Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
11
Utlönd
Biðja um aðstoð
Þurrkarnir eru verstir í suöur-
hluta Súdan og liggur fiótta-
manr}astraumur norður eftir
iandinu.
Stjómvöld í Súdan hafa farið
þess á leit við Sameinuðu þjóðim-
ar að þeim verði veitt aðstoð
vegna neyðarástands af völdum
mikilla þurrka í landinu og
íjöldaílótta fólks norður eftir því.
Hin opinbera fréttastofa Súdan,
SUNA, skýrði frá því í gær að
forsætisráðherra landsins, Sadeq
Al-Mahdi, hefði borið beiðni
þessa fyrir Perez de Cuellar, aðal-
ritara SÞ.
Fréttastofan sagði að aðalritar-
inn hefði lofaö að beita sér fyrir
alþjóðlegri aöstoð við Súdan.
Súdan er stærsta ríki Afríku og
jafnframt eitthiðfátækasta. Tálið
er að um hálf önnur milijón
manna hafi flúið suðurhluta
landsins og búi nú við bágbornar
aðstæður í norðurhluta þess.
ViJI ekki borga
Bill Cayton (til vinstri) býr sig nú
undir baráttu við Tyson.
Simamynd Reutcr
Mike Tyson, hnefaleikakapp-
inn sem nú í vikunni vann svo
afgerandi sigur á keppinaut sín-
um um heimsmeistaratitilirm,
Michael Spinks, á nú framundan
annan slag sem gæti orðið lang-
dregnari. Tyson mun vaxa í aug-
um sá hluti launanna sem hann
fékk fyrir bardagann við Spinks
sem hann þarf að greiða umboðs-
manni sínum. Bill Cayton. Um
allnokkrar upphæðir er að ræða
því að Tyson fékk tuttugu og tvær
milljónir dollara fyrir viövikið.
Nú vill Tyson losa sig við um-
boðsmanninn og ekkert borga
honum. Þess mun að vænta aö
málið taki nokkum tíma fyrir
dómstólum.
Þyriusmygl
Breti nokkur hefur veriö hand-
tekinn í Miami í Bandaríkjunum
og ákærður fyrir að hafa gert
samsæri um að smygla tíu banda-
rískum herþyrlum til írans.
Maöurinn, Colin Breeze, er tal-
inn hafa reynt aö smygla Sikor-
sky S-76 þyrlum til írans með því
að láta evrópskt fyrirtæki, sem
íranska ríkisstjórnin stjórnar í
raun, kaupa þær.
Að sögn talsmanns bandarísku
tollgæslunnar mun sendiherra
írans á Spáni hafa átt mikla aðild
að samsæri þessu, enda mun
hann, ásamt Breeze, hafa ætlað
að hagnast verulega á þessu.
ÞýTlumar tíu vom upphaflega
keyptar frá Sikorsky af Jórdön-
um í upphafi áttunda áratugar-
ins. Sex þeirra var síöar skilað á
pappírunum, þótt þær séu enn
allar í Jórdaníu, þar sem þær eru
til sölu.
Nýtt hneykslismál
í uppsiglingu
Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, hefur verið ákærður og borinn þeim
sökum að hafa logið fyrir þingnefnd er rannsakaði sölu á kafbátateikningum
til S-Afríku. Spilavítishneyksli í Hannover getur einnig reynst kanslaranum
stórhættulegt. Símamynd Reuter
Gizur Helgasan, DV, Reersnæs:
Kanslari Vestur-Þýskalands,
Helmut Kohl, á nú í vaxandi erfiö-
leikum á tveimur vígstöðvum. í
fyrsta lagi era það ákveðnar kaf-
bátateikningar, sem seldar voru til
Suður-Afríku, og í öðra lagi spilavít-
ispeningar sem runnu til kristilegra
demókrata.
