Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988. INNRITUN í FRAMHALDSSKÓLA í REYKJAVÍK Tekið verður á móti umsóknum um námsvist í fram- haldsskóla í Reykjavík dagana 1. og 2. júní næstkom- andi í Miðbæjarskólanum í Reykjavík, Fríkirkjuvegi 1, kl. 9.00-18.00 báða dagana. Umsókn skal fylgja Ijósrit eða staðfest afrit af prófskírteini. I Mióbæjar- skólanum verða jafnframt veittar upplýsingar um þá framhaldskóla sem sækja á um þar, en þeir eru: Ármúlaskóli Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Iðnskólinn í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Sund Réttarholtsskóli (fornám) Verslunarskóli íslands Þeir sem ætla að sæja um námsvist í ofangreinda framhaldsskóla eru því hvattir til að leggja inn um- sókn sína í Miðbæjarskólann 1. og 2. júní næstkom- andi. »ú Vinningstölurnar 28. maí 1988. Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.413.192,- 1. vinningur var kr. 2.208.360,- og skiptist hann á milli 3ja vinmngshafa, kr 736.120,- á mann 2. vinningur var kr. 662.286,- og skiptist hann á 302 vinningshafa, kr 2 193, • á mann 3. vinningur var kr. 1.542.546,- og skiptisl hann á 7 242 vinningshafa, sem fá 21 3 krón ur hver. Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111 Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Varðaðhætta vegna sjúkdóms Hin danska Renée Toft Simonsen, sem er aðeins 22ja ára gömul, er ein eftirsóttasta ljósmyndafyrirsæta heims í dag. En nýlega bárust þær fregnir af henni að hún hefði þurft að hætta öllum fyrirsætustörfum vegna lifrarsjúkdóms sem hefur háð henni mjög. Læknar standa ráöþrota gagnvart sjúkdómi hennar sem gerir hana óvinnufæra. Hún dvelst nú í íbúð sinni í París og systir hennar hefur tekið að sér þann starfa að gegna hlutverki hjúkrunarkonu fyrir hana. Hún hef- ur áður þurft að gera hlé á störfum sínum vegna sjúkdómsins, en nú hefur hún aflýst öllum störfum sem húnVar búin að taka að sér. Sviðsljós Renée hefur prýtt forsíður margra þekktari tískutímarita heims. Renée Toft Simonsen vann fyrir sæta heims. Fljótlega eftir að henni tveimur árum keppnina Face of the skaut upp á stjörnuhimininn tók hún Eighties á vegum Eileen Ford og hef- saman viö hljómlistarmanninn John ur síðan verið ein hæstlaunaða fyrir- Taylor sem þá var í hljómsveitinni Renée Toft Simonsen þykir vera óvenjufögur og er því ein eftir- sóttasta fyrirsæta heims. Duran Duran. Hann hefur verið henni stoð og stytta í veikindunum og er hjá henni í París eins oft og honum er mögulegt. Renée er strax farin að sjá fram á fjárhagsáhyggjur vegna þess að hún getur ekki unnið og hefur því sett íbúð, sem hún á í New York, á sölu því hún hefur ekki efni á að halda tvær íbúðir án þess að tekjumar streymi inn. Vonandi á þessi geð- þekka, danska stúlka eftir að ná sér af þessum sjúkdómi svo hún geti hafið störf að nýju. Lið umferðardeildarinnar sem sigraði í deildakeppninni i boðsundi innan lögreglunnar. Með þeim á myndinni eru Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn tii vinstri, og til hægri Bjarki Eliasson yfirlögregluþjónn og Arnþór Ingólfsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. DV-myndir KAE Lögreglumenn þurfa alltaf aö halda sér í formi og stunda því ýmsar íþróttir sér til heilsubótar. Þess vegna hefur það meðal annars veriö siður hjá lögreglunni í Reykjavík aö halda sundkeppni milli vakta og deilda á hverju ári í maímánuði sem nýtur mikilla vinsælda innan stofn- unarinnar. Umferðardeildin gerði sér lítið fyr- ir í ár og sigraði í keppni milli deilda í boðsundi. í björgunarsundi keppa einstaklingar um sætin og þar urðu þrír þeir fyrstu Jón Otti Gíslason, Sigurður Steingrímsson og Aðal- steinn Bernharðsson. Tveir fyrr- nefndu mennimir eru báðir úr um- ferðardeildinni þannig að óhætt er að segja að hún hafl komið séð og sigrað í sundkeppni lögreglunnar í ár. Fræknir sundgarpar Þessir þrir fræknu sundmenn urðu efstir í björgunarsundinu, Sigurður Stein- grimsson, Jón Otti Gíslason og Aðalsteinn Bernharðsson. Þeim til halds og trausts eru Magnús Einarsson, Bjarki Elíasson og Arnþór Ingólfsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.