Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Síða 21
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
37
DV
Fram úr fallsæti 1. deildar í handknattleik:
15 maika sigur
gegn fallliði Þórs
„fýrsti leikurinn í lokabaráttunniu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þaö má segja aö þetta hafi veriö fyrsti
leikurinn hjá okkur í lokabaráttunni og
ég er auðvitað ánægður meö sigurinn.
Þórsararnir voru afar slakir, en ég er á-
nægður meö okkar leik, viö börðumst vel
allan leikinn," sagði Atli Hilmarsson eftir
að Fram hafði unnið Þór, 35-20, í 1. deild
handboltans á Akureyri í gærkvöldi.
Allt frá fyrstu til síðustu mínútu var slá-
andi munur á liðunum og er sama hvar á
leik þeirra er litið. Þórsarar eru greinilega
búnir að sætta sig við fallið en menn eru
hissa á því að svo virðist sem þeir sætti
sig einnig við að falla án þess að hljóta
stig í deildinni. Liðið var ákaflega lélegt í
gærkvöldi, Framarar gátu labbað út og inn
um vörn þeirra að vild, og ef Framarar
hefðu ekki verið með hálfgerðar „kúnst-
ir“ í sókninni af og til hefðu þeir skorað
yfir 40 mörk.
Það var strax ljóst hvert stefndi. Fram
komst í 2-0 og &-2 og leiddi í hálfleik, 16-8.
í síðari hálfleik jókst munurinn jafnt og
þétt og flestir voru fegnir þegar leiknum
lauk, hann yar lítil skemmtun.
Framliðið er greinilega allt of gott lið til
að falla og mitt mat er að þeir bjargi sér,
enda liðið nú komið úr fallsæti. Liöið var
jafnt í gærkvöldi, Atli Hilmarsson góöur
og var með mjög góða nýtingu, Birgir Sig-
urðsson skoraði mikið þótt hann spilaði
ekki síðustu 15 mín. leiksins, Jens ágætur
í markinu og sömuleiðis Guðmundur, en
þess ber þó að geta að þeir fengu þægileg
skot að glíma við. Veikir hlekkir voru
ekki í Framliðinu en þeir eiga von á meiri
mótspyrnu í næstu leikjum sínum.
Sigurpáll Aðalsteinsson var bestur Þórs-
ara, ákaflega duglegur við að reyna að
skapa sér færi í horninu þrátt fyrir litla
aðstoð. Hann skoraði mikið auk þess að'
fiska 4 vítaskot. Aðra leikmenn Þórs er
ekki ástæða til að nefna.
Dómarar voru Kristján Sveinsson og
Magnús Pálsson og áttu þokkalegan dag,
gerðu sín mistök eins og margir aðrir.
Bikarjafntefli ÍR og UMFG í Seljaskóla:
Fjögur stig í lokin
- Grindvíkingar jöfnuðu og standa vel að vígi
Það voru kampakátir Grindvíkingar
sem yfirgáfu Seljaskólann í gærkvöldi eft-
ir jafntefli - já, jafntefh eru leyfð í bikar-
keppni - 63-63, gegn ÍR. Þeir áttu undir
högg að sækja allan tímann en jöfnuðu á
ævintýralegan hátt með því að skora fjög-
ur stig á lokasekúndunum - Guðmundur
Bragason jafnaði þegar 5 sek. voru eftir.
ÍR-ingar eiga fyrir höndum erfiðan seinni
leik í Grindavík á mánudagskvöldið og ef
marka má hasarinn í gærkvöldi verður
heitt í kolunum þar og mikil barátta.
Undir trumbuslætti grindvískra áhorf-
enda og lúðraþyt Breiðhyltinga ríkti
geysileg spenna allan tímann. ÍR var yfir
frá fimmtu mínútu og þar til Guðmundur
jafnaði, en forystan fór aldrei yfir tíu stig
og var oftast 3-7 stig. Liðin eru áþekk að
styrkleika, bæði eiga marga unga og efni-
lega leikmenn sem stundum ætla sér um
of- taka upp á ævintýralegum sendingum
og tilþrifum og keyra upp hraða sem þeir
ráða ekki alltaf við. Þetta eru lið framtíð-
arinnar og það verður gaman að sjá þau
að ári, reynslunni ríkari og sitt með hvorn
erlenda burðarásinn.
Guðmundur Bragason og Rúnar Árna-
son voru öflugastir í jöfnu liði Grindvík-
inga. Guömundur er fiölhæfur miðherji,
var seinn í gang í sókninnni en náði sér
síðan vel á strik og er afburða varnarmað-
ur. Rúnar er geysilegt efni en var hvíldur
of mikið eftir að hafa fengið þriðju villuna
í seinni hálfleik.
Hjá ÍR var Karl Guðlaugsson óhemju
drjúgur í seinni hálfleik og skoraði falleg-
ar körfur. Ragnar Torfason byrjaði vel en
missti fljótt flugið og lét dæma á sig
fimmtu vfiluna með tæknivíti á fljótfæm-
islegan hátt á lokamínútunum. Það kann
að hafa verið ÍR-ingum afdrifaríkt. Jón
Örn var drjúgur og Jóhannes Sveinsson
baráttuglaður.
Jón Otti Ólafsson og Ómar Scheving
sýndu dómgæslu í háum gæðaflokki.
-VS
Bikarieikir í Njarðvík:
Njarðvíkingar flökuðu
Blika á Suðurnesjum
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Njarðvík vann Breiöablik 96-51 í 8 liða
úrslitum bikakeppni KKÍ í gærkvöldi -
leikurinn fór fram í íþróttahúsinu í Njarð-
vík. Leikurinn markaðist af. einstefnu
heimamanna á körfu Blikanna allan tím-
ann. Njarðvíkingar, sem tefldu fram
hálfgerðu varaliði, þurftu lítið að einbeita
sér til að vinna stóran sigur í leiknum,
það var helst að einhver mótstaða ríkti í
upphafi, en þegar vél Njarðvíkinga fór að
mala var þetta engin spurning. Bilið jókst
þá smám saman og skildu 20 stig liðin að
í hléinu. Heimamenn héldu síðan upp-
teknum hætti í síðari hálfleik, höfðu þetta
allt í hendi sér og gerðu til að mynda fiórt-
án stig á móti' engu Blikanna í upphafi
hálfleiksins. Segir það raunar mest um
gang í leiknum. Bestir Njarðvíkinga voru
Friðrik Ragnarsson og Gunnar Örlygsson,
báðir mikil efni. Hjá Breiðabliki stóð
Hannes Hjálmarsson upp úr, sá eini sem
reyndi að hreyfa sig að ráði.
Úthaldið brást hjá gömlu jöxlunum
Þá beið B-lið Njarðvíkinga lægri hlut
fyrir úrvalsdeildarliði Hauka, einnig í bik-
arkeppni KKÍ í gærkvöldi, 51-71. Leikur-
inn fór fram í „Ljónagryfjunni" í Njarðvík.
Það var aðeins úthaldið sem brást gömlu
Suðurnesjajöxlunum en þeir léku svo
sannarlega kúnstir og voru erfiöir Hauk-
um.
Hafnfirðingar gerðu bersýnilega ráð fyrir
léttu dagsverki en annað kom á daginn.
Pálmar Sigurðsson, þjálfari liðsins og drif-
fiöður, hugðist til að mynda hafa það
náðugt, byrjaði á bekknum en sá sig
snemma um hönd. Það var svo í síðari
hálfleiknum sem úthaldið fór að b'regðast
hjá B-liði Njarðvíkur og Haukarnir gengu
á lagið. Pálmar gerði þá flórar þriggja stiga
körfur og Henning var drjúgur, baráttan
geislaði af honum.
Hjá B-liði Njarðvíkur var Þorsteinn
Bjarnason hittinn og sterkur í vörn, hélt
til að mynda stjörnum Hafnfirðinganna
niðri lengst af. Þá var Gunnar Þorvarðar-
son sprækur á sama hátt og félagi hans,
Stefán Bjarkason.
íþróttir
• Birgir Sigurðsson skoraði 12
mörk fyrir Fram á Akureyri i
gærkvöldi.
Handbolti
i gærkvöldi
1. deild karla:
ÞÓR-FRAM
20-35 (8-16)
Mörk Þórs: SígurpáU Aðafsteinsson
814, Erlendur Hermarmsson 3, Gunnar
Gunnarsson 2, Jóhann Samúelsson 2,
Sieurður Pálsson 1, tngólfur Samúelsson
1, Hörður Signrharðarson l, Sævar
Ámason 1, Kristján Krístjánsson 1.
Mörk Pram: Birgir Sigurðsson 12, Atli
Hiimarsson 9, Hannes Leifeson 6/4, Júl-
ius Gunnarsson 2, Sigurður Rúnarsson
2, iigiU Jólmnnesson 2, Ragnar Hihnars-
son 1, Hermann Björnsson 1.
Áhorfendun 150.
FH.........15 12 3 0 423-327 27
Valur......14 10 4 0 306-232 24
Víkingur....l4 9 0 5 655-315 18
UBK.......-14 8 1 5 304-308 17
Stjaman....15 7 2 6 350-365 16
KR..........14 6 1 7 304-314 13
Fram........15 5 1 9 350-369 11
KA..........15 3 4 8 309-333 10
ÍR.........15 4 2 9 321-357 10
Þór........15 0 0 15 289-391 0
Körfubolti
í gærkvöldi
Bikarkeppni karla
8-liða úrslit fyrri leikir:
ÍR-UMFG
63-63 (33-27)
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 19, Jón Öm
Guðmundsson 16, Ragnar Torfason 13,
Bjöm Steffensen 8, Jóhannes Sveinsson
5, Vignir HUmarsson 2.
átig UMFG: Guðmundur Bragason 16,
Rúnar Ámason 15, Eyjólfur Guölaugs-
son 10, Hjálmar HaUgrímsson 6, Steinþór
Helgason 5, Jón Páll Haraldsson 5, Ólaf-
ur Jóhannsson 4, Guðlaugur Jónsson 2.
Áhorfendur: 140.
UMFN a-UBK
96-51 (47-27)
Stig UMFN a: Valur Ingimundarson
16, Teitur Örlygsson 14, Helgi Rafnsson
12, Árni Lárusson 12, EUert Magnússon
10, Sturla Örlygsson 9, Hreiðar Hreiðars-
son 8, Friðrik Ragnarsson 7, Gunnar
Öriygsson 6, Jóhann Sigurðsson 2.
Stig UBK: Hannes Hjálmarsson 17,
Guðbrandur Stefánsson 10, Kristján
Rafnsson 8, Ótafur Adolfsson 6, Sigurður
Bjaraason 4, Óskar Baldursson 4, Krist-
irrn Albertsson 2.
Áhorfendur: 57
UMFN b-HAUKAR
51-71 (27-33)
Stig UMFN h: Þorsteinn Bjarnason 22,
Július Valgcirsson 7, Stefán Bjarkason
6, Brynjar Sigmundsson 5, Gunnar Guð-
mundsson 4, Gunnar Þorvarðarson 4.
Guðsteinn Ingimarsson 3.
. Stife Hauka: Henning Henningsson 20,
ívar Ásgrimsson 15, Pálmar Sigurðsson
12, Skarphéðinn Eiriksson 9, Tryggvi
Jónsson 6, Rúnar Guöjónsson 4, Sveinn
Steinsson 3, Ingimar Jónsson 2.
Áhorlendur: 100
1. deild kvenna:
Haukar-KR......'.......59-44
ÍR.............14 11 3 792-645 22
ÍBK............13 10 3 764-578 20
ÍS.............14 10 4 665-572 20
Haukar.........14 7 7 708-702 14
UMFG...........14 5 9 511-661 10
UJMFN.........14 3 11 523-614 6
KR.............15 3 12 615-806 6
Lausar stöður
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
í HEILSUGÆSLUNNI
Lausar eru tíl umsóknar eftirtaldar stöður hjúkrunar-
fræðinga í heilsgæslunni:
1. Egilsstaðir H2, staða hjúkrunarforstjóra frá 1. apríl
1988.
2. Fáskrúðsfjörður H1, hálf staða hjúkrunarfræðings
frá 1. júní 1988.
Stöðvarfjörður H1, hálf staða hjúkrunarfræðings
frá 1. júní 1988.
Umsóknir ásamt ítarler um upplýsingum um hjúkr-
unarmenntun og hjúkrunarstörf sendist ráðuneytinu
fyrir 29. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytið.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
29. febrúar 1988.
LAUSAR STÖÐUR
HEILSUGÆSLULÆKNA
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöóur heilsu-
gæslulækna:
1. Seltjarnarnes H2, ein staða frá 1. júní 1988.
2. Búðardalur H2, ein staða frá 1. september 1988.
3. Patreksfjörður H2, ein staða frá 1. júní 1988.
4. Blönduós H2, ein staða frá 1. janúar 1989.
5. Vestmannaeyjar H2, ein staða frá 1. júlí 1988.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um læknis-,
menntun og læknisstörf, sendist ráðuneytinu á
sérstökum eyðublöðum, sem fást þar og hjá land-
lækni, fyrir 1. apríl nk. í umsókn skal koma fram
hvenær umsækjandi getur hafið störf.
Nánari upplýsingar veita ráðuneytið og landlæknir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
29. febrúar 1988.
Starfsmenn og
aöstoðarmenn
óskast
Kópavogshæli.
Starfsmenn óskast sem fyrst, helst' í fullt starf. Um
er að ræða vaktavinnu.
Starfið felst í umönnun og þátttöku í þjálfun og
meðferð heimilismanna.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja reynslu
af störfum með þroskaheftu fólki.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eða yfir
þroskaþjálfi Kópavogshælis, sími 41 500.
Starfsmaður óskast í 40% vinnu við ræstingar á
Kópavogshæli. Vinnutími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur ræstingastjóri, sími 41500.
Starfsmenn vantar í borðstofu Kópavogshælis.
Vinnutími er frá kl. 8.00-16.00. Hlutavinna kemur til
greina.
Upplýsingar um starfið gefur Þuríður Hermanns-
dóttir, yfirmatráöskona eldhúss Vífilsstaðaspítala í
síma 42800.
RÍKISSPÍTAIAR
STARFSMANNAHALD