Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988.
35
r>v Fólk í Fréttum
Sigurðarson
Jón
Jón Sigurðarson, forstjóri Ála-
foss hf., hefur verið í fréttum DV
vegna sölusamninga Álafoss við
sovéska samvinnusambandið á ull-
arvörum. Jón er fæddur 12. mars
1952 í Rvík og lauk prófi í efnaverk-
fræði frá Danmarks Ingeniöraka-
demi 1977. Hann var framkvæmda-
stjóri Plasteinangrunar á Akureyri
1977-1980, aðstoðarframkvæmda-
stjóri skinnaverksmiðjunnar
Iðunnar á Akureyri 1980-1981 og
framkvæmdastjóri 1981-1985.
Hann var bæjarfulltrúi á Akureyri
1982-1986 og framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar SÍS á Akureyri
1985-1988. Jón hefur verið í stjórn
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri frá 1982 og formaður frá 1986.
Hann hefur verið stjórnarformað-
ur Plasteinangrunar frá 1985 og í
stjórn Kaffibrennslu Akureyrar frá
1985. Jón hefur verið í stjórn Þró-
unarfélags íslands frá 1986 og í
stjóm Útflutningsráðs íslands frá
1986. Jón hefur verið í stjórn ís-
lensks markaðar frá 1986 og for-
stjóri Álafoss frá 1. janúar 1988.
Jón kvæntist 19. júlí 1976 Sigríði
Svönu Pétursdóttur, f. 26. septemb-
er 1952. Foreldrar hennar eru Pétur
Pétursson, hagfræðingur í Rvík, og
kona hans, Erla Tryggvadóttir.
Börn Jóns og Sigríðar eru Sigurður
Bjarni, f. 9. janúar 1976, Guðrún
Erla, f. 24. janúar 1979, og Pétur
Már, f. 17. apríl 1980.
Systkini Jóns eru Regína, f. 2.
október 1953, gift Þorkatli Björns-
syni, mjólkurfræðingi á Húsavík,
Helga, f. 11. desember 1954, gift
Benedikt Sigurðssyni, skólastjóra
Barnaskóla Akureyrar, Bjami, f.
7. júní 1959, d. 20. ágúst 1979, og
Erla, f. 17. desember 1964, nemi í
hótelstjórn í Bandaríkjunum.
Foreldrar Jóns eru Sigurður
Jónsson, b. og kennari á Ystafelli,
og kona hans, Kolbrún Bjamadótt-
ir kennari. Föðurbróðir Jóns er
Jónas búnaðarmálastjóri. Faðir
Sigurðar var Jón, b. og rithöfundur
á Ystafelli, Sigurðssonar, b. og ráð-
herra á Ystafelli, Jónssonar, b. á
Litluströnd við Mývatn, Árnason-
ar, b. á Sveinsströnd viö Mývatn,
Arasonar, b. á Skútustöðum við
Mývatn, Ólafssonar, föður Kristj-
önu, móður Jóns Sigurðssonar á
Gautlöndum. Móðir Sigurðar ráð-
herra var Þuríður Helgadóttir, b. á
Skútustöðum, Ásmundssonar, ætt-
fóður Skútustaðaættarinnar.
Móðir Jóns á Ystafelli var Krist-
björg Marteinsdóttir, b. á Hofsstöð-
um Við Mývatn, Halldórssonar, b.
á Bjamastöðum í Bárðardal, Þor-
grímssonar. Móðir Marteins var
Vigdís Hallgrímsdóttir, b. í Hraun-
koti í Aðaldal, Helgasonar, ætt-
föður Hraunkotsættarinnar. Móðir
Kristbjargar var Kristín Jónsdótt-
ir, þjóðfundarmanns á Lundar-
brekku, Jónssonar, prests í
Reykjahlíð, Þorsteinssonar, ætt-
fóður Reykjahlíðarættarinnar.
Móðir Kristínar var Kristbjörg
Kristjánsdóttir, b. og dbrm. á 111-
ugastöðum í Kinn, Jónssonar,
föður Sigurðar, langafa Bjama
Benediktssonar forsætisráðherra.
Móðir Sigurðar var Helga Frið-
geirsdóttir, b. á Þóroddsstöðum í
Kinn, Kristjánssonar, fóður Hildar,
ömmu Jóns A. Baldvinssonar
sendiráðsprests.
