Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
19
Sviðsljós
Torsótt leiðin á toppinn
Allir þessir leikarar eiga það sameiginlegt að það
tók þá yfir tíu ár að öðlast frægð á hvita tjaldinu,
Daniei J. Travanti, Cybill Shepherd, Telly Savalas
og Ted Danson.
Margir þeir sem fylgjast með leikurum telja að
þeir, sem ná því að verða stjömur, hafi aðeins
dottið í lukkupottinn og verið réttir menn á rétt-
um stað. Aðrir halda aö hæfileikar góðra leikara
séu augljósir og því slái þeir strax í gegn sem
hæfileika hafa. Þessu er alls ekki svo farið í
reyndinni. Margar af frægustu stjörnum tjaldsins
böröust mörg ár fyrir frægðinni, og sumir meira
en tíu ár, jafnvel tuttugu, áður en þeir slógu í
gegn.
Einn leikari öðmm fremur barðist lengi fyrir
frægðinni, en það er Daniel J. Travanti sem leik-
ur lögreglustjórann í þáttunum „Hill Street Blu-
es“ sem fengu heitið „Verðir laganna" þegar þeir
voru sýndir í ríkissjónvarpinu. Hann var'búinn
að taka aö sér ótal smáhlutverk í 20 ár áður en
frægðarsól hans fór að rísa.
Önnur fræg stjarna, Telly Savalas, rembdist í
ein tíu ár við að ná frægö, en fékk iðulega ein-
hver lítil skúrkahlutverk áður en hann varö
þekkur sem Kojak. Önnur öllu frægari stjarna
er Don Johnson sem skaut snögglega upp á
stjömuhimininn í þáttunum Miami Vice sem
leynilögreglumaðurinn Sonny Crockett. Þá var
liann 35 ára og var búinn að taka að sér smáhlut-
verk frá þvi hann var tvítugur.
Ted Danson úr „Staupasteini“ og „Three men
and a baby“ hefur svipaðan feril og Telly Savalas
að baki, hann lék skúrka í smáhlutverkum í ein
Skólaslit
í Eyjum
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum;
Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum var slitið fyrir skömmu við
hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu
að viðstöddu fjölmenni. Lauk þar
með níunda starfsári skólans og er
þetta fimmta árið sem stúdentar út-
skrifast, en þeir vom sjö talsins í ár.
Sex þeirra útskrifast af náttúru-
fræðibraut og einn af viðskiptafræði-
braut.
Fyrir bestan námsárangur hlaut
Sigurjón Aðalsteinsson verðlaun
sem Endurskoðun Sigurðar Stefáns-
sonar gaf.
Ólyginn
sagði...
Soffía
drottning
af Spáni hefur algerlega failið fy r-
ir nýju áhugamáli sem tekur all-
an hennar tíma. Áhugamálið er
að spila póker upp á peninga, og
þykir hún orðin nokkuð fær í list-
inni. Hún fékk vin sinn, leikar-
ann Anthony Quinn sem er
kunnur pókerspilari, til þess að
kenna sér íþróttina, og Quinn
segir að hún sé orðin svo fær, að
hann geti ekkert meira kennt
henni.
Fjölbreytt dansatriði, sem sýnd voru á meðan dómnefnd sat að störfum, þóttu sérlega glæsileg.
DV-myndir GVA
Kjör fegurðardrottningar íslands virtist koma Lindu Pétursdóttur á óvart en
fögnuður hennar var mikill er úrslitin voru tilkynnt. Búningar þjóna við at-
höfnina vöktu athygli en þeir voru í iburðarmiklum 18. aldar stil.
Stórsjarmörinn Don Johnson rembdist eins og
rjúpan við staurinn að ná vinsældum í ein fimmt-
án ár áður en fór að rofa til hjá honum.
tíu ár þar tíl hann fékk tækifæri í Staupasteini.
Svipað er ástatt um eina skærustu kvenstjörn-
una, Cybill Shepherd sem byrjaði sinn feril sem
ljósmyndafyrirsæta. Hún var nokkuð vel launuð
sem slík en ákvað frekar að verða leikkona. Lengi
vel leit út fyrir að það tækist henni ekki, eða í
yfir 10 ár. Síðan varð hún stjarna á einni nóttu
er hún fékk tækifæri í spennumyndaflokknum
„Hasarleik“ þar sem hún leikur á móti Bruce
Wilhs.
Því skyldi enginn vera haldinn þeim misskiln-
ingi að leiðin á toppinn í -kvikmyndum sé greið
fyrir flestar stjörnur.
Alls útskrifuðust 7 stúdentar úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum á þessu ári.
DV-mynd Ómar
Don
Johnson
sem lengi hefur gengiö með gra-
sið í skónum á eftir söngkonunni
Whitney Houston, hefur nú tekist
að fá hana til þess að leika í mynd
með sér. Whitney Houston hefur
ekkert á móti því að reyna fyrir
sér sem leikkona, svo hún tók að
sér hlutverkið. En hún tilkynntí
líka Niro aö honum væri best að
halda lúkunum í hæfilegri fjar-
lægð, því annars myndi hún
hætta við allt saman.
hefur aUa tíð staðið fast á því að
taka aldrei að sér hlutverk þar
sem hann þarf að vera léttklædd-
ur. En í nýjustu kvikmynd sinni,
Sweethearts dance, verður breyt-
ing þar á. Þar á hann að koma
berrassaöur fram og þóttí furðu
sæta að Don skyldi samþykkja
að taka að sér hlutverkið. Don
var alveg sama í þetta skiptíð, en
hitt þykir honum verra að fram-
leiðendur myndarinnar hamra
mikið á þvi er þeir auglýsa mynd-
ina að Don Johnson komi létt-
klæddur fram í henni.
Robert
De Niro
íburðarmikil
skrautsýning
Það var mikið fjölmenni saman-
komið á Hótel íslandi er kjör fegurð-
ardrottningar íslands 1988 fór fram.
Eins og flestir íslendingar vita var
Linda Pétursdóttir kosin fegurðar-
drottning íslands en hún var fulltrúi
Austurlands í keppninni.
Fjölbreytt dansatriði, sem sýnd
voru á meðan dómnefndin kom sam-
an, vöktu athygU og þóttu sérlega
glæsileg. Einnig vöktu búningar
„þjóna“ fegurðardrottninganna at-
hygU en þeir voru í íburðarmiklum
18. aldar stíl með viðeigandi hárkoll-
um.