Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Síða 42
42
Tarðarfarir
Pétur Árnason lést 5. júlí sl. Hann
var fæddur í Reykjavík 6. maí 1927.
Foreldrar hans voru hjónin Árni
Yngvarsson og Jakobína Jónsdóttir.
Pétur lauk námi í flugvirkjun frá
Spartan School í Tulsa í Oklahoma-
ríki. Eftir þaö starfaöi hann í nokkur
ár sem flugvirki. í kringum 1950
stofnaði hann fyrirtæki til aö annast
pökkun og flutninga fyrir starfsfólk
hinna ýmsu sendiráða og varnarliöiö
á Keflarvíkurflugveili. Eftirlifandi
eiginkona hans er Ragnheiður Erla
Sveinbjörnsdóttir. Þau hjónin eign-
uöust fjögur böm. Útför Péturs verð-
ur gerö frá Fossvogskapellu í dag kl.
13.30.
Ragnar Ketilsson, Vík í Mýrdal, er
lést þriöjudaginn 5. júlí, veröur jarö-
sunginn frá Víkurkirkju laugardag-
inn 16. júlíkl. 14.
Valfríður Ágústa Þórðardóttir lést
21. júní á Dvalarheimilinu Feilsenda.
Jaröarförin hefur fariö fram í kyrr-
þey.
Björn Stefánsson, fyrrum póstur og
bóndi á Káifafelli, veröur jarðsettur
frá Kálfafellskirkju laugardaginn 16.
júlí kl. 14.
Björn Sigurbjörnsson vélstjóri frá
Siglufirði, Geitlandi 37, lést í Borgar-
spítalanum 7. júlí. Jarðsett verður
frá Fossvogskirkju föstudaginn 15.
júlí kl. 10.30.
Jónína Sigurjónsdóttir húsfreyja,
Byggðarhorni, Sandvíkurhreppi, Ár-
nessýslu, sem lést 10. júlí sl„ veröur
jarðsungin frá Selfosskirkju laugar-
daginn 16. júlí kl. 13.30. Jarðsett verö-
ur að Laugardælum.
Þórhildur Bárðardóttir, Ásavegi 2,
Vestmannaeyjum, sem lést miöviku-
daginn 6. júlí, veröur jarösungin frá
Landakirkju laugardaginn 16. júlí kl.
14.
Brynjúlfur Jónsson prentari,
Brekkutúni 18, sem andaðist fimmtu-
daginn 7. júlí, verður jarösunginn frá
Kópavogskirkju föstudaginn 15. júlí
kl. 10.30 f.h.
Óskar Ólafsson, Iöjumörk 1, Hvera-
gerði, lést á Sjúkrahúsi Suöurlands
7. júlí sl. Hann var fæddur 7. apríl
1907 á Höföa í Eyjahreppi. Hann var
kvæntur Kristínu Þórðardóttur og
eignuöust þau fjögur böm. Útför
Óskars verður gerö frá Hveragerðis-
kirkju laugardaginn 16. júlí kl. 14.
Andlát
Ólafur Bæringsson, Bjarkargötu 8,
Patreksfiröi, lést á heimili sínu þann
12. júlí.
Þórarinn Þorkelsson, Dyngjuvegi 17,
lést í Landspítalanum 12. júlí.
Ferðalög________________________
Ferðafélag íslands
Dagsferðir um helgina
Laugardagur 16. júlí kl. 8: Hekla (1496
m). Gengið á Heklu úr Skjólkvíum. Gang-
an tekur um 8 klst. fram og til baka.
Verð kr. 1.200.
Sunnudagur 17. júlí kl. 8: Þórsmörk -
dagsferð. Verð kr. 1.200.
Kl. 13: Brynjudalsvogur - Búðasandur
- Maríuhöfn. Létt gönguferð. Verð kr.
1.200.
Helgarferðir 15.-17. júlí:
1. Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í
sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum. Ekið
í Eldgjá og skipulagðar gönguferðir.
2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála,
Langadal. Léttar gönguferðir um Mörk-
ina.
3. Þórsmörk - Teigstungur. Gist í tjöld-
um í Stóraenda og farnar gönguferðir
þaðan.
4. Hveravellir. Gist í sæluhúsi Ferðafé-
lagsins á Hveravöllum. Skoðunarferðir
um nágrennið. Brottfór í helgarferðimar
er kl. 20. Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofu Ferðafélagsins, Öldugötu 3.