Kolbrún er dóttir Bjarna læknis
í Rvík, Bjarnasonar, b. á Geita-
bergi, Bjarnasonar, b. á Stórabotni,
Helgasonar, b. á Stórabotni, Erl-
Jón Sigurðarson.
ingssonar, bróður Erlings, langafa
Þórmundar, fóður Jónatans pró-
fessors. Helgi var einnig bróðir
Sveins, langafa Guðríðar, móður
Margrétar Guðnadóttur prófess-
ors. Móðir Bjarna læknis var
Sigríður, systir Beinteins, föður
Sveinbjarnar skálds. Sigríður var
dóttir Einars, b. í Litlabotni, Ólafs-
sonar. Móðir Einars var Ragnhild-
ur Beinteinsdóttir, lögréttumanns
á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimund-
arsonar, b. í Hólum í Stokkseyrar-
hreppi, Bergssonar, b. í Brattholti,
Sturlaugssonar, ættföður Bergs-
ættarinnar. Móðir Kolbrúnar var
Regína leikkona, systir Sigurðar
tónskálds, föður Þóröar, forstöðu-
manns Reiknistofu bankanna.
Regína var dóttir Þórðar, kaup-
manns í Rvík, bróður Ragnheiðar,
móður Jóns Leifs tónskálds. Þórð-
ur var bróðir Böðvars, afa Ragnars
Bjarnasonar söngvara. Þórður var
sonur Bjarna, b. á Reykhólum,
Þórðarsonar, bróður Gísla, langafa
Klemenzar Jónssonar leikara.
Móðir Þórðar var Þórey Pálsdóttir,
b. á Reykhólum, Guðmundssonar,
bróður Þorbjargar, langömmu Ól-
afs Thors forsætisráðherra. Móðir
Þóreyjar var Jóhanna Þórðardótt-
ir, systir Jóns Thoroddsens skálds.
Móðir Reginu var Hansína Linnet,
hálfsystir Axels, afa Ásmundar
Vilhjálmssonar, framkvæmda-
stjóra Vinnumálanefndar ríkisins.
Hansína var dóttir Hans Linnets,
bókhaldara í Hafnarfirði, Hansson-
ar Linnets, kaupmanns í Hafnar-
firði, bróður Christiane, ömmu
Regínu, ömmu Gunnars Bjarna-
sonar ráðunautar og langömmu
Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra
DV. '
Afmæli
Jóhannes Stefánsson
Jóhannes Stefánsson, fyrrv.
framkvæmdastjóri á Neskaupstað,
er sjötíu og fimm ára í dag. Jóhann-
es fæddist á Nesi í Norðfirði. Hann
var var framkvæmdastjóri Sam-
vinnufélags útgérðarmanna og
Olíusamlags útvegsmanna í Nes-
kaupstað 1953-81. Hann var jafn-
framt um tveggja ára skeið
framkvæmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar hf. og Nesútgerðar hf. Þá var
hann framkvæmdastjóri Söltunar-
félagsins Áss 1960-68. Jóhannes sat
í stjórn Síldarvinnslunnar frá
stofnun hennar 1957 til 1985 og var
formaður hennar lengst af. Jó-
hannes var bæjarfulltrúi í Nes-
kaupstað 1938-74 og forseti
bæjarstjórnar 1958-74. Þá var hann
í stjórn Sparisjóðs No.rðfjarðar, í
skólanefnd, fræðsluráði 1942-62 og
formaður fræðsluráðs í tólf ár.
Hann var formaður Byggingafélags
alþýöu 1943-61 og bókavörður í
Neskaupstað í nokkur ár. Jóhann-
es var í framboði í alþingiskosning-
um fyrir Sósíalistaflokkinn og
Alþýðubandalagið 1942-59. Hann
var formaður Verkalýðsfélags
Norðijarðar og íþróttafélagsins
Þróttar um margra ára skeið og í
stjórn sambandsráðs ÍSÍ um skeið.
Þá sat hann í stjórn Sambands
austílrskra sveitarfélaga og form-
aður þar 1974.
Kona Jóhannesar er Soffia
handavinnukennari, f. 10.2. 1921,
dóttir Björgúlfs, verkamanns í Nes-
kaupstað, Gunnlaugssonar og
konu hans, Ólafar Guðmundsdótt-
ur.
