Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 16
40 MÁNUDAGUR 14. MARS 1988. Iþróttir Lany Bird vill leggja af þriggja stiga skoUínuna - hefur samt rakað saman aurum með skotum sínum utan línunnar Larry Bird var spuröur að því um daginn hvað honum fyndist virki- lega um regluna sem gefur leik- mönnum 3 stig fyrir að hitta úr skotum utan 7 metra línunnar en Bird hefur einmitt verið iðinn við að skióta af því færi. Hann svaraði þvi til að hann væri hlynntur körfubolta eins og hann var leikinn í upphafx. Það er tvö stig fyrir öll skot nema úr vít- um. Þá minntist blaðamaður 3ja stiga skotkeppninnar sem Bird hef- ur unnið þijú ár í röö og hefur sú keppni gefið honum 35 þúsund dali í vasann: „Þeir ættu að breyta regl- unni en halda áfram aö hafa keppnina,“ sagði kappinn þá meö bros á vör. • Það kom loksins að því að Bill Russel var rekinn úr starfi sem þjálfari hjá Sacramento Kings. Að- stoðarmaður hans var ráöinn í hans stað. Russel er þó hreint ekki atvinnulaus því hann skrifaöi und- ir sjö ára samning við Sacramento og ætlaði aldrei að vera þjálfari lengur en í þrjú ár. Síðan áttí hann að ganga inn í stjóm félagsins. Nú verður þvi bara flýtt. Nýi þjálfar- inn, sem heitir Jerry Reinholds, var ráðinn sem bráðabirgöaþjálfari í fyrra þegar aðalþjálfarinn, sem þá sat við stjórnvölinn, var rekinn. Viö hans starfi tók síðan áður- nefndur Russel og gerði hann Reinholds að hægri hönd sinni. En núna var Russel sem sé rekinn og Reinholds gerður að aðalþjálfara á nýjan leik. Og til að kóróna þetta allt saman réð Reinholds þessi þann mann sem rekinn var í fyrra úr starfi aðalþjálfara í starf aðstoð- armanns síns. Þetta er furðuleg veröld. • Leikmaðm- vikunnar var Boddy Hansen hjá Utah Jazz. Hann skorar 21 stig aö meðaltali í leik og er með 82% nýtingu í skotum. Hann hiálpaði Utah Jazz til að vinna fjóra leiki í röð. Hann hefur verið varamöur lengst af í vetur en hljóp í skarðið fyrir Kelly Tripucka þegar sá síðamefndi meiddist. Hann nýtti sem sé heldur betur tækifærið. • Það virðist ekkert ætla að stoppa Lakers í vetur nema þeir sjálfir. Þeir hafa nú unnið 49 af fyrstu 60 leikjunum og hefúr eng- inn náö jafhgóðum árangri nema Port Land Trail-Blazers veturinn 77-78. Þeir í Port Land unnu þá 50 af fyrstu 60 leikjum sínum. LA La- kers heföu sjálfsagt unnið 60. leikinn og þá sinn 50. á tímabilinu heföi Magic Johnson náð að spila allan leikinn. Hann átti hins vegar við nárameiösl að striða og var ekki með nema í 10 mínútur gegn Chicago Bulls. Það var ekki að spuija að því, töframaðurinn og LA tapaði með 20 stigum. • Menn eru sammála um það aö Riley hafi aldrei verið betri sem stjómandi Lakers-liðsins. Hann á það því fyllilega skihð að verða kjörinn þjálfari ársins. Það er heið- ur sem Riley hefúr ekki hlotið enn. Þegar hann var fyrst ráðinn sem þjálfari öfunduðu hann allir því menn sögðu aö hann þyrfti ekki annað en að rúlla boltanum út á gólf og horfa á alla þessa frábæm leikmenn leika listir sínar. En það hefur tekiö hann sjö ár aö sann- færa menn um það að hann er maður sem tekur starf sitt mjög Larry Blrd er litt hrifinn at þvi að fá þrjú stig í stað tveggja fyrir aö hitta ofan i körfuna af löngu færi. • Boston Celtics undirbýr sig nú ákaft fyrir úrshtakeppnina. Liðið hefur góða forystu 1 sínum riöh en þá vantar reynda varamenn. Þess vegna em þeir að vona að Bih Walton, einn leikmaöur þeirra, verði tilbúinn þegar á hólminn eftir. Eftir 60. leikinn það árið braut hann á sér vinstri fótinn og hefur ekki verið samur síðan. Það þurfti að endurbyggja vinstri fótinn þá en það tókst svo vel að hann lét gera sömu aðgerð á hægra fáeti í fyrrasumar. Nú er hann næstum Pétur Guðmundsson hjá San Antonio Spurs skrifar um NBA-körfuna: alvarlega og Lakers hefði ekki náð þetta langt ef krafta Riley hefði ekki notið við. Vitanlega hjálpaði það þó að hafa menn eins og Magic og Jabbar á sinum snærum. verður komið. Walton réð úrshtum þegar Celtics varð meistari 1986, hann var miðherji hjá Port Land 1977 þegar hðið vann NBA-titihnn og náði áðumefndum árangri árið thbúinn í slaginn. Hann mætti í Boston í vikunni, brúnn og sælleg- ur eftir að hafa hlaupið á strönd- inni í San Diego í allan vetur. Sjáumst að viku liðinni, - Pétur. „Það hefur alltaf vilja brenna við hjá kvenfólkinu að æfa ekki eins mikið og karlarnir og er þar mest um að kenna leti.“ Lárus H. Lárusson, samtökum fyrstu deildar félaganna: Það er áhyggjuefni sumra hve langt HSÍ hehir vaxið fvá félögunum Þegar hringt var í mig og ég beðinn að stinga niður penna varð ég hálf- undrandi en fannst eftir smáum- hugsun að ágætt væri að segja hug minn og kannski fleiri forráðamanna handknattleiksfélaga á HSÍ og starf- inu þar. Kannski kemur strax fram í þessari fyrstu setningu mikið mál. Við sem stöndum aö málum félag- anna tölum nefnilega yfirleitt um stjórn HSÍ í þriðju persónu. Það er áhyggjuefni sumra hve langt HSÍ hefur vaxið frá félögunum. Á stund- um heldur maður að stjóm HSÍ telji sig vera eitthvert „apparat" sem sé óháð félögunum, vilja þeirra og starfi. Innan HSI virðist vera ríkj- andi sú skoðun að A-landshö karla sé númer eitt, tvö og þrjú og annað skipti einfaldlega ekki máli. STUNGK) Viö eigum vissulega mjög gott A- landslið og hefur verið vel að því staðið undanfarin ár. En hvernig standa málin hjá öðrum íslenskum landsliðum. Gaman verður að fylgj- ast með kvennahðum íslands á næstu árum því í fyrsta skipti á að gera alvöru úr þessu og ráðinn hefur verið erlendur þjálfari, Zlavko Bam- bir, til þess verkefnis. Það er þó ekki nóg að ráða þjálfara, það verður aö koma til breyttur hugsunarháttur hjá stelpunum sjálfum. Þaö hefur hefur alltaf vilja brenna við hjá kven- fólkinu að æfa ekki eins mikið og karlamir og er þar mest um að kenna leti. Það er mjög gott mál að byija ein- mitt á ungu stelpunum strax - því það eru þær sem eiga að taka við - og nota þeim til styrktar þær örfáu sem eitthvað geta og spha í landshð- inu núna. Yngri karlalandshðin hafa valdið okkur áhugamönnum þessarar íþróttar miklum áhyggjum og get ég nefnt þrjú dæmi. Fyrsta dæmið er þegar 21 árs lið karla féh úr undan- keppni heimsmeistaramótsins á móti Norðmönnum. Fyrst unnum við þá hér heima með tveimur mörkum en töpuðum svo stórt úti. í ööru lagi frammistaða unglingalandshðsins á síðast ári en því var þá af mörgum spáð fyrsta sæti á Norðurlandamót- inu sem fór fram hér heima í apríl. Liðið hefði að mínu viti átt að sigra í keppninni. í þriðja lagi var það svo frammistaða íslenska unghngahðs- ins í heimsmeistarakeppninni í Júgóslavíu en í hana komum við inn bakdyramegin eftir að Argentínu- 'menn höfðu hætt við þátttöku. Þar unnum við aðeins einn leik og lent: um í 16. sæti. Það var skammarlegur árangur. Ég ætla ekki að fara að kenna neinum sérstökum um þessi 'þrjú „slys“ en mikið held ég að það NIDUR sé tímabært hjá HSÍ að gefa nýjum mönnum tækifæri við þjálfun og stjórnun unghngahða. Það er ljóst að HSÍ er annað tveggja stærstu sérsambanda innan ÍSI og hefur atorka formanns og annarra innan sambandsins verið gríðarlega mikU á undanfómum ámm. Þó held ég að skynsamlegt sé að þessir menn fari aðeins aö spá í framtíðina. Ejár- austurinn í sambandinu er gífurleg- ur en þó hefur ekki borið á miklum framkvæmdum í þá átt að tryggja framtíöinni veganesti. Sem dæmi hefur HSÍ aðeins einu sinni haldið B-þjálfaranámskeið í vetur. Ekki man ég eftir að HSÍ hafi verið með A-þjálfaranámskeið undanfarin ár. Það -hlýtur að vera nauðsynlegt, ef við ætlum að hafa kunnáttufólk í störfum leiðbeinenda, að það hafi sótt námskeið í viðkomandi íþrótta- grein. Ég vona'að þessi mál fari aö breytast. Dómaramál hafa verið til umræðu eftir aö Viggó Sigurðsson, þjálfari FH, geystist fram á ritvölhnn og skammaði „svörtu greyin" á vellin- um. Dómararnir tóku þetta að sjálf- sögðu nærri sér og svöruöu fyrir sig. Ekki ætla ég að taka þátt í þessum ritsmíðum heldur æfia ég að velta fyrir mér þeirri spumingu hvernig dómaranefnd HSÍ heldur utan um þessi mál eða öllu heldur hvemig dómaranefnd HSÍ heldur ekki utan um þau. Það er ljóst að ef dómarar hér á landi eiga að vera góðir þurfa þeir visst aðhald. Það á að gerast með effirfarandi hætU. Það er nauð- synlegt að hafa próf á hverju ári fyrir landsdómara, bæði faglegt, þ.e. . spurningar, munnlegar og skrifleg- ar, svo og líkamlegt, þá þol- og snerpupróf. Þetta hefur ekki verið gert í vetur. Þá er einnig nauösynlegt fyrir dómara að koma saman á 30-60 daga fresU til að skiptast á skoðun- um, til að fá gagnrýni og spjalla viö samverkamenn um hvað sé rétt og hvað rangt. Það hefur aðeins verið haldinn einn fundur í vetur og fór minnstúr tími hans í að ræða innlend dómaramál. Þetta verður að breytast því svona fundi vilja dómarar hafa. Ég þekki engan dómara sem ekki hefur áhuga á að gera sitt besta og er til í að leggja talsvert á sig th þess að veröa góður. Handboltinn hefur tekið talsverðum framfórum í vetur og hafa dómarar fuhan vilja th að fylgja með í þeirri þróun. Með vinsemd og virðingu, Lárus H. Lárusson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.