Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Page 3
MÁNUDAGUR 14. MARS 1988.
27
I>V
ívar Webster laus úr leikbanninu:
B ^ U ^
^ i iiDuinii i
landsliðið“
„Þaö er gífurlegur léttir fyrir mig aö vera laus úr leikbanninu og
það verðui’ ólýsanleg ánægja að fá aö leika þijá síöustu leiki Hauka
í úrvalsdeildinni,“ sagði ívar Webster körfuknattleiksmaður í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
Dómstóll ÍSl felldi niður það sem eftir var af 7 vikna banni ívars
sl. fóstudag, en samkvæmt úrskurði dómstóls KKÍ átti hann að vera
í bcpmi til 1. apríl. ívar getur því leikið með Haukum gegn KR, ÍR
og Breiðabliki og það kemur Hafnarfjarðarliðinu vel í baráttumú
um sæti í úrslitakeppninni.
ívar sagöi í samtali við DV fyrir skömmu að vegna leikbannsins
ætlaöi hann ekki framar aö gefa kost á sér í íslenska landsliðiö. í
gærkvöldi sagði hann hins vegar: „Ég var of fljótur á mér aö gefa
út þá yfirlýsingu og ég bið alla afsökunar á henni. Ég er íslendingur
og stoltur af því að leika með landsliöinu ef ég kemst í það og ég
gef svo sannarlega kost á mér. í landsliöinu eru frábærir strákar
sem gaman er aö leika með. Nú stefni ég á úrslitakeppnina með
Haukunum, viö eigum mjög góða möguleika á að komast í hana. Ég
er búhm að æfa með liðinu aö undanfórnu og bæti nú viö mig til
að vera í sem bestu formi.“ -VS
Ólafur Haukur Ólafsson úr KR sigraði í
bikarglímu Islands sem háð var á laugardaginn eftir harða úrslitarimmu
við Þingeyinginn Eyþór Pétursson. Þátttaka i glimunni var góð og myndin
sýnir Gest Gunnarsson, HSK, hefja Sverri P. Guðnason, KR, á loft í flokki
10-12 ára. Sekúndubrotum síðar lá Sverrir í gólfinu og Gestur varð sigurveg-
ari i þessum flokki. DV-mynd Brynjar Gauti
Enn Islandsmet hjá Ragnheiði:
Fékk silfur á
meistaramóti
háskóianna
Eggert Bogason, DV, Bandaríkjunum:
Frjálsíþróttakonan Ragnheið-
ur Olafsdóttir tók á laugardag
þátt í bandaríska háskólameist-
aramótinu sem fram fór innan-
húss. Hljóp hún í 3000 metra
halupi og varö önnur. Bætti
Ragnheiður íslandsmet sitt um
4,5 sekúndur, hljóp á 9:07,02 mín-
útum. Keppnina vann Vicky
Hubert og voru hún og Ragn-
heiður í sérflokki. Var Ragnheið-
ur 9 sekúndum á undan næsta
keppenda en Vicky 11. Vicky
þessi veröur aö öllum líkindum í
landsliði Bandaríkjamanna í Seo-
ul.
Kvennasveit háskólans í Ala-
bama varð í þriðja sæti í heildar-
keppninni en Texas vann og
Villa-Nova varð í öðru sæti.
Ragnheiður var eini íslending-
urinn sem keppti á mótinu.
Lágmörk eru mjög ströng og í
mörgum tilfellum mun hærri en
viðmiðunartölur vegna óíympiu-
leikanna í Seoul.
Utanhússmótin hejast um
næstu helgi og er Ragnheiður í
mjög góðu formi og til alls líkleg.
Hún hefur sett íslandsmet í fimm
af sex hlaupum sem hún hefur
tekið þátt í nú í vetur.
íþróttir
• Þórdís Edwald mundar spaðann í leiknum gegn Bandarikjamönnum, rétt áður en hún varð fyrir meiðslunum.
DV-mynd G. Bender
Landsliðssigur gegn Bandaríkjunum í badminton:
Þórdís meiddist og
missir af All England
íslendingar sigruðu Bandaríkja-
menn í badminton á fóstudag, 4-1.
Leikurinn fór fram í húsi TBR í
Reykjavík og voru yfirburöir ís-
lensku keppendanna talsverðir. Eini
vinningur gestanna varö til vegna
meiðsla Þórdísar Edwald en hún
mátti gefa leik sinn við Lindu
French:
„Ég var meö álagsmeiðsl í sinafest-
ingum í fæti og mér tókst aö rífa
festingarnar í leiknum við Lindu
French,“ sagði Þórdís í spjalli við DV
um helgina.
„Ég verð frá keppni í nokkrar vik-
ur vegna þessa og missi af All
England mótinu sem hefur verið óop-
inbert heimsmeistaramót í badmin-
ton árum saman. Ég vona bara að
ég verði orðin góð af þessum meiðsl-
um fyrir Évrópumótið og íslands-
mótið en þau fara bæði fram í vor,“
sagði Þórdís.
Keppni íslands og Bandaríkjanna
hófst annars með einvígi Brodda
Kristjánssonar og Chris Jogis en sá
bandaríski er margfaldur meistari í
heimalandi sínu. Broddi vann Jogis
þennan án teljandi erfiðleika, 15-7 og
15^8.
í tvíliðaleik karla unnu síðan þéir
Árni Þór Hallgrímsson og Ármann
Þorvaldsson þá John Britton og
Chris Jogis. Var það eini tvísýni leik-
urinn í keppni þjóðanna enda kom
þar upp eina oddalotan. Leikar fóru
15-9,9-15 og 15-9. í tvíliðaleik kvenna
báru þær Elísabet Þórðardóttir og
Inga Kristjánsdóttir sigurorð af þeim
Lindu French og Pamelu Owens, 15-8
og 15-10.
í tvenndarleiknum, sem var síöasta
viðureignin í landskeppninni, lögöu
síðan þau Inga Kjartansdóttir og
Guðmundur Adolfsson þau Pamelu
Owens og John Britton aö velli, 15-13
og 15-11.
-JÖG
•fr 11
BLAÐ
BURDARFÓLK
it í
1t i
itiit
1t1t1t 1t1t1t1f1t
Stangarholt
Skiphoit 2-28
Stórholt
Brautarholt
Nóatún 24-34
Sólheima 1-23
Goðheima
t ^ ^ ^
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
1t 1t 1t 1t
SIMI 27022