Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 6
30 MÁNUDAGUR 14. MARS 1988. Iþróttir „Sé aðeins eftir því að hafa fomað skólagöngunni" - segir Jón Óðinn Óðinsson sem hehir unnið einstakt þrekvirki í júdóþjálfun unglinga á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: A Islandsmóti unglinga og kvenna, sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi, unnu keppendur frá KA til 13 gullverð- launa af 21 gullverðlaun- um sem keppt var um. Keppendur KA á þessu móti voru 36 talsins og þeir unnu til 35 verðlauna á mótinu. Þetta er vægast sagt stórkostlegur árang- ur. Maðurinn á bak við þennan árangur og önn- ur afrek Akureyringa í júdó á undanfórnum árum heitir Jón Óðinn Óðinsson og er 24 ára gamall. Það sem hann hefur gert er sennilega einsdæmi í íþróttum hér á landi og þótt víðar væri leitað, það sjáum við hér á eftir. „Þá kunni ég ekkert“ „Ég fór að æfa júdó árið 1982, aðal- lega vegna þess að tveir kunningjar mínir, sem æfðu júdó, notuðu mig oft sem æfingabrúðu. Þetta kom því til af illri nauðsyn," segir Jón Oð- inn. En hvemig kom það til að hann var farinn að þjálfa þá yngri eftir að hafa sjálfur aðeins stundað júdó í 2 mánuði? „Ég fór að aðstoða hollenskan þjálfara sem þjálfaði hér á Akur- eyri. Hann átti oft erfitt með að komast á æfingar og þá hljóp ég í skarðið. .Auðvitað kunni ég ekki neitt þá en ég fékk strax geysilegan áhuga á þjálfun og fór að lesa mér til. Eg er því algjörlega sjálfmennt- aður, mest af bókum.“ Á nýjar slóðir En tímarnir liðu og strákunum íjölgaöi sífellt sem æíðu undir stióm Jóns Óöins. Þar kom að þeir ákváðu að halda til keppni í Reykjavík, á íslandsmót unghnga 1985. „Ég hafði þá aldrei séð keppni í júdó utan Akureyrar. Ég vissi því htið út í hvað ég var að fara með strákana en vissi að þetta yrði próf- steinn á það sem ég hafði verið að kenna þeim, hvort það væri rétt. Fyrstu kynni mín af forustu- mönnum í júdó þarna voru ekki beint uppörvandi. Ég hitti einn þeirra á mótsstað og sagði honum að ég væri kominn með hóp Akur- eyringa á mótið eins og talað hafði verið um. Hann spurði mig hver væri þjálfari hópsins og þegar ég sagði honum að ég væri þjálfarinn sagði hann: „Nú, þið eigið við þjálf- aravandamál að stríða fyrir norðan." En hvaö sem til var í því þá unnum við 6 af 8 guhverðlaun- um á mótinu og sveitir frá KA urðu einnig í tveimur efstu sætunum í sveitakeppninni.“ Ljón í veginum Þaö voru ekki allir thbúnir að við- urkenna Jón Óðin sem þjálfara á þessum árum, ungling að norðan sem sjálfur hafði aðeins hvítt belti í íþróttinni. „Þaö áttu margir bágt með að sætta sig viö það að einhver strákhvolpur að noröan, sem ekk- ert kynni, kæmi með hóp sem stæði sig svona vel. Jú, þetta voru menn í forustunni. Þetta viðhorf var einnig til fyrir norðan og þegar við komum heim með gullverðlaunin sagði t.d. einn forustumaður í íþróttalífi á Akureyri viö mig: „Ég hélt að þið kynnuð ekki neitt í þess- ari íþrótt.“ Vandræði með „gráða- reglur“ „Við hér fyrir norðan sömdum sér- stakar gráðareglur sem voru miðaðar við að iðkendur væru allt niður í 5 ára aldur. Þeir fyrir sunn- an byrja hins vegar ekki með stráka í júdó fyrr en þeir eru orðn- ir 10 ára og þeir vildu ekkert með þessar reglur okkar gera þótt þær hefðu verið samþykktar á ársþingi júdómanna. Viðkvæðið var að þeir hefðu ekkert með reglur að gera sem samdar væru af strákum úti á landi, þeir sem væru búnir að vera í 10 ár í júdó. Svo fór að þessar reglur voru felldar niður og það hefur skapað vandræði. Sem dæmi um það get ég nefnt að ég er með 7 ára stráka sem eru komnir með appelsínugult belti (3. gráðu) og svo gæti fariö að þeir yrðu komnir með brúnt belti (næstefstu gráðu) 10 ára. Að sjálf- sögðu er þetta vandamál. Margfaldir meistarar Afreksmannahópurinn hans Jóns