Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988. 25 Fólk í fréttum Arnórsson Eins og fram kom í DV-frétt í gær var Kári Amórsson, skólastjóri Fossvogsskóla, kjörinn formaöur Landssambands hestamanna. Hann lauk kennaraprófi 1951 og var í framhaldsnámi viö Kennaraháskól- ann í Kaupmannahöfn 1957-58 og í Oxford 1974-75. Kári var kennari við Barnaskólann í Þórshöfn, við Barnaskóla Hafnarfjarðar og Flens- borgarskóla en skólastjóri við Barnaskóla Húsavíkur 1960-71 og Fossvogsskóla frá 1971. Kári var formaður Karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði og Karlakórsins Þryms á Húsavík. Þá var hann í stjóm Þjóðvarnarflokks íslands og Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna. Hann hefur verið formaður Félags skólastjóra og yflrkennara og gegnt fjölda annarra trúnaðar- og nefnd- arstarfa. Kári kvæntist 2. júní 1953 Ingi- björgu Áskelsdóttur, f. 2. júní 1935, deildarstjóra Búnaðarbankans. For- eldrar Ingibjargar eru Áskell Sigur- jónsson, skálds á Laugum Friðjóns- sonar, b. og oddviti á Laugafelli í Reykjadal, og kona hans, Dagbjört Gísladóttir,.systir Jóns, foður Gísla, Kári menntaskólakennara á Akureyri. Böm Kára og Ingibjargar eru Askell Öm, f. 5. júh 1953, sálfræðingur hjá unglingaráðgjöf ríkisins, kvæntur Björk Guðmundsdóttur hjúkmnar- fræðmgi, Dögg, f. 30. september 1954, félagsráðgjafi, gift Þorsteini Geir- harðssyni arkitekt, Kári Arnór, f. 30. maí 1956, hagfræðingur, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Bjargar og forstöðumaður afgreiðslu Ál- þýðubankans á Húsavík, kvæntur Kristjönu Skúladóttur bankastarfs- manni, Guðrún Dagbjört, f. 14. apríl 1961, sjúkraþjálfari á Grensásdeild- inni, gift Sigurði Björnssyni viö- skiptafræðingi, og Þórhallur Barði, f. 27. apríl 1963, nemi á Bændaskól- anum á Hvanneyri. Systkini Kára eru Sigríður Matthildur, f. 19. maí 1926, deildarstjóri Kaupfélags Þing- eyinga á Húsavík, amma Arnórs Guðjohnsen knattspyrnumanns, gift Sigurjóni Parmessyni múrara, Benóný, f. 25. september 1927, b. og oddviti á Hömrum í Reykjadal, kvæntur Valgerði Jónsdóttur, faðir Amórs, leikhússtjóra á Akureyri, formanns Félags íslenskra leikara,. Herdís, f. 1929, starfsmaður Kaup- félags Þingeyinga á Húsavík, gift Karh Hannessyni, skrifstofumanni Kaupfélags Þingeyinga, og Hörður, f. 1933, framkvæmdastjóri Hvamms, dvalarheimihs aldraðra á Húsavik, kvæntur Jónasínu Pétursdóttur, starfsmanni Hvamms. Foreldrar Kára voru Arnór Krist- jánsson, verkamaður og formaður Verkamannafélags Húsavíkur, og kona hans, Guðrún Elísabet Magn- úsdóttir. Föðurbróðir Kára er Ás- geir, formaður Verkamannafélags Húsavíkur, faðir Kristjáns, útgerð- arstjóra Höfða á Húsavík. Arnór var sonur Kristjáns, verkamanns á Húsavík, hálfbróður Páls Stefáns- sonar, forstjóra í Rvík. Kristján var sonur Sigurgeirs, b. á Parti Stefáns- sonar, bróður Péturs, föður Stefáns þjóðskjalavarðar. Annar bróðir Sig- urgeirs var Eðvald, afi Stefáns Kristjánssonar, fyrrv. íþróttafull- trúa. Móðir