Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
13
Útlönd
- Portúgalskur bóndi hugar að tómatarækt sinni. Simamynd Reuter
Tæknivæðing land-
búnaðarins eifiðust
Ríkisstjóm Portúgal er nú aö
hefja glímu við það verkefni sem
erfiðast er talið á verkefnaskrá
hennar en það er að tæknivæða og
færa til nútímahátta landbúnað í
landinu.
Þótt um fiórðungur alls vinnuafls
í Portúgal sé bundinn í landbúnaði
gefur hann ekki af sér nema um
níu prósent af þjóðarframleiðsl-
unni og framleiðni í sumum grein-.
um er aðeins um einn fimmti af því
sem gerist í sömu greinum í þeim
Evrópulöndum sem hafa tamið sér
nútímalega vinnuhætti.
Verulegar úrbætur í landbúnað-
inum eru eiyi mikilvægari en ella'
fyrir þá sök að stjómvöld búa nii
landið undir fulla samræmingu við
Evrópubandalagið á næsta áratug.
Upphaflega áttu Portúgalar að
laga sig að Evrópubandalagslönd-
um í landbúnaöarmálum fyrir árið
1992. Þeir hafa hins vegar fengið
fjögurra ára frest á því, enda Ijóst
að þeir geta engan veginn orðið
samkeppnishæfir á aðeins fjórum
árum.
Flestir bænda Portúgals eru smá-
bændur sem rækta að meðaltah um
sex hektara lands. í Evrópubanda-
lagsríkjum er meðalstærð býla
hins vegar þrettán hektarar.
Þessar smáu einingar em
Portúgölum ákaflega óhagstæðar
þar sem fæstir bændanna hafa
peningaráð til að vélvæðast og ux-
ar, múldýr og hestar, sem draga
tréplóga, eru enn helstu vinnu-
vélamar.
Vegna lítillar framleiðni í land-
búnaöi verða Portúgalar að flytja
inn nær sjötíu prósent komþarfar
sinnar og þarf ríkið að tryggja
bændum sínum um fjörutíu pró-
sent hærra verð fyrir framleiðslu
þeirra en tíðkast innan Evrópu-
bandalagsins.
Porfúgalar þurfa bæði að fækka
vérulega þeim sem starfa við land-
búnað og fmná leiðir til að auka
framleiðni og verðmæti framleiðsl-
unnar. Ætlunin er að reyna hið
síðaStnefnda með því að sérhæfa
landbúnað í framleiðslu afurða
sein óvíða er boðið upp á, svo sem
hitabeltisávaxta af ýmsu tagi.
Hvort stjórnvöldum tekst þetta
ætlunarverk sitt fyrir 1996 er eftir
að sjá. Tilraunir til þess verða að
hluta fjármagnaðar af Evrópu-
bandalaginu sem lagt hefur fram
sem nemur um þrjátíu og fimm
milljörðum íslenskra króna til
þessarar þróimar.
Smygl á tamílum
afhjúpað í Hambovg
Gizur Helgason, DV, Liibedc
Lögreglan í Hamborg hefur af-
hjúpað tilraun til stórfelldra ólög-
legra mannaflutninga. Hér var um
269 tamíla að ræða sem smygla átti
til Kanada með strandferðaskipi en
það hefði á engan hátt getað flutt
tamílana á mannsæmandi hátt yfir
Atlantshafið.
Tamílarnir fundust um helgina í
húsi einu í bænum Hittfeld suður af
Hamborg. Þeir höfðu þegar greitt
fyrir flutninginn vestur um haf frá
3000 til 5000 þýskum mörkum. Talið
er sennilegt að flytja hafi átt tamilana
yfir í kanadísk skip við strendur
Kanada.
Skipstjóri vestur-þýska skipsins er
nú í umsjá kanadísku lögreglunnar
en tamílamir í umsjá vestur-þýska
Rauða krossins.
um morð
Eögreglan á ítalíu hefur hand-
tekið meðlimi trúarsafnaðar nokk-
urs og sakað þá um að hafa myrt
konu eina en lík hennar fannst
varðyeitt í herbergi í húsi þar sem
söfnuðurinn ástundaði trúarat-
hafnir sínar. Þijátíu og fjórir safn-
aðarmeðlimir hafa verið hand-
teknir en grunur leikur á að söfn-
uðurinn kunni einnig að tengjast
mannránum, bankaráni og hugs-
anlega mafíunni.
I samkomuhúsi safnaðarins
fundust, auk konulíksins, vopn og Leiðtogi safnaðarins, Lidia Nac-
um einn milljarður ítalskra líra. carato. simamynd Reuter
Söfnuður
sakaður
Úr einu herbergi hússins þar sem söfnuðurinn geymdi Ifk konunnar.
Slmamynd Reuter
MIÐVIKUDAGINN1. JÚNÍ KL. 10 -18 Á HOLIDAYINN
Viljirðu fylgjast með nýjungunum - komdu þá og kynntu þér
öflugasamsetningu DIGITAL VAX tölvukerfa og hugbúnaðar.
Ásýningunniverðurm.a.:
4 Vél- og hugbúnaður frá Digital Equipment
Corporation
4 Tölvunet
4 VAXstation 8000
4 Tölvustudd hönnun með búnaði frá DEC,
McDonnell Douglas og CalComþ
4 AII-in-1 skrifstofukerfifráDEC
4 Fjórðukynslóðarmál
4 Gagnagrunnskerfi
. 4 Tölfræði- og grafíkhugbúnaður frá SAS Institute
fyrirVAXogPC
4 WordPerfect ritvinnsla á VAX
Öflug samsetning tölvubúnaðar færir þér endalauSa möguleika á -
nýjungúm, hraða og tækni. Þannig kemur Digital þér allfaf að
góðumnoturn! * . ' •
Úrvals þjónusta fagfólks
-hröð, alhliða, alltaf.
Ekristján ó.
SKAGFJÖRÐ HF.
Tölvudeild Hólmaslóð4,sími24120