Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 21
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988. 21 DV l\lýi-Garður Kaupstaður Víðir Straumnes Iðukaup Hólagarður Meðalverð Tómatar, 1 kg 206,00 99,00 129,00 150,00 190,00 98,00 145,00 Bláberjaskyr, 150 g 37,00 37,00 37,00 ' 37,00 37,00 37,00 37,00 Þvol 65,50 68,00 66,00 69,00 67,10 Kellogg's, 500 g 135,50 104,00 139,00 140,00 154,00 148,00 137,25 Colgate fannkrem, 75 ml 70,20 76,00 74,00 73,40 Bananar, 1 kg 165,00 145,00 149,00 166,00 172,00 168,00 160,80 Coca Cola, 1,51 112,00 112,00 112,00 119,00 115,00 118,00 114,70 Rauðspretta, flök 350,00 350,00 Rauðspretta, heil 198,00 198,00 DV kannar verðlag í Breiðholtshverfi Verðið mjög misj afnt 0 Coca cola 1,5 It. Neytendur Verölag er mjög misjafnt eftir verslunum í Breiðholti. DV kannaði verð á níu vörutegundum í sex versl- unum í Breiðholti. Bæði var kannað verð í stærri verslunum og smærri. Mestur verðmunur reyndist á tóm- ötum. Þeir reyndust dýrastir í Nýja Garði þar sem þeir kostuðu kr. 206. Ódýrastir voru þeir í Kaupstað og Hólagarði. í kaupstaö kostuðu þeir kr. 99, en 98 í Hólagarði. Mikill verðmunur reyndist einnig Lífsstm Hluti innkaupakörfunnar. DV-myndir S. á Kellogg’s kornflögum í 500 gramma pakkningum. Slíkur pakki var ódýr- astur í Kaupstað. Þar kostuðu korn- flögurnar kr. 104. Dýrastar voru kornflögurnar í Iðukaupum í Iðu- felh. Þar kostaði pakkinn hvorki meira né minna en kr. 154. Lítill verðmunur reyndist vera á öðrum vörutegundum. Þær voru ódýrastar í Kaupstað í öllum tilvik- um. Það getur því borgað sig fyrir Breiðholtsbúa að bregða sér niður í Míódd til að versla. -PLP Ódýrt þvotta- efni Er við vorum að gera verökönnun, sem birtist hér á síðunni, rákum við augun í ódýrt þvottaefni. Þvottaefnið sáum við í Hólagarði þar sem það kostar kr. 239 og vegur pakkinn 2,7 kíló. Þvottaefnið er danskt og heitir Prik. Ekki vitum við um gæðin en þar sem efnið er mjög ódýrt sakar ekkiaðprófa. -PLP mrmi ME3F8ð» \r.imiSKV- 2,7 kilóa pakki af Prik þvottaefni kostar 239 krónur. Verölækkun a tómötum: Tómatar á mis- jöfnu Eins og glöggt kemur fram í verð- könnun, sem birt er hér á síðunni, eru tómatar á æði misjöfnu verði þessa dagana. Ástæðan er að sjálf- sögðu sú mikla verðlækkun er varö á Grænmetismarkaðnum á mánu- daginn. Þá var lágraarksverð lækk- að úr kr. 110 niður í kr. 60. Þetta gerir þaö að verkum að þær versl- anir sem keyptu inn tómata fyrir síðustu helgi eiga miklu dýrari tómata á lager en þær sem siðar hafa keypL verði Sumar verslanir hafa tekið þaö til bragös að lækka tómata, jafnvel þótt þær hafi keypt þá inn á gamla verðinu. Dæmi um þetta er Hóla- garður í Breiðholti. Þar kostuðu tómatar kr. 198 hvert kíló. Er kaup- maður frétti af lækkuninni, lækk- aöi hann verðið niður í kr.-98 hvert kíló. Hann er því aö selja gömlu tómatana með talsverðu tapi. Þetta gerir hann til aö vera ekki með dýrari tómata en aörir. -PLP Matvöruverslanir: Iitið um fisk í verslunum Ef skoðuð er verðkönnun, sem birt er hér á síðunni, kemur fram að rauðspretta (sem á íslensku heitir skarkoh) var aðeins fáanleg í einni matvöruverslun í Breið- holti. Framboðið af þessari fisktegund er í hámarki þessa dagana þannig að þetta vakti athygh. Skýringin á því að verslanir hafa ekki þessa fisktegund á boðstólum, þótt hún sé vel fáanleg, er að sjálfsögðu sú að fólk vill ekki kaupa hana. Þetta er uggvænlegt þegar haft er í huga að æ meiri áhersla er lögð á fisk sem holla og góða fæðu. . -PLP Rauðspretta fékkst aðeins i einni verslun i Breiðholti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.