Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 2
26 MÁNUDAGUR 14. MARS 1988. íþróttir Muggur á mánudegi: > Valsmenn sluppu lýrirhom Knattspymusambandið steig í vetur stórt skref í þá átt að koma í veg fyrir skort á dómurum. Fé- lögum var gert skylt að útvega einn dómara fyrir hvem flokk sem sendur væri í íslandsmótið. Tækist það ekki yrði viðkomandi félag að draga einn flokk út úr mótinu fyrir hvem dómara - og byrja á meistaraflokki! Ég hef frétt að víöa hafi oröið handa- gangur í öskjunni - og hvergi meiri en hjá sjálfum íslands- meistumnum, Valsmönnum. Þeir stóðu frammi fyrir þvi að eiga ekki nógu marga dómara og þá hefðu þeir ekki fengiö aö senda liö sitt í 1. deildina næsta sumar! Eftir talsveröan taugatitring var málinu bjargaö fyrir hom og Val- ur fær að verja meistaratitil- inn. Einn kom á leikinn í Digranesi Körfuknattleikslið Breiðabliks á ekki miklu tylgi að fagna þó það • Eini áhorfandinn i Digranesi klappar fyrir sinu iiði. DV-mynd G.Bender leiki í úrvalsdeildinni og svo virö- ist sem Kópavogsbúar hafi litinn áhuga á körfuboltaíþróttinni. Breiöablik fékk fyrir skömmu sjálfa íslandsmeistarana, Njarö- víkinga, i heimsókn í bikar- keppninni, en ekki var aðdráttar- afl þeirra né heimaliðsins mikið. Einn einasti áhorfandi lét sig hafa þaö að mæta og sitja á áhorf- endapöllunum - en ekki fer sögum af stemmningunni. Sviptingar í máli Websters Sviptingamar í máli ívars Websters körfuboltamanns hafa verið harla einkennilegar. Fyrst var hann einungis víttur af hér- aðsdómstóii, síðan dæmdur í 7 vikna bann af dómstóli KKÍ og aö lokum leystur úr því banni af dómstóli íþróttasambandsins. Sem betur fer er ekki hægt að koma fyrir fleiri dómsstigum og málið ætti því að vera úr sögunni - nema því verði næst skotið til Alþjóðadómstólsins í Haag. . . Atli steig bylHan stríðsdans Þó oft hafi sigri verið fagnað gifurlega í Laugardalshöllinni hafa fáir stigið jafntrylltan dans og Atli Hilmarsson, landsliðs- maður úr Fram, gerði á laugar- daginn, eftir að hann hafði skorað sigurmark Fram gegn ÍR í 1. deildinni í handbolta á síðustu sekúndunni (eða síðar). Hallar- gólfið sjálft dugöi ekki Atla, hann tók á rás upp um áhorfendabekk- ina með ailt Framliðið á hælun- um - enda ætti þaö nú að vera að mestu laust úr fallhættunni sem hefur þjakaö það svo mjög í vetur. Og ég get auðveldlega sett mig í spor Atla. Hann lenti með liandlegginn í gifs strax eftir fyrsta leik íslandsmótsins í haust, Framliðið hefur verið á eða við botninn í deildinni til skamms tíma - og i ÍR-leiknum hafði Atla mistekist í fimm tilraunum í röð að koma boltanum framhjá Hrafni ÍR-markveröi. Þar til skot- ið góða rataöi rétta leiö á örlaga- stundu. L_ mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm rnmm bJ Körfuknattleikur - NBA-deildin: Liði San Antonio tvívegis skellt um helgina Lið San Antonio Spurs tapaði.tvívegis um helgina, fyrst gegn Cav- aliers, 117-107, og síðan gegn Chicago Bulls, 112-92. Fyrri leikurinn var tvísýnn og vel leikinn en Cavaliers náði að knýja fram sigur með frábærri vítanýtingu í síðasta íjóröungnum. Pétur lék með í 16 mínútur í þeim leiknum og gerði 6 stig. Gegn Chicago náði Pétur sér hins vegar aldrei á strik fremur en San Antonio liðið í heild sinni: „Ég var í byrjunarliðinu en þetta var samt einn af þeim dögum sem maður sér litla ástæðu til að geyma sér í minni. Ég lenti strax í villuvandræðum og fór snemma á bekkinn, gerði þó tvö stig áður en að því kom,“ sagði Pétur í samtali við DV í gær. -JÖG • Stúdentar búa sig undir að verjast KA-smassi í leiknum á Akureyri á föstudagskvöldið. ÍS náði að sigra, 3-2, og eftir tap Þróttara fyrir HK í gær geta þrjú lið orðið jöfn og efst í karlafiokki, ÍS, Þróttur og HK. DV-mynd Gylfi Kristjánsson Úrslitakeppni íslandsmótsins í blaki: HK stöðvaði Þrött - sigraði 3-1 í Digranesi. Úrslit milli Víkings og UBK í kvennaflokki HK-menn komu í veg fyrir að Þrótt- arar tryggðu sér íslandsmeistaratit- ilinn í gærkvöldi með sigri í Digranesi, 3-1. HK-menn byrjuðu þó ekki vel og misstu þeir Skjöld Vatnar út af vegna meiðsla strax í fyrstu hrinu og kom hann ekki meira inn á í leiknum. Þetta hafði vond áhrif á liðið sem fann sig ekki í fyrstu hrin- unni og fór hún 15-5 fyrir Þróttara. Þeir komu hins vegar mun ákveðn- ari til leiks í þeirri næstu og komust í 10-2. Þeir voru svo yfir, 14-9, en gekk illa að fá síðasta stigið og voru Þróttarar komnir með 13 stig þegar það loksins tókst. Þriðja hrina var