Arnórs var Þuríður, formaður Verkakvennafélagsins Vonar á Húsavík. Þuríður var dóttir Björns, b. á Jarlsstöðum Bjömsson- ar. Móðir Bjöms var Sólborg Jóns- dóttir, b. í Kasthvammi, Ásmunds- sonar, bróður Helga, ættfoður Skútustaðaættarinnar. Móðir Þur- íðar var Sigurlaug Guðmundsdóttir, systir Eyjólfs, langafa Hahdórs Ás- grímssonar ráðherra. Guðrún Ehsabet var dóttir Magn- úsar, sjómanns í Súðavík, Guð- mundssonar ríka í Eyrardal í Álfta- firði, Arasonar, b. í Eyrardal, Guð- mundssonar, bróður Guðmundar, langafa Kristjáns, afa Þorgeirs Ibsen skólastjóra, föðurÁrna, leiklistar- ráðunautar Þjóðleikhússins. Móðir Magnúsar var Guðrún, systir Hjalta, föður Magnúsar H. Magnús- sonar „Ljósvíkings". Guðrún var dóttir Magnúsar prests í Ögri, Þórð- arsonar. Móðir Magnúsar var Guð- björg, systir Guðrúnar, langömmu Hannibals Valdimarssonar, föður Jóns Baldvins ráðherra. Guðbjörg var dóttir Magnúsar, b. í Súðavík, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri í Seyðisfirði, Jónssonar, ættfóður Eyrarættarinnar, langafa Jóns for- seta. Móðir Guðrúnar var Matthild- ur Ásgeirsdóttir, prófasts i Holti í Önundarfirði, Jónssonar, bróður Þórdísar, fóður Jóns forseta. Móðir Matthildar var Rannveig Matthías- dóttir, stúdents á Eyri, Þórðarsonar, Kári Arnórsson. stúdents í Vigur, Ólafssonar, bróður Magnúsar í Súðavík. Móðir Guðrúnar Elísabetar var Herdís Eiríksdóttir. Móðir Herdísar var Feldís, systir Eyþórs, afa Ás- geirs Ásgeirssonar forseta. Feldís var dóttir Felix, b. á Neðri-Brunná, Sveinssonar. Móðir Felix var Þórey Egilsdóttir, Jónssonar, bróður Sig- urðar, langafa Jónasar, langafa Guðlaugs Trygga Karlssonar hesta- manns. Hjálmar H. Ragnarsson Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld hefur verið í fréttum en tónverk hans, Rómanza, var vahð af alþjóð- legri dómnefnd eitt athyghsverðasta tónverkið á cdþjóðlegri tónhstar- hátíð í Hong Kong. Einnig fmm- flutti ellefu hundruð manna kór tónsmíð hans við ljóðið Áfanga eftir Jón Helgason í Laugardalshölhnni á söngleikjum Landssambands blandaðra kóra sl. laugardag og nk. sunnudagskvöld verður fmmflutt nýtt verk hans, Tengsl, fyrir altrödd og strengjakvartett, við ljóð Stefáns Harðar Grímssonar á tónleikum í Gerðubergi. Hjálmar Helgi er fædd- ur 23. september 1952 á ísafirði, var í námi í Tónhstarskóla Ísaíjarðar 1957-1969 og í Tónhstarskólanum í Rvík 1969-1972. Hann varð stúdent frá MR1972 og lauk BA prófi í tón- hst frá Brandeis háskólanum í Massachusetts 1974. Hjálmar var í námi við Institut voor Sonologie í Utrecht í Hohandi 1976-1977 og varð Master of Fine Arts frá Cornell há- skólanum í New York-ríki 1980. Hann var kennari í Tónhstarskóla ísafjarðar, Menntaskólanum á ísafirði og stjórnandi Sunnukórsins 1974-1976. Hjálmar var kennari í raftónhst í Tónmenntaskóla Rvíkur 1981-1982 og söngstjóri Háskóla- kórsins 1980-1983. Hann var kennari í tónfræðigreinum í Tónlistarskól- anum í Rvík 1980-1988 og formaður Kennarafélags Tