Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1988. 35 Afmæli Magnus Magnus Jonsson óperusöngvari, til heimilis að Fomuströnd 6, Sei- tjarnarnesi, er sextugur í dag. Magnús fæddist í Reykjavík og ólst þar upp en var jafnframt mikið á sínum æskuárum hjá móðurfor- eldmm sínum í Grenivík í Höfða- hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu. Magnús lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík 1944. Hann hóf að æfa frjálsar íþróttir hjá KR 1947 og var um skeið í hópi fremstu sprett- hlaupara landsins. Magnús var ís- , landsmeistari í 400 og 800 metra hlaupi en hann tók þátt í ólympíu- leikunum í London 1948 og Evrópu- meistaramótinu í frjálsum íþrótt- um í Brússel 1950. Magnús var í söngnámi hjá Pétri Jónssyni 1947-50, í söngnámi í Mílanó á Ítalíu 1951-53 og aftur 1955, í Stokkhólmi 1953, í námi í óperuskóla Konunglega leikhúss- ins í Kaupmannahöfn 1957-58 og síðar í einkatímum hjá Stefáni ís- landi. Magnús hefur sungið á konsert- um og í óperum á íslandi, Ítalíu, í Danmörku, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum en hann söng í fyrsta sinn opinberlega guðspjalla- Steinþór Steinþór Gestsson, fyrrv. alþing- ismaður og b. að Hæli í Gnúpverja- hreppi, er sjötíu og fimm ára í dag. Steinþór fæddist á Hæli. Hann lauk gagnfræðaprófi frá MA 1933 og var b. á Hæli frá 1937-76. Steinþór var formaður Ung- mennafélags Gnúpverja 1933-37 og 1940-42. Hann sat í hreppsnefnd 1938-74 og var oddviti 1946-74. Þá sat hann í sýslunefnd 1946-70 og 1974-78 og var endurskoöandi reikninga sveitarsjóða Árnessýslu frá 1950-70. Hann var formaður hestamannafélagsins Smára 1945-66 og formaður Landssam- bands hestamannafélaga 1951-63. Steinþór var varaþingmaður í Árnessýslu 1953-59 og í Suður- landskjördæmi 1959-67. Hann var alþingismaður Suðurlandskjör- dæmis 1967-78 og 79. Steinþór sat í miðstjórn Sjálf- stæöisflokksins og hefur verið í stjórn Búnaðarfélags íslands frá 1979. Hann var í stjórn Fram- kvæmdastofnunar og í stjórn Áburðarverksmiðju ríkisins. Steinþór var ritstjóri Suðurlands 1979. Kona Steinþórs er Steinunn, f. 8.10. 1912, dóttir Matthíasar Jóns- sonar, b. í Skarði í Gnúpverja- hreppi og síðar á Fossi í Hruna- mannahreppi, og konu hans, Jó- hönnu Bjarnadóttur. Steinþór og Steinunn eiga flmm börn og sextán barnabörn. Böm þeirra eru: Jóhanna, skólastjóri barnaskólans í Gnúpveijahreppi, f. 1938; Gestur, skattstjóri í Reykja- vík; f. 1941; Aðalsteinn, verslunar- maður hjá Byko, f. 1943; Margrét, b. í Háholti í Gnúpverjahreppi, f. 1946; og Sigurður, b. á Hæli, f. 1954. manninn í Jóhannesarpassíunni 1949. Magnús var ráðinn við Konung- legu óperuna í Kaupmannahöfn 1957-66 en þar söng hann m.a. aðal- hlutverk í II Trovadore, Un Ballo in Maschera, Rigoletto, La Boheme, Cavaleria Rusticana, Gianni Schicchi, Ævintýnnn Hoffmans, Hollendingnum fljúgandi, Sál og Davíð, Tannháuser og fl. ópemm. Magnús kom heim til íslands 1967 en hann hefur sungið í uppfærslum Þjóðleikhússins á Ævintýmm Hoffmanns, Leðurblökunni, Kátu ekkjunni, Þrymskviðu, Ástar- drykknum og Carmen og með ís- lensku óperunni í I Paghacci auk fjölda konsertuppfærslna en þar má m.a. nefna Verdis Requiem, Stabat Mater og Þjóðhátíðarkant- ötu Emils Thoroddsen. Magnús hefur verið söngkennari hjá Söngskólanum í Reykjavík sl. tíu ár en jafnframt starfar hann hjá endurskoðunardeild Reykjavíkur- borgar. Magnús kvæntist 20.11.1962 Guð- rúnu, útibússtjóra Útvegsbankans í Breiðholti, f. 29.1. 