Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988.
9
Utlönd
Stórsigur George Bush
Ólafur Amarson, DV, New Yorlc
Ekkert nema undur og stórmerki
virðist nú geta komið í veg fyrir að
George Bush, varaforseti Bandaríkj-
anna, verði frambjóðandi Repúblik-
anaflokksins í forsetakosningunum í
haust. Bush vann í gær sigur í for-
kosningunum í sextán af þeim
sautján ríkjum sem kosið var í. Það
var aðeins í tveimur ríkjum sem
Robert Dole veitti Bush einhveija
keppni, Oklahoma og Missouri. í
nótt var BuSh síðan einnig úrskurð-
aður sigurvegari þar.
Yfirburðir Bush voru gífurlegir.
Þegar htið er á samanlögð atkvæði
frambjóðenda í ríkjunum sautján,
þegar mikill meirihlutj atkvæða
hafði verið talinn, hafði Bush hlotið
rúmlega tvær milljónir atkvæða eða
56 prósent. Dole hafði hlotiö níu
hundruð og fimmtíu þúsund atkvæði
eða 24 prósent og Pat Robertson hafði
hlotið tæplega fimm hundruð þús-
und atkvæði eða um 13 prósent:
Þessi úrsht færa Bush 571 fulltrúa
á flokksþing repúblikana sem haldið
verður í New Orleans í sumar. Dole
fær 100 fulltrúa og Robertson 10.
Hefur Bush nú fengið 697 fulltrúa
aUs, Dole 164, Jack Kemp 35 og Pat
Robertson 18. Til að hljóta útnefning-
una þarf 1139 fuUtrúa.
. í sumum ríkjum er fyrirkomulagið
shkt hjá repúblikönum að sigurveg-
ari hlýtur alla fuUtrúa þess ríkis.
Prósentutölur segja því ekki aUa sög-
una. í stóru ríkjunum tveimur, Texas
og Flórída, fékk Bush alla fulltrúana
og Dole sat eftir með sárt ennið.
Bush var að vonum ánægður méð
sigur sinn í gær. Sagði hann sigurinn
hafa farið fram úr sínum björtustu
Robert Dole getur nú liklega gefið allar vonir sinar um útnefningu sem
forsetaefni repúblikana upp á bátinn. Símamynd Reuter
George Bush sigurreifur þegar fyrstu tölur fóru að berast úr forkosningunum í gær.
Símamynd Reuter
vonum og lýsti því yfir að hann yröi
næsti forseti Bandaríkjanna.
Robert Dole játaði sig sigraðan í
biU. Hann bindur nú vonir við að
vinna sigur í IlUnois eftir viku. Dole
var bitur í gærkvöldi og sagði að
þrátt fyrir ósigur sinn sýndu kann-
anir aö hann væri sá maður sem
Uklegastur væri tU að sigra fram-
bjóðanda demókrata í forsetakosn-
ingunum í haust. Stjórnmálaskýr-
endur telja þó að eftir þennan ósigur
í gær eigi Dole enga möguleika, Bush
sé einfaldlega kominn með of mikið
forskot.
Pat Robertson viðurkenndi í gær-
kvöldi að hann hefði beðið nokkurn
hnekki. Svartsýni virðist hins vegar
ekki hamla Robertson því hann seg-
ist viss um að hann verði valinn
frambjóðandi repúblikana fyrir
kosningarnar í haust.
Jack Kemp beið afhroð í gær og
búist er við að hann tUkynni á morg-
un að hann dragi sig í hlé.
Pat Robertson hlaut ákaflega litinn stuðning í forkosningunum, mun minni
en hann hafði gert sér vonir um. Simamynd Reuter
heldur einungis í hlutfalU við at-
kvæöatölu sína.
Ef litið er á heildaratkvæði fram-
bjóðenda úr ríkjunum tuttugu sigr-
aði Albert Gore með 27 prósent
atkvæða. Dukakis og Jackson hlutu
26 prósent en Gephardt rak lestina
með 13 prósent. Ef fulltrúatalan er
skoðuð hlaut Dukakis 365 fuUtrúa í
gær, Jackson 352, Gore 319 og Gep-
hardt 94. Staðan er sú að samtals
hefur Michael Dukakis hlotið 436
fulltrúa, Jackson 381 og Gore
337.
Baráttan er greinilega hörð hjá
demókrötum og á pappímum virðist
aUt geta gerst. Stjórnmálaskýrendur
telja þó að Michael Dukakis eigi nú
langmesta möguleika á útnefningu.
Ástæöan er sú að hann hefur nú sýnt
fram á að hann á stuðning í öUum
hlutum Bandaríkjanna.
Menn telja að Albert Gore verði
nú að gera það upp við sig hvort
hann vill fara í hatramma baráttu
við Dukakis um plássiö eða hvort
hann er tilbúinn að sætta sig við að
vera varaforsetaefni í þetta sinn og
bíða sjálfur betri tíma.
Almennt er tahð að Jesse Jackson
eigi ekki möguleika á útnefningunni
en hann viröist hins vegar hafa svo
mikinn stuðning að á flokksþingi
demókrata í sumar gæti farið svo að
Jackson verði í oddaaðstöðu og geti
ráðið hver frambjóðandi flokksins
verður. Þetta getur gerst ef enginn
einn frambjóðandi fær yfir 50 pró-
sent fuUtrúa.
Ólafur Amarson, DV, New York:
Michael Dukakis, Alhert Gore og
Jesse Jackson skiptu sigrum í for-
kosningum demókrata í gær bróður-
lega á mUU sín. Richard Gephardt
beið hins vegar mikinn ósigur og er
talið að hann eigi sér varla viðreisn-
ar von eftir útreiðina í gær.
Demókratar héldu í gær forkosn-
ingar í tuttugu ríkjum. í nótt höfðu
Dukakis og Gore verið úrskurðaðir
sigurvegarar í sex ríkjum hvor en
Jackson í fimm. Gephardt sigraði
einungis í heimaríki sínu, Missouri.
Það var Dukakis sem sigraði í stóru
ríkjunum tveimur, Texas og Flórída,
en þar sem reglur eru öðruvísi hjá
demókrötum en repúbUkönum hlaut
hann ekki aUa fulltrúa þessara ríkja
Afhroð Richards Gephardt kom
nokkuð á óvart. Líklegt er taUð að
peningaleysi hans hafi þar ráðið
mestu. Mótframbjóðendur hans
sameinuðust gegn honum og Gep-
hardt hafði hreinlega ekki nægilega
peninga til að svara árásum sem
beint var gegn honum. Af öðrum
frambjóðendum demókrata má
nefna að Paul Simon var að forminu
til þátttakandi en hann lagði enga
áherslu á að auglýsa sig upp enda
auralaus með öllu. Árangur hans var
í samræmi við það. Gary Hart rak
alls staðar lestina.
Eitt virðist ljóst. Á næstu vikum
stefnir í skemmtilega og spennandi
baráttu miUi Dukakis, Jacksons og
Gores sem nú virðast alUr hnífjafn-
ir.
Jesse Jackson fagnar hér sigri í fimm fylkjum. Simamynd Reuter
Mikhael Dukakis varð sigurvegari í sex fylkjum.
Símamynd Reuter
Gephardt beið afhroð