Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Síða 48
 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón- þá ísíma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 FIMMTUDAGUR 30. JUNÍ 1988. Eyði ekki púðri á þessar deilur Steingrímur hætti að væla - segir Olafúr Ragnar Grímsson i „Þaö var tími til kominn að Stein- grímur áttaði sig á því að ríkisstjórn- in ræður ekki við stjórn efnahags- mála. Ekki bara við það sem gerst hefur síðustu daga heldur undan- farna mánuði á öllum sviðum. Hvort sem um er að ræða gengismál, ríkis- fjármál eða verðlagsmál þá hefur niðurstaðan orðið þveröfug við það sem þeir segja,“ sagði Óláfur Ragnar Grímsson, formaður Alþýöubanda- lagsins, um ummæh Steingríms Her- mannssonar varðandi hækkun Landsvirkjunar. „í þessum deilumálum á Stein- grímur Hermannsson að fara að gera það upp við sig í eitt skipti fyrir öll hve lengi hann ætlar að stjórna með Sjálfstæðisflokknum. Ef hann ætlar að gera þaö áfram eins og undanfarin sex ár þá ætti hann að hætta að væla opinberlega yfir ákvörðunum Sjáíf- stæðisflokksins,“ sagði Ólafur Ragn- ar Grímsson. -JFJ LOKI Það er sama hvort er, kríuvarp eða stjórnar- samstarf, það misferst. - segir Aibert Guðmundsson „Ég held að Davíð Oddsson verði að átta sig á þvi að ríkisstjórnin hef- ur hlutverki að gegna. Þetta verður borgarstjóri að skilja betur en hann virðist gera. Þó ríkisstjórnin verði aö passa sig á því að fara ekki of mikið inn á svið sveitarstjórna þá er þjóðin ein heild. Það er ekki hægt að stofna borgríki óháð þjóðinni. Við verðum öll að vinna saman og taka tillit til þarfa hvert annars," sagði Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins. „Ríkisstjórnin og ráðherrarnir hafa verið í deilum frá því þessi stjórn var mynduð. Þetta eru engar fréttir lengur. Ég ætla því ekki að eyða miklu púðri á þessar deilur þeirra. Ég harma hins vegar að þetta þurfi að vera svona," sagði Albert. -gse Fráleitt að falsa raforkuverð Höfnum vinstristjórnar háttum Framsóknar segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra „Það kemur ekki til greina aö verða við kröfum Framsóknar- flokksins um að auka erlendar lán' tökur Landsvirkjunar í þeim til- gangi að falsa raforkuverð. Þeir voru aðalkröfugerðarmennirnir um gengisfellingu og erlendar lán- tökur og þar af leiðandi aukna verðbólgu. Að faisa afleiðingar slíkra ákvarðana eru hefðbundnir vinstristjórnarhættir og engum kröfum um vinstristjórnar- mennsku frá Framsóknarflokkn- um verður sinnt,“ sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. Þorsteinn sagði að Landsvirkjun hefði verið gert að leggja tillögur sínar um hækkun gjaldskrár fyrir trúnaðarmenn ríkisstjórnarinnar um Verðlagsmál sem starfa sam- kvæmt bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar frá 20. maí. Þessir trúnaðarmenn hafi talið hækkun- ina eðlilega auk þess sem raungildi raforkuverðs lækki um 9% og verði neðan við verðbólgustig á árinu. Hvað með ummæli Davíðs Odds- sonar í útvarpsfréttum í gær, að Sjálfstæðisflokknum væri varla vært í ríkisstjórn þar sera óstöðug- leikinn í efnahagsraálum væri svo mikill? „Ég heyrði ekki þessi ummæli og ' sagði vil því ekki tjá mig um þau," Þorsteinn. „Það er algjörlega út í bláinn að bæta við erlendar skuldir til að falsa raforkuverö og sérhverri slíkri kröfu Framsóknarflokksins hefur veriö hafnað óg verður hafn- að,“ sagði Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra. JFJ Beita áhrrfum sínum á röngum vettvangi - segir Kristín Einarsdóttir Fiskurinn á myndinni komst ekki áfallalaust í skip eins og fyrirhugað var. Tvö bretti duttu af vörubílspalli, fyrir framan Seðlabankann við Kalkonsveg, á leið til Sundahafnar. Svo heppiiega vildi til að hvorki gangandi né ak- andi vegfarendur urðu fyrir fiskinum. Röskar hendur voru fljótar til að fjarlægja fiskinn af götunni. DV-mund JAK/-sme Veðrið á morgun: Léttskýjað á Suðvestur- landi Norðaustangola eöa kaldi verð- ur víðast hvar á landinu á morg- un. Lítilsháttar rigning eða súld verður austanlands og á annesj- um fyrir norðan en annars staðar verður þurrt. Suðvestanlands verður léttskýjað. Hiti verður á bilinu 6-14 stig, hlýjast í uppsveit- um á Suðvesturlandi. „Við skulum fyrst og fremst gera okkur grein fyrir því að það eru mik- il vandamál í þjóðfélaginu. Við höf- um orðið fyrir mikilli kjaraskerð- ingu. Menn eru að takast á við þetta. Það mun koma við ýmsa og það mun valda miklum vandræðum. Þegar verðfall verður á erlendum mörkuð- um höfum við hingaö til ekki tekist á við það með því að minnka kostnað innanlands eða lækka launin okkar. Það hefur því miður ávallt komiö fram í verðbólgu. Að sjálfsögðu mun- um við reyna að halda niðri verði á opinberri þjónustu. En það þýðir ekki að hleypa þessum fyrirtækjum í bullandi taprekstur. Það er hins vegar spurning hvort ekki sé hægt að fresta einhverjum framkvæmdum hjá þessum fyrirtækjum á sama hátt og fyrirtæki í útflutningi þurfa að búa við,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. „Ég ætla ekki að munnhöggvast viö Davíð Oddsson vegna ummæla hans um ríkisstjórnina. Hann hlýtur aö ræða þetta mál innan síns flokks,“ sagði Halldór. -gse „Ef við tökum gagnrýnina efnis- lega fyrst þá er ég alveg sammála henni. Ríkisstjórnin ræður ekki við neitt. En mér fmnst mjög undarlegt þegar menn sem eiga aö hafa áhrif í ríkisstjórn eru að básúna vandræði hennar á síðum fjölmiöla í stað þess að reyna að beita áhrifum sínum í ríkisstjórninni. Steingrímur Her- mannsson er ekki einn úti í bæ. Hann á að koma gagnrýni sinni á framfæri innan ríkisstjórnar en ekki í fjölmiöl- um. Hann á að reyna að hafa áhrif á hlutina á réttum vettvangi. Hvað er maðurinn að gera í ríkisstjórninni ef eina aðferðin til að koma gagnrýni á framfæri og hafa áhrif er í gegn um fjölmiðla. Sama má segja um Davíð Oddsson. Ef hann er í innsta hring Sjálfstæðis- flokksins og talar við forsætisráð- herra í hverri viku, því beitir hann ekki áhrifum sínum á þeim fund- um,“ sagði Kristín Einarsdóttir, Kvennalista, við DV í morgun. -hlh Bullandi taprekstur ekki lausn í t í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.