Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988. 3 Fréttir Flugleiðir: Enn er starfsmönnum skákað til í stjórnun - tuttugu og fjórar stöðubreytingar kynntar I^rQytingar á stööuskipan starfs- manria Flugleiöa halda áfram eftir ’ umfangsmiklar breytingar sem . gerðar voru á yfirstjórn fyrirtækis- irís í síöasta mánuði. í gær voru ' ttfkynntar 24 stööubreytingar hjá . starfsriiönnum í trúnaðar- og stjórnunarstörfum. Virðist svo vera aðsumir eldri starfsmenn víki úr yílrmannastöðum sínum og þeir ungú taki við. •. Meðal eldri starfsmanna Flug- leiða, sem nú eru færðir til, eru Davíð Vilhelmsson, forstöðumaður austursvæðis Flugleiða, sem nú ’ verður sölustjóri í V-Þýskalandi, Jóhann D. Jónsson, sölustjóri í London, sem nú verður fulltrúi í markaðsdeild. Sigurður Matthias- son, forstöðumaður Bílaleigu Flug- leiða, sem nú verður forstöðumað- ur auglýsingaeftirlits. Einar Helga- son, forstöðumaður flutningadeild- ar á markaðssviði, sem t'ekur við nýju starfi á þróunarsviði. Páll Þorsteinsson aðalféhirðir sem tek- ur við stöðu forstöðumanns skrif- stofuþjónustu. Grétar Br. Krist- jánsson, forstööumaður stjórnun- arþjónustu, sem nú verður for- stöðumaður bílaleigunnar. Vil- hjálmur Guðmundsson, svæðis: stjóri NV-svæðis, verður aðalfé- hirðir. Steinn Logi Björnsson, fulitrúi forstjóra, sagði í samtali við DV að breytingarnar kæmu i framhaldi af breytingum sem gerðar voru í fimm framkvæmdastjórastöðum í síðasta mánuði. Hann sagði að eftir þessar tilfærslur mætti búast við að breytingar yrðu ekki jafnör'ar og veriö hefur undanfarið! Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir megintilgang skipulagsbreytinganna að aðlaga' fyrirtækið breyttum áhersl.um . í rekstrinum og búa það undir að takast á við þau verkefni sem fram- undan eru, t.d. verkefni á sviði stundvísi og tekjustýringar og nýtt upplýsinga- og bókunarkerfi. Auk þess segir hann ljóst að töluverðar áherslubreytingar verði á mark- aðsstarfseminni með minna vægi N-Atlantshafsflugsins og aukinni samkeppni í Evrópuflugi. En auk þess er Sigurður að fram- fylgja þeirri stefnu sem hann ;markaði í upphafi: að færa menn reglulega til í starfi til að koma í veg- fyrir áð menn staöni. Með breytingunum er einnig skil- ið betur milli rekstrareininga sem auðveldar aö leggja sjálfstætt arð- semismat á ýmsa hluti fyrirtækis- ins. Má þar nefna að stofnað er sérstakt auglýsingaeftirlit og hótel- og veitingarekstur er skilinn frá -flugrekstrinum. Meðal annarra stöðubreytinga má nefna að Steinn Logi Björnsson tekúr við starfi forstöðumanns austursvæðis með aðsetur í Frank- furt. Einar Gústafsson verður for- stöðumaður söludeildar á íslandi. Árni Sigurðsson mun hafa umsjón með-uppsetningu nýs bókunar- og upplýsingakerfis, Amadeus. Mar- inó Einarsson tekur við nýrri deild, tekjustýringu.' Og Jón Karl Ólafs- son tekur-við sfarfi-forstöðumanns hagdeildar. Gert er ráö'fyrir áð breytíngarnar taki gildi um mánaðamót eða svo fljótt sem auðið er. -JBj Á leið til Rómar - Sigrúnu Eyfjörð, bestu Ijósmyndafýrirsætunni, boðið til Ítalíu „Þetta kom skemmtilega á óvart og ég hlakka til að læra ítölskuna," sagöi Sigrún Eyfjörö í samtali við DV. Sigrún var, eins og fléstir muna„- kosin besta ljósmyndafyrirsgBtaíM' fégúrðarsamkeppni íslatykrffdögun- úm og nú er^vo komið að hún er á leið til Rómar að læra ítölsku. Það er ' -ítalska menningarstofnunin Mondo