Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988.
Fréttir
Þrír farast í flugslysi
I gær fórst tveggja hreyfla flugvél
viö Reykjavíkurflugvöll og létust
þrir Kanadamenn sem um borð voru.
Flugvélin var í aöflugi í slæmu
skyggni og rigningu þegar hún hrap-
aöi, um 50 metra sunnan Hring-
brautar. Flugvélin fórst Jaust fyrir
klukkan sex, á sama tím- og um-
ferðarþungi er hvað mestur á Hring-
brautinni.
Sjónarvottar urðu varir við tor-
kennilegt hljóð í flugvélinni ör-
skömmu áður en hún steyptist nið-
ur. Mikil sprenging heyrðist og flug-
vélin varð alelda á svipstundu.
Ekki er hægt að slá neinu fóstu um
orsakir slyssins og í morgun var beð-
ið eftir sérfræðingum frá Kanada til
að taka þátt í rannsókninni.
Ljóst er að flugvélina bar af réttri
aðflugslínu þegar hún átti stutt eftir
að flugbrautinni. Sumir sjónarvottar
segja að annar hreyfill vélarinnar
hafi stöövast skömmu áður en hún
hrapaði.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðarsonar,
deildarstjóra Loftferðaeftirlitsins,
verður í dag unnið úr þeim gögnum
sem fengust í gær en beðiö með að
rannsaka sjálft flakið þangað til á
morgun, þegar Kanadamennimir
koma. Þangað til er flakið vaktað og
varið með dúk.
Örstuttu eftir slysið var slökkviliðið komið á vettvang og gekk greiðlega að kæfa eldinn meö froðu.
Flugvélin var af gerðinni Casa C-
212, framleidd á Spáni. Vélin var út-
búin til rannsókna og var að koma
frá Narssarssuaq á Grænlandi. Héð-
an átti að fljúga vélinni, sem bar ein-
kennisstafina C-GILU, til Frakk-
lands.
Fáeinum mínútum eftir slysiö kom
slökkvilið Reykjavíkurflugvallar á
slysstað og tókst því á skammri
stund að kæfa eldinn með froðu.
Mikinn mannfjölda dreif að en lög-
reglu tókst að girða af svæðið og
halda fólki í hæfilegri fjarlægð.
-pv
Casa C-212 er framleidd á Spáni. Vænghafið er 19 metrar og lengdin rúmir
15 metrar. Vélin vegur fullhlaðin um 7 tonn.
Fátt heillegt er eftir af flugvélinni. Hér sést í hjólabúnað vélarinnar.
Býr nærri flugbrautarendanum:
Ekki ástæða til að hræðast
„Þetta er mjög óvenjulegt slys. Það
er einn á móti milljón að þetta geti
gerst og engin ástæöa til að vera
hræddari nú en áður. Þessi flugvöll-
ur hefur verið hér í 40 til 50 ár og
ekki orðið slys á friðartímum.
Reykjavíkurflugvöllur er einna best
staddur allra flugvalla í heimi hvaö
varðar slysatíðni," ssgði Frank Cass-
ata íbúi að Sóleyjargötu 29 við DV í
morgun.
Frank býr mjög nálægt brautar-
endanum þar sem flugslysið átti sér
stað í gær. Segist hann ekki hafa
orðið fyrir ónæði af völdum flugum-
ferðarinnar um Reykjavíkurflugvöll
og ekki óttast hana.
„Sumir eru hræddir hvar sem þeir
eru. Það þýöir lítið aö lifa í heiminum
í dag ef maður er hræddur við allt
mögulegt. Fólk hugsar sig ekki um
þegar það fer yfir götu en það er
mjög hættulegt. Hins vegar verður
þaö ofsahrætt við hluti sem alls ekki
eru eins hættulegir eins og flugvél-
ar.“ -hlh
Annar hreyflllinn stopp
Þrír strákar voru viö Tjömina þeg-
ar flugvélin, sem fórst, fór þar yfir.
Að þeirra sögn fylgdust þeir með
vélinni vegna þess aö þeim þótti
rannsóknarbúnaðurinn á skrokki
vélarinnar forvitnilegur. Strákamir
sögðu að vinstri hreyfill vélarinnar
hefði ekki snúist.
„Viö sáum flugvélina allt í einu
fara í hring og detta niður. Svo kom
sprenging og mikill reykur," sögðu
félagamir.
