Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1988. 17 Lesendur Lrfbmi ríkisstjómarinnar: Mannskapurinn virðist ánægður Einar Skúlason skrifar: Allt frá því að núverandi ríkis- stjóm var mynduð hafa einstaka meni) verið að tala inn að hún ætti ekki langt líf framundan. Og enn er verið að ýja að því að nú sé hún að falla - eða hljóti að falia, og era þá týnd til hin og þessi atriði sem eiga aö verða þess valdandi. Ég var t.d. að lesa eitt vikublaðið núna (HP) og þar er viðtal við einn hagfræðing af mörgum um bann við verðtryggingu á vexti, vísitölunefnd- ina og annað í þeim dúr. í greininni er spurt sem svo, hvort niðurstaða vísitölunefndarinnar ráði lífi ríkis- stjómarinnar. Hagfræðingurinn svarar því til, sem eðlilegt má telj- ast, að það sé ólíklegt, að líf stjómar- innar velti á starfi þessarar nefndar, enda sé þaö ekki nema að litlu leyti verkefni hennar að samræma stefnu ríkisstjómarinnar. Það era sumir sem vilja ríkis- stjórnina feiga og af ýmsum ástæð- um, en þó flestum persónulegum. Þar eru lánskjörin sem koma til, skattamir, staögreiöslukerfið, jafn- vel bráðabirgðalögin. - En fáir minn- ast á þjóðhagslegan ávinning, allir á hinn persónulega! Staðreyndin er nefnilega sú, að þessi ríkisstjórn hefur verið að tak- ast á við vanda, sem fáar ríkisstjóm- ir hafa viljað fást viö, en margar „stefnt að“, o.s.frv., o.s.frv. - Ef hins vegar einhveijir halda.að þeir gömlu „góðu“ tímar komi aftur, þegar lán vom „styrkir", þá held ég því fram, að þeir timar komi aldrei aftur hér á landi. Sem betur fer. Ég held einnig að staðreyndin sé sú að mannskapurinn í landinu sé yfirleitt ánægður með þessa ríkis- stjóm og að henni verði lífdaga auöið allt til loka kjörtímabilsins. Það verða þó alltaf einhveijir sem leggja munu ofurkapp á að efna til kosninga sem fyrst. En það er borin von með slíka samsteypustjóm sem þessa, með þijá sterkustu stjórnmálaflokk- ana innanborðs, og þar með þijá sterkustu stjómmálamennina, sem við eigum dag, hina „þijá stóru“. Þótt ég sé einn af landsbyggðarbú- um, sé ég ekkert sem gæti bætt stöðu okkar mála með því að þessi ríkis- stjóm færi frá. Og hvað fengjum við í staöinn? Breytingin yrði engin, því sennilega myndu tveir þessara flokka, eða kannski þeti allir, eiga aðild að næstu stjórn. Ég held því, þegar öllu er til skila haldið, að líftími þessarar ríkisstjómar sé gulltryggð- ur. Hinir „þrír stóru“. - Steingrimur Hermannsson, Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson, eftir myndun ríkisstjórnar, 1987. ORÐSENDING TIL VIÐSKIPTAVINA G/obuse Nú stenguryfirflutningurá ollum varahlutalagerfyrir- tækisins að Lágmúla 7 (bakhúsið). Meðan á þessum flutningum stendur má gera ráð fyrir ýmsum óþægindum og afgreiðslutöfum á vara- hlutum í allar þær vélar og bíla sem Globus flytur inn. Okkar vaska fólk mun þó reyna að annast af- greiðslu varahluta eins fljótt og unnt er og varahluta- deildin mun verða opin allan tímann. Vonumst til að hlutir verði komnir í lag eftir 2-3 vikur og biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á óþægindum. Globus hf. SÍMASKRÁIN 1988 Afhending simaskrárinnar 1988 til símnotenda er hafin. í Reykjavík er símaskráin afgreidd á eftirtöldum afgreiðslustöðum Pósts og síma: Arnarbakka 2, Ár- múla 25, Eiðistorgi 15, Hraunbæ 102, Kleppsvegi 152, Kringlunni, Laugavegi 120, Lóuhólum 2-6 og Pósthússtræti 5. Afgreiðsiutími virka daga (mánud. - föstud.) kl. 8.30 - 16.30, nema fimmtudaga kl. 8.30 - 18.00. í Kringlunni er opið alla virka daga frá kl. 8.30 -18.00. Á Seltjarnarnesi er skráin afhent á Póst- og símstöð- inni Eiðistorgi 1 5. í Garðabæ á póst- og símstöðinni við Garðatorg. I Hafnarfirði á póst- og símstöðinni, Strandgötu 24. í Kópavogi á póst- og símstöðinni, Digranesi.9. i Mosfellsbæ á póst- og símstöðinni að Varmá. Utan höfuðborgarsvæðisins er símaskráin afhent á viðkomandi póst- og símstöð. Símaskráin verður afhent gegn afhendingarseðlum, sem póstlagðir hafa verið til símnotenda. Athygli símnotenda er vakin á því að þær símanúm- erabreytingar, á svæðum 98 og 99, sem fyrirhugaðar eru í tengslum við útgáfu símaskrárinnar verða sem hér segir: í Vestmannaeyjum verða breytingar úr 4 stafa í 5 stafa númer gerðar 4. júní. Á 99 svæði verða breytingar úr 4 stafa i 5 stafa núm- er og breytingar á svæðisnúmeri í 98 gerðar 10. - 20. júní. Þessar breytingar verða auglýstar nánar þegar að þeim kemur. Þar til þær hafa farið fram gilda gömlu símanúmerin. Að öðru leyti tekur símaskráin gildi sunnudaginn 6. júní nk. Póst- og símamálastofnunin 'a rvwtwJzAAcbwL I Lífsstíl á morgun verða garðhúsgögn kynnt. At- hyglisvert er að íslensk framleiðsla á því sviði hefur fengið byr undir báða vængi. Berg- iðjan, sem er verndaður vinnustaður, framleiðir margar tegundir garðhúsgagna úr furu. Þessi húsgögn er öll hægt að leggja saman svo lítið fari fyrir þeim yfir veturinn. Og verðið? - Það kom á óvart. „Það má teljast þjóðlegasti siður, þetta að pota útsæðinu niður..." Nú er kom- inn tími til að setja niður kartöflur. Að undanförnu hefurmáttsjá margan áhugasaman kartöfluræktandann bogra yfir garði sínum. Að sögn margra er þetta nú að mestu gert fyrir ánægjuna, hreina loftið og sveitasæluna. Nýlega hitti DV að máli nokkra hressa borgarbúa við Korpúlfsstaði. Þar leigja þeir sér garða og rækta flestir kartöflur af mikilli list. Þar eru það jarðeplin sem eiga hug og hjörtú manna. I Lífsstíl á morgun. Nú er rétti tíminn til að setja niðursumarblóm. Garðplöntustöðvar hafa um 40 tegundir sumar- blóma á boðstólum. Á morgun kynnir DV helstu tegundir sem í boði eru. Helstu garðplöntustöðv- ar verða kynntar og verð gefið upp á höfuðborgar- svæðinu og í blómabæn- um Hveragerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.