Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Qupperneq 34
34
LífsstíIL
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
13 V
n
Má ekki verða of fallegur...
44
Garðeigendur í Mosfellsbæ í stórframkvæmdum
Vorverkin eru nú komin á fullan
skrið hjá garðeigendum landsins. í
Mosfellsbæ er mikið um fallega og
vel hirta garöa. Á dögunum fóru DV
menn í smáleiðangur um þennan
yngsta kaupstað landsins. Þrátt fyrir
að þetta væri á virkum degi og kom-
ið fram að kvöldmat voru margir að
vinna í görðum sínum og slógu ekki
af þrátt fyrir að langur vinnudagur
lægi að baki.
Garðkamína með grilli
í hverri götu voru einhverjar stór-
framkvæmdir á döfinni. Mátti sjá
gangstéttarhellur, sandhrúgur og
möl viö þriðja hvert hús, eða allt að
því.
Þar sem okkur bar fyrst að voru
hjónin Sigurlaug Óskarsdóttir og
Hjörtur Grímsson í óðaönn aö grafa
fyrir hellulagðri verönd í bakgarðin-
um.
„Þetta á að verða sæmilega stór
verönd svo að borð, stólar og sól-
bekkir komist fyrir. Síðan ætlum við
að hafa tveggja metra háa garðkam-
ínu úr steini við endann á verönd-
inni. Þar verður hægt að grilla og
orna sér við eld á svölum sumar-
kvöldum," sagði Hjörtur um leið og
hann ýtti hjólbörum fuUum af mold
af staö. Moldinni var síðan sturtað í
kerru þar sem flytja átti hana í garð
ættingja sem einnig fá túnþökumar
úr garðinum til að gera sína lóð í
stand. í næsta garði var nágranninn
Tíðarandi
Sigurlaug og Hjörtur undirbúa hellulagða verönd I bakgarðinum.
Guðmundur hylur hitalögnina með sandi.
Sævar ætlar að losa sig við mölina úr innkeyrslunni og leggja hellur.
að íjarlægja yfir þriggja metra háar
aspir sem voru famar aö skyggja á
garðinn. Þessar aspir voru einnig
fluttar á kerra til nýrra heimkynna.
Neðar í götunni stóð Sævar Magnús-
son í innkeyrslu sinni og rakaði möl
saman. „Ég er að losa mig við mölina
og ætla í staöinn að setja hellulagða
innkeyrslu með blómabeði viö end-
ann. Þetta verður mun snyrtilegra
þannig." sagði Sævar þar sem hann
mundaði hrífuna af mikilli elju.
Blátt ferlíki
Fyrir utan raöhús í næstu götu var
greinilega mikið um aö vera. Stór
sandbingur var við hliðið og strákur
að moka upp í hjólbörur. Ljósblátt
ferlíki úr plasti stóð á kerru við hlið-
ina á stráknum. Guðmundur Guð-
mundsson eigandi hússins var inni í
Það munaði um hann Helga Þór sem mokaði sandi í hjólbörur. Við hlið hans á kerrunni er heiti potturinn.
DV-myndir KAE.
garðinum að leggja heitavatnslögn
undir stétt. Síðan átti að koma heita
pottinum fyrir, og þar kom skýringin
á bláa ferlíkinu. Snæbjöm Stefáns-
son mágur hans sprautaði vatni á
sandinn sem settur var ofan á hita-
lögnina um leið og Guðmundur rak-
aði sandinum yfir. Helgi Þór, sonur
Snæbjamar, brunaði inn eftir gang-
stignum frá hliðinu með fullar börur
af sandi. Þetta virtist ganga fljótt fyr-
ir sig enda samvinnan í fyrirrúmi
hjá mönnunum þrem. Við töfðum
ekki lengi því þeim var greinilega í
mun að klára þennan áfanga verks-
ins fyrir nóttina.
Hafa vart undan
Að sögn eins helluframleiðanda
hafa þeir vart undan við að framleiöa
þessa dagana. Fólk virðist fara
óvenju snemma af stað í görðunum
að þessu sinni. Áhugi fyrir fogrum
og skemmtilegum görðum hefur
aukist til muna á undanfomum
árum og eru nú margir sem setja upp
heita potta, gróðurskála og hlaðin
útgrill í görðum sínum. Þetta era
yfirleitt fremur kostnaðarsamar og
tímafrekar framkvæmdir. En þær
gefa eigendunum mikið í staðinn. Að
sögn þeirra er koma sér upp slíkri
aðstöðu er ánægjan ekki síst fólgin í
því að koma þessu öllu upp og fegra
umhverfið með blómum og tijám.
Fallegur garður er stolt hvers hús-
eiganda. En böggull fylgir hveiju
skammrifi eins og kom í Ijós í orðum
eins viðmælenda okkar.
„Við stefnum að þvi að gera þetta
að mjög fallegum garði, en hann má
ekki verða of fallegur þvi þá gætum
við fengið viðurkenningu. Skiltið
sem bæjaryfirvöld láta í té í viöur-
kenningarskyni er svo Ijótt að óprýði
yrði að í garðinum." En þetta var nú
meira sagt í gamni en alvöru.
-gh