Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Page 11
MÁNUDAGUR 14. MARS 1988.
35
Skíði - heimsbikar:
Figini
sigraði
tvöfalt
Michela Figini frá Sviss er sama
sem búin að tryggja sér sigur í heims-
bikarkeppninni í bruni kvenna eftir
að hafa unnið af miklu öryggi næst-
síðasta mót vetrarins sem fram fór í
Bandaríkjunum á laugardaginn.
Hún pr með 24 stiga forskot, 143 stig
gegn 119 hjá löndu sinni Brigitte
Oertli, fyrir síðustu keppnina.
Oertli varð önnur, á eftir Figini, á
laugardaginn og Veronika Wallinger
frá Austurríki þriðja.
• Michela Figini giaðbeitt á svip
eftir sigurinn á laugardag.
Símamynd/Reuter
• Figini vann síðan sinn annan
sigur á tveimur dögum í gær þegar
hún sigraði í risastórsvigi á sama
stað. Hún sigraði þar með í stiga-
keppninni í risastórsvigi, fékk 65 stig
en Sylvia Eder frá Austurríki varð
önnur með 45 stig. Ulrike Maier frá
Austurríki varð önnur í gær og An-
ita Wachter frá Austurríki þriðja.
• Karlamir kepptu tvívegis í
bruni þar vestra um helgina. Á fóstu-
dag sigraði Franz Heinzer frá Sviss,
Christope Ple frá Frakklandi varö
annar og Marc Girardelli frá Lux-
emburg þriðji. Daginn eftir vann
Peter Múller frá Sviss, Donald Ste-
vens frá Kanada varð annar og
Girardelli þriðji.
• Franski ólympíumeistarinn í
risastórsvigi, Frank Piccard, vann
góðan sigur í greininni þegar keppt
var í heimsbikarnum í Colorado í
gær. Markus Wasmeier frá Vestur-
Þýskalandi varð annar og Marc
Girardelli þriðji, þriðja daginn í röð.
Pirmin Zurbriggen og Alberto
Tomba urðu í íjórða og fimmta sæti
og Zurbriggen er því með 236 stig
gegn 224 í einvígi þeirra um sigur í
stigakeppni heimsbikarsins.
-VS
Skoska knattspyman:
Góðir sigrar
stórliðanna
Celtic, Aberdeen og Hearts unnu
öll stórsigra í 8-liða úrslitum skosku
bikarkeppninnar á laugardaginn og
tryggðu sér sæti í undanúrshtunum.
Aberdeen vann Clyde, 5-0, Hearts
vann Dunfermline, 3-0, og Celtic
vann Partick Thistle, 3-0. í fjórða
leiknum skildu Dundee og Dundee
United jöfn, 0-0.
Á meðan vann Rangers 1-0 sigur á
MotherweU í úrvalsdeildinni en er
samt fjórum stigum á eftir Celtic og
hefur leikið einum leik meira. Staða
efstu Uða er þessi:
Celtic.....35 24 9 2 66-20 57
Rangers....36 23 7 6 69-23 53
Hearts.....35 18 13 4 64-28 49
Aberdeen...35 17 14 4 48-21 48
Dundee.....35 16 6 13 62-14 38
■ -VS
íþróttir
• Arnór Guöjohnsen skoraöi þriðja mark Anderlecht þegar aðeins 35 sekúndur voru liönar af seinni hálfleiknum.
DV-mynd Marc De Waele
Belgíska knattspyman:
Arnór skoraði eitt í
léttum sigri á Winterslag
- Guðmundur Torfason meiddist á æfíngu daginn fyrir leik og var ekki með
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
Amór Guðjohnsen skoraöi eitt
mark þegar Anderlecht vann stórsig-
ur á Winterslag, 4-0, í belgísku 1.
deUdinni á laugardagskvöldið.
Anderlecht hóf leikinn með stór-
sókn. Kmcevic, Arnór og Grún áttu
góð færi en boltinn vUdi ekki í mark-
ið. En á 7. mínútu fengu þeir hjálp
frá Winterslag þegar Studzizda skor-
aði sjálfsmark, 1-0. Rétt á eftir bætti
Luc NUis við gullfallegu marki, 2-0.
Eftir það gaf Anderlecht dálítið eftir
og Winterslag náði tveimur sóknum
sem enduðu með skotum frá Gijbels,
en Munaron í marki Anderlecht
varði vel.
