Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
37
LífsstHI
við háan hita. Best er að láta blauta
skó þoma á köldum stað, ef til vill
má flýta fyrir þurrkuninnni með því
að troða pappír í skóna. Hiti er eitt
af því sem eyðileggur flesta skó.
Skóleður er einkum tvenns konar:
krómleður og olíuleður. Á krómleð-
ur ætti aldrei að bera leðurfeiti eða
olíu, slíkt skemmir skóna, gerir leðr-
iö mjúkt og það tognar á því. í mörg-
um tilfellum er hægt að skemma lím-
ingar og sauma við sóla ef röng efni
eru notuð til að vatnsverja rand-
sauminn.
Silkisokkar hlífa
gegn hælsæri
Yfirleitt er mun betra að klæðast
tvennum sokkum en einum. Ef fólk
klæðist tvennum sokkum er mun
Tískan
minni hætta á hælsæri og blöðrum
þar sem sokkarnir nuddast hvor við
annan en ekki á fætinum. Einnig
ættu tvö pör af sokkum aö gefa betri
einangrun en eitt par þar sem það
myndast aukaloftlag á milli þeirra.
Til þess að það sé hægt verða skórn-
ir að vera nægilega stórir. Ef skórnir
eru í minna lagi getur verið betra að
vera í einu pari af sokkum en tveim.
Sokkar þurfa að sameina tvennt:
Þeir þurfa að fjaðra til baka þegar
stigið er á þá og þeir nái uppruna-
legri mýkt sinni, svo að einangrunar-
gildið breytist ekki. Hin meginkrafan
er að þeir geti tekið upp svita. Ef
annað hvort þessara atriða er ekki í
lagi verður fólki kalt á fótunum.
Allir sokkar eru hlýir meðan þeir
eru þurrir og fer einangrunargildi
þá eftir þykkt þeirra. Öðru máli
gegnir þegar sokkarnir veröa blautir
eða rakir. Flest efni, sem notuð eru
í sokka, geta tekið upp meiri og minni
raka áður en þau mettast. Sum þess-
ara efna halda áfram hita á fólki,
þrátt fyrir að þau verði rök. Önnur
missa nær algerlega einangrunar-
gildi sitt eða draga jafnvel hita frá
fætinum.
Sokkar úr hreinni ull eru mjög vel
fjaðrandi, taka upp mikinn raka og
gefa góða einangrun. Ullarsokkar
eru einu sokkamir sem halda hita á
fótunum þótt þeir blotni. Rennandi
blautir ullarsokkar halda um 70%
af einangrunargildi sínu miðað við
þurra sokka.
Ókostir við sokka úr hreinni ull eru
að þeir endast mjög illa, verða fljótt
götóttir og eru gjarnir á að þófna.
Sokkar úr ull og næloni hafa flesta
sömu kosti og sokkar úr hreinni ull
en að auki endast þeir lengur og í
mörgum tilfellum þola þeir ekki
þvott í þvottavél.
Sokkar úr silki: Næst á eftir ull
hvað einangrunargildi snertir kem-
ur silki, en silkisokkar eru svo þunn-
ir að það er næstum óhugsandi aö
nota þá eingöngu. SUkisokkar eru
mjúkir og þægilegir og henta mjög
vel sem innri sokkar fyrir þá sem eru
gjarnir á að fá hælsæri.
Sokkar úr næloni eru töluvert not-
aðir sem innri sokkar. Nælonsokkar
gefa í sjálfu sér litla einangrun en
eru í mörgum tilfellum mýkri en ull-
arsokkar, auk þess leiöa þeir raka
hraðar frá fætinum en ull gerir.
Nælon- og goretexlegghlífar
Til eru tvenns konar legghlífar:
önnur gerðin nær niður á skóna en
hin lokast alveg viö skóna meö
gúmmíkanti en þær er erfitt að nota
við annað en stífa skó. Ýmiss konar
efni eru notuð í legghlífarnar. Nælon
er líklega algengast og svo eru legg-
hlífar á markaðnum með goretex-
fóðri.
Að halda raka frá líkamanum
Helsta hlutverk nærfatnaðar er að
Hlý ullarpeysa sem heldur vel hita á eigandanum.