Óðins er oröinn stór þótt hann hafi ekki þjálfað mjög lengi. Auðveldast er að benda á tvo úr hópnum, þá Frey Gauta Sigmundsson og Auð- jón Guðmundsson sem eru 16 ára en samt margfaldir íslandsmeistar- ar. „Ég er í dag með 18 stráka á aldr- inum 14-19 ára sem hafa þegar náð mjög langt og eru allir margfaldir meistarar. Fleiri yngri eru á leið- inni og í þeim hópi eru margir mjög efnilegir sem eiga eftir að ná langt og þá er ég að tala um að þeir eigi eftir að standa sig vel á alþjóðlegum vettvangi. Margir þessara stráka hafa orðið íslandsmeistarar undanfarin ár og eru famir aö setja svip sitt á mót fullorðinna þótt þeir séu ungir að árum. Við erum því farnir að hta • Jón Óðlnn Oöinsson, þjálfari júdómanna á Akureyri, hefur gert kraftaverk nyrðra. hefur verið meðal júdómanna fyrir norðan og þeir eru jafnan sigursælir á mótum. Gífurlegur uppgangur DV-mynd GK/Akureyri til útlanda og sl. vor fór ég með hóp á alþjóðlegt mót í Svíþjóð fyrir 14—18 ára. Þar fengum við einn 14 ára á verðlaunapall. Við förum aft- ur á þetta mót í vor, þá með stærri hóp, og ég sé ekkert því til fyrir- stöðu að strákarnir fari að líta á þaö sem raunhæft markmið að sigra á mótum erlendis.“ Alltaf þjálfað kauplaust „Nei, ég 'hef aldrei fengið kaup fyr- ir að þjálfa," segir Jón Óðinn. Til að gera grein fyrir því hverju hann hefur fórnað má nefna að eitt árið gerði hann ekkert annað en að þjálfa júdómenn og lesa sér til um íþróttina. Hann hefur einn byggt upp stórveldi í íþróttinni á Akur- eyri og núna eyðir hann á bhinu 40-60 klukkustundum við þjálfun í júdó. „Ég sé ekki eftir þessum tíma. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki getað klárað mitt nám. Ég var í Menntaskólanum á Akureyri, fór síðan í Verkmenntaskólann og ætl- aði aö klára þar mitt nám. Þá vann ég einnig sem dyravörður á veit- ingastað og var á kafi í júdóinu og dæmið gekk ekki upp. Þegar ég hafði eitt sinn vakað í 4 sólarhringa varð eitthvað að gefa eftir og ég lamaðist í andhtinu. Þá varð eitt- hvað að gera og ég ákvað að gefa náminu frí. En erfiöleikamir eru léttvægir miðað við ánægjuna sem þetta hef- ur veitt mér. Eg hef fengiö mjög mikið út úr þessu starfi og á meðan ég finn að ég er að bæta mig sem þjálfari er ég ekkert á þeim buxun- um að hætta.“ Heragi á æfingum „Agi í íþróttum er mjög mikilvæg- ur og reyndar grundvallaratriði að mínu mati. Eg legg því mikla áherslu á það atriöi. Fimm ára strákarnir þurfa t.d. að geta fleira en glímt þegar þeir taka sitt fyrsta próf. Ég hef áhrif á mataræði þeirra og þeir skila mér kvittun frá foreld- rum sínum um að þeir taki lýsi. Einnig verða þeir að geta þagað í klukkustund. Það er sjálfsagt erfitt fyrir stráka á þessum aldri en þeir láta sig hafa það. Annars byggi ég þjálfunina að mjög miklu leyti á tækniæfingum og þeir fá lítið að glíma fyrstu árin. Ég lít svo á aö ánn frá 5-14 ára séu þau ár sem á aö nota til að byggja strákana upp tæknilega, að þeir öðhst alhliða tækni. Þetta er lykill- inn að þeim árangri sem ég hef náð. Fær loks aðstoð Lengst af hefur Jón Óðinn mátt reka júdó á Akureyri einsamah og ganga í öll verk. Mikil breyting varð hinsvegar á þegar júdódeild var stofnuð hjá KA á siðasta ári og nú greiðir félagið t.d. alla æfinga- tíma. Þá hefur verið stofnað félag foreldra sem eiga stráka í júdó og Jón Óöinn bindur miklar vonir við það félag. „Þaö starf á eftir að aukast og skila sér betur í framtíðinni. Mér fannst hins vegar að ég gæti ekki farið fram á mikla aðstoö frá öörum fyrr en ég væri búinn að sanna mig sem þjálfara," segir Jón Óðinn. Tölurnar varðandi það segja aht sem segja þarf. í fjórum síðustu íslandsmótum hafa keppendur frá Akureyri unnið 44 gullverðlaun. Segir það ekki aht sem segja þarí?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.