Jóhannes og Soffia eiga tvo syni:
Valgarður sjómaður, f. 1942,
kvæntur Nawast Margarian og Ól-
Jóhannes Stefánsson.
afur, kennari og blaðamaður á
Morgunblaðinu, f. 1948, kvæntur
Þórdísi Stephenssen, en þau eiga
þrjá syni.
Systkini Jóhannesar: Helga, f.
1911, gift Finni Magnússyni, kaup-
manni á ísafirði; Ólöf, f. 1915, en
hún býr á Svalbarði í Neskaupstað
og stundaði lengst af verslunar-
störf; Sveinbjörg, f. 1916, húsmóðir
í Reykjavík, gift Birni Bjarman rit-
höfundi; Karl, f. 1919, er látinn, en
hann var lengi verslunarmaður hjá
Sambandinu og var kvæntur Heiði
Aðalsteinsdóttur; Garðar, f. 1924,
er látinn, en hann var skrifstofu-
maður hjá Síldarvinnslunni í
Neskaupstað; Auðbjörg, f. 1925, gift
Hallgrími Þórarinssyni, yfirvél-
stjóra hjá Síldarvinnslunni í
Neskaupstað; Hreinn, f. 1929, mál-
ari í Neskaupstað, ekkjumaður
eftir Elísabetu Guðnadóttur.
Foreldrar Jóhannesar voru Stef-
án Guðmundsson, íshúsvörður í
Neskaupstað, f. 1881, d. 1955, og
kona hans, Sesselja Jóhannesdótt-
ir, f. 1889, d. 1974. Systir Sesselju
v'ar Auður, móðir Matthíasar
Bjarnasonar ráöherra. Foreldrar
Sesselju voru Jóhannes, b. á Nolli,
Guðmundsson og kona hans, Guð-
björg Björnsdóttir, b. í Pálsgerði,
Loftssonar, b. í Litlagerði, Bessa-
sonar. Systir Guðbjargar var
Guðrún, móðir Hákarla-Jörundar
sem var afi þeirra systkina Bjarna
Pálssonar, fóður Jónasar, forseta
NLFÍ, Hreins, óperusöngvara og
forstjóra Olís, Gests leikara, Guö-
rúnar, konu Héðins Valdimarsson-
ar og móður Bríetar leikkonu, og
Gunnars, skrifstofustjóra hjá H.
Benediktssyni. Jóhannes á Nolli
var sonur Guðmundar, b. á Nolli,
Stefánssonar, b. í Fagrabæ, Eyjólfs-
sonar, b. í Fagrabæ, Arnfinnsson-
ar.
Föðurafi Jóhannesar var Guð-
mundur í Fannardal, Magnússon,
b. á Kirkjubóli í Norðfirði. Bróðir
Magnúsar var Jón, afi Jóns Ólafs-
sonar, ritsjóra og skálds. Faðir
Magnúsar var Guðmundur, b. á
Bessastöðum í Fljótsdal, þ.e. Lyga-
Gvendur er sagði skröksögur í
anda Munchausens, Magnússon,
b. á Kollstöðum, Högnasonar, bróð-
ur Guðrúnar, langömmu Boelar,
langömmu Geirs Hallgrímssonar.
Guðrún var einnig langamma Þor-
bjargar, langömmu Arnþórs, fóður
Vals, stjórnarformanns SÍS. Þá var
Guðrún amma Páls á Sléttu, afa
Páls, afa Kjartans Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
ílokksins, og Harðar Einarssonar,
forstjóra Frjálsrar íjölmiðlunar.
75 ára
Jónína Þorgrímsdóttir, Illugagötu
23, Vestmannaeyjum, er sjötíu og
fimm ára í dag.
40 ára
Auður Gústafsdóttir, Jöldugróf 8,
Reykjavík, er fertug í dag.
Gunnar H. Loftsson, Suðurhólum
26, Reykjavík, er fertugur í dag.
Kristín Bjarnadóttir, Eyktarási 4,
Reykjavík, er fertug í dag.
Margrét Kolbeinsdóttir, Miðvangi
87, Hafnarflrði, er fertug í dag.
Guðjón Hauksson, Hjallavegi 1 L,
Njarðvík, er fertugur í dag.
Soffia Daníelsdóttir, Ártúni 7,
Sauðárkróki, er fertug í dag.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisböm og aðstandendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir.