í seinni hálfleik byijaði Anderlecht
aftur með stórsóknum og eftir aðeins
35 sekúndur skaUaði Nilis til Arnórs
sem var einn fyrir opnu marki og gat
lagt boltann rólega fyrir sig áður en
hann renndi honum inn, 3-0. Rétt á
eftir bætti síðan Krncevic við fjóröa
markinu með skalla, 4-0.
Amór og Vervoort vom teknir út
af um miðjan seinni hálfleik, Uklega
tU að hvíla þá fyrir Evrópuleikinn
erfiða gegn Benfica á miövikudaginn
en Arnór hefur legiö síðustu daga
með flensu.
Þetta var í raun aöeins góður æf-
ingaleUcur fyrir Anderlecht sem þarf
að vinna upp 0-2 forskot Benfica í
Evrópukeppninni og mun leggja allt
i sölurnar tU þess.
Guðmundur Torfason lék ekki með
Winterslag þar sem hann er slæmur
í ökkla. „Eg fór á æfmgu daginn fyr-
ir leik en varð að hætta þar sem
meiðslin tóku sig upp. Ég vonast tU
að geta byrjað eftir helgina og leikið
með í næsta leik,“ sagöi Guömundur.
• Jan Ceulemans fór á kostum
þegar Club Bmgge sigraði Racing
Jet, 3-0. Mark Degryse skoraði fyrsta
markið og er markahæstur í deUd-
inni með 18 mörk.
• Mechelen lenti í miklum erfið-
leikum með Lokeren, en skoraði
sigurmarkið í jöfnum leik, 2-1,
skömmu fyrir leikslok.
Belgíska
knattspyrnan
Anderlecht - Winterslag...4-0
Standard - Beerschot......2-1
St. Truiden - Charleroi...0-1
Mechelen - Lokeren........2-1
Racing Jet - Club Brugge..0-4
Antwerpen - Molenbeek.....4-0
Cerle Brugge - Waregem....4-0
Beveren-Gent..............0-0
Kortrijk -Liege...........i-i
Mechelen....25 18 3 4 40-19 39
Club Bmgge..25 17 3 5 59-28 37
Antwerpen...25 15 7 3 57-27 37
Liege.......25 10 12 3 40-22 32
Anderlecht...25 11 8 6 44-21 30
Waregem.....25 12 4 9 40-36 28
Standard....25 9 7 9 37-34 25
Cercle Brugge
........... 25 9 6 10 38-36 24
Charleroi...25 9 6 10 31-37 24
Beerschot...25 9 5 11 32-32 23
St. Truiden....25 8 7 10 21-28 23
Molenbeek ...25 6 10 9 26-34 22
Gent........25 8 4 13 26-41 20
Beveren.....25 6 8 11 28-26 20
Lokeren.....25 6 7 12 29-35 19
Kortrijk....25 6 6 13 28-51 18
Racing Jet.... 25 6 3 16 19-47 15
Winterslag....25 5 4 16 24-65 14
„Láttu ganga ljóðaskrá
um löstinn þann að reykja!“
Nú gefst þér færi á að leggja þitt af mörkum í
baráttunni gegn tóbaksnotkun, með því að'taka þátt í
skemmtilegri samkeppni. Þú sendir inn frumort ljóð eða
vísur um skaðsemi tóbaks og kannski verður þú svo
heppinn að sjá þitt framlag notað á vindlingapakka eða í
auglýsingar.
Síðasti skiladagur er 25. mars nk. og stefnt er að því að
birta úrslitin á reyklausa daginn, 7. apríl. Þátttakendur eru
beðnir að merkja ekki kveðskap sinn með nafni heldur láta
nafn og heimilisfang fylgja með í lokuðu umslagi.
Dómnefnd skipa Árni Johnsen, Helgi Sæmundsson og
Kristín Þorkelsdóttir.
Góð verðlaun eru í boði:
1. verðlaun 50 þúsund kr. 2. verðlaun 30 þúsund kr. 3. verðlaun 20 þúsund kr.
Utanáskriftin er:
Vísnasamkeppni Tóbaksvamanefndar _____
Skógarhlíb 8, 105 Reykjavík
TÓBAKSVARNANEFND
TÓBAKSVARNANEFND ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ NOTA ALLT ÞAÐ EFNI SEM BERST í SAMKEPPNINA.