Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
3
Frettir
Aldamótakynslóðin:
Margir vilja ekki öldrunarhjálp
„Það er ekkert einsdæmi aö alda-
mótakynslóðin viiji ekki þiggja hjálp
neins staðar frá fyrr en fólk er nán-
ast komið á vonarvöl. Þetta fólk, sem
ólst upp á fyrsta þriðjungi aldarinn-
ar, þekkti ekki félagslega aðstoð og
er stolt. Það telur margt að það sé
byrði á þjóðfélaginu ef það þiggur
svona aðstoð. Auðvitað væri hægt
að veita meiri hjálp með fleiri starfs-
mönnum tfg meira fjármagni en það
þarf einnig að breyta hugarfarinu,“
sagði Hrafn Pálsson, deildarstjóri í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Daímið, sem nefnt var í DV, um
eldri hjónin sem bæði voru orðin
veik og vissu ekki hvert þau áttu að
snúa sér til að fá heimilisaðstoð kom
Hrafni ekki á óvart.
„Þaö eru til bæklingar, gefnir út
af Tryggingastofnun ríkisins. Þeir
liggja þar frammi og hjá læknum en
fólk tekur ekki upp svona bæklinga
og les þá. Það er furðulegt hvað
hamra þarf hlutina inn 1 fólk og til
að koma svona tilkynningu til allra
þyrfti að fá þátt í sjónvarpið um heil-
brigðis- og tryggingamál. Slíkan þátt
værum við tilbúnir að vinna í sam-
vinnu við hvern sem er, þó slíkt heyri
frekar undir Tryggingastofnun,"
sagði Hrafn.
Hann sagði að öldrun væri ekki
sjúkdómur heldur þróun sem hæfist
þegar við fæðingu. Það væri ekkert
óeðlOegt þó að eldra fólk þyrfti að
fara sér hægar og ef til vill flytja í
heppilegri híbýli.
„Aðalvandinn fyrir utan peninga-
leysi er að mennta fólk á öllum stig-
um þjónustunnar. Við eigum talsvert
mikið af hámenntuðu fólki en þurf-
um fleiri menntaða einstaklinga sem
ekki eru hámenntaðir. Um þetta er
mikil umræða á Vesturlöndum núna
því það er sitthvað öldrunarfræði og
öldrunarlæknisfræði þó að það skar-
ist. Ef fólk, sem annast aldraða, aflar
sér aukinnar þekkingar yrðu ríki og
sveitarfélög aö koma á móti og greiða
þvi hærri laun enda koma á móti
betri störf og færri starfsmenn,“
sagði Hrafn.
Hrafn sagði að vel gæti hugsast að
hafa ráðgjöf fyrir roskið fólk um
húsnæðismál og peningamál. Ein-
hvers konar ráðgjöf væri hjá Félags-
málastofnun Reykjavíkur en þar
væri of mikið að gera og roskið fólk
væri einnig hikandi að leita ráða.
Taldi Hrafn ef til vill betra að hafa
öldrunarmálafélagsstofnun sérstak-
lega.
„Við erum með ný lög í burðarliðn-
um um málefni aldraðra og eru þau
byggð á reynslu undanfarinna ára
en gömlu lögin eru frá árinu 1981.
Ráðherra stefnir að því að koma
þeim í gegnum Alþingi fyrir áramót.
Þar er skilgreint hvaða þjónustu er
þörf fyrir og gerðar breytingar á
tryggingakerflnu. Framkvæmda-
sjóði aldraðra er ætlað meira hlut-
verk við að aðstoða fjármögnun öldr-
unarþjónustu. Einnig viljum við
blanda öldruðum betur við aðra ald-
urshópa. Fyrir tíu árum var áhersla
lögð á að hafa nógu mikið af dvalar-
heimilum. Nú viljum við vekja áhuga
fólks á að halda áfram að lifa lífinu
þó aö það komist á eftirlaun og slíta
það ekki úr tengslum við þjóðfélagið.
Eldra fólkið gæti til dæmis passað
börnin og kennt þeim íslensku,"
sagði Hrafn Pálsson. JFJ
20%-50%
afsláttur af öllum
skóm í búðinni,
St. 18-25,
hvítir og köflóttir.
Áður kr. 1 590. Nú kr. 795.
leður, svartir m/rauðu og grænu.
Áður kr. 1665-1840.
Nú kr. 830-920.
St. 23-33,
leður, gráir og bláir.
Áður kr. 1690. Nú kr. 845.
St. 22-27,
bláir m/rauðu og bláir m/ljósbláu.
Áður kr. 530. Nú kr. 265.
St. 23-30,
leður, bleikir og bláir.
Áður kr. 1665-1765.
St. 25-34,
hvítir m/myndum.
Áður kr. 790. Nú kr. 395.
Póstsendum
Opiðlaugardaga fra kl. 11.00-13.00
smáskór
Skólavörðustíg 6b
gegnt Iðnaðarmannahúsinu.
Sími 622812.
y-
I &
EIGANDI
Þarftu að endurnýja?
Skoðaðu skiptitilboð Daihatsu.
Þú kemur með þann gamla og ekur burt á þeim nýja.
Þú semur um mismuninn eins og þér hentar.
BRIMBORG HF
ÁRMÚLA 23 - Sími 685870, 681733
P.S. Það hefur aldrei verið eins auðvelt að semia i bílaviðskiptum.