svo mjög jöfn þó svo að Þróttarar væru alltaf örlítið yfir. Þeir komust í 14-12 en þá skoraði HK ijögur næstu stig og tryggði sér sigur í hrinunni, 16-14, og átti Vignir Hlööversson þá góöan kafla. Við þetta virtust Þrótt- arar brotna niður og HK vann næstu hrinu nokkuð auðveldlega, 15-8. Kristján Arason átti góðan leik fyrir HK en Þróttararnir voru allir frekar daufir og áttu HK-menn sigurinn fyllilega skilinn. • Eftir leiki helgarinnar er ljóst að það verða hreinir úrslitaleikir milli Vikings og Breiðabliks um ís- landsmeistaratitilinn í kvennaflokki. Sá fyrri er á miðvikudaginn og sá seinni á sunnudaginn. Þessi hð unnu bæði báða sína leiki um helgina og eru með átta stig eftir fjóra leiki. A laugardaginn lenti Breiðablik j miklu basli með ÍS. ÍS-stúlkurnar sigruðu í fyrstu tveimur hrinunum, 15-10 og 15—4, og leit allt út fyrir ör- uggan sigur hjá þeim. Þær komust meira að segja í 14-12 í þeirri þriðju en náðu ekki að gera út um hrinuna og sigraði Breiðablik í henni 17-15. Við þetta misstu ÍS-ingar móðinn og Breiðablik sigraði í leiknum með því að vinna næstu tvær hrinur 15-7 og 15-8. • Víkingur sigraði hins vegar Þrótt nokkuð auðveldlega í þremur hrinum. Þær fóru 15-10,15-4 og 15-9. • í gær lék svo Víkingur við ÍS. Víkingar byijuðu leikinn mjög vel og sigruðu í fyrstu hrinunni, 15-1. Eftir það jafnaðist leikurinn og fór næsta hrina 15-11 fyrir Víking. Þá vann ÍS næstu tvær hrinur, 15-13 og 15-11. í úrslitahrinunni voru Víking- ar aftur mun ákveðnari og sigruðu í henni, 15-5. • Breiðablik vann svo Þrótt auð- veldlega í þremur hrinum og hafa stúlkurnar í Þrótti tapað öllum leikj- um sínum í úrslitakeppninni. Hrinumar fóru 15-10,15-9 og 15-2. • Staðan í karlaflokki er þannig: Þróttur.............5 4 1 13-9 8 ÍS..................5 3 2 13-10 6 HK..................5 3 2 11-10 6 KA..................5 0 5 7-15 0 v* Staðan í kvennaflokki er þannig: UBK.................4 4 0 12^ 8 Víkingur............4 4 0 12-5 8 ÍS..................5 1 4 10-14 2 Þróttur.............5 0 5 4-15 0 B „Klaufar að tapa“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við vorum klaufar að tapa þess- um leik, menn þoldu ekki spennuna í síðustu hrinunni og létu einnig dómgæsluna fara í taugarnar á sér í stað þess að einbeita sér að leikn- um,“ sagði Haukur Valtýsson, þjálf- ari og leikmaður blakliðs KA, eftir að KA hafði tapað 2-3 fyrir ÍS í úrsli- takeppninni á Akureyri um helgina. Leikur liðanna var ágætlega leik- inn og spennandi. ÍS sigraði í fyrstu hrinunni með 15-9, KA með sömu tölum í 2. hrinu og ÍS í þeirri 3. með sömu tölum. KA vann síðan 4. hrinu 15-8 og því þurfti 5. hrinuna til að fá úrslit. í þeirri hrinu virtust KA-menn vera að gera út um leikinn, komust í 11-8 en síðan ekki söguna meir. ÍS skoraði 7 síöustu stigin og vann því hrinuna 15-11 og leikinn þar með 3-2. Haukur sagðist vera bjartsýnn á framhaldið hjá KA þrátt fyrir að lið- ið væri nú úr leik í úrslitakeppninni. Liðið þyrfti að fá sér góðan þjálfara fyrir næsta vetur en sjálfur sagðist Haukur ætla að hvíla sig á þjálfun- inni þótt hann yrði leikmaður áfram. _ Hollandsför íslenska OL-liðsins: Islenska OL-landsliðið lagði áhugamannalið SDW Amsterdam - Halldór Áskelsson skoraði sigurmark íslands íslenska ólympíulandsliðið vann sigur á áhugamannaliðinu hol- lenska, SDW Amsterdam, í gær, 2-1. íslendingar urðu fyrri til að $kora í leiknum og var Þorvaldur Örlygs- son þar aö verki. Hollendingarnir náðu að jafna metin en Halldór Áskelsson gerði sigurmark íslend- inga nokkru síðar. „Leikurinn bar þess merki að keppnistímabilið er langt frá því haf- ið á íslandi. Menn eru ekki í neinu leikformi enda hafa þeir aöeins stundað úthaldsæfingar og einhverja knattspyrnu á gervigrasi sem mjög er frábrugðin hinni sem leikin er á eðlilegum velli," sagði Sigfried Held, landsliðsþjálfari íslands, í spjalli við DV í nótt. „íslenska liðið var engu að síður betra en það hollenska en það má ljóst vera að vinna er framundan hjá leikmönnum ætli þeir aö ná þeim styrk og því leikformi sem til þarf ef leggja á sterkari andstæðinga. ís- lenska liðiö er nú í engri leikþjálfun og það er vandinn sem við er að glíma. Markmið ferðarinnar er að láta strákana spila á grasi og öðlast leikæfingu jafnhliða því. Við eigum erfiða leiki framundan við Holland og A-Þýskaland, báða í endaðan apríl. Ferðin er liður í undirbúningi fyrir þá leiki,“ sagði Sigfried Held. -JÖG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.