Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 12
36 MÁNUDAGUR 14. MARS 1988. Auglýsing Fjármálaráðuneytið óskar eftir að ráða fólk til starfa. í boði eru fjölbreytileg störf sem snerta m.a. eftirtalin viðfangsefni ráðuneytisins: Skattamál Tollamál Kjara- og launamál Starfsmannamál Skýrslugerð og tölfræði Áætlanagerð Rekstrareftirlit Lífeyrismál Menntun í lögfræði, hagfræði eða skyldum greinum er æskileg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknum skal komið til fjármálaráðuneytisins, Arn- arhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 28. mars nk. Fjármálaráðuneytið Sjúkraliðar ósKast tíl starfa Barnaspítali Hringsins. Sjúkraliðar óskast á barnadeildir nú þegar eða eftir samkomulagi. Litlar, þægilegar deildir og góð vinnuaðstaða. Góður aðlögunartími. Fjölbreytt og áhugavert starf. Sveigj- anlegur vinnutínji. Einnig óskast sjúkraliðar til sumarafleysinga. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda- stjóri, Hertha W. Jónsdóttir, sími 29000-285. Landspítalinn, kvennadeild. Sjúkraliðar óskast á meðgöngudeild 23-B frá 1. maí nk. Vaktavinna, allar vaktir 60% starf og næturvaktir 50-60% starf. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda- stjóri, María Björnsdóttir, sími 29000-509. RÍKISSPÍTAIAR STARFSMANNAHALD oskast til starfa Handlækningadeild, Landspítala. Læknaritari óskast í fullt starf á handlækningadeild Landspítalans. Vinnutími 8.00-16.00. Starfið felst í ritun sjúkraskráa, læknabréfa og að- gerðalýsinga (allt unnið af segulbanai), auk ýmissa almennra skrifstofustarfa. Umsækjendur þurfa að hafa stúdentspróf eða hlið- stæða menntun. Umsóknir sendist til skrifstofustjóra handlækninga- deildar Landspítalans eigi síðar en 24. mars nk. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Ingimundardóttir skrifstofustjóri eða Katrín Þórðardóttir læknafulltrúi, sími 29000-350. Geðdeild Landspítalans að Kleppi. Óskum að ráða fulltrúa í fullt starf á skrifstofu Berg- iðjunnar að Kleppi. Vinnutími frá 8.00-16.00. Fulltrúinn sér um launaútreikninga og útborgun auk almennra skrifstofustarfa. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður, Jóhannes Sigurðsson, sími 38160-93 eða 37. RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHALD fþróttir Elkjær var ekki svona hress i vikunni sem leið en þá gekk hann af velli fýldur mjög og lét reiði sína bitna á hverjum þeim sem á vegi hans varð. Preben Elkjær í eins leiks bann: Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi; Preben Elkjær, danski sóknarmað- urinn hjá Verona á Ítalíu, hefur verið dæmdur í eins leiks bann í Evrópu- keppni og missir því af seinni leikn- um gegn Werder Bremen næsta miðvikudag. Ástæðan er allskrautleg framkoma hans eftir tapið í fyrri leiknum í síðustu viku. Þegar leiknum lauk byijaði Elkjær á að segja nokkur vel valin orð við annan línuvörðinn. Síðan tók hann bolta og henti í Otto Rehhagel, þjálf- ara Bremen. Á leið sinni í lyfjapróf rétt á eftir ýtti hann harkalega við Lemke, framkvæmdastjóra Bremen, með þessum orðum: „Þið Þjóðveijar eruð hræðilegt fólk og hafið ekkert lært af seinni heimsstyijöldinni!“ Eftirhtsmaður frá UEFA varð vitni aö öllum þessum ósköpum og sagði að ekki væri hægt að leiða hjá sér svona framkomu. Sennilega eins gott fyrir Elkjær að láta ekki sjá sig í Þýskalandi á næstunni! Knattspyma: Olsen kyrr hjá Köln Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi: Morten Olsen, danski landsliðs- fyrirliðinn, komst í fyrrakvöld að samkomulagi við Köln um að leika með félaginu eitt ár í viðbót. Hann er 38 ára gamall og Köln hafði ekki viljað ganga að fjárhagskröfum hans nema utanaðkomandi aðilar hlypu undir bagga og það gekk upp í fyrra- dag. Áður hafði verið leitt getum að því að