Græningjar, sem eru í stjómarand-
stöðu, hafa nú sent ríkissaksóknara
ákæru þar sem Kohl er borinn þeim
sökum að hann hafi vísvitandi logið
í þessum málum fyrir þingnefnd sem
hafði málin i athugun.
Kafbátamálið og spilavítispeninga-
málið eru ekki alveg ný af nálinni
en þau era aftur á móti bæði komin
á hættulegt stig. Ný og áður óþekkt
bréf era nú skyndilega komin í leit-
irnar og þau era vissulega hvorki
hliðholl Kohl né flokki hans, kristi-
legum demókrötum. Nokkur dagblöð
eru nú farin að líkja þessu máli við
Barschel-hneykslið í Schleswig-Hol-
stein sem hefur stuðlaö svo mjög að
því að vinsældir ríkisstjórnar Helm-
uts Kohl hafa minnkað til muna.
Fundu Ijósrit
Það er vegna Barschel-hneykslis-
ins í Kiel að kafbátamálið hefur nú
skyndilega tekiö nýja stefnu. Hin
nýja ríkisstjórn sósíaldemókrata í
Kiel hefur fundið ljósrit í skjalasafni
fyrirrennara sinna, kristilegra
demókrata. Þetta er ljósrit af bréfi
sem forsætisráðherra Bæjaralands
og formaður kristilegra demókrata,
Franz Josef Strauss, hafði skrifað
kanslaranum.
í bréfi þessu hvetur Strauss flokks-
bróður sinn til þess að gefa skipa-
smíðastöðinni í Kiel, sem er í ríkis-
eigu, og verkfræðifyrirtæki í Lubeck
grænt ljós til þess að selja teikningar
af ákveðnum kafbáti áil Suður-Afr-
íku. Þegar þessi viðskipti voru gerð
heyrinkunnug vöktu þau mikla ólgu
því þar með haföi Bonn-stjórnin
keyrt þvert ofan í stefnu sína varð-
andi viðskipti við stjórnina í Suður-
Afríku.
Síðasta sönnunargagnið
Kohl kanslari lýsti því eindregið
yfir gagnvart þingskipuöu nefndinni
að hann hefði ekki haft neina vitn-
eskju um málið áður en skaðinn var
skeður. Bæði sósíaldemókratar og
græningjar telja nú að bréfið, sem
Strauss skrifaði til Kohls og var dag-
sett í júlí 1984, sé síðasti sönnunar-
gagnið sem vantaði upp á það að
hægt væri að sýna fram á að Kohl
heföi logið fyrir rannsóknarnefnd-
inni.
Deildarstjóri í ráðuneyti Kohls er
sagður hafa hringt til skipasmíða-
stöövarinnar í Kiel og gefið grænt
ljós á viðskiptin vegna bréfsins frá
Kohl. Deildarstjórinn ber af sér allar
slíkar ásakanir en símtalið er skráö
í skjalasafni skipasmíðastöövarinn-
ar. Kohl neitaði einnig öllum sakar-
giftum og segist ekkert muna eftir
bréfinu umtalaða frá Strauss kansl-
araskrifstofan í Bonn er talin hafa
eyðilagt frumrit bréfsins.
Þinghelgin afnumin?
Sósíaldemókratar meta allt málið á
sama veg og græningjar. Þeir hafa
þó enn ekki veriö tilbúnir til að leggja
fram ákæru á hendur Kohl við ríkis-
saksóknarann. Þeir vilja fyrst fá
óyggjandi sannanir á þátt Kohls í
kafbátahneykslinu gegnum þingið í
Bonn og munu því sennilega krefjast
þess að þingmenn verði nú þegar
kallaðir heim úr sumarleyfum til
þess að afnema þinghelgi Kohls óski
ríkissaksóknarinn eftir slíku.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn
sem græningjar hafa reynt að fella
Kohl með því að ásaka hann fyrir
lygar fyrir þingskipaðri nefnd. Síðast
átti það sér stað í hinu svonefnda
Flick-máli en það mál rann út í
sandinn vegna skorts á sönnunar-
gögnum.
Stórhættulegt mál
Spilavítishneyksliö í Hannover
snertir Kohl kanslara ekki beint per-
sónulega heldur flokksbróöur hans,
kristilega demókratann og forsætis-
ráðherra Neðra Saxlands, Emst
Albrecht. Óbeint getur málið orðið
Kohl stórhættulegt, það er að segja
ef málið endar með því að Albrecht
verður að segja af sér. Þá yrði það
ekki bara í Schleswig-Holstein sem
kristilegar demókratar yrðu af sjá
af stjómartaumunum í hendur sós-
íaldemókrata heldur og sennilegast
líka í Neðra-Saxlandi. Hlutverk
kristilegra demókrata í fylkisráðinu,
sem er þingdeild fylkisfulltrúanna í
Bonn, yrði þar með orðið allskugga-
lega veikt.
Spilavítispeningar
I þessu máh er einnig að ræða bréf
sem ýfir upp gamalt mál. Segja má
að mál þetta sé svo flókið og stórt
um sig að erfitt sér að gera grein fyr-
ir því í stuttu máh en hér er um að
ræða það að kristilegir demókratar
í Neðra- Saxlandi munu hafa verið
með í því að græða fé á spilavítinu í
höfuðstaðnum Hannover gegnum
milUlið. Peningarnir komu þó fyrst
til kristilegra demókrata eftir að þeir
höföu gefið grænt ljóst á s'tæröarlán
sem svo var notað til þess að byggja
upp spilavitið. Það er einmitt þessi
milliUður sem frá villu sinni í sólinni
á Flórída hefur upplýst að Ernst
Albrecht forsætisráöherra hafi veriö
vel flæktur í allt þetta mál. Fullyrðir
milliUðurinn þar að auki að Albrecht
hafi verið kjörinn til embættis áriö
1976 með keyptum atkvæðum þar eð
sósíaldemókratar virtust vera með
öruggan meirihluta.
Yfirlýsingaflóð
Þetta mál hefur orsakað gifurlegt
flóð af yfirlýsingum frá forsætisráð-
herranum. Segir hann meðal annars
að það séu hin vinstri sinnuðu fjöl-
miðlaöfl í Vestur-Þýskalandi, þar á
meðal Der Spiegel og Der Stem í
broddi fylkingar, sem séu að leita að
nýju fórnardýri sem hægt sé að nota
nú þegar UwffBarschel er fallinn frá.
Ásakanir og fullyrðingar fljúga nú
sitt á hvað í Neðra-Saxlandi og hafa
dagblöðin þar í sveit úr nógu að
moða þessa mollulegu, sólríku viku.
LOKSINS! LOKSINS!
eru Casio hljómborðin, sem seldust upp fyrir jólin, komin aftur.
Allt mögulegt, Laugavegi 26, sími 21615.
MI-88 skemmtari í sérflokki, dúndurhljóð og góðir taktar, kennir með Ijósum
það sem á leiknina vantar. Aðeins örfá tæki eftir. Verð kr. 13.280,-
SK-8 Sampler og skemmtari sem tekur upp hljóð eða óhljóð frá þér eða
einhverju öðru og leyfir þér að spila aftur um skemmtarann. Er með lag-
akubb og kennir þér að spiia með Ijósum. Verð kr. 11.475,-
Frábærar nýjungar frá Casio, þar á meðal tölvugitar og tromm-
ur. Eins og alltaf hjá Casio eru nýjungar og gæði á gjafa-
verði. Midi gitar frá kr. 25.310,-
Sértilboð á nokkrum hljómborðum frá Casio, þar á meðal sýn-
ingartæki á hálfvirði.
Mikið úrval af hljómborðum frá kr. 1.790,- til kr. 125.350,-
Athugið sérstaklega að verslunin selur einnig hitt og þetta, þar
á meðai skáktölvur, mixera, mæla, útvörp, tölvur. reiknivélar
og alls konar snúrur og tengi.