Leiðrétting
í síðasta tískuþætti slæddist meinleg villa inn. Sagt var að Karonsamtök-
in byðu upp á litgreiningarnámskeið á krónur 2600 og 3600 en það er
ekki rétt. Hið rétta er að það eru Módelsamtökin sem bjóða upp á litgrein-
ingu á þessu verði. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
-J.Mar
halda raka frá líkamanum. Því þurfa
þau að vera úr ull eða sambærilegum
gerviefnum. Nýjustu tegundir nær-
fatnaðar eru með fíbertrefjum innst
sem draga rakann frá húðinni og
bómull ytra sem heldur honum í sér
meðan hann gufar upp. Einnig er
hægt að nota silki í nærfatnað en
bómull er ekki heppileg ein og sér.
Ekki alls fyrir löngu komu á mark-
aöinn nærfót úr kanínuull eða fiöu.
Ótal lofthólf í þráðum fiðunnar
mynda nokkurs konar einangrunar-
hlíf sem heldur stööugum hita á yfir-
borði húðarinnar. Útgufun úr líkam-
Ull er einnig hægt að nota í buxur
en hún þornar hægt og er þung. Það
fer svo allt eftir aðstæðum hvort
betra er að vera í síðum buxum eða
hnébuxum. Eða hvort hentugra er
að buxurnar séu háar upp á bakið
og að frama. Mestu skiptir að þær
séu hlýjar, séu fljótar að þorna og
haldi vel einangrunargildi sínu.
Bestar eru buxur sem eru tvöfaldar
á rassinum og á hnjánum því þær
halda mun betur hita á viðkvæmum
líffærum.
Engin ætti aö leggja í óbyggðir í
gallabuxum því þær veröa þungar
flíkur fer að mestu eftir því til hvers
á að nota þær. Anorakar halda vindi
betur en úlpur með rennilás en anor-
akar eru óþjálli. Utanyfirflíkur þurfa
að vera þannig úr garði gerðar að
hægt sé að þrengja að öllum opum
til að varna varmatapi.
Mikiö úrval er af alls kyns utan-
yfirfatnaði sem fóðraður er með
goretexeinangrun. Goretexið er ör-
þunn filma sem hægt er að nota til
að fóðra nánast hvaða fatnað sem er
með. Goretexið er gætt þeim eigin-
leikum að hleypa í gegnum sig raka
en einangra fullkomlega gegn
regni.
Fótabúnaðurinn er einn mikilvægasti útbúnaðurinn, hvort sem menn hyggja á langar eða stuttar göngur.
anum á jafnframt greiða leið i gegn-
um nærfatnaðinn og húðin andar
eðhlega og óhindrað, án þess að yfir-
borð hennar kólni eða hitni um of.
Fiðan getur tekiö i sig allt aö fjór-
falda þyngd sína af raka án þess að
einangrunargildi hennar skerðist að
svo nokkru nemi.
Þorna á nokkrum mínútum
Þau efni, sem mest eru notuð í
göngubuxur í dag, eru stretchefni en
þau hafa þá kosti að þorna fljótt, jafn-
vel á þremur til fjórum mínútum.
Stretchbuxur mynda ekki brot sem
særa og eru yfirleitt hlýjar og þægi-
legar.
þegar þær blotna, eru lengi að þorna
og eiga að auki til aö nuddast við
hörundið og mynda sár veröi þær
rakar.
Stakkar og úlpur
Fólk ætti hiklaust að klæða sig í
tvær þunnar flíkur, til dæmis skyrtu
og peysu eða tvær peysur, því tvær
flíkur mynda mun betri einangrun.
Best er að klæðast flíkum úr ullar-
efnum eða gerviefnum með sam-
bærilega eiginleika.
Stakkar og úlpur gegna fyrst og
fremst því hlutverki að verja fólk
gegn vindi og einnig er oft í þeim
nokkur einangrun. Efnisval í slíkar
Goretex er því mjög heppilegt til
einangrunar í fatnað. Helstu ókostir
þess eru að þaö er mjög dýrt og
kannski ekki mjög endingargott.
Vettlingar og húfur
Ullarvettlingar eru bestir og utan-
yfir þá hefur hér á landi reynst best
aö nota vax- eöa olíuborna, vindhelda
vettlinga.
Lambhúshettur eru gjanan notað-
ar sem höfuðfat og þær eru þá úr
ull, silki eða gerviefnum.
-J.Mar
(Heimildir: Gögn frá Hjálparsveitum skáta,
sem notuð eru við kennslu á námskeiðum
hjá Hjálparsveitunum. Grein eftir Guðjón
Halldórsson, birt í fréttabréfi íslenska alpa-
klúbbsins og fleira.)
