Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Síða 19
Cruyff
hættur við
Barcelona
Hollenska knattspyrnugoð-
sögnin Johan Cruyff tilkynnti
í gær að hann yrði ekki næsti
þjálfari spænska félagsins
Barcelona. Hann fylgdist með
liðinu leika gegn Leverkusen
í Evrópukeppninni í fyrra-
kvöld og það var talið ásamt
öðru sem á undan var gengið
merki um að samningur við
Spánveijana væri á næsta
leiti. Cruyff sagði einnig'að
ekkert annað félag væri inni
í myndinni hjá sér í augna-
blikinu. í síðasta mánuði
sagðist hann í blaðaviðtali
reikna með að starfa hjá
Barcelona til vorsins og skrifa
þá jafnvel undir samning við
félagið. -VS
Napoli
úr leik
Napoli féll í fyrrakvöld út
úr ítölsku bikarkeppninni í
knattspyrnu við 2-3 tap á
heimavelli gegn Torino. Liðin
höfðu áður skilið jöfn, 1-1, í
Torino. Napoli vann bikarinn
:,í fyrra, auk ítalska meistara-
titilsins, og getur því einbeitt
sér að þeim síðarnefnda það
sem eftir er vetrar. Inter
MOano, Juventus og Samp-
doria eru komin í undanúrslit
ásamt Torino. -VS
Stórmót hjá
fötluðum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hið árlega „Hængsmót"
sem er eitt af stærstu íþrótta-
mótum fyrir fatlaða ár hvert,
verður haldið í íþróttahöll-
inni á Akureyri á morgun og
hefst kl. 9.
í þessu móti er keppt í bocc-
ia, borðtennis, lyftingum og
bogfimi. Nú eru skráðir um
100 keppendur til mótsins frá
8 íþróttaféJögum víðsvegar af
landinu.
Ómar Ragnarsson verður
heiðursgestur mótsins að
þessu sinni og hyggst kappinn
bregða á leik skömmu eftir
hádegið og sprella eins og
honum einum er lagið. Það
eru Lionsldúbbúrinn Hængur
og íþróttafélag fatlaðra á Ak-
ureyri sem sjá um mótið.
Púttaðí
goHskála
í kvöld gengst Golfklúbbur
Suðurnesja fyrir óvenjulegu
púttmóti í golfi. Púttað verður
í golfskálanum hjá GS og hefst
keppnin klukkan átta. Kylf-
ingar eru hvattir til að mæta
með pútterinn.
Lið Steinars og Snorra í norsku 1. deildina:
„Kærkomin tímamót
- segir Steinar Birgisson, leikmaður og varaþjálfari Runar
„Markinu er náð, við erum
komnir í fyrstu deildina," sagði
Steinar Birgisson handknattleiks-
kempa í spjalli við DV.Hann hefur
verið einn burðarása í norska ann-
arrar deildarliðinu Runar í vetur,
Steinar hefur átt einn stærstan
þátt í að koma liðinu í fyrstu deild,
ásamt félaga sínum Snorra Leifs-
syni sem einnig leikur meö félag-
inu.
„Leikurinn sem kom okkur upp
var gegn einu botnliðinu, AK 28,
og unnum við auðveldan sigur
40-25. Þegar sigurinn var í höfn
hljóp galsi í mannskapinn, eins og
tölumar gefa sjálfsagt til kynna.
Viö vorum farnir aö fagna
snemma. Þetta voru amtars kær-
komin tímamót þjá Runar-liðinu.
Félagið er búið að berjast á toppn-
um í annarri deildinni undanfarin
ár en alltaf hefur eitthvert ólán
staöið í veginum... - og þá helst á
allra síðustu stundu."
Er ekkert endilega í
þessu handboltans vegna
„Ég stefni á að leika í norsku
fyrstu deildinni að ári en vitanlega
• Steinar Birgisson stefnir að því að leika i norsku 1. deildinni næsta
vetur.
er allt óráðið enn,“ sagöi Steinar
aðspurður um framhaldið í hand-
knattleikhum. „Ég er ekkert endi-
lega í þessu handboltans vegna, það
má segja að ég notfæri mér boltann
til að hasla mér völl á öðrum svið-
um. En engu að síður gef ég mig
allan i verkefnin með liðinu enda
dugir ekkert annað, Með Runar hef
ég leikið undir stjórn norska lands-
liðsþjálfarans, Harald Madsen. Ég
hef hlaupið í skarðiö fyrir Harald
þegar hann hefur þurft aö sinna
málefnum landsliðsins - í þeim til-
fellum hef ég stjómað æfingum
liösins."
Runar er miklu jafnara
lið en Kristiansand
„Nei, ég hef ekki skorað jafn-
grimmt og f fyrra," sagði Steinar,
aðspurður um hvort hamfarirnar
væm eitthvaö svipaðar því sem
gerðist hjá honum á síðasta leikári
en þá varð hann markakóngur með
Kristiansand.
