Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Síða 19
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ '1988.
19
Ómeifcileg níðskrif um ginseng:
Dæmi um áróður
gegn hollefnum
Fimmtudaginn 9. júní sl. ritar
Ólafur Sigurösson næringarfræö-
ingur grein fyrir neytendasíðu DV
sem flaggar stórletrað fyrirsögn-
inni, „Neikvæðar hliðarverkanir
Gihseng". Fyrirsögnin og textinn
vekja þá hugmynd að um nýja og
fréttnæma rannsókn sé að ræöa.
Skoðun heimilda höfundarins sýn-
ir hins vegar að aðalefni greinar-
innar er marggagnrýnd athugun
R.K. Siegel, sem birtist 1979 (1), en
hún er slíkum aðferðagöllum háð
að hæpið er að draga af athugun-
inni neinar marktækar ályktanir,
nema helst þá sem Siegel oröar svo
í lokaorðum sínum: „Fólk ætti
samt sem áður að forðast að neyta
til langs tíma stórskammta af gin-
seng, því þó aö eitthvað sé allra
meina bót getur misnotkun þess
orsakað vandamál.“
Ólafur sýnir enga slíka varfæmi
við túlkun á niðurstöðum Siegel
heldur alhæfir ótæpilega um
meintar hliðarverkanir án þess að
nefna eina einustu tölu um hlut-
fallslega tíðni þeirra eða benda les-
endum DV á að meintar hliðar-
verkanir komu fram hjá fólki sem
ásamt þvi að eiga við geöræn
vandamál að etja tók að meirihluta
inn frá þreföldum til fimmtánfalds
venjulegs dagskammts (1 gramm).
Lesendur þessarar DV-greinar sitja
því uppi með þá alröngu mynd að
hliðarverkanir vegna töku Panax
Ginseng séu algengar, meðan þær
í reynd eru afskaplega sjaldgæfar
sé um hreint ginseng í eðlilegu
magni að ræða.
Hefði Ólafur haft undirstöðu-
þekkingu á ginsengmálum gæti
einhliða neikvæður tónn í heimild-
um hans hafa vakið athygli hans.
Eða að „viðvörunarbjalla" heföi
hringt við þá alröngu fullyrðingu
Siegel (1) að 3 grömm af ginseng
séu lítill dagskammtur. Venjulegur
dagskammtur er á bihnu 0,5 til 1,5
grömm af hreinni rót af góðum
gæðaflokki. Leiðbeiningar breskra
dreifmgaraðila eru á bilinu 0,2 til
2,5 grömm (4).
Hlutdræg gagnrýni
Hlutdrægni höfundar DV-grein-
arinnar kemur ekki bara fram í því
að alhæfa út frá undantekninga-
tilfellum og skálda úr þeim drauga-
sögu. Honum tekst einnig að láta
fram hjá sér fara mikinn fjölda af
skýrslum um jákvæð áhrif af
neyslu rótarinnar á efnaskipti og
heilsu, en gleypir gagnrýnislaust
skoðun Abramowicz frá 1980 (2) um
að ginseng hafi ekki sýnt sig að
hafa nein jákvæð áhrif.
Vandvirkari gagnrýnendur, Bald-
win, Anderson og Phillipson, kom-
ast i grein fyrir lyfjafræðinga frá
1986 (3, 4) að langtum hlutlægari
niðurstöðu og er þó grein þeirra
fyrst og fremst byggð á mati á hugs-
anlegum hliðarverkunum og frá-
bendingum ginsengnotkunar. Um
hliðarverkanir segja þeir m.a.:
„Niðurstöður óteljandi rannsókna
á Panax og Eleutherococcus (sk.
síberískt ginseng, innskot GW)
benda til þess að fólk geti notað
jurtina án áhættu.“
Um áhrifin hafa höfundarnir
þetta að segja: „Báðar jurtirnar eru
taldar skapa aukna aðlögunar-
hæfni líkamans (adaptogen), sem
kemur fram í því að þær eru taldar
auka mótstöðuafl líkamans gegn
streitu og byggja almennt upp lífs-
orkuna.“
Um hugsanleg eitrunaráhrif
(toksicitet) segja þeir:
„Eitrunaráhrif Eleutherococcus
og Panax hafa verið rannsökuð hjá
Kjallarinn
GeirViðar
Vilhjálmsson
fleiri dýrategundum án þess að
þeirra hafi orðið vart.“
Jákvæð áhrif ginseng
Rannsóknir, sem sýna jákvæð
áhrif ginseng á ýmsa þætti líkams-
starfseminnar, eru fjölmargar.
Rúmsins vegna er hér aðeins hægt
að nefna dæmi. Skýrslur frá tveim
síðustu alþjóöaþingum um gin-
sengrannsóknir 1980 og 1984 (10,11)
gefa tugi dæma um mjög athyglis-
verðar jákvæöar niðurstöður.
