Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 3
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
3
Fréttir
Steingrímur Hermannsson um bráðabirgðalögin:
Hver sem er getur farið
fram hjá þessum lögum
- Seðlabankinn gerir ekki tilraun til að hafa hemil á vöxtunum
„Afar mikiö af því sem að var
stefnt hefur runniö út í sandinn, því
miöur. Hver sem er getur fariö fram
hjá þessum lögum. Fyrst var það ísal
meö Vinnuveitendasambandið í
broddi fylkingar, nú er þaö Lands-
virkjun sem fer fram hjá þeim og
vextir hafa hækkaö meira en nokkru
sinni þrátt fyrir yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar um aö beita sér gegn
slíku. Seölabankinn hefur ekki gert
tilraun til aö hafa þar hemil á,“ sagöi
Steingrímur Hermannsson, utanrík-
isráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins.
Steingrímur sagöi aö nú lægi fyrir
lagaálit Siguröar Líndal um aö
Landsvirkjun væri ekki ríkisfyrir-
tæki og því tækju bráöabirgðalögin
ekki til hennar. Taldi hann lögin vera
þá oröin ansi haldlaus. Steingrímur
sagöi aö þaö heföi verið fullt sam-
komulag meöal formanna stjórnar-
flokkanna, þegar bráðabirgöalögin
voru undirbúin, aö ákvæöi þeirra um
opinberar hækkanir næöu einnig til
Landsvirkjunar. Þetta hafi verið
■ staöfest á fundi ríkisstjórnarinnar í
gær.
„Ég heföi viljað gera breytingar á
lögunum og láta ákvæöiö ná til
Landsvirkjunar en þaö þykir
kannski ekki góð latína," sagöi Stein-
grímur.
Hann sagði aö nú væru tvö dæmi
um að farið væri í kringum lögin, auk
vaxtahækkana, og honum virtist
ekki mikiö standa éftir af þeim nema
gengisfellingin. „Ég hef lagt þaö til
hvaö eftir annað aö hámarksvextir
veröi settir á lánskjaravísitölutryggð
bréf og aö Seölabankinn ákveði
vaxtamun en um það hefur ekki orð-
iö samkomulag."
- Telja framsóknarmenn aö lögin séu
haldlaus og grípa þurfi til einhverra
aðgeröa?
„Viö höldum okkar miðstjórnar-
fund í ágúst og tökum þá afstööu til
þessara mála,“ sagöi Steingrímur.
- Telur þú þörf á viöurlagaákvæöi í
bráöabirgðalögunum?
„Þaö var mikið rætt í kringum
þetta ísal-mál. Þegar ekki er hægt að
treysta á að aöilar eins og VSÍ, ísal
og Landsvirkjun fylgi lögunum þá
þarf einhvers konar þess háttar
ákvæöi," sagöi Steingrímur Her-
mannsson.
JFJ
Dýrt að stoppa
á íslandi
Erlendur ferðamaöur sem stopp-
ar á íslandi á leið yfir Atlantshafið
þarf að greiöa rúmar átta þúsund
krónur fyrir þriggja daga stopp.
Þetta er umtalsvert hærra verð en
verið hefur á undanfórnum árum.
Flugleiðir ákváðu aö hækka
veröið um sumartímann á síðasta
ári þar sem hótelin voru fullbókuð
af venjulegum ferðamönnum. Þrátt
fyrir að harðnaö hafi á dalnum í
ár halda Flugleiðir enn háa verð-
inu.
Einn hópur farþega getur þó enn
fengið að stoppa á íslandi fyrir lágt
verö. Það eru farþegar á hæstu far-
gjöldum frá Bandaríkjunum á leið
til Norðurlandanna. Þar sem oftast
hður einn dagur frá því lent er á
Keflavikurflugvelli og þar til önnur
vél heldur áfram til Noröurland-
anna kostar lítið aö stoppa hér
þann tíma, eða 1.270 krónur.
Eins dags stopp á leiöinní frá
Bandaríkjunum til Evrópu kostar
hins vegar 3.000 krónur. -gse
Neskaupstaður:
Máli sparisjóðsstjórans
vísað til Jafnréttisráðs
Jafnréttisnefnd Neskaupstaöar
hefur nú vísað kæru vegna ráðning-
ar Sveins Árnasonar, fjármálastjóra
bæjarins, í starf sparisjóðsstjóra til
Jafnréttisráðs. Þrír af fimm stjórnar-
mönnum í Sparisjóði Norðfjaröar
greiddu atkvæöi meö Sveini en tveir
meö Klöru ívarsdóttur, sem gegnt
haföi starfi sparisjóðsstjóra frá því í
febrúar á þessu ári. Klara ívarsdóttir
haföi starfað í sparisjóönum frá 1973.
Hún varö skrifstofustjóri 1980 og
staðgengill sparisjóösstjóra frá þeim
tíma.
Jafnréttisnefnd Neskaupstaöar
komst að þeirri niðurstöðu aö meö
ráðningu Sveins heföi 5. grein jafn-
réttislaganna verið brotin. í þeirri
grein segir aö atvinnurekanda sé
óheimilt að mismuna starfsfólki eftir
kynferöi, meðal annars varðandi
ráöningu eða skipun í starf. Nefndin
segist harma stöðuveitinguna og seg-
ir hana skýlaust brot á jafnréttislög-
unum.
Af þeim þremur stjórnarmönnum,
sem greiddu atkvæði meö ráöningu
Sveins, voru tveir varamenn. Klara
mun lúns vegar hafa haft tryggan
stuðning þriggja fastamanna í stjórn-
inni. Þaö aö ráöningin var tekin
meðan einn þessara þriggja stjórnar-
manna var fjarverandi varö til þess
að Sveinn fékk starfiö.
-gse