Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 36
36 Andlát Guðrún Elín Guðmundsdóttir, ljós- móðir frá Pétursey, lést í Hrafnistu í Hafnarfirði 29. maí. Helga J. Jónsdóttir, Bragagötu 38, lést 29. maí. August Hákansson, varð bráðkvadd- ur fóstudagskvöldið 27. maí. Stefán G. Sigurðsson kaupmaður, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 29. maí. Magnús Jónsson, Brimnesvegi 20, Flateyri, andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu ísafirði laugardaginn 28. maí. Jarðarfarir Guðlaug Verónika Franzdóttir lést 14. maí sl. Hún var fædd 14. mars 1896 að Vatni á Höfðaströnd, dóttir hjónanna Jóhönnu Gunnarsdóttur og Franz Jónatanssonar, síðar bónda og bamakennara að Skálá í Sléttu- hlíð. Veronika giftist Eiði Sigurjóns- syni, en hann lést árið 1964. Þau eign- uðust fjögur böm og eru þrjú á lífi. Útfór Veroniku veröur gerð frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 13.30. Ólöf Sveinsdóttir er látin. Hún var fædd 19. mars 1902 í Goðdölum í Skagafjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru hjónin séra Sveinn Guðmunds- son og Ingibjörg Jónasdóttir. Eftirlif- andi eiginmaður hennar er Ragnar Guðmundsson. Útfór Ólafar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Anna S. Jónsdóttir lést 16. maí. Hún var fædd 30. desember árið 1986 á Borgarfirði eystra. Foreldrar hennar voru Áslaug Steinsdóttir og Jón Jónsson. Anna giftist Stefáni Páls- syni, en hann lést árið 1973. Þau eign- uðust tvær dætur en misstu aðra tólf ára gamla. Útfór Önnu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988. Kvikmyndir Bíóhöllin/Baby Boom Diane Keaton fer á kostum Diane Keaton og Sam Shepard í hlutverkum sínum i Baby Boom. Leikstjóri: Charles Shyer Handrit: Nancy Meyers og Charles Shy- er Aðalhlutverk: Diane Keaton, Harold Ramis, Sam Wanamaker, Sam Shepard Leikkonan Diane Keaton fer á kostum í myndinni Baby Boom sem sýnd er um þessar mundir í Bíóhöllinni. Þar er Keaton í hlut- verki ungrar konu á uppleiö sem fær smábarn í arf eftir frænda sem hún hefur nánast aldrei séð. Fljótlega kemur í ljós að barn er ekki æskilegt í hinum harða heimi viðskiptalífsins, karlmenn taka fram úr Keaton í klifrinu upp met- orðastigann. Hún hrökklast úr vinnu og flytur í smábæ uppi í sveit. Það er fjarri því að hún sé ánægð með hlutskipti sitt í krummaskuði. Hún rær að því öllum árum að komast aftur til New York en er orðin peningalítil. Hún á víðlendar eplaekrur og notar alla uppskeruna til að fram- leiða barnamat. Er líöa tekur á veturinn fer hún að selja barna- matinn. Sælkerabarnamatur, en það er nafnið sem hún setur á krukkurnar, selst brátt mjög vel og taka viðskiptin að vinda upp á sig. Fyrirtækið, sem hún vann hjá áður, lýsir áhuga á að kaupa barna- matarfyrirtæki hennar og býður henni forstjórastöðu. Keaton segir nei. Hún snýr aftur upp í sveit, til krakkans og dýralæknisins. Baby Boom er snörp ádeila á hina köldu karlmannsveröld þar sem börn eiga.sér ekki stað. Hún deilir harðlega á það framapot og lífs- gæðakapphlaup sem útilokar kon- ur vegna þess að þær eigi barn. Þegar Keaton fær barnið í hendur er hún á hraðri leið upp metorða- stigann. Hún hægir heldur betur á ferðinni og aðrir maka krókinn. Hún hættir og flýr upp í sveit. Þar hittir hún andstæðu sína dýralækninn. í sveitinni er pláss fyrir börn og einnig tími. Leikur Keaton heldur myndinni uppi