Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988.
13
Lesendur
Ekki greiðslukort
hjá Pósti og síma
Jón Bjarnason skrifar:
Vegna fréttar um að Eurocard
hafi tekið upp nýjimg í þjónustu
sinni með því að semja sérstaklega
við Póst og síma um fjölgun af-
greiðslustaða og að nú taki Póstur
og sími við greiðslum vegna upp-
gjörs á úttektum finnst mér það
skjóta ,skökku viö að sú stofnun
sem þarna er um að ræða (Póstur
og sími) skuli ekki sjálf bjóða við-
skiptavinum sínum aö greiða
skuldir sínar á þennan hagkvæma
máta.
Þau eru ekki mörg fyrirtækin í
opinbera geiranum sem hafa tekið
upp notkun greiðslukorta, senni-
lega aðeins tvö, Ríkisútvarpið og
Rafmagnsveita Reykjavíkur. Það
er með ólíkindum að ekki skuli
fleiri stórfyrirtæki hjá hinu opin-
bera vera búin að tileinka sér nú-
tíma fyrirkomulag í viðskiptum.
Úr því að Ríkisútvarpið og Raf-
magnsveitan hafa komið til móts
við sína viðskiptavini þá hljóta
önnur opinber fyrirtæki að geta
það líka.
Það er eitthvað mikið að í rekstri
annarra fyrirtækja sem ekki vilja
tileinka sér nútíma starfshætti.
Kannski ættu nýir ráðherrar að
kanna málið og þá láta gera úttekt
um leið á því hvort ekki er eitthvað
um staðnaða stjómendur hjá þess-
um fyrirtækjum sem faila undir
þeirra valdsvið.
Vilja opinber fyrirtæki ekki tileinka sér nútima starfshætti, t.d. með því
að bjóða viðskiptavinum greiðslukortaviðskipti?
Sparifé gamla fólksins ekki heilagt?
Skattlagning er skammarleg
Halldóra Jónsdóttir skrifar:
í nýlegum útvarpsþætti um eldri
borgara, þar sem m.a. var rætt við
Öddu Báru Sigfúsdóttur, lét hún þau
orð falla að hún sæi ekki að sparifé
gamla fólksins væri svo miklu heil-
agra en lífeyrissjóðstekjur að ekki
mætti skattleggja það. - Þetta vekur
mann til hugsunar um það misrétti
sem er á kjömm eldra fólks.
Sumir, eins og Adda Bára Sigfús-
dóttir, sem hefur verið þingmaður
og embættismaður, þurfa ekki að
kvíða ellinni. Þeir hafa á auðveldan
hátt skammtað sér lífeyrissjóðsrétt-
indi sem eru margfóld laun verka-
fólks og oft á tíöum hærri en þau er
viökomandi embættismaður hafði. -
Kannski eitt, tvö eða jafnvel um þrjú
hundruð þúsund krónur á mánuði.
Og hve mikið sparifé þarf nú gamla
fólkið að eiga til þess að komast þótt
ekki sé nema í hálfkvisti við þann
hóp sem Adda Bára tilheyrir? Hvorki
„Ætli þeir séu ekki fáir eldri borgararnir sem geta státað af slikri inn-
stæðu?“ spyr bréfritari.
meira né minna en milli 20 og 50
miUjónir króna og tveir einstakling-
ar eða hjón þá auðvitað helmingi
meira. - Ætli þeir séu ekki fáir eldri
borgaramir sem geta státað af slíkri
innstæðu?
Sjávarréttir
í miklu úrvali
Tilboð vikunnar
er okkar rómaða
fiskfars
Verð kr. 249,- kg.
Sjávarréttasalan
Grímsbæ
v/Bústaðaveg
Loftastoðir
BYGGIIMGA-
MEISTARAR
Eigum nú á lager
loftastoðir á
mjög hagstæðu
verði, bæði
málaðar og
galvaniseraðar
★
Stærðir
1,90-3,40 m,
2,30-3,80 m
og 2,50-4,40 m
★
Góðir greiðslu-
skilmálar
★
Leigjum einnig
út loftastoðir
Fallar hf.
Verkpallar - stigar
Vesturvör 7 - 200 Kópavogur,
simar 42322 - 641020.
a
rwo
„Ótrúlega mörg hinna nýrri húsa
halda ekki vatni - mígleka eins og
tágarhripið andskotans, svo sleppt
sé öllu rósamáli." Þessi tilvitnun er
úrgrein eftir Vilhjálm Hjálmarsson,
fyrrv. ráðherra, sem birtist íTímanum
fyrir nokkrum árum. Þetta eru orð
að sönnu, lekavandamál er fyrir
hendi á mörgum stöðum á Íslandi.
Á heimilissíðum á morgun verður
fjallað um leka í húsum. Einnig verö-
ur bent á hvernig best er að snúa
sér ef slíkt kemur upp: hve margir
eru bótaskyldir í fjölbýlishúsum
o.s.frv.
Hver kannastekki við að hafa fengið aðkenn-
ingu af slagi þegar símareikningurinn er
opnaður og reynist vera miklum mun hærri
en reiknað var með. í mörg ár hefur verið
barist á ótal vígstöðvum fyrir því sjálfsagða
réttindamáli að neytendur eigi kost á að fá
símareikninga sundurliðaða.
Málið er komið á þann rekspöl að næst
þegar hugbúnaður stafrænna símstöðva
verður endurnýjaður gefst hluta símnotenda
kostur á sundurliðun. Nú virðist sem ekki
verði af framkvæmdum vegna þess að fram-
kvæmdafé til Pósts og síma er skorið við
nögl á fjárlögum. Tillögur stofnunarinnar
voru skornar niður um 70%. Nánari umfjöllun
er á neytendasíðu á morgun.