Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Qupperneq 31
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
47
Fréttir
Jarðgöng á Vestfjörðum innan fimm ára:
Áætlaður kostnaður 1 milljarður
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Fjölmennur fundur um gerö jarö-
ganga á Vestíjörðum var haldinn á
Hótel Ísafíröi föstudaginn 26. febrú-
ar. Til fundarins var boðaö af hálfu
Fjórðungssambands Vestfiröinga og
voru sveitarstjórnarmenn á norðan-
veröum Vestfjörðum sérstaklega
boöaöir til fundarins. Hann var ann-
ars öllum opinn og meðal þeirra sem
þar mættu voru þingmennirnir Sig-
hvatur Éjörgvinsson og Ólafur
Þórðarson.
Til grundvallar umræöum var lögð
skýrsla um jarögöng á Vestfjörðum
sem Björn Jóhann Björnsson, jarð-
og verkfræðingur, gerði fyrir Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga. í skýrsl-
unni er gert ráð fyrir tvíbreiðum
jarðgöngum með þremur munnum í
Breiðadal í Önundarfirði, .Botnsdal í
Súgandafirði og Tungudal í Skutuls-
firði. Gangamót verða undir Þver-
íjalli og verða göngin samtals átta
og hálfur kílómetri að lengd. Kostn-
aður er áætlaður um einn milljarður
og verktími 30 mánuðir. Ef göngin
yrðu hins vegar ein akrein meö út-
skotum myndu ekki sparas.t nema
12-15%.
Eitt þjónustusvæði
Ægir Hafberg, oddviti Flateyrar-
hrepps, var einn fundarmanna.
Hann sagði í viðtali við DV að það
væri lífsspursmál fyrir þessar byggð-
ir að jarðgöng yrðu aö veruleika.
Ægir benti á sparnað við snjómokst-
ur, sparnað vegna viðhalds á raf-
magnslínum á íjöllum, fyrir utan
allan þann sparnað $em leiðir af því
að þessar byggðir, það er Flateyri,
Þingeyri, Suöureyri og nærsveitir,
tengjast byggðinni við ísafjaröar-
djúp. Verða þau eitt þjónustusvæði
og vegalengdir milli fjarða verða sem
nemur vegalengdinni úr Breiðholti í
Reykjavík og vestur í bæ. Ægir sagði
að lokum að kostnaður við gerð
ganganna væri ekki meiri en sem
nemur umframkostnaði viö gerð
nýju flugstöðvarinnar eða með öðr-
um mælikvarða - hálf Kringlan.
Miklar umræður
Á fundinum voru haldnar fjölmargar
ræður og voru menn á einu máli um
fulla nauðsyn þessara framkvæmda
sem fyrst. í fundarlok var síðan sam-
þykkt eftirfarandi ályktun einróma:
Fundur sveitarstjórnarmanna í
ísafjarðarsýslum, Éolungarvík og
ísafirði, haldinn á ísafirði 26. febrúar
1988, fagnar eftirtöldum skýrslum
um jarðgangamál.
1. Önundarfjöröur, Súgandaljörð-
ur, ísafjarðardjúp. Frumathugun á
jarðfræðilegum aðstæðum viö gerð
jarðganga á Vestfjöröum.
2. Skýrsla nefndar um jarðgangaá-.
ætlun.
3. Jarðgöng á Vestfjöröum.
Það er álit fundarins að skýrslur
þessar varpi ljósi á áætlun um um-
fang verkefnisins. í einni skýrslunni
kom fram aö ekki yrði hægt að
tryggja fullnægjandi akvegasam-
band milli Skutulsfjarðar annars
vegar og Súgandafjarðar og Önund-
arfjarðar hins vegar nema meö
veggöngum. Fundarmenn líta því
svo á að það sé ekki lengur spurning
um hvort gera eigi jarðgöng heldur
að ljúka nauösynlegum undirbún-
ingsrannsóknum og hefjast handa
um framkvæmdir.
Fundurinn bendir á að á fyrr-
greindu svæði eru búsettir nálega
tveir af hverj um þremur Vestfiröing-
um og með veggangatengingu verði
svæðið samfellt atvinnu- og þjón-
ustusvæði auk þess sem möguleikar
til félagslegra samskipta munu stór-
aukast.
Fundurinn skorar á alþingi íslend-
inga (samgöngumálaráðherra) að
taka nú þegar ákvörðun um gerð
tvíbreiöra jarðganga milli Skutuls-
fjarðar, Súgandafjarðar og Önundar-
fjarðar og tryggja jafnframt fjármagn
til verksins þannig að því verði lokiö
eigi síðar en 1993.
°rvarnar
Ekíð er Irm a
1
í tilefni opnunarinnar bjóöum við nýja
vetrarhjólbarða frá Marshal á einstöku
verði. Að auki fá þeir sem kaupa 4 stk
- eða fleiri - 60% afslátt af skiptingu,
umfelgun og jafnvægisstillingu.
Verð án afsláttar á dekk:
SKIPTIIMG...............KR.135,-
UMFELGUIM...............KR. 250,-
JAFIMVÆGISSTILLIIMG.....KR. 250,-
MARSHAL - VERÐSKRÁ
VETRARHJÓLBARÐAR
Radial 135x13 kr. 1.835,-
Radial 145x13 kr. 1.850,-
Radial 155x12 kr. 1.760,-
Radial 155x13
Radial 165x15 kr. 2.235,-
Radial 175x13 .....kr. 2.100,-
Radial 135x14 kr. 2.590,-
OPNUN í DAG
NÝTT HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI
HÖFUM EIIMIMIG FLEIRI GERÐIR AF MARSHAL OG DUIMLOP HJÓLBÖRÐUM.
PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA
Með kveðju frá verkstjóra okkar,
Bjarna Snbjörnssyni, sem áður
starfaði í Skeifunni.
VIÐ FYRIR YKKUR!
HAGBARÐIIIF.
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI - ÁRMÚLA 1 QARÐHÆÐ)
SIMI 68-73-77
I ~ |