Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988. 33 Lífsstm Ef spár ítalskra tískuhönnuöa rætast veröur karlmannafatatísk- an einkar glæsileg næsta haust og vetur. Engar stórar breytingar líta dagsins Ijós, jakkafótin veröa núm- er eitt tvö og þrjú líkt og undanfar- in ár. Glansáferð Jakkar skipa öndvegissætið í fatatísku karlmannanna. Efiún eru gjaman með glansáferð og ull er mikið notuð. Jakkamir em ýmist einhnepptir eða tvíhnepptir þó þeir einhnepptu verði greinilega mun vinsælli. Litimir era jarðarlitir; ýmsir tón- ar af gráu, brúnu, gulbrúnu og vín- rauöu í bland við hvitt og skær- rautt. Ýmsar gerðir af köflóttu veröa mikið í tísku. Jafiivel bregð- ur fyrir röndóttu. Vesti virðast ætla að njóta mikilla vinsælda næsta vetur, oft era þau Gráköflótt jakkaföt og við þau er notaður grár bómullarbolur. úr sama efni og buxumar og síðan er notaöur köflóttur jakki við. Eða þá að dæminu er snúið við, bux- umar og jakkinn era köflótt og notaður einlitur jakki við. Þriðja útfærslan er svo að setja saman einiitar buxur til dæmis mosagrænar, viö brúnan jakka en vestið er svo í munstrað í ýmsum tónum af grænu og brúnu. Frakkar vinsælir Frakkar eiga greinilega upp á pallborðið næsta vetur, oft era þeir í sama lit og jakkinn, og móð sömu glansáferðinni. Frakkasniðin era margvísleg, ýmist aðskomir firakk- ar eða þá þeir era hafðir viðir. Sídd- in er mjög mismunandi sumir ná rétt niður á hné en aðrir niður á miðja kálfa. Buxurnar eru gjaman með fell- ingum aö framan og síddin á þeim er mismunandi, á meðan sumir tískuhönnuðir láta þær bylgjast ofan á ristina ná þær tæplega niður á skóna hjá öðram. Ein lína virðist þó vera nokkuð gegnumgangandi í buxnatískunni en það er að nota uppábrot á buxumar. Buxnalitimir og efnin eru þau sömu og notuð era í jakkana. Rauðköflóttur viður frakkí notaður með rauðköflóttum jakka og brúnum buxum. Gráköflóttur frakki og jakki notaður víð beinhvítar buxur og loks brúnköflóttur jakki við gulbrúnt vesti og brúnar buxur. Karlmannafatatískan: Ensk herra- garðstí ska - nýtur mikillar hylli á tímabilinu 1988-1989 Röndóttar skyrtur Það eina sem virðist breytast veralega í tísku næsta hausts og vetrar era skyrtukragamir, í þeim efnum mun ríkja mikiö frjálslyndi. Skyrtumar sem notaðar era við Tískan fötin era ýmist mun dekkri en fótin sjálf eða þá mun Ijósari. Röndóttar skyrtur verða vinsælar en lítið sést af munstraðum skyrtum. Það sem helst sker i augun við skyrtumar era fjölbreytnin í kragasniðunum. Glæsilegur fatnaður hannaður af þeim Giafrannco Ferré, G.M Venturi og Byblos. Það bregður fyrir kragalausum skyrtum, skyrtur með háum kraga líkt og notaöur er við kjólfót, í bland við hina hefðbimdnu skyrtu- kraga karlmannanna sem oft era hnepptir niður. Algengt virðist að nota þunnar ullarpeysur eða bó- mullarbolir sem ná frekar hátt í hálsinn \ið jakkana. Klútar í stað hálsbinda Bindin verða heldur ekki ofar- lega á vinsældalista karlmann- anna. Þau verða nánast bannvara nema hjá þeim sem eyöa vinnudög- um sínum í viðskiptaheiminum. í staðinn fyrir bindin koma menn til með að nota hálsklúta, af öllum stærðum og geröum, munstraða, einlita og allt þar á milli. Ensk herragarðstíska mun njóta ákveðinnar hylli næsta vetur. Eiim hönnuðurinn gerir það að tillögum sínum aö menn klæðist slám, utan Brúnköflóttur jakki, beinhvitar bux- ur og brún pólóskyrta. í hálsinn er hnýttur klútur í ýmsum brúnum litum. yfir víðar pokabuxur úr ull. En innan undir noti þeir svo vesti og hvíta skyrtu og hnýti klút í háls- inn. En frekar ótrúlegt verður nú að íslenskir karlmenn taki slikan fatnað upp á sína arma. Sami hönn- uður kynnir lika rauðköflóttar buxur við bláköflóttan jakka og utan yfir það setur hann svo mosa- græna slá. í djarfara lagi en skemmtilegt eigi aö síður. írskar duggarapeysur Peysurnar eru flestar úr ull og fremur stórar og viðar. Einhtar peysur með munsturbekk yfir brjóstið virðast ætla að verða vin- sælar. Þær minna um margt á ír- skar duggarapeysur. Ættu að henta íslenskri v.eðráttu dável. Það verður ekki skafið af karl- mannafatatísku næsta vetrar að hún verður glæsileg. Það sem mest áhersla verður lögð á eru jakkam- ir, og hálstauiö. En líkt og undan- fama mánuði verður tískan ákaf- lega íjölbreytt og karlmönnum ætti ekki að verða skotaskuld úr því að finna sér fatnað sem fellur þeim í geð. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.