjónvarpiö
og Stöð 2 hefji sýningu þátta með
þeirri tegund tónlistar.
í síösta þættinum, Strokki (en það
er þungarokksþáttur) á Rás 2, var
sagt að einn þáttur væri eftir og þyk-
ir okkur það slæmt. Við myndum
vilja fá meiri vitneskju frá umsjónar-
manni Strokks hvort annar þáttur
heíji ekki göngu sína fljótlega.
Þungarokkshljómsveitin Iron Maid-
en.
Bombur og sprengialda:
Foreldrar, þið
eigið næsta leik
Konráð Friðfmnsson skrifar:
Heimatilbúnar sprengjur virðast
vera í tísku. Alræmt sprengjuæði
hefur gengið yfir Hafnarfjörð að und-
anfömu. Margar tegundir tólanna
tók lögreglan í sína vörslu. Alls 54
stykki. Lögreglan hlaut lítið lof fyrir
framtak sitt. Alla vega hjá þeim for-
eldrum er hringdu á stöðina og
skömmuðust yfir hreinum ofsóknum
á hendur blessuöum englunum sín-
um.
Öll eiga tól þessi það sameiginlegt
að vera stórhættuleg. Slíkar bombur
geyma alveg ótrúlegt sprengiafl, að
sögn fróðra manna, þótt þær séu sak-
leysislegar á aö lita og vegi ekki mjög
þungt. Þær geta á örskotsstund
breyst úr litlu, nettu leikfangi í blóð-
ugan, öskrandi veruleika. Því fengu
fjögur ógæfusöm ungmenni í Firðin-
um að kenna á fyrir skömmu og
uppskátt varð í fréttum fjölmiðla.
Þar fór betur en á horfðist í fyrstu.
En eins og flestum er væntanlega
kunnugt eru sprengjurnar búnar til
úr litlum jámröram er snittuð hafa
verið til endanna sem tappar eru síð-
an skrúfaðir á eftir að þau hafa verið
fyllt með annaðhvort heimatilbúnu
ellegar aðfengnu flugeldapúðri. þá
er kveikurinn settur á sinn stað. Að
því loknu er hið lífshættulega leik-
fang tilbúið.
Ég ber ekki mikið skynbragð á gerð
né kraft slíkra bomba en frómur
maður fjáði mér aö við það eitt að
skrúfa síðari tappann á (eftir að
txmdrinu hefur verið komið fyrir)
geti hæglega myndast neisti sem
sprengir allt í höndum viðkomandi.
Gerist það er ónauösynlegt að brúka
sárabindi, það er ljóst. Og það er
einnig ljóst að margnefndar sprengj-
ur em miklum mun háskalegri en
menn virðast gera sér grein fyrir, því
miður.
Að lokum vildi ég þetta sagt hafa.
Nefnd sprengialda hefur gengið í of
langan tíma óáreitt. Nú er mál að
linni. Leiknum m.ö.o. lokið. Nú er
rétti tíminn til að taka völdin af óvit-
unum. Foreldrar í landinu ættu
skilyrðislaust að bindast samtökum
og leggjast á eitt um það að kveða
drauginn í kútinn og snúast á sveif
með löggæslunni í málinu, áöur en
annað slys hlýst af. Foreldrar, þið
eigiö næsta leik. Bíðið ekki eftir
dauðslysi. Við skulum líka muna það
að bomburnar eru í fómm krakka
og unglinga. - Máske þinna, foreldri.
Hringið í síma
eða skrifið.