Italiano sem býður Sigrúnu ménaðardvöl þar syðra og hyggst hún fara utan í ágúst. - En hvers vegna var henni veitt þessi viðurkenning? „Mér var sagt að þau hjá menning- arstofnuninni heföu verið búin að velja sér stúlku til að fara á þetta námskeið áður en sjálf keppnin fór fram. Sú stúlka reyndist vera ég. Þetta kemur sér mjög vel fyrir mig því ég hafði einmitt ráðgert að reyna fyrir mér í fyrirsætustörfum á Ital- íu." - Af hverju á Ítalíu? „Mér hefur verið ráðlagt að byrja þar því ég hafl það útlit sem þarlend- ir ljósmyndarar sækjast eftir. Ég stefni á Mílanó í haust eftir að hafa verið á tungumálanámskeiðinu. Reyndar er ég að bíða eftir svari frá- umboðsskrifstofunni The Look þar í borg en hjá þeim hef ég fengið góðar vonir um starf." -Ró. G 500 manns á Lionsþingi á Húsavík: Varð rauð fjöður í hatt húsvískra Lions-manna Jóhannes Siguijónsson, DV, Húsavflc Þrítugasta og þriðja Lionsþing íjölumdæmis 109 var haldið á Húsa- vík á fóstudag og laugardag. Um 500 gestir frá öllum landshornum sóttu þingið og settu mikinn svip á sýsluna þingdagana. Allt tiltækt gistirými var fullnýtt og stöðugar rútuferðir á jhifli gististaða víðs vegar í sýslunni og Húsávíkur. Nokkrir erlendir gest- ir sátu þingið, þeir Rui Tavera frá Portúgal, Harald Holmoy frá Noregi og Peter Bröndahl frá Danmörku. Á meðan þingfulltrúar réðu ráðum sínum á laugardag var fariö í skoð- unarferö með maka þingfulltrúa og erlenda gesti. Farið var í Laxárvirkj- un og boðiö upp á léttar veitingar í göngum inni í berginu. Lionsklúbbur Húsavíkur sá um framkvæmd og undirbúning Lions- þingsins og lögöu félagar nótt við dag síðustu dagana til þess aö þingið færi sem best fram. Meðal annars þurfti að breyta íþróttahöllinni í matsal fyrir 470 manns með tilheyrandi bör- um en þar fór lokahófið fram á laug- ardagskvöld, Þingfulltrúar, sem DV ræddi við, voru mjög ánægðir með alla aðstöðu og viðurgjörning heimamanna og töldu framkvæmd þingsins til fyrir- myndar. Sannkölluð „rauð“ fjöður í hatt húsvískra Lionsmanna. Rui Tavera frá Portúgal ávarpar þingið. Á miðri mynd er Ingi Ingimundarson fjölumdæmisstjori sem setti þing- ið. Næstur honum er Svavar Gests. DV-mynd JS. ítalska menningarstofnunin Mondo Italiano hefur boðið Sigrúnu Eyfjörð mánaðardvöl i Róm i sumar. Þar fær hún gott tækifæri til að læra itölsku en hún hyggst spreyta sig fyrir framan myndavélarnar á Ítalíu næsta vet- ur. Eins og flestum er kunnugt var Sigrún kjörin besta Ijósmyndafyrirsætan í fegurðarsamkeppni íslands fyrir skömmu. DV-mynd KAE Þorsteini boðið til Finnlands: Ráðherrar á férð og flugi ; Forsætisráðherra, Þorsteihn Páls- son, fór á sunnudaginn til New York þar sem hann mun sitja 3. aukaalls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmál. Heldur Þorsteinn ræðu á þinginu 2. júní. Þá hafa Þorsteinn og kona hans, Ingibjörg Rafnar, þegið boð Harri Holkeri, forsætisráðherra Finn- lands, um að koma í opinbera heim- sókn til Finnlands 9.-10. júní næst- komandi. Það eru reyndar ekki margir ráð- herrar á landinu um þessar mundir. Þorsteinn er í New York, Birgir ísleifur Gunnarsson suður í Grikk- landi, Friðrik Sophusson í Kína, Jón Baldvin Hannibalsson fór til Kaup- mannahafnar og víöar en lengst allra fór Halldór Ásgrímsson, eða alla leið til Nýja-Sjálands. í morgun sátu því ekki nema sex ráðherrar ríkisstjómarfund. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.