Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Side 5
MÁNUDAGUR 14. MARS 1988.
29
dv__________________________________________________íþróttir
Kristján Arason í harðri baráttur í leik gegn Kiel.
Handknattleikur - V-Þýskaland:
Stjömuleikur Krisljáns kom
Gummersbach í toppsætið
- Sigurður Sveinsson gerði sigurmark Lemgo í Göppingen
Diisseldorf vann Hofweier, 20-14.
Dusseldorf hafði góða forystu lengst
af en undir. lokin var þetta oröið
nokkuð tvísýnt því liði Hofweier óx
sífellt fiskur um hrygg. Dusseldorf
náði þó að knýja fram sigur í lokin
en eftir talsvert basl. Páll Ólafsson
átti góðan leik og gerði 4 mörk.
Alfreð sterkur að vanda
Essen vann öruggan sigur á Gross-
wallstad, 22-17. Alfreð var sterkur í
vöm Essen að vanda og átti góðan
leik í sókninni, skoraði 5 mörk og
átti auk þess fjölmargar línusending-
ar sem gáfu mörk:
„Við stefnum nú á að komast sem
lengst áfram í deildinni og minnka
bihð milli okkar og toppliðanna,"
sagði Alfreð Gíslason í spjalli við DV
í gær. „Annars leggjum við höfuð-
þunga á Evrópukeppnina en í henni
höfum við náð ágætum árangri á
tímabilinu," sagði Alfreð.
V-þýskt úrvalsdeildarfélag hefur rætt við Jóhann Inga:
Tek endanlega ákvörðun í apríl
-segir Jóhann sem hefur auk þesstilboðfrá Basel og Dankersen
Jóhann Ingi Gunnarsson, hand-
knattleiksþjálfari í V-Þýskalandi,
hefur í ýmsu að snúast þessa dag-
ana. Nokkur félög hafa leitað eftir
kröftum hans síðustu vikurnar en
Jóhann var sem kunnugt er settur
af sem þjálfari landsmeistaranna í
Tusem Essen fyrr í vetur.
Meðal þeirra hða, sém leitað hafa
til Jóhanns síðustu vikm: og mánuði,
eru Dankersen, sem nú spilar í ann-
arri deildinni v-þýsku, félag úr þýsku
úrvaldsdeildinni og fyrstu deildar
hðið Basel frá Sviss.
í spjalli við DV í gær vildi Jóhann
Ingi halda nafni úrvalsdeildarhðsins
leyndu. Kvað hann máhö á við-
kvæmu stigi og þvi til lítils að færa
nafn félagsins fram í dagsljósið:
„í þessari viku mun ég ræða máhn
við þau tvö v-þýsku félög sem hlut
eiga að máli,“ sagði Jóhann Ingi í
samtali við DV! „Annað þeirra er
Dankersen en hitt, sem leikur í Bun-
desligunni, get ég ekki látið uppi um
Jóhann Ingi Gunnarsson.
hvert er að sinni. Ég reikna síöan
með að koma heim til íslands að því
loknu og þar mun ég fylgjast með
íslandsmótinu í handknattleik.
Heima ætla ég einnig að ræða við
forráðamenn nokkurra íslenskra fé-
laga. Að þvi loknu mun ég síðan
halda til Basel í Sviss og líta á að-
stæður hjá því félagi. Ég fékk tilboð
frá Basel fyrr í vetur og var það ítrek-
að við mig í fyrradag. Hvað síðan
verður ræðst í aprílmánuði en þá
mun ég taka endanlega ákvörðun,“
sagði Jóhann Ingi.
- Hvort hefurðu meiri hug á að
þjálfa á íslandi eða erlendis?
„Mér er sama hvar eða hvaöa hð
ég þjálfa svo framarlega sem alvara
býr að baki hlutunum og festa ríkir
í stjóm þess félags sem í hlut á. Þá
vil ég finna það hjá þeim leikmönn-
um sem ég þjálfa að þeir hafi vilja
til að ná langt," sagði Jóhann Ingi.
-JOG
Sigurður Bjömssan, DV, V-Þýskalandi:
Gummersbach vann gífurlega
mikilvægan sigur í v-þýsku úrvals-
deildinni um helgina er þaö lagði
topphðið Kiel með 17 mörkum gegn
14. Kiel kom mun ákveðnara til leiks-
ins og náði snemma afgerandi for-
ystu. Barátta Gummersbach jókst
hins vegar eftir því sem á leið og
rétt fyrir leikhlé tókst Fitzeck að
minnka bihð í 7-8 eftir glæsilegan
imdirbúning Kristjáns Arasonar.
í síðari hálfleiknum hélt Kiel upp-
teknum hætti og leiddi lengi vel en
um hálíleikinn miðjan kom til sterk-
ur kafh hjá Gummersbach og tók þá
hðið ráðin á vellinum - náði að jafna,
12-12, síðan forystunni, fyrst 13-12
og síðan 14-12. Þá voru úrslitin í raun
ráðin.
Nietzel var markahæstur hjá Gum-
mersbach með 5 mörk, Kristján
Arason gerði aðeins 1 mark í leikn-
um en átti engu að síður stjömuleik.
Átti hann fjölmargar stórglæsilegar
línusendingar sem gáfu mörk og var
burðarásinn i vöm Gummersbach.
„Ég hef aldrei áður verið svona
ánægður eftir leik þar sem ég hef
aðeins skorað eitt mark,“ sagði
Kristján eftir þetta toppuppgjör.
„Þetta var mjög mikhvægur sigur,“
sagði Kristján.
Lemgo vann í Göppingen
Lemgo, félag Sigurðar Sveinsson-
ar, vann á útivehi um helgina og er
nú nánast búið að hrista af sér fall-
drauginn eftir frábæran sprett
síðustu vikurnar. Liöið vahn nú
Göppingen, 18-19, og skoraði Sigurð-
ur Sveinsson sigurmarkið með
gífurlegum þramufleyg. Hann gerði
fimm mörk i leiknum og var bestur
í hði Lemgo að vanda.
Páll Ólafsson með 4
Vestur-
þýski
hand-
boltinn
Gummersbach - Kiel.17-14
Göppingen - Lemgo......18-19
Númberg - Dormagen.13-13
Essen - Groswallstadt..22-17
Diisseldorf - Hofweier.20-14
Massenheim - Dortmund.21-20
Milbersthofen - Schwabing .21-21
Gummersbach......21 440-373 31
Dusseldorf..........21 424-384 31
Kiel.............20 458-412 29
Essen............21 425-387 26
Dormagen.........21 404-385 23
Grosswallstadt...20 429-118 21
Göppingen........20 398-432 19
Lemgo............21 384-416 19
Massenheim.......21 444-460 18
Hofweier.........21 445-171 18
Numberg..........21 409-464 15
Schwabing........20 426-430 14
Milbertshofen....21 451-455 14
Dortmund.........21 405-155 12
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Vistheimili barna v/Hraunberg vantar nú þegar starfs-
mann á næturvakt í 55%starf. Einnig vantarstarfsfólk
til sumarafleysinga. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur forstöðukona í síma 75940.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi söluskatts fyrir febrúarmánuð er 15. mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þririti.
Fjármálaráðuneytið
Viðskiptafræðingar
og hagfræðingar
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráða viðskiptafræðing
eða hagfræðing til starfa.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir 15. apríl nk.
11. mars 1988.
Viðskiptaráðuneytið
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi taekifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö ér sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sém flug-
vélum. snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já. þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir. ..27022
ViÖ birtum...
Það ber árangur!
DV
Frjalst.ohaö dagblað
a ER SMÁAUGLÝSINGABLADK.>