Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988. 15 Fjárfestmgaveislan I öllum rekstrarkerfum, hvort sem það er heimili, fyrirtæki eða þjóð- félagið sjálft, er ekki hægt að kom- ast hjá því að hafa ákveðinn hluta veltunnar í lausu fjármagni. Þetta finnur hver fjölskylda, hver stjómandi fyrirtækis, en skilning- ur á þessari nauðsyn virðist ekki vera finnanlegur hjá stjómendum þjóðfélagsins. Þar eru menn of upp- teknir við að passa stöðu sína inn- an flokksins til þess að mega vera að því að fylgjast með lífæöum þjóðfélagsins. Ég hef nokkmm sinnum reynt að ræða af raunsæi við nokkra al- þingismenn um þau vandamál sem eru í þjóðfélaginu. Það er sorglegt að þurfa að segja það, en það em sárafáir þingmenn sem ég hef fund- ið hafa skilning (raunverulegan skilning) á vandamálum okkar. Þeir geta blaðrað og þvælt um mál- in en efnisleg tök og yfirsýn á mál- um em sára sjaldgæf. Ég ætla að láta fylgja hér dæmi um eitt samtal við þingmann sem fram fór fyrir skömmu. Þingmaður þessi hafði, með mjög alvarlegri röddu og alvarlegum svip, verið að ræöa vandamál þjóðlífsins á fundi sem útvarpað var um allt land. Eftir fundinn gaf ég mig á tal við hann og hugðist kynna honum nokkrar athuganir sem ég hafði gert á nokkrum burðarþáttum þjóðlífsins. Þegar ég sýndi honum útreikn- inga þessa leit hann snöggt á þá og spurði um leið með lítilsvirðingu í málrómnum: „Gerðir þú þetta sjálfur?" Þegar ég svaraöi því ját- andi rétti hann mér blaðið aftur án þess að skoða það og labbaði í burt. Ég vék þá að honum tveim spurn- ingum um afar þýðingarmikil at- riði í rekstri þjóðfélags okkar. Hann leit þá á mig tærum augum af skilningsleysi, hló við vand- ræðalega og labbaði í burt, áhyggjulaus sem bam í sandkassa. Kauptu skuldabréf Á sama tíma og áðumefnd ábyrgðartilfinning virðist ríkjandi á Alþingi, sitja slyngir sérhags- munamenn á skrifstofum út um allan bæ og spá í hvernig þeir geti náð til sín sem mestu af því fjár- magni sem í umferð er. A öðmm skrifstofum eru menn sem velta vöngum yfir því hvernig þeir eigi að fara að því að fjárfesta án þess að skeröa það htla rekstrarfé sem þeir hafa aðgang að. Alhr þessir aðhar virðast sam- mála um að skynsamlegast sé að íjárfesta í framtíðinni með sölu skuldabréfa. Skuldabréf hafa að vísu einn stóran galla en það er gjalddagi þeirra, þá verður að greiða þau. Ekki sést votta fyrir því í rekstrararðsemi þeirra sem fjár- festa með þessum hætti að þeir æth sér aö greiöa þessa fjárfestingu sem framkvæmd er með skulda- bréfum. Reynsla síðustu ára sýnir að þeg- ar að gjalddaga kemur er gefinn út nýr flokkur skuldabréfa, nokkru hærri en sá fyrri, til þess að geta greitt út gjaldfallin bréf. Þetta er svo sem ekki stórhættulegt fyrir þá kynslóð sem komin er á miðjan aldur eða þar yfir. En hver skyldi vera áhættan fyrir þá kynslóð sem er að feta sín fyrstu spor um þessar mundir? Martröð framtíðarinnar Ekki hef ég um það óyggjandi sannanir þar sem ekki er mér vit- anlega til neitt heildaryfirht yfir þessar fjárfestingar í framtíðinni. En meö hhðsjón af arðsemi rekst- urs hér á landi sýnist mér að það geti tekið um það bil tvær kynslóð- ir að komast út úr núverandi fjár- festingum í framtíðinni. Hvað skyldi svo gerast ef fólk hættir aö hafa trú á þessum skulda- bréfum? Því er fljótsvarað. Það yrði efnahagslegt hrun á atvinnusvæði þeirra fyrirtækja sem þessa iðju Kjallaiim Guðbjörn Jónsson fulltrúi stunduðu. Það mundi byrja með gjaldþroti fyrirtækjanna sjálfra og síðan þeirra einstakhnga sem af þeim hafa framfæri sitt. En er þetta eina hættan sem steðjar að þessu framferði? Nei, því er nú verr að svo er ekki. Tekjurnar heim Mesta hættan sem steðjar að þessu „braski" er ákveðin sókn landsbyggðarinnar í að fá fjármagn sitt beint heim í hérað. Sú bylgja, sem þar er risin, er það stór að hún verður ekki kveðin niður. Einungis er spurning um tíma (trúlega í mánuðum talið) og samvinnuvilja, hvenær og hvernig að þessari breytingu verður staðiö. Með hliðsjón af því að þetta „brask“ hefur að meginhluta til farið fram á því eina landsvæði sem ekki er efnahagslega sjálfstætt hvað tekjumyndun varðar, þ.e. höf- uðborgarsvæðinu, verður þetta óhjákvæmilega enn alvarlegra. Á sama tíma og spilaborgin hrynur eru störf við verðmætasköpun á þessu svæði innan við 5% af vinnu- afli á svæðinu. Á landsbyggðinni er þetta sama hlutfall frá 22-51% af vinnuafh. Guðbjörn Jónsson „Mesta hættan sem steðjar að þessu „braski“ er ákveðin sókn landsbyggð- arinnar í að fá Qármagn sitt beint heim í hérað.