Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Page 36
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Lionel Ritchie
- söngstjarnan fræga - á
heima í Los Angeles og hann
fer öðru hverju í fátækrahverf-
in þar, gengur um á milli
fátæklinga og gefur þeim
nokkra dollara. Þetta þykir af-
skaplega vel gert hjá þessum
manni og hefur mælst vel fyr-
ir enda hafa oft birst myndir
af honum í blöðunum við
þess iðju sína. Rætnar tungur
segja aftur á móti að það sé
engin tilviljun að góðverkin
séu dregin fram í dagsljósið
því það sé Lionel Ritchie sjálf-
ur sem hringi i Ijósmyndara
fyrir hverja för.
Marlon Brando
lítur töluvert stórt á sig síðan
hann tók hæstu laun sem sög-
ur fara af fyrir léik í kvikmynd.
Það var í kvikmynd um Super-
man þar sem hann fékk yfir
einn milljarð króna fyrir. Þegar
hann fékk kvikmyndatilboð
nýlega fyrir 120 milljónir
króna hafnaði hann því á þeim
forsendum að hann ynni ekki
á verkamannalaunum.
Debbie Harry
var ein vinsælasta söngkona
heims þegar hún var í hljóm-
sveitinni Blondie. Hún hefur
gefið út sólóplötur en þær
hafa þótt lakari en plötur
hljómsveitarinnar og smám
saman hefur hallað undan
fæti hjá henni. Hún gaf þó
út lag sem náði nokkrum vin-
sældum fyrir nokkru, French
Kisses in USA. Til þess að
drýgja tekjurnar hefur Debbie
tekið að sér að koma fram í
franskbrauðsauglýsingum
vestanhafs.
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
Hertogahjónin af Jórvík, Sara
Ferguson og Andrew prins, sem eru
í opinberri heimsókn í Kaliforníu,
heimsóttu kvikmyndaver sem sér-
hæfir sig í brellum og tækniatriðum.
Leikarinn frægi, Dudley Moore,
var fylgdarsveinn þeirra og dældi úr
sér bröndurum sem Andrew og
Fergie kunnu vel að meta. Síðan
kynnti hann þau fyrir vélmenninu,
Númer 5, sem lék aðalhlutverkið í
myndinni Short Circuit.
Brellusafn kvikmyndaversins var
skoðað og Sara Ferguson fékk meðal
annars að stúta flösku á höfðinu á
ritara sínum. Sú flaska er af sér-
stakri gerð sem notuð er í kvikmynd-
um og hægt er að brjóta á höfði hvers
sem er, honum að skaðlausu.
Andrew fékk einnig að prófa að setj-
ast upp í Rollercoaster-sleða sem líkti
eftir hreyfingum á kappakstursbraut
og var látinn horfa á myndband af
útsýni úr sleða á ofsahraða. Það kvað
vera allskrítin tilfinning. Andrew og
Fergie létu í ljós mikla hrifningu yfir
því hversu fiölbreytilegar brellurnar
voru.
Sara Ferguson og Andrew prins urðu hálfhissa þegar vélmennið, Númer
5, sem lék aðalhlutverkið í myndinni Short Circuit, kom og heilsaði upp á
þau í heimsókn þeirra í kvikmyndaver. Simamynd Reuter
Söru hefur örugglega þótt gaman að mölva flösku á ritara sínum, Sean
O’Dwyer, en hann meiddi sig ekkert því flaskan var af sérstakri gerð sem
notuð er í kvikmyndum og er skaðlaus með öllu. Símamynd Reuter
Önnu prinsessu, sem er í Mósambik um þessar mundir, er vel gætt á
meðan á heimsókn hennar stendur og þarf ekki einu sinni að hafa fyr-
ir því að plokka af sér skordýr sem setjast á hana i hitunum þarna í Afríku.
Jimmie Howard tókst að léttast um 225 kíló en hann vó áður 315 kíló. En
hann á svolítið aukamagn af skinni sem hann hefur ekkert að gera með.
Hætt er við að Jimmie vinni ekki
fyrstu verðlaunin i líkamsræktar-
keppni ef hann hættir sér út i þá
sálma.
Er það þess virði?
Svona var Jimmie áður en hann
byrjaði á megruninni og svei mér
þá ef hann var ekki álitlegri þannig
á sig kominn heldur en nú.
Ekki er ósennilegt að margir hætti
við megrunarkúrinn sinn þegar þeir
lesa um Jimmie Howard og sjá
myndir af honum.
Hann vó 315 kíló en fór í strangan
megrunarkúr þar sem honum tókst
að léttast um 225 kíló.
í þessum megrunarkúr varð hann
fyrir svo miklum áföllum að taka
varð úr honum gallblöðruna. Hann
var margsinnis lagður á sjúkrahús
með ýmiss konar kvilla á borð við
næringarskort og stór hluti maga
hans var fiarlægður.
En hann er afskaplega ánægður þvi
nú vegur hann 90 kíló og segist vera
í sama þyngdarflokki og Tom
Selleck.
Ef menn hafa verið að velta fyrir
sér hvað verður um skinnið á mjög
feitu fólki þegar það fer í megrun-
arkúr þá fæst svarið hér á þessum
myndurn. Jimmie ráðgerir þó að láta
fiarlægja megnið af því með skurðað-
gerð. Eftir það ætlar hinn 41 árs
gamli Jimmie að leita sér að konu,
því hann hefur enga átt hingað til
og segist hann sjálfur ekki vera hissa
á því.