Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Page 44
44
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sylvester
Stallone
sem er mörgum minnistaeður úr
Tootsie fær líklega tækifæri til
að ganga í barndóm á næstunni,
því honum hefur veriö boðið að
leika Hook kaptein í kvikmynd
um Pétur Pan. Dustin er nú að
klára að leika í myndinni „Rain-
man“. Ekki hefur enn verið
ákveðið hver skuli fara með hlut-
verk Péturs Pan, en margir hafa
augastað á Michael Jackson í það
hlutverk.
Joan Collins
alls staðar er það sem koma skal
því nú hefur heillin sú í huga að
feta í fótspor Pauls Newman og
fara að framleiða salatsósur og
jafnvel kampavín. Má maður því
eiga von á því að hún stari beint
í augu manns þegar ísskápurinn
er opnaður í grandaleysi. Hefur
líka verið talað um svitalyktar-
eyði og ætti Peter Hoim ekki að
vera án eins því hann á eftir að
svitna mikið yfir bókarskrifum
um samband þeirra hjúa.
Dustin
Hoffman
viröist hreint aldrei fá nóg. Nú
ganga sögur um að hann sé að
undirrita samninga um gerð
fimmtu myndarinnar um Rocky.
Á hann aö fá rúmlega einn millj-
arð fyrir vikið. Þessi mynd verð-
ur þó öðruvísi að þvileyti að nú
er hann farinn að láta á sjá eftir
að hafa barist viö alla þessa
kappa. Þó er að vænta einnar
stórrar lotu í lokin.
Frá afhjúpun listaverks eftir Marinó Björnsson.
DV-myndir Júlíus Guðni.
Leikið atriði um upp-
haf byggðar á Tanganum
Júlíus Guðni Antanssan, DV, Hvammstanga;
Eitt athyglisverðasta atriði
Hvammstangabúa á 50 ára hátíða-
höldum þeirrá sl. laugardag var þeg-
ar sett var upp leikið atriði um upp-
haf byggðar á Hvammstanga.
Það var þannig útfært að hjón
komu úr sveitinni með vörur á Tang-
ann en seglbátur kom yfir sjóinn.
Konan reið í söðli en bóndinn teymdi
hest sem beitt var fyrir kerru en í
hana var bundinn klyfjahestur. Á
Tanganum var lítið hús þar sem til
sölu var kaffi og með því en hjónin
skiptu á vörum sínum og öðrum
vamingi. Fleiri komu að og var spil-
að á nikku og stiginn dans og drukk-
ið brennivín.
Með þessu atriði, sem var kvik-
myndað, fékk fólk nasasjón af því
hvernig kaupin gerðust á Tanganum
hér áður fyrr og má fullyrða að böm
sáu þama mörg hver hestinn í öðru
hlutverki en þau eiga að venjast.
Hlutu
heiðurs-
nainbót frá
Cambridge
Nýlega veittist konungshjónum
Spánar sá heiður aö hljóta heiö-
ursnafnbót frá University of
Cambridge í Bretlandi. Var þaö
rektor skólans, hertoginn af Ed-
inborg, sem veitti þeim nafnbót-
ina. Fátítt mun vera að þjóö-
höfðingjar fái heiöursnafnbót frá
Cambridge og munu aðeins sjö
hafa fengið hana á undan kon-
ungshjónunum. Þar á meðal voru
Margrét Danadrottning og kon-
ungur Grikklands, George II.
Símamynd Reuter
Július Guðni Antansson, DV, Hvammstanga;
Þaö var mikið um að vera á
Hvammstanga um síðustu helgi en
þá iiéldu íbúar hreppsins upp á 50
ára afmæli sveitarfélagsins. Margt
manna tók þátt í hátíðahöldunum,
auk íbúanna sjálfra mátti sjá marga
brottflutta sem og fólk úr nágranna-
sveitarfélögunum.
Á laugardaginn var byrjað á þvi
að fara í sundlaugina þar sem sund-
gestum var boðið upp á’ Veitingar í
lauginni. Slökkviliðið kom í heim-
sókn og ýmislegt óvænt kom upp á
en það einkenndi raunar öll hátíða-
höldin aö ávallt var eitthvað sem
kom fólki á óvart og of langt mál að
telja þaö hér allt upp. Síðar um dag-
inn var listaverk eftir Marinó
Björnsson afhjúpaö en þaö var gjöf
frá flestum fyrirtækjum á Hvamms-
tanga. Þá var ný göngubrú vígð yfir
Hvammsá, sem rennur í gegnum
staðinn. Hún var vígö með þeim
hætti að ævintýrið um tröllið og geit-
urnar þrjár var staöfært og leikið á
brúnni.
Skemmtiatriði við allra hæfi
Boðið var upp á ýmiss konar
skemmtiatriði við allra hæfi, tónlist,
dans, söng, leiki og sprell. Nokkur
fyrirtæki á staðnum efndu til mat-
vælakynningar þar sem fólki var
boðið að bragða á framleiðslu og
söluvöru þeirra. Um kvöldið voru
tónleikar á útisvæðinu við brúna yfir
Hvammsá en þar komu fram hljóm-
sveitirnar Baggabandið frá Þórshöfn
á Langanesi og Hrepparamir af
staðnum. í félagsheimihnu var síðan
fjölskyldudansleikur fram á nótt.
Hátíðamessa
Á sunnudag var útigrill þar sem
fólki var boðið upp á grillað kjöt.
Hátíðaguðsþjónusta var síðan í
Hvammstangakirkju þar sem fyrr-
verandi sóknarprestar og prófastur
þjónuðu fyrir altari. Starfrækt var
Hjón að koma úr sveitinni á leið niður á Tanga.
Vígsla nýju göngubrúarinnar á Hvammsá.
útvarp á Hvammstanga og þar var
flutt tónhst og fjölbreytt dagskrá.
Talið er aö vel á annað þúsund
manns hafi tekið þátt í hátíðahöldun-
um en íbúar Hvammstangahrepps
eru um 675. Fullyrða má að með
þessu hafi Hvammstangi minnt vel á
sig, íbúar eflt samstöðu sín á milli
og fegrað umhverfi sitt og gert sér
glaðan dag. Og er það vel.
DV-mynd Júlíus Guðni
Hvammstangi minnti vel á sig