“ ... Hk-á v>' v > >■ „Reynsla síðustu ára sýnir að þegar að gjalddaga kemur er gefinn út nýr flokkur skuldabréfa, nokkru hærri en sá fyrri,“ segir greinarhöfund- ur m.a. Fastgengi á ..Túlakaffi Ég var að hlusta á RÚV í hádeginu laugardaginn fyrir hvítasunnu. Úr hátalaranum barst rödd íjármála- ráðherra. Þetta var upptaka, gerð í Múlakaffi sama dag. Nær væri að kaha þennan stað Túlakaffi því í hvert sinn sem fjármálaráðherra opnar túlann þar hlaupa þeir í RÚV eins og hræddir hérar til að varpa þessum ósköpum yfir landsmenn. Það sem vakti athygli var að ráð- herra var sleginn blindu svo hann sá ekki og vissi ekki af hverju hann hafði samþykkt „fastgengisgengis- fellinguna". Fastgengisfelling út í loftið? í viðtah við DV 20. maí segir Ólaf- ur Þ. Þórðarson, þingmaður Fram- sóknar: „Ég er hættur stuðningi viö stefnu þessarar ríkisstjómar. KjaHariim Hreggviður Jónsson þingmaður Borgaraflokksins „Og ef marka má orð seðlabankastjóra var fastgengisfellingin óþörf. En þá er spurningin, hverjir lögðu til við ríkis- stjórnina að fella fastgengið um 10 til 13%?“ Ég neita að taka þátt í þeirri stefnu sem leggur undirstöðuatvinnuveg- ina í rúst og stefnir að þjóðargjald- þroti. Ég tilkynnti flokksmönnum mínum það, þegar stjórnin greiddi atkvæði um hversu há gengisfeh- ingin ætti að vera án þess að hafa nokkur gögn í höndunum um hvaða áhrif hún hefði á helstu þjóö- hagsstærðir." Þá segir Jóhannes Nordal, aðalbankastjóri Seðlá- bankans, í viðtah viö Tímann 21. maí, eftir að blaðamaöurinn hefur „Fjármálaráðherra leitar nú gróðapunga með fastgengisgróða i rassvösum,“ Baldvin Hannibalsson talar i Múlakaffi (myndin er frá árinu 1986). segir greinarhöfundur. - Jón spurt hann: „Ríkisstjórnin hefði sem sagt getað komið sér saman um að halda genginu fóstu áfram?“ „Já. Og við vorum alveg thbúnir út af fyrir sig til að reyna það, enda hefði það veriö okkar stefna.“ Um leið og ég býð Ólaf velkominn í stjórnarandstöðuna vh ég vekja athygli á þeim hluta ummæla hans sem snerta hina vitrænu gjörð rík- isstjórnarinnar um að ákvarða fastgengisfellinguna „án þess að hafa nokkur gögn í höndunum um hvaða áhrif hún hefði á helstu þjóð- hagsstærðir". Og seðiabankastjóri bætir betur um þegar hann segir „við vorum alveg thbúnir að reyna það“, þ.e. að halda fastgenginu áfram? Og nú spyr ég, var fastgeng- isfellingin gerð út í loftið? Gróðapungar fastgengisfellingarinnar Fjármálaráðherra leitar nú gróðapunga með fastgengisgróðá í rassvösum. Leitarljósið beinist að máttarstólpum þjóðlífsins, sjálfu bankakerfinu. Ekki hefur honum tekist þrátt fyrir ítrekaðar thraunir að fá svar. Þeir í bankakerfinu segja að ráðherrann kunni ekki á kerfið. Og ráðherra fær enn ekki nein svör um 1.400 mhljónir króna og þó er talið að ríkiö eigi ríkis- bankana. Það er líka tahð að stjórn- málaflokkarnir skipi bankaráðs- menn og ráði hverjir verði banka- stjórar. Það vakti því ekki nokkra athygli þegar Sverrir Hermanns- son varð bankastjóri í vetur. Og nú vill ráðherra svör. Og eru th þeir menn sem muna tæpitungu- laus svör sumra bankastjóra. Það er alvörumál ef ekki fást skýr svör viö spurningum ráðherra. Hitt er svo undrunarefni að ríkisstjómin skuh ekki hafa fyrirhggjandi þess- ar upplýsingar og fleiri þegar ákvörðun er tekin um að gera fast- gengisfelhngu. Brjóstvit eða bara ekkert vit Þegar ráðstafanir ríkisstjórnar- innar eru skoðaðar sést ekki að þær séu byggðar á neinu sérstöku. Brjóstvitið hefur verið látið ráða, svo gott sem það er á þeim bæ. Þó er sumt af því sem blessuö stjórnin ætlar að gera gott eitt sér. Og ef marka má orð seðlabankastjóra var fastgengisfelhngin óþörf. En þá er spurningin, hverjir lögðu th við ríkisstjómina að feha fastgengið um 10 th 13%? Og eftir fastgengisfelhnguna hef- ur fiskverð verið lækkað í Banda- ríkjunum og geta menn þá velt fyr- ir sér hvort hvalveiðistefnan hafi haft hér áhrif, hvort gæðin hafi minnkað, hvort SH og SIS hafi ver- ið búin að sprengja verðið aht of hátt upp. Og að lokum geta menn spurt sig: Verður gengið þá feht aftur í haust eða var fastgengis- fellingin ónauðsynleg? Hreggviður Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.