Olsen tæki við sem landslið- seinvaldur Dana að lokinni Evrópu- keppninni í sumar. ítalir öruggir? ítalir tryggðu enn betur stöðu sína í forkeppni ólympíuleikanna í knatt- spyrnu með því að vinna sigur á Hollendingum á útivelli, 0-1. Liðin leika í sama riðh og íslendingar. Knattspyma er í verulegri framfór á Ítalíu eftir nokkra lægð í kjölfar sig- urs í heimsmeistarakeppni árið 1982. Vera má að með komu Maradona og annarra snihinga hafi knattspyrnan risið á nýjan leik þar í landi. Preben Elkjær Larsen. Morten Olsen. Það er uppsveifla í italska boltanum. Skrautieg fram- koma efdr tapið gegn Bremen DV Erlendir frétta- stúfar e Hagnaður af vetrarólympíu- leikunum í Calgary mun vera um 30 milljónir dohara. Annað og betra hjá Kanadamönnum en árið 1976 þegar þeir töpuðu stórfé á sumarleikunum í Montreal en dropi í hafíð miðað við hagnað bandarískra af sumarleikunum í Los Angeles 1984 sem var um 235 milljónir dohara! # Gestgjafar heimsmeistara- keppninnar í knattspymu árið 1994 veröa útnefndir þann 4. júh í sumar. Með þeirri dagsetningu telja margir einsýnt aö Alþjóða knattspymusambandið, FIFA, ætíi Bandaríkjamönnum þá keppni því 4. júlí er þeirra þjóð- hátíðardagur. Brasiha, Marokkó og Bandaríkin berjast um að hreppa hnossið. eGlynis Nunn frá Ástralíu, ólympíumeistari í sjöþraut kvenna 1984, getur ekki varið titil sinn á leikunum í Seoul í haust. Hún meiddist hla í bílslysi fyrir hálfum mánuði og á ekki mögu- leika á að taka þátt í úrtöku- keppni fyrir leikana sem fram fer síðar í þessum mánuöi. # Ben Crenshaw tryggði sér sigur í Doral Open golfmótinu, sem lauk í Miami, Florida, á sunnudaginn, með glæshegu sex metra pútti. Hann lék síðasta hringinn á 66 höggum og var með 274 högg samtals. Chip Beck og Mark McCumber voru á hælum hans með 275 högg og Raymond Floyd lék á 276 höggum. # Roswitha Steiner, frá Aust- urriki, tryggði sér á sunnudaginn heirasbikarinn í svigi kvenna með því að sigra á lokamótinu í Aspen í Coloradofylki í Banda- ríkjunum. Hún fékk 87 stig í sviginu, Vreni Schneider frá Sviss 80 og Anita Wachter frá Austurríki 75 stig. Þetta var sæt- ur sigur fyrir hina 24 ára gömlu Roswithu því hún haföi ákveðið að hætta keppni aö þessu tima- bih loknu. e Christine Meier, frá Vestur- Þýskalandi, sigraði í stórsvigi kvenna í Aspen á mánudaginn. Blanca Femandez-Ochoa frá Spáni varð önnur og Ulrike Mai- er, frá Austurríki, þriðja. Þetta breytti ekki mjög stöðu efstu kvenna í stigakeppni stórsvigs- ins, Catherine Quittet frá Frakk- landi er fyrst með 78 stig, Vreni Schneider frá Sviss önnur meö 76 og Mateja Svet frá Júgóslavíu þriðja með 62 stig. t Brigitte Oertli frá Sviss er með forystu i stigakeppni heims- bikarsins eftir síðustu helgi. Hún er með 202 stig en síðan koma löndur hennar, Michela Figini með 194 stig og Vreni Schneider með 185. # Fornfræg félög raða sér f toppsæti ensku 4. deildarinnar í knattspymu þessa dagana. Wol- ves er efst, Cardiff í öðra sæti, Bolton í þriðja og Burnley í fjórða. Einhvern tíma hefði þetta getað verið staða efstu höa 1. deildar en þessi fjögur lið mega svo sannarlega muna sinn fífil fegri! í efstu sætura 3. deildar eru líka tvö af rötgrónustu félögum efstu knattspymunnar, Sunder- land og Notts County. e Maurice Evans, fram- kvæmdastjóri Oxford, sagði starfi sínu lausu á þriðjudaginn en féllst á að vera við stjómvölinn iar til eftírmaður hans fyndist. Oxford hefur ekki unnið leik í 1. deild ensku knattspyrnunnar sið- an í nóvember. e Manchester City vann góðan útisigur á Sheffield United, 2-1, í 2. deild ensku knattspymunnar á iriðjudag. Bamsley vann Bo- umemouth 2-1 og Birmingham tapaði 0-1 fyrir W.B.A. Grimsby vann Rotherham, 2-1, í 3. deiid.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.