„Runar er miklu jafnara liö en
Kristiansand og mörkin dreifast
þvi á fleiri aðila. Við höfum til að
mynda mjög beittan mann á hægri
vængnum sem hefur veriö afkasta-
mikill í vetur. Þá hef ég oft verið
tekinn úr umferð og hef þá einbeitt
mér að því að opna fyrir aöra í lið-
inu,“ sagði Steinar.
-JÖG
Markakeppni 1. deildarinnar í handknattteik:
Hafhfirðingarnir eru
jafnir og markahæstir
- Héðinn, Þorgils Óttar og Sigurpáll upp fyrir Sigurð og Hans
• Héðinn Gilsson, 83 mörk.
FH-ingarnir Héðinn Gilsson og
Þorgils Óttar Mathiesen eru marka-
hæstu leikmenn 1. deildarinnar
þegar þremur leikjum er lokið af
fimm í 15. umferðinni. Þeir skoruðu
grimmt gegn KA í fyrrakvöld, Héö-
inn 8 mörk og Þorgils Óttar. 6, og
renndu sér uppfyrir Sigurð Gunn-
arsson. Það gerði einnig Sigurpáll
Aðalsteinsson í gærkvöldi þegar
hann skoraði 8 mörk fyrir Þórsara
gegn Fram á Akureyri.
Siguröur og Hans Guðmundsson,
sem voru í tveimur efstu sætunum
eftir 14. umferð, eiga báðir eftir að
leika í 15. umferðinni en lið þeirra,
Víkingur og Breiðablik, mætast
næsta miðvikudagskvöld. Þá leika
einnig KR og Valur.
Staöan í markakeppninni er þann-
ig, mörk skoruð í 15. umferð í
svigum:
Héðinn Gilsson, FH........(8) 83/0
Þorgils Óttar Mathiesen, FH (6) 83/0
Sigurpáll Aðalsteinss., Þór ...(8) 82/40
Sigurður Gunnarsson, Vík.....80/22
Félagaskipti í knattspyrnu:
Jón Oddsson kom-
inn til Víkings
Jón Oddsson, sóknarmaöur frá
ísafirði, er genginn til liðs við Vík-
inga og hyggst leika með þeim í 1.
deildinni í sumar. Jón er þrítugur
og hefur leikið í 1. deild með KR, ís-
firðingum, Breiðabliki, og síðast með
Fram sumarið 1987. Hann lék einn
landsleik á árinu 1987. Jón hefur ver-
iö óheppinn með meiðsli undanfarin
ár en nái hann sér á strik styrkir
hann eílaust lið nýliðanna.
• Grétar Jónasson, sem hefur leik-
iö með Völsungi á Húsavík síöustu
tvö árin, er genginn í Fram. Þar er
Hans Guðmundsson, UBK.........78/21
Valdimar Grímsson, Val........74/4
Stefán Kristjánsson, KR.......74/19
Konráð Olavsson, KR..........72/12
Birgir Sigurösson, Fram (12) 72/0
Skúli Gunnsteinsson, Stj..(4) 72/0
Allt bendir til þess að fimm eða
jafnvel fleiri leikmenn beijist um
markakóngstitilinn fram í síðustu
umferð og sú keppni verður ef til
vill jafntvísýn og baráttan um sjálfan
íslandsmeistaratitilinn. -VS
• Þorgils Ottar Mathiesen, 83 mörk.
hann reyndar uppalinn en fór til
Völsunga-að loknum 2. ílokki.
• Þróttur má enn sjá á bak sterk-
um leikmönnum og tveir til viðbótar
hafa farið síðustu daga. Varnarmað-
urinn Ottó Hreinsson hyggst leika
með Gróttu í 3. deild í sumar og Eg-
ill Örn Einarsson, fyrirliði unglinga-
landsliðsins, með Stjörnunni í sömu
deild.
• Magnús Magnússon, sem spilaði
með Val í 1. deildinni árið 1986, leik-
ur með Skotfélagi Reykjavíkur í 4.
deild í sumar. -VS
Ólympíuliðið til Hollands:
Óvíst að Frið-
rik veiði með
Óvíst er hvort Friðrik Frið-
riksson markvörður geti leikið
með ólympíulandsliðinu í
knattspyrnu í æfingaferð þess
til Hollands síöar í þessum
mánuði. Friðrik, sem leikur í
ár með B 1909 í Danmörku, er
í erfiðu námi í Óðinsvéum og á
ekki gott með að fara.
Ólympíuliðið leikur þijá leiki
í Hollandi, gegn áhugamanna-
liði þann 13. mars, en síðan við
tvö úrvalsdeildarlið, Sparta
Rotterdam og Haarlem. Þetta
er undirbúningur fyrir leikina
í vor í forkeppni ólympíulei-
kanna en þá mætir ísland
Hollandi og Austur-Þýskalandi
ytra í lok apríl og Portúgal og
Ítalíu hér heima í lok maí.
-VS