Sigurður
Skúlason
Sigurður Skúlason bifreiöastjóri,
Oddabraut 16, Þorlákshöfn, er sex-
tugur í dag. Sigurður fæddist í
Reykjavík og fluttist að Kirkjuferju
í Ölfusi tólf ára með foreldrum sín-
um. Hann byrjaði ungur að aka hjá
Mjölni í Hveragerði en ekur nú fyr-
ir Ölfushrepp. Kona Sigurðar er
Gréta Sigfúsdóttir. Foreldrar henn-
ar eru Sigfús Jónsson á Akureyri,
sem nú er látinn, og kona hans,
Brynhildur Þorláksdóttir. Börn
Sigurðar og Grétu eru Skúli, býr á
Eskifirði, kvæntur Hjördísi Svav-
arsdóttur, Halldór, býr í Kópavogi,
kvæntur Guðnýju Kúld, og Svan-
hildur, býr i Þoríákshöfn, gift
Sævari Sigursteinssyni. Systkini
Sigurðar voru fimm og eru þau öll
látin. Foreldrar Sigurðar eru Skúli
Sigurðsson, f. 1889, bifreiðastjóri
hjá Þrótti í Rvík og b. á Kirkju-
ferju, og kona hans, Svanlaug
Einarsdóttir, f. 1908. Þau Sigurður
og Gréta verða að heiman í dag.
Steinar
Sigurjónsson
Steinar Sigurjónsson rithöfund-
ur er sextugur í dag. Steinar
fæddist á Hellissandi. Hann hóf
prentnám í Hrappseyjarprenti 1946
og starfaði þar í eitt ár en vann síð-
an við Prentverk Akraness og lauk
þaðan prófi 1950. Steinar fór til
Akureyrar og dvaldist þar um
skeið en starfaði síðan við prent-
verk hjá Hólum og Víkingsprenti
en hætti þá prentverki og sneri sér
að ritstörfum. Steinar dvaldist svo
erlendis um skeið og vann þá m.a.
við prentverk í Svíþjóð, á Irlandi,
í Þýskalandi og í Danmörku.
Helstu skáldverk hans: Hér erum
við, 1955; Ástarsaga, 1958; Ham-
ingjuskipti, 1964; Fellur að, (dul-
nefni Bugði Beygluson), ljóð, 1966;
Skipin sigla, ’ (dulnefni. Bugði
Beygluson), 1966; Blandað í svartan
dauðann, 1967; Brotabrot, 1968;
Farðu burt skuggi, skáldsaga, 1971.
Steinar gaf út tímarit um bók-
menntir og menningarmál er hann
nefndi Óreglu.
Steinar á tvær dætur. Þær eru
Elísabet Harpa, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 13.1. 1949, gift Ástþóri
Ragnarssyni smið, og Sigríður,
meinatæknir og húsmóðir í Sví-
þjóð, f. 9.4. 1952, gift Einari Þór-
hallssyni lækni.
•Foreldrar Steinars: Sigurjón
Kristjánsson skipstjóri, f. 25.8.1902,
og kona hans, Sigríður Vilhelmína
Ólafsdóttir, f. 6.5. 1904. Föðurfor-
eldrar Steinars voru Kristján
Kristjánsson á Bíldudal og kona
hans, Stefanía Stefánsdóttir. Móð-
urforeldrar Steinars voru Ólafur,
Steinar Sigurjónsson.
b. á Fossi utan Ennis, Magnússon,
sjómaður og bóndi, og kona hans,
Oddný, systir Guðrúnar, lang-
ömmu Guðrúnar, móður Sigurðar
Guðmundssonar, forstjóra Hús-
næðisstofnunar ríkisins. Oddný
var dóttir Björns Gestssonar, b. á
Þorkelshóli í Víðidal, og konu hans,
Halldóru Sigfúsdóttur. Ólafur var
sonur Brokeyjar-Magnúsar Guð-
mundssonar og konu hans, Ing-
veldar Gísladóttur. Halldóra var
dóttir Sigfúsar Bergmann, b. og
hreppstjóra á Þorkelshóli, ættfóður
húnversku Bergmannsættarinnar,
fóður Guðrúnar, ömmu Guðmund-
ar Björnssonar landlæknis og
langömmu Bjarna, afa Ingimundar
Sigfússonar, forstjóra Heklu.