1935. 'Guðrún er dóttir Svavars Guðmundssonar, Gestsson Steinþór átti flmm systkini en tveir bræður hans eru látnir. Þeir eru Einar, b. á Hæli, og Gísh, safn- vörður hjá Þjóðminjasafninu. Systkini Steinþórs á lífi em: Hjalti, ráðunautur á Selfossi, Þorgeir, læknir í Reykjavík, og Ragnheiður, húsmóðir á Asólfsstöðum í Gnúp- verjahreppi. Foreldrar Steinþórs voru Gestur Einarssonar, b. á Hæli, og kona hans, Margrét Gísladóttir. Systir Gests var Ingigerður, móð- ir Helgu, konu Sveins Benedikts- sonar og móður Benedikts hrl., Ingimundar arkitekts og Einars, forstjóra Sjóvá. Önnur systir Gests var Ragnhiildur, móðuramma Páls Lýðssonar, stjórnarformanns Slát- urfélags Suðurlands. Þriðja systir Gests var Sigríður, móðir Einars Sturlusonar ópemsöngvara. Bróð- ir Gests var Eiríkur alþingismaður. Foreldrar Gests voru Einar, b. á Hæli, Gestsson og kona hans, Steinunn Vigfúsdóttir, sýslumanns á Borðeyri, Thorarensen. Steinunn var systir Guðrúnar, móður Guðnýjar, móður Brynjólfs Bjarnasonar, heimspekings og fyrrv. menntamálaráðherra. Guðný var systir Torfhildar, langömmu Davíðs Oddssonar. Móðir Steinunnar var Guðrún, systir Bjarna Thorarensen, skálds og amtmanns. Gestur á Hæh var sonur Gísla, b. á Hæli, Gamalíelssonar, bróður Jóns, afa Haralds Matthíassonar menntaskólakennara og Steinunn- ar, konu Steinþórs, en Jón var einnig langafi Manfreðs Vilhjálms- sonar arkitekts. Kona Gests var Ingveldur Einarsdóttir, b. í Laxárd- al í Eystrihreppi, Jónssonar, ætt- Sólveig Hákonardóttir Sólveig Hákonardóttir mat- reiðslumeistari, Ægisíðu 92, Reykjavík, er fertug í dag. Sólveig er fædd í Reykjavík og varð matreiðslumeistari frá Hótel- og veitingaskóla íslands 1974. Maður Sólveigar er Ólafur Thor- oddsen. Sólveig eignaðist tvo syni og er annar þeirra, Grétar Harðarson, á lífi. Systkini Sólveigar eru Sigrún, f. 1. janúar 1945, og Karin, f. 12. des- ember 1950, sem báðar búa í Stokk- hólmi, og Hákon Örn, f. 19. ágúst 1950. Foreldrar Sólveigar era Há- kon Sigtryggson, tæknifræðingur hjá Vegagerð ríksins, og kona hans, Oddný Gestsdóttir. Faðir Hákonar var Sigtryggur, verkamaður á Húsavík, ' Jakobssonar, vinnu- manns á Kambi í Deildardal, Jak- obssonar, b. í Höfn í Fljótum, Run- ólfssonar. Faðir Oddnýjar var Gestur, verslunarmaður á Sval- barðseyri, Halldórsson, b. í Garðs- vík á Svalbarðsströnd, Jóhannes- sonar, b. á Kaðalsstöðum, Pálsson- ar, b. á Kaðalsstöðum, Árnasonar, b. á Kaðalsstöðum, Björnssonar. Móðir Oddnýjar var Elín Ásgeirs- dóttir, b. á Gautsstöðum, Stefáns- sonar, b. í Tungu, Magnússonar, b. á Rútsstöðum, Torfasonar. Móðir Ásgeirs var Sigrún Jó- hannesdóttir, b. á Hallanda, Berg- vinssonar. Móðir Stefáns var Þor- björg Benediktsdóttir, systir Sig- Jónsson bankaútibússtjóra á Akureyri, og konu hans, Sigrúnar Þormóðs, frá Siglufirði. Magnús og Guðrún eiga tvö börn. Þau eru: Svavar, lögreglumaður í Reykjavík, f. 22.11.1963, og Sigrún Vilborg, háskólanemi ogflugfreyja, f. 16.2. 1966. Systir Magnúsar var Sigríður Ingibjörg, f. 1943, en hún lést ung. Foreldrar Magnúsar: Jón Sigurð- ur Bjömsson, deildarstjóri í Út- vegsbanka íslands í Reykjavík, f. 22.9. 1899, d. 1981, og kona hans, Agnes Oddgeirsdóttir, f. 11.9. 1907. Systir Agnesar er Fanney, móðir Kristjáns Jóhannssonar ópera- söngvara. Bróðir Agnesar er Há- kon, þjóökunnur einsöngvari. Móöurforeldrar Magnúsar voru Oddgeir Jóhannsson, útvegsbóndi á Hlöðum í Grenivík, og kona hans, Aðalheiður Kristjánsdóttir, systir Jóhanns á. Végeirsstöðum í Fnjóskadal, afa Jóhanns Konráðs- sonar, föður Kristjáns óperusöngv- ara. Oddgeir var sonur Jóhanns, b. í Saurbrúargerði á Svalbarðs- strönd, Gíslasonar og Kristínar Bjargar Sigurðardóttur, b. á Fells- seh í Kinn, Bjamasonar. Föðurforeldrar Magnúsar: Bjöm Björnsson, prestur í Laufási, og kona hans, Ingibjörg Magnúsdótt- ir, systir Jóns Magnússonar for- sætisráðherra og Sigurðar, yfir- læknis á Vífilsstööum. Bjöm var sonur Björns Björns- sonar á Breiðabólstöðum á Álfta- nesi og Oddnýjar Hjörleifsdóttur, prests á Völlum, Guttormssonar. Systir Oddnýjar var Petrína, amma Kristjáns Eldjárn forseta. ^ Ingibjörg var dóttir Vilborgar Siguröardóttur að Hóli í Keldu- hverfi, Þorsteinssonar og Magnús- ar Jónssonar, prests að Laufási, en hann var sonur Jóns Jónssonar á Víðimýri og konu hans, Sigríðar Davíðsdóttur, b. á Völlum í Eyja- firöi, bróður Jónasar, afa Jónasar Hallgrímssonar. Bróðir Sigríðar Davíðsdóttur var Tómas, langafi Davíðs, föður Ing- ólfs grasafræðings. Systir Sigríðar var Rannveig, amma Páls Árdal skálds, en hann var afi prófessor- anna Steingríms J. Þorsteinssonar og Páls Árdal heimspekings og langafi Guðmundar Emilssonar söngstjóra. Þá var Rannveig lang- amma Kristínar Sigfúsdóttur rit- Magnús Jónsson. höfundar. Bróðir Magnúsar í Laufási var Tómas, b. í Holti í Eyjafirði, lang- afi Jóns, fóður Inga Hrafns. Annar bróðir Magnúsar var Jón, langafi Rögnvaldar Sigurjónssonar píanó- leikara. Systir Magnúsar var Margrét, langamma Bjargar, móö- ur Magnúsar Thorarensen hæstar- réttardómara og langamma Péturs, föður Guðmundar, forstöðumanns á Keldum. Steinþór Gestsson. föður Laxárdalsættarinnar. Móöurforeldrar Steinþórs voru Gísli, b. á Ásum í Eystrihreppi, Einarsson og Margrét ljósmóðir, dóttir Guðmundar, b. á Ásum, Þor- móðssonar og konu hans, Margrét- ar Jónsdóttur, prests á Klaustur- hólum, Jónssonar, prests í Hruna, Finnssonar biskups Jónssonar. Bróðir Jóns í Hruna var Hannes biskup, ættfaðir Finsenættarinnar. Margrét Jónsdóttir var systir Jóns, prófasts á Hofi, langafa Ragnheiðar borgarminjavarðar. Gísh í Ásum var sonur Einars, b. á Urriðafossi, Einarssonar, b. þar, Magnússonar, ættföður Urr- iðafossættarinnar. Kona Einars á Urriðafossi var Guðrún Ófeigs- dóttir ríka á Fjahi á Skeiðum, Vig- fússonar. Bróðir