Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
11
Utlönd
Yitzhak Rabin, varnarmálaráöherra ísraels, hefur nú hafið viðræður við
leiðtoga Palestínumanna á herteknu svæðunum. Simamynd Reuter
Rabin svartsýnn á
árangur í Moskvu
Varnarmálaráðherra ísraels,
Yitzhak Rabin, hefur haldið tvo
fundi með leiðtogum Palestínu-
manna frá herteknu svæðunum.
Fleiri fundir eru ráðgerðir, að sögn
embættismanna.
í gær hitti Rabin fjóra leiðtoga
Palestínumanna á skrifstofu sinni
í Tel Aviv og snerust umræðurnar
um ástandið á yesturbakkanum og
Gazasvæðinu. Á fimmtudaginn átti
Rabin einnig fundi með leiðtogum
Palestínumanna frá borginni Nabl-
us á Vesturbakkanum.
Samkvæmt heimildarmönnum
úr röðum Palestínumanna er Rab-
in sagður hafa látið í ljós efasemdir
um að Reagan Bandaríkjaforseta
og Gorbatsjov Sovétleiðtoga takist
að leysa málefni Miðausturlanda á
fundi sínum í Moskvu. Rabin er
sagður hafa bætt því við að hann
byggist ekki viö að Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, næði
árangri er hann heimsækir Mið-
austurlönd síöar í þessari viku.
Samkvæmt ísraelskum embætt-
ismönnum átti Rabin upptökin aö
fundunum með leiðtogum Palest-
ínumanna en hann hafði lofað að
taka upp viðræður við þá um leiö
og uppreisnin á herteknu svæðun-
um rénaði.
Leiðtogarnir eru ekki sagðir vera
ánægðir með niðurstöður fundar-
ins með varnarmálaráðherranum
en hann mun hafa tjáð þeim að
uppreisnin skaðaði Palestínumenn
sjálfa meir en ísrael og að um tólf
þúsund evrópskir verkamenn
hefðu komiö í stað Palestínumanna
auk þess sem um tíu þúsund aðrir
erlendir verkamenn væru væntan-
legir til ísraels.
Israelskur embættismaöur sagöi
Rabin hafa tekið til athugunar
beiöni Palestínumanna um að
minnka þrýstinginn á ibúana á
herteknu svæðunum. í gær missti
níu mánaða palestínsk stúlka auga
auk þess sem hún hlaut þrjú bein-
brot er hún varö fyrir gúmmíkúl-
um sem ísraelskir hermenn skutu
er þeir voru að dreifa mótmælend-
um í flóttamannabúðum á Gaza-
svæðinu. Efnt var til mótmælað-
gerða í gær til þess að vekja at-
hygli leiðtoga stórveldanna á með-
an á fundi þeirra í Moskvu stendur.
Fytgistap hjá
vinstn' mönnum
Gizur Helga aon, DV, Uibedc
Friedrich Zimmermann, innan-
ríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, sagði í fyrrakvöld að þeir
stjórnmálaflokkar er væru lengst
tíl vinstri í v-þýskri pólitík hefðu
tapað verulegu fylgi á síðustu
árum. En aftur á móti hefðu
stjórnmálaflokkar er væru yst á
hægri vængnum eflst.
í fyrsta sinn í 15 ár hefði félaga-
fjöldinn í v-þýska kommúnista-
flokknum hrapað niður fyrir 40
þúsund eða niður í 38 þúsund fé-
íaga. Samtímis hefur sprengjuár-
ásum í hryðjuverkaskyni, sem
vinstri vængurinn hefur lýst
ábyrgö á, fækkað úr 318 árið 1986
niður í 177 árið 1987. Zimmer-
mann benti um leið á að saman-
lagt tjón skemmdarverka væri þó
meira í fyrra en áriö þar á undan.
Á hægri vængnum er að flnna
um 69 mismunandi samtök með
um 25 þúsund meðlimi samtals.
Þetta eru um 3 þúsund fleiri en
árið áður. Nýnasistar hafa þó
ekki aukið meðlimafjölda sinn
ýkja mikiö, þeir eru nú 1520 en
voru 1460 í fyrra. Zimmermann
fær þessar upplýsingar hjá
stjórnmálalegu rannsóknarráði
en þaö sér einnig um athuganir
á gagnnjósnum.
Auk áðumefndra samtaka, sem
eru annaöhvort lengst til hægri
eða vinstri í v-þýskum stjóm-
málum, er þar að finna um 110
þúsund útlendinga sem taldir em
vera í öfgafullum samtökum. En
í V-Þýskalandi búa nú um 4,6
milljónir af erlendum uppruna.
Það „rauk“ af
Gizur Helga aon, DV, Lubedc
Stríðið um þaö hvort banna
skuli reykingar í neðanjarðar-
lestum Rotterdamborgar eður ei
hefur nú orsakað blóðsúthelling-
ar. Farþegi í neöanjarðarlest
einni vildi ólmur fá frið til að
reykja sígarettuna sína en með-
farþegi hans var ekki á sama
máli og endaöi ósamkomulagiö
með áflogum.
Bindindismaöurinn hafði það
af að bíta nefið af reykingamann-
inum en læknum á næsta sjúkra-
húsi tókst að græða það á aftur.
Þó er talið sennilegt að lítíll reyk-
ur fari þá leiðina á næstum vik-
um.
DAIHATSU CHARADE
TAKMARKAÐ MAGN
FRÁBÆRT VERÐ
3 DYRA 4 GÍRA TS KR. 429.900, ■ STGR.
5 DYRA 4 GÍRA CS KR. 444.900 j" STGR.
VERÐ MIÐAST VIÐ BÍLINN KOMINN Á GÖTUNA
BRIMBORG H/F
ÁRMÚLA 23 - SÍMAR 685870 - 681733