Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
Erlendmyndsjá
Enginn hefur gengist
við ódæðisverkinu
William Nordeen, fórnarlamb
sprengjutilræöisins.
Símamynd Reuter
Enginn hefur enn gengist viö sprengjutilræði því sem framið var í
Aþenu fyrr í vikunni, þar sem William Nordeen, flotamálafulltrúi Banda-
ríkjamanna, lét lífið.
Nordeen var að aka frá heimili sínu, í einu af betri úthverfum Aþenu-
borgar, áleiðis til vinnu, þegar tilræðið var framið. Tilræðismenn höfðu
komið fyrir sprengju i bifreið sem lagt haföi verið við gangstéttarbrún.
Þegar Nordeen ók fram hjá settu þeir sprenginguna af stað, að því er
talið er með fjarstýribúnaði, því engin ummerki eru finnanleg um tíma-
stiilibúnað.
Talið er að mikið af sprengiefni hafi verið í bifreiöinni. Nægilega mikið
til þess að sprengjubifreiðin rústaðist gjörsamlega og bifreið Nordeens
tókst á loft og kastaðist þvert yfir götuna og inn í húsagarð þar.
Hlutar úr bifreið Nordeens hafa fundist allt að tvö hundruð metra frá
tilræðisstaönum.
Grunur leikur á að einhver hópur öfgamanna á vinstri væng grískra
stjómmála hafi staðið að tilræðinu, en þeir hópar velja sér gjarnan erind-
reka Bandaríkjamanna að fórnarlömbum.
Öryggisverðir flytja lík William
Nordeen á brott frá tilræðisstaðn-
um. Engin skýring hefur enn feng-
ist á morðinu.
Simamynd Reuter
Lögreglumenn rannsaka brak bifreiðarinnar sem sprengjan var í. Tatið
er að tilræðismaðurinn, eða mennirnir, hafi notað fjarstýringu tii þess
að setja sprenginguna af stað þegar Nordeen ók framhjá.
Símamynd Reuter
Bifreið Nordeens kastaðist þvert yfir götuna við sprenginguna og hafn-
aði þar inni í húsgarði. Nordeen mun hafa látist samstundis en hlutar
úr bifreiðinni fundust í allt að tvö hundruð metra fjarlægð.
Símamynd Reuter
Deilur um
eiturefna-
úrgang
Deilur vegna eiturefnaúrgangs
standa nú víða um heim og fara frem-
ur harðnandi en hitt, enda vill eng-
inn sjá efni þessi á sínu landi. ítalir
eru meðal þeirra sem harðast hafa
verið gagnrýndir, einkum fyrir aö
koma fyrir eiturefnaúrgangi í Afr-
íku. Á meðfylgjandi mynd er um-
sjónarmaður eiturefnageymslu í
Nígeríu einmitt fyrir framan ítalskar
eiturefnatunnur.
Hvort ítalir fást til aö fjarlægja
tunnurnar skal ósagt látið en Afr-
íkubúar eru allavega lítt hrifnir af
að land þeirra sé notað sem sorp-
haugur á þennan hátt.
Mótmælandi handtekinn eftir að
hann veittist að björgunarmönn-
um.
Símamynd Reuter
Mann-
tjón enn
óljóst
Enn er ekki oröiö ljóst hversu
margir fórust þegar aurskriða
féll yfir tyrkneskt þorp nú í vik-
unni þótt vitað sé að fjöldi þeirra
skiptir hundruöum. Enn er unnið
að uppgrefti í þorpinu.
íbúar nágrennis staðarins þótt-
ust í vikunni eiga eitthvað vantal-
aö viö björgunarmenn og réðust
að þeim með grjótkasti og ókvæö-
isorðum. Nokkrir voru hand-
teknir.
Leitarmenn og hundar þeirra
hvíla sig örþreyttir.
Simamynd Reuter
Stundum hefur boli betur
Þótt margir telji nautaat lítt sæmandi siðmenntuðum mönnum rísa áhangendur þess öndverðir gegn gagnrýni og segja íþrótt þessa göfuga listgrein sem
unun sé á aö horfa. Nautabanar stundi í raun eins konar ballett í hringnum og verði þeir að fylgja ströngum reglum og heföum í baráttu sinni við bola.
Maðurinn hafi aö vísu oftast betur í viðureigninni en langt sé þó frá aö dýrið sé varnarlaust fórnarlamb blóöþorsta múgsins, eins og stundum er haldið fram.
Meðfylgjandi mynd ber það raunar meö sér að ekki má mikið út af bregða til að nautið nái frumkvæðinu. Dýrin eru enda grimm og engrar vægðar að
vænta komi þau á lagi.
Spánverjar hafa að vísu nokkrar áhyggjur af því að vegna úrkynjunar kunni þetta sérstaka nautakyn, sem aliö er til nautaats, að vera að missa grimmd-
ina. Óttast þeir að þá verði leikurinn loks of ójafn og íþróttin, eða listin, muni líða fyrir.
Tekið skal fram að nautabaninn á myndinni slapp lítið meiddur og boli varð að lúta í lægra haldi í leikslok.