allan tímann. Hún slakar hvergi á og er stórkostlegur gam- anleikari. Einnig er gaman að sjá leikskáldið góðkunna, Sam Shep- ard, í hlutverki sveitalúðans, hann á ágætan leik. -PLP Ebeneser Erlendsson lést 16. maí. Hann var fæddur á Flæðareyri í Grunnavík 27. apríl 1907. Ebeneser stundaði sjómennsku og vann ýmis önnur störf. Eftirlifandi eiginkona hans er Jóna Sigurðardóttir. Þau eignuðust fimm böm. Útfór hans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Sigrún Helga Valdimarsdóttir, and- aðist í Kristnesspítala laugardaginn 21. maí. Jarðarfórin fer fram frá Akureyrarkirkju fostudaginn 3. júní kl. 13.30. Agnar Eggert Valdimarson, Öldu- granda 3, andaðist í Borgarspítalan- um 16. maí. Útfórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gunnar Vilhjálmsson, Alfheimum 42, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 10.30. Laufey Stefánsdóttir, Fálkagötu 9, Reykjavík, sem lést 22. þ.m., verður jarðsungin frá Neskirkju miðviku- daginn 1. júní kl. 15. Kjartan Stefánsson, verður jarö- sunginn frá Fossvogskirkju miö- vikudaginn 1. júní kl. 13.30. Teikna eftir Ijósmynd- um með þurrpastel, stærð 50x65 cm eða minna, verð á mynd í lit kr. 4.950,- verð á mynd í svárt/hvítu kr. 2.500,- verö á mynd í blýant kr. 2.500,- Innrömmun á staðnum Sendi í póstkröfu Vinnustofa Þóru Laugavegi 91,2. hæð (Dómus), simi 21955. Sigríður Blöndal verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi mið- vikudaginn 1. júní kl. 10.30. Sigríður Jónsdóttir frá Þingeyri við Dýrafjörð, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 1. júní kl. 13.30. Sigurður Jónsson, áður til heimilis að Nýlendugötu 4, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði 20. þ.m. Útfórin fer fram frá Fossvogskirkju 1. júní kl. 10.30. Útför Jens Þórarins Karlssonar fer fram frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, fimmtudaginn 2. júní kl. 14. TiJkyiiningar Heimsókn John Stott Miðvikudaginn 1. júní nk. verður haldin almenn samkoma í Neskirkju kl. 20.30 á vegum Landssambands KFUM og KFUK, Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og Kristilegra skólasamtaka. Ræðumaður verður John Stott, en hann er enskur prestur og einn allra þekktasti leiðtogi evangelískra kristinna manna í heimin- um í dag. Hann hefur ferðast viða um heim til fyrirlestrahalds. Samkoman í Neskirkju verður eina samkoman sem hann talar á í þessari heimsókn. Hér er einstakt tækifæri tii þess að heyra einn fremsta predikara kristinnar kirkju tala á íslandi. Sýning á VAX-tölvukerfum og hugbúnaði. DECUS (notendafélag digital-tölvukerfa) er með ráðstefnu á Holiday Inn í dag. í tengslum við ráðstefnuna heldur tölvu- deild Kristjáns Ó. Skagfjörðs hf. sýningu á sama stað á VAX-töIvukerfum frá DEC og hugbúnaði, bæði frá DEC og öðrum aðilum. Sýningin verður opin fyrir DEC- US-félaga í dag. Miðvikudaginn 1. júni verður sýningin opin almenningi frá kl. 10-18. Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík í sumar mun Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík starfrækja orlofsheimili í hinu glæsUega húsnæði Bændaskólans á Hvanneyri, Borgarfirði. Hægt er að velja um eins eða tveggja manna herbergi með sér snyrtingu. Einnig er á staðnum ágæt baðaðstaða, heitur pottur og sólskýli. Boðið er upp á skoðunarferðir, leikfimi og kvöldvöku. Bókasafn er á staðnum og guðsþjónusta verður vikulega. Frá og með 1. júní verður tekiö á móti umsókn- um um orlofsdvöl, á skrifstofu Orlofs- nefndar, að Traðarkotssundi 6. Opið mánudaga tíl fóstudaga kl. 15-18, sími 12617. Nánari upplýsingar fást á skrifstof- unni. Dvalarvikur verða 5 í sumar og hefst fyrsta vikan 18. júní. Ekki er hægt að dvelja lengur en eina viku. Vonast er eftir að sem flestar konur geti nýtt sér dvöl að Hvanneyri í sumar. Málverkasýning í Menningar- stpfnun Bandaríkjanna Fimmtudaginn 2. júní nk. opnar Gulay Berryman málverkasýningu í Menning- arstofnun Bandaríkjanna. Flestar mynd- anna eru af íslenskum mótifum og unnar á síðustu árum hérlendis, en frú Berry- man er gift sendierindreka í bandaríska sendiráðinu í Reykjavík og hafa þau búið hér um tveggja ára skeið. Sýningin verð- ur opin daglega kl. 8.30-20 en listamaöur- inn verður við daglega sjálfur milli kl. 13.30-20. Sýningin er öllum opin. Anna Leós sýnir í Viðey Málverkasýning Önnu Leós var opnuð sl. laugardag í Viðeyjamausti. Sýningin verður opin næstu þrjár vikur. Ferðir em frá Sundahöfn frá kl. 14 virka daga og kl. 13 um helgar. Kynningarfundur Náttúru- lækningafélaganna 1988 Náttúrulækningafélag íslands og banda- lagsfélögin á Akureyri og í Reykjavik halda kynningarfund á Hótel Loftleiðum, ráðstefnusal, miðvikudaginn 1. júní kl. 20.30-23. Allir áhugamenn em velkomnir á fundinn. Fyrirlestur um kennslu sam- félagsfræði í grunnskóla Miðvikudaginn 1. júní nk. kl. 17 heldur Tony Marks fyrirlestur og sýnir mynd- band um kennslu í samfélagsfræði í grunnskóla. Fyrirlesturinn verður hald- inn í kennslumiðstöð Námsgagnastofn- unar, Laugavegi 166. Tony Marks er lekt- or í félagsfræði og kennslufræði félags- fræðinnar við breskan háskóla. Hann er hér staddur á vegum Félags félagsfræði- kennara til aö halda námskeið í kennslu- fræði greinarinnar. Áhugamenn um samfélagsfræðikennslu em hvattir til að mæta. Starfsemi skólagarða Reykja- víkur að hefjast. Skólagarðar Reykjavíkur hefia starfsemi sína um næstu mánaðamót. Innritun barna verður 1. og 2. júní kl. 8 og er gjald- ið 400 kr. Öllum bömum á aldrinum 9-12 ára er heimil þátttaka. Skólagarðar em reknir á sex stööum í Reykjavík, í Skerja- firði, við Ásenda, í Laugardal, Stekkjar- bakka og Jaðarseli í Breiðholti og Árt- únsholti í Árbæ. í skólagörðum Reykja- vikur fá börn leiðsögn við ræktun á grænmeti og plöntum, auk þess að fara í leiki og stuttar gönguferðir í nágrenni við garðana til náttúmskoðunar og fræðslu um borgina. Tónleikar Stórtónleikar í Duushúsi Jóhann Eiríksson og Froskur tilkynna stórtónleika í Duushúsi miövikudaginn 1. júni kl. 21.30. Fram munu koma hljóm- sveitimar Daisy Hill Puppy Farm sem kynnir nýútkomna plötu sína, Rocket Boy, og HAM sem kynnir plötuna Hold sem kemur út í byrjun júní. Auk Daisy Hill Poppy Farm og HAM koma fram frægir leynigestir sem kunnugir telja að gætu eins verið hinir landsfrægu Sog- blettir eða jafnvel Sinfóníuhljómsveit æskunnar. Námskeið fyrir almenning í ferðamennsku Nýlega hélt björgunarskóli Landssam- bands hjálparsveita skáta námskeið fyrir almenning í ferðamennsku. Kennd vom ýmis atriði sem ferðafólk ætti að kunna skil á, m.a. notkun áttavita og landa- bréfa. Þetta fyrsta námskeið, sem stóð í 4 kvöld, sóttu 15 manns, en ráðgert er að halda fleiri námskeið með haustinu. Myndin sýnir nokkra þátttakendur í lok námskeiðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.