Guðrúnar var Vigfús, afi Grétars Fells rithöfund- ar. Annar bróðir Guðrúnar var Ófeigur, langafi Tryggva Ófeigs- sonar útgeröarmanns, afa Tryggva Pálssonar bankastjóra. Steinþór er ekki heima á afmælis- daginn. Sólveig Hákonardóttir. urðar, langafa Kristínar Jónsdótt- ur listmálara, móður Helgu Valtýs- dóttur leikkonu. Til hamingju með daginn 85 ára Guðmundur Þorleifsson, Þverlæk, Holtahreppi, er áttatíu og fimm ára í dag. 75 ára Unnur Kristjánsdóttir, Heiðmörk 69, Hveragerði, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Magnea Sigurjónsdóttir, Norður- Eyvindarstöðum, Bessastaða- hreppi, er sjötug í dag. 60 ára Aðalsteinn Þórólfsson, Stóru- Tungu, Bárðdælahreppi, er sextug- ur í dag. Björg Isaksdóttir, Bjargi II, Sel- tjarnarnesi, er sextug í dag. Fjóla Magnúsdóttir, Hvanneyrar- braut 19, Siglufirði, er sextug í dag. Sigurður Antonsson, Glæsistöðum, Vestur-Landeyjum, er sextugur í dag. Brynhildur Sæmundsdóttir, Fannafold 77, Reykjavík, er sextug í dag. Oddný Þorsteinsdóttir, Sæbóli, Borgarfjarðarhreppi, er sextug í dag. 50 ára Oddur Ragnarsson, Árstíg 9, Seyð- isfirði, er fimmtugur 1 dag. 40 ára Smári Sæmundsson, Bakkaseli 6, Reykjavík, er fertugur í dag. Helga Sigurðardóttir, Kirkjuvegi 6, Olafsfiröi, er fertug í dag. Guðmundur Andrésson, Galtar- læk, Skilmannahreppi, er fertugur í dag. Jón Helgi Karlsson, Birnustöðum, Ögurhreppi, er fertugur í dag. Alfreð Guðmundsson, Hrísateigi 33, Reykjavík, er fertugur í dag. Sigurður Þorsteinsson, Ofanleiti 19, Reykjavík, er fertugur í dag. Engilbert Guðmundsson, Brekku- braut 10, Akranesi, er fertugur í dag. Gunnar Magnússon, Þórufelli 14, Reykjavík, er fertugur í dag. Kristín Hansdóttir, Hamragötu 23, Búðahreppi, er fertug í dag. Sigurður Ingólfsson, Langholti 7, Akureyri, er fertugur í dag. Valur Karlsson, Holtabrún 15, Bol- ungarvík, er fertugur í dag. Sigríður Sverrisdóttir, Gimli, Grýtubakkahreppi, er fertug í dag. Gestur Jónsson, Norðurbyggð 17, Akureyri, er fertugur í dag. Sveinn Sigurðsson Sveinn Sigurðsson vörubifreiöa- stjóri, til heimilis að Höfðavegi 27, Vestmannaeyjum, er sextugur í dag. Sveinn fæddist og ólst upp í Vest- mannaeyjum, sonur Sigurðar Sveinssonar, f. 18.11. 1898, d. 28.6. 1964, og eftirlifandi konu hans, Sig- ríðar Pétursdóttur, f. 22.11.1907. Kona Sveins er Ásta Ólafsdóttir frá Siglufirði, f. 8.8. 1932. Sveinn og Ásta eiga fimm börn. Þau eru: Ólrikka, f. 20.9. 1950, gift Þórólfi Þorsteinssyni, f. 27.3. 1949, starfsmanni Ofnasmiðju Keflavík- ur, en þau eiga eina dóttur, Maríu Ósk; Sigurður, f. 17.6, 1953, neta- gerðarmeistari, en sambýliskona hans er Þóra Ólafsdóttir, f. 14.12. 1961, og eiga þau eina dóttur, Thelmu; Þór Jakob, f. 8.11. 1956, vélaviðgerðamaður, giftur Helgu Ágústsdóttur, f. 21.1. 1961, en þau eiga tvö börn, Fríðu og Svein Ágúst; Rósa, f. 26.9. 1963, gift Guðna Hjör- leifssyni, f. 8.11.1957, sjómanni, en þau eiga eitt barn, Ástu Björk; Jóna, f. 21.7. 1975, en hún er í for- eldrahúsum. Systir Sveins er Ásta, húsmóðir í Vestmannaeyjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.