- í rannsókn Fulder o.fl. frá 3.
alþjóðaþinginu (7) kom fram bætt
geðslag, betri almenn starfshæfni
og betri árangur á ýmsum sállík-
amlegum hæfnisprófum, þrátt fyrir
minni þörf fyrir svefn hjá tilrauna-
fólkinu.
- Yonezawa o.fl. skýra frá því að
82,5% tilraunamúsa, sem fengið
höfðu ginseng, lifðu af lífshættuleg-
an röntgengeislaskammt, meðan
aðeins 5% samanburðarhópsins
liföu (10). Nýrri tilraun sömu aðila
frá 1984 (8) sýndi aö 77,5% ginseng-
dýranna voru á lífi 30 dögum eftir
geislun en aðeins 20% samanburð-
arhópsins voru þá á lífi.
- Rannsókn Chung No Joo frá 4.
alþjóðaþinginu 1984 (8) sýndi mark-
tæka örvun á starfsemi lifrarinnar
við afeitrun áfengis. Ginseng örv-
aði virkni ákveðinna efnahvata
sem afeitra áfengi og rafeindaljós-
myndir sýndu að ginseng verndaði
lifrarfrumur gegn sýnilegum
skemmdum, sem hjá samanburð-
ardýrum komu skýrt fram við
notkun 12% áfengisblöndu í staö
vatns í 6 daga.
Panax Ginseng bætir sykurnýt-
ingu og lækkar blóðsykur bæði hjá
sykursýkisjúklingum og venjulegu
fólki (heimildir 3, 34 og 36 í (4)).
Hluti sykursýkisjúklinga gat sam-
kvæmt rannsókn Okuda og Yos-
hida 1980 (5) hætt að sprauta sig
með insúlíni.
- Ginsengneysla hefur gert blóð-
þrýsting eðlilegri bæði hjá fólki
með of háan og of lágan blóðþrýst-
ing (heimildir 3, 9 og 34 í (4)).
- Ginseng eflir nýrnahettur og
heiladingul og orsakar betri fram-
leiðslu og framleiðslustýringu
nýrnahettuhormóna (heimildir 6,
36, 37 og 39 í (4)).
- Ginseng örvar frumuskiptingu
og kjarnsýruframleiðslu í kynkirtl-
um samkvæmt rannsókn Yama-
moto 1973 (6) og í skýrslu Ishigami
1973 (6) kemur fram að 14 af 24
karlmönnum, sem voru barnlausir
vegna ónógrar sæðisframleiðslu,
fengu bót á meini sínu með töku
ginseng í 4-8 vikur.
Rannsókn Sa-Duk Hong o.fl. (8)
staðfesti tvær fyrri rannsóknir,
sem sýndu að efni í ginseng örvuðu
upptöku á E-vitamíni. Einnig
sýndu þeir fram á að ginseng
magnaði verulega hin verndandi
áhrif E-vítamíns gegn ótímabærri
ildingu (oxun).
Á 4. alþjóðaþinginu skýrðu V.K.
Singh o.fl. (8) frá árangri umfangs-
mikilla tilrauna sem sýndu að gin-
seng efldi sýkingarvarnir á marg-
víslegan hátt. Þar á meöal jókst
mótefnaframleiðsla bæði gegn
ákveðnum vírus og aðkomufrum-
um, interferonframleiðsla efldist
og virkni hvítra blóðkoma varð
meiri.
Fátt er svo með öllu gott...
Einn af inflytjendum ginsengs til
íslands hefur verið bæöi stórtækur
og hlutdrægur í því að lofa einstök
gæði sinnar ginsengvöru. Var hún
þó ekki nema í tæpu meðallagi
samkvæmt virkefnamælingum v-
þýskra neytendasamtaka, en nið-
urstöður þeirra samanburðarmæl-
inga voru birtar í heild í Morgun-
blaðinu 6. maí sl. (13). Þetta auglýs-
ingaoflof kann að vera hvöt til, og
ef til vill smávægileg afsökun fyrir,
einhhða neikvæðni Ólafs í garö
ginseng.
Hin vestur-þýska samanburðar-
rannsókn á gæðum mismunandi
ginseng gefur tilefni til varnaðar-
orða af hálfu undirritaðs til þeirra
sem taka eða ætla að taka ginseng.
Hvað ginseng viðkemur er svo
sannarlega hægt að kaupa köttinn
í sekknum því samanburðurinn
sýndi að stærsti hluti hinna 23 af-
brigða, sem mæld voru, reyndist
með lágt eða mjög lágt virkefna-
innihald. Aðeins einn framleiðandi
reyndist í þessari könnun vera með
mjög hátt virkefnainnihald, Suð-
ur-kóreska rikiseinkasalan. Aðeins
einn annar, Alsitan, reyndist vera
fyrir ofan miðgildi (median) mæl-
inganna.