Tilkyimingar
Vegahandbókin í enskri
og þýskri útgáfu
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hafa sent á
markað enska og þýska útgáfu af hinni
vinsælu vegahandbók. Bókin hefur kom-
ið tvivegis á ensku en þýska útgáfan birt-
ist nú í fyrsta sinn. Efni beggja útgáfanna
byggir að sjálfsögðu á texta íslensku útg-
áfunnar en þó er margt sagt með öðrum
hætti vegna þess að textinn er ætlaður
útlendingum sem koma alókunnugir til
landsins og þurfa að ýmsu leyti á annars
konar leiðsögn að halda en Islendingar.
Höfundur texta er Steindór Steindórsson
frá Hlöðum. Aðalritstjóri er Örlygur
Hálfdánarson en ritstjóri og hönnuður
Jakob Hálfdánarson. Teiknun korta ann-
aðist Narfi Þorsteinsson. Ensku þýðing-
una önnuðust þeir Einar Guðjohnsen,
Pétur Kidson, Leo Munro og Helgi Magn-
ússon. Þýðandi þýsku útgáfunnar er Ingo
Wershofen.
„Þessi eini þarna“
Skífan hefur gefið út sólóplötu Bjama
látúnsbarka Arasonar. Platan nefnist
„Þessi eini þama“ og inniheldur ellefu
LAUSAR STÖÐUR
HEILSUGÆSLULÆKNA
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsu-
gæslulækna:
1. Patreksfjörður H2, ein staða frá 1. október 1988.
2. ísafjörður H2, ein staða frá 1. október 1988.
3. Hólmavík H1, staða læknis frá 1. janúar 1989.
4. Siglufjörður H2, tvær stöður lækna frá 1. septemb
er 1988.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknis-
menntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu á sér-
stökum eyðublöðum, sem þar fást og hjá landlækni,
fyrir 10. ágúst 1988. I umsókn skal koma fram hve-
nær umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að
umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækn-
ingum.
Upplýsingar um stöðurnar veita ráðuneytið og land-
læknir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
12. júlí 1988
111 '■ 11 11 r íu tfi n mm öf
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Menning
Hamborgarar
í Landakoti
Þaö hefur eitthvað veriö um að
erlendir kórar hafi heimsótt okkur
í vor og sumar. Flestir hafa þeir
veriö hreppakórar skipaöir glað-
beittum áhugamönnum og konum
og eru slíkar heimsóknir alltaf
skemmtilegar og góðar.
í gærkvöldi var hins vegar meiri
alvara á ferðinni vestur í Krists-
kirkju. Þar var kominn kór frá
Tónlistarháskólanum í Hamborg,
en hann hefur að undanförnu ferð-
ast um landið ásamt stjórnanda
sínum (og kennara), Klaus Vetter.
Efnisskrá kórsins í þessari íslands-
ferð er bæði mikil og merkileg og
söng hann nokkur vel valin verk
úr henni að þessu sinni, þ.e. kór-
músík eftir þýska snillinga frá
ýmsum öldum, Schutz, Bach,
Mendelsohn, Liszt, Hindemith o.fl.
Óskaplega var gott að heyra
Schutz, sem lýsti upp sálina og
kirkjuna ásamt kvöldsólinni sem
skein svo glaðlega gegnum litað
glerið í gluggunum. Og það var
undursamlegt að heyra átta radda
mótettur eftir Bach, skýrt sungnar
og með tilfinningu. Eða þá „Vater
unser“ eftir Liszt og „Pater nost-
er“ eftir Jacob Hándl, þar sem
ævintýraleg „antifónían" með
karla í kór og konur á orgelloftinu
Kristskirkja.
Tónlist
Leifur Þórarinsson
flutti okkur heilög orð af látlausum
styrk. Þá má ekki gleyma messu-
kafla, Kyrie úr síðasta verki Pauls
Hindemiths (1963), þar sem hrein-
skiptin pólyfónía lék á als oddi og
rifjaði upp fyrir manni svo ótal
margt skemmtilegt í fari þessa
merkilega „hreintrúarmanns" sem
aldrei lét glepjast af krómatísku
svalh nútímans. Eða næstum aldr-
ei.
Já, þar var sannarlega fengur að
þessari heimsókn úr Hamborg, þó
ekki hafi alltof margir lagt leið sína
í Landakot aö fagna gestunum. Það
var nú heldur ekki gert neitt sér-
lega mikið úr þessu í fjölmiðlum,
eða hvað? Skaði. LÞ
lög. Lagahöfimdar á plötunni eru Jakob
Magnússon, Valgeir Guöjónsson, Ragn-
hildur Gísladóttir og Bubbi Morthens.
Aukin heldur syngur Bjarni erlend lög
viö íslenska texta. Bjami Arason fylgir
sólóplötunni eftir ásamt hþómsveit sinni,
Búningunum, og spilar vitt og breitt um
landið í sumar.
Málverkasýningá Frakkastíg
Auður Aöalsteinsdóttir og Sigríður Júlía
Bjamadóttir sýna um þessar mundir
málverk í tfivonandi verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði að Frakkastíg 8. Auður og
Sigríöur Júlía útskrifuðust úr kennara-
deild Myndlista- og handiðaskóla f slands
sl. vor og hefur hvomg þeirra sýnt áður.
Húsið á Frakkastignum stendur á milli
Laugavegar og Hverfisgötu og er gengið
inn um glugga á því miðju til aö komast
inn á sýninguna. Athygh skal vakin á því
að sýningunni lýkur nk. sunnudagskvöld
og hún er opin virka daga kl. 17-22 og
um helgar kl. 14-22.
Opið hús fyrir erlenda
ferðamenn í Norræna húsinu
Heimir Pálsson cand. mag. ræðir um ís-
lenskar bókmenntir í „opnu húsi“ í Nor-
ræna húsinu í kvöld, fimmtudag 14. júlí,
kl. 20.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á
sænsku en dagskráin er einkum ætluð
norrænum ferðamönnum. Að loknu
kaffihléi verður sýnd kvikmyndin Þrjár
ásjónur íslands og er hún með norsku
tali. Bókasafnið og kaffistofan verða opin
til kl. 22 eins og venja er á fimmtudögum,
eða svo lengi sem „opið hús“ verður á
dagskrá í sumar. í bókasafninu liggja
frammi bækur um ísland og íslenskar
hljómplötur. Aðgangur er ókeypis og all-
ir eru velkomnir í Norræna húsið.
Happdrætti
Sumarhappdrætti heyrnar-
lausra 1988
Dregið var í happdrættinu 1. júlí sl. Vinn-
ingsnúmer eru þessi: 1. 10208, 2. 1817, 3.
5358, 4. 17622, 5. 1310, 6. 1504, 7. 12505, 8.
13251. Vinninga má vitja á skrifstofu Fé-
lags heymarlausra, Klapparstíg 28, kl.
9-17 alla virka daga, sími 13560. Félagið
þakkar veittan stuðning.
fæst á
járnbrautar-
stöðinni
í Kaup-
mannahöfn
....
Vitni óskast
Keyrt var á kyrrstæða Subaru 1800 4x4
bifreið, ljósbrúna að lit, fyrir framan
Hófgerði 2 í Kópavogi aðfaranótt 2. júlí
eða snemma á laugardagsmorgun. Ef ein-
hverjir hafa orðið varir við ákeyrsluna
eða geta á einhvern hátt veitt upplýsingar
eru þeir vinsamlegast beðnir að hringja
í síma 641348 eða 41475 eftir kl. 19 á kvöld-
in. Hægri framhurð bifreiðarinnar er
mjög dælduð.
Tórúeikar
Tónleikar í Fríkirkjunni
í kvöld, 14. júli, kl. 20.30 heldur Susan
Landale tónleika í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Susan er fædd 1 Skotlandi og lauk
Bachelor of Music frá Edinborgarhá-
skóla. Eftir framhaldsnám í píanó- og
orgelleik í London fór hún til Parísar og
gerðist þar nemandi André Marchal. Þar
var hún organisti við ensku kirkjuna um
árabil. Hún sérhæfði sig í siðrómantískri
tónlist og einnig nútímaverkum. Susan
Landale er heimsþekktur einleikari. Plöt-
ur hennar frá frönskum og þýskum út-
gáfufyrirtækjum hafa verið lofaðar og
hefur hún mörgum sinnum komið fram
í útvarpi báðum megin Atlantshafsins.
Tvívegis hefur hún fengið fyrstu verð-
laun í orgelkeppni. Frá árinu 1977 hefur
hún verið aðstoðarorgelkennari viö tón-
listarskólann í Rueil Malmaison og að-
stoðarorganisti við Saint-Louis-des-
Invalides kirkjuna í París.