Hvað kosta útifötin?
Eins og áður sagði er íjallafatn-
aður yfirleitt dýr. Við skoöuöum
úrvalið í þremur versiunum og
könnuðum verð. Ekki er hér um
neina tæmandi verðkönnun að
ræða heldur er hér stiklað á stóru.
Hins vegar er það aldrei of brýnt
fyrir fólki aö gera sjálft verö- og
gæðasamanburð og vanda valið á
útífatnaði eins og kostur er, því í
flestum tilfellum ætlar fólk að eiga
slíkan fatnað í langan tima.
Mikið úrval af gönguskóm er víða
að finna í verslunum, til að mynda
í Útillfi í Glæsibæ. Þar fást göngu-
skór frá fyrirtækinu Mendle og
kosta þeir frá 4600-8470 krónur.
Þaö er mjög til fyrirmyndar í
Skátabúðinm við Snorrabraut að
þar liggja frammi verðlistar yfir
allar þær vörur sem verslunin sel-
ur. Fólk getur því auðveldlega grip-
ið hann með sér heim til að athuga
verð nánar.
Skátabúðin býður einnig mjög
gott úrval af ýmiss konar göngu-
skóm, jafnt ódýrum sem dýrum.
Þeir versla með leðurskó frá fyrir-
tækinu Scarpa og kosta þeir ódýr-
ustu 4740 krónur en þeir dýrustu
8190 krónur.
í Sportvali í Kringlunni rákumst
við á leðurgönguskó frá fyrirtæk-
inu Meindl og kostuðu þeir frá
3660-6990 krónur.
Sokkar
í Sportvali fundum við ekki ýkja
mikið úrval af sokkum. Þó fundum
við þar tvær gerðir sem heppilegar
væru til nota í gönguskóm. Annars
vegar sokka úr 50% ull og 50%
polyacryl og kostuöu þeir 980 krón-
ur. Hins vegar á sokka úr 70% ull
og 30% polyacryl á 890 krónur.
í Útilífi fékkst geysimikið úrval
af alls kyns sokkum á mismunandi
veröi og úrýmiss konar efnum. Þar
mátti til að mynda fá sokka úr 55%
ull, 20% silki, 10% polyacryl og 15%
polymaide á 590 krónur. Svo feng-
ust þar sokkar úr 80% ull og 20%
grillon á 360 krónur. Þar fengust
einnig ullarsokkar á 750 krónur.
Skátabúöin býöur einnig upp á
mjög gott sokkaúrval. Þar má fá
sokka úr hreinu silki á 750 krónur,
hnésokka úr ullarblöndu á 990
krónur og þar fennust einnig sokk-
ar á 400 krónur og svo framvegis.
Nærfatnaður
í Skátabúðinni fæst ýmiss konar
nærfatnaöur, t.d. úr angóraull og
raeð fíbertrefjum. Peysa og buxur
saman í pakka kostuðu 1580 krón-
ur, nærskyrta með kraga 3190 og
työfaldar nærbuxur kostuðu 2890.
í Útilífi var ekki eins mikiö úrval
af nærfatnaði þann dag sem við lit-
um þar inn. Þar sáum við þó nær-
fót með fibertrefjum á um 3000
krónur.
Buxur, anorakar og fleira
Göngubuxur úr stretchefni kosta
á bilinu 4600-5000 krónur í Útilífi.
í Skátabúðinni má fá tvöfaldar
hnébuxur að lúuta á 3950 og tvö-
faldar á 5890 krónur, smekkbuxur
á 6490 og þar fást einnig einfaldar
hnébuxur á 3150 krónur.
Allur fatnaður, sem fóðraöur er
með goretexfilmu, er mun dýrari
en annar. Goretexið er hægt að
nota í nánast hvaöa fatnaö sem er,
skó, úlpur, jakka og svo framvegis.
Dúnúlpur, sem fóðraðar eru með
goretex, kosta yfirleittrúmar 20000
krónrn- á meðan hægt er að fá dún-
úlpur í Vinnufatabúöinni á 4900
krónur en þær eru ekki fóðraðar
með goretexinu. Jakkar og anorak-
ar, sem fóöraöir eru með goretex,
kosta frá 7000 krónum og upp í
15000-17000 þúsund og eru þaðan
af dýrari. En hægt er að fá slxkar
flikur á þriðjungi þess verðs séu
þær ekki fóðraðar með marg-
nefndri goretexfilmu. -J.Mar