Fólk ætti því hiklaust að krefia
innflytjendur ginseng um niður-
stöður virkefnamælinga á viðkom-
andi ginsengtegund.
Að síðustu. Þótt ginsengjurtin sé
mjög áhugaverð hvað heilsuna
varðar er rétt að hafa í huga að til
eru margar aðrar heilsujurtir.
Taka vítamína, stein- og snefilefna
verður ekki óþörf þó ginseng sé
tekið. Gleymdu ekki að margar
hollar fæðutegundir eru til, þó þær
séu ekki endilega þær mest aug-
lýstu.
Geir Viðar Vilhjálmsson
Heimildir:
(1) R.K. Siegel, Ginseng Abuse Syndrome,
JAMA, 1979, Vol. 241 No. 15, s. 1614.
(2) Abramowicz, M. ed. Ginseng, Medical
Letter on Drugs and Therapeutics 22
(17):72, 1980.
(3) C.A. Baldwin, L.A. Anderson, J.D.
Phillipson, Hvad enhver farmaceut bör
vide om Ginseng, Archiv for Pharmaci
og Chemij 144 árg. Nr. 6,21 marts 1987,
s. 151-162.
(4) Frumfexti (3) í the Pharmaceutical
Joumal, 8.11. 1986, s. 583.
(5) Okuda, H„ Yoshida, R. í nr. (7) s. 53.
(6) Yamamoto, M. heimild 52, í grein E.Y.
Park o.fl. í nr. (8), s. 257. Ishigami, J.
heimild 20, ibid.
(7) Proceedings of the third international
ginseng symposium, 1980, Korea Gin-
seng and Tobacco Research Institute,
Daejeon, Korea.
(8) Proceedings of tlie 4. international gin-
seng symposium, 1984, sami útgefandi
og nr. 10.
(9) Geir V. Vilhjálmsson, Morgunblaöið
6.5. 1988, s. 42.
(10) Fróöleg samantekt um ginseng með
rúmlega 30 heimUdum eftir Guömund
V. Óskarsson og Harald Erlends-
son, verkefni í félagslæknisfræöi við
H.í 1984.
Látum fara vel um barnið
og aukum öryggi þess
um leið!
ÚUMFERÐAR
RÁÐ
TIL ATHUGUNAR VEGNA JÚNÍLAUNA:
Þann 31. maí voru samningar Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur samræmdir samningum verzlunar-
mannafélaga á landsbyggönni. í þeirri samræmingu
fólst m.a.:
EINGREIÐSLA TIL SÉRSTAKRAR LAUNA-
JÖFNUNAR:
í júnímánuði skal greiöa þeim verzlunarmönnum,
sem eru í fullu starfi og taka laun samkvæmt launa-
töxtum og unnið hafa hjá viökomandi atvinnurek-
anda næstliðna 6 mánuði, sérstaka launauppbót, kr.
5.000,- Starfsmenn I hlutastarfi fái hlutfallslega
greiðslu.
Launauppbót þessi greiðist sjálfstætt og án allra
tengsla við önnur laun.
FASTLAUNAUPPBÓT:
Fastráðið verslunarfólk (afgreiðslu- og skrifstofu-
fólk), sem tekur laun skv. launaákvæðum samnings-
ins og á ekki kost á samningsbundnum launaauka,
s.s. vegna ákvæðisvinnu, vaktavinnu eða annarra
álagsgreiðslna, skal til viðbótar föstum mánaðarlaun-
um fá greidda sérstaka fastlaunauppbót, kr. 1.100,-
á mányði miðað við fullt starf og hlutfallslega miðað
við lægra starfshlutfall. Greiðsla þessi myndar ekki
stofn fyrir yfirvinnu.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
BÍLATORG j ■
NÓATÚN 2 - SÍMI 621033 X.
Range Rover, árg. 1984
- hvítur, gullfallegur, sportfelgur, skipti - skuldabréf, ekinn 85.000.
km.
PEUGEOT 405 Ml 16
- dökkgrásans., ratm. í sóllúgu, rúðum og læsingum, sportfelgur,
vökvastýri, margverðlaunaöur bíll! Bill ársins i Evrópu og hlaut
gullna stýrið i Þýskalandi. Nýr frá umboði kostar ca 1.360.000.
VERÐ KR. 1.180.000.
Saab 9000 turbo,
- hvitur, rafm. i rúðum og læsingum, hraðastillir, glersóllúga.
Verð kr. 1.650.000.
BILATORG
NOATUN 2 - SIMI 621033