Þrír strákar, Friðjón Þórðarson, 01-
geir Sveinn Friðjónsson, Haraldur
Ingólfur Þórðarson. DV-myndir S
Œjörnin
Hljómskálagarðurinn
a*3 W
Slysstaður
Flugvöllurinn
(Norðurbraut)
Flugvélin var í rangri aðflugslínu
þegar hún fórst. Vélin flaug blindflug
í slæmu skyggni og fórst 50 metra
frá Hringbrautinni.
Baskalöggan vildi
í mýndavél DV-
manns
Jón Öm Guðbjartsson, DV, Irun:
Blaðamaður DV komst heldur
betur í hann krappann í gær en þá
lenti hann í útistööum við lögreglu
á miðri verslunargötu Imn í Ba-
skalandi. Skriffmnur blaðsins tók
sér stöðu á götuhorni einu og hugð-
ist festa bæjarlífið á filmu. En ekki
gekk það slysalaust fyrír sig því er
blaðamaður mundaði vélina kom
lögreglumaður nokkur askvað-
andi, er hafði stjórnað umferð áð-
ur. Vildi lögreglumaðurinn, sem
taldi sig bersýnilega myndefnið,
ólmur komast í vél blaðamannsins
en sá síðartaldi var hreint ekki á
því að láta það eftir. Gerði þá lög-
reglumaðurinn félögum sínum við-
vart og birtist lögreglubifreið í einu
vetfangi og út stigu tveir fUefldir.
Skammt dugði fyrir tíðindamann
DV að kynna sig því mennirnir
mæltu aðeins á móðurmáh sínu og
skóku hausana. Er skriflinnur DV
sá aö í óefni stefndi kaus hann að
opna vélina og draga út fúmnna
Hún hafði að geyma landsliðsmenn
íslands meðal annarra og hafði
stefnan verið aö auka við því blaða-
maður var á leið á landsliðsæfmgu.
Eftir uppgjöfma fékk blaöamaður
að ganga á brott óáreittur en óneit-
anlega með skjálfta í hnjánum eftir
útistöðurnar. ■
Greenpeace höfðar mál gegn Bandaríkjastjóm:
Telja samþykki við vísinda-
veiðum ólöglegt
Ólafur Amaison, DV, New Yorlc
Um hádegisbilið í dag halda Gre-
enpeace-samtökin blaðamanna-
fund í Washington. Á fundinum
munu samtökin tilkynna að þau,
ásamt átján öðrum umhverfissam-
tökum, hafi höfðað mál á hendur
bandarískum stjómvöldum vegna
þess að Bandaríkjastjóm hafi ekki
sett fram staðfestingarákæra á
hendur íslenskum stjómvöldum
vegna hvalveiða íslendinga.
Náttúruvemdarsamtökin nítján
halda því fram að þegar bandarísk
stjórnvöld samþykktu vísindaveið-
ar íslendinga hafi það brotið í bága
við bandarísk lög, svo sem Pelly-
lögin, umhverfisverndarlög og lög
um vemdun dýrategunda sem eru
í útrýmingarhættu.
Samtökin nítján halda því fram
að ísland bijóti gegn banni Al-
þjóðahvalveiöiráðsins við hval-
veiðum með því að stunda „ábata-
samar“ veiðar sínar sem veiðar í
vísindaskyni.
í fréttatilkynningu, sem Gre-
enpeace-samtökin gáfu út í morg-
un, segir að Alþjóðahvalveiðiráðið
hafi ítrekað mótmælt þessum veið-
upi íslendinga og vitnað er í vís-
indamann frá World Wild Life Fo-.
und sem em ein þeirra samtaka
sem standa að málshöfðuninni. Sá
á sæti í vísindanefnd Alþjóðahval-
veiðiráðsins og heldur því fram að
skoðun meirihluta nefndarinnar
hafi verið gegn vísindaveiðum ís-
lendinga, hvalveiðiráðið hefur hins
vegar ekki enn komist að neinni
.slíkri niðurstöðu.
í samtali við DV í gær sagði
Campbell Plowden, aðaltalsmaður
Greenpeace-samtakanna í hvala-
málum, að á fundinum í dag yrði
fyrst og fremst rætt um málshöfð-
unina gegn Bandaríkjastjórn en
ekki lögð áhersla á mótmæli sam-
takanna gegn íslenskum fyrirtækj-
um. Plowden sagði að hugsanlegt
væri að samtökin myndu standa
fyrir mótmælum í tengslum við
heimsókn Þorsteins Pálssonar for-
sætisráðherra til Washington en
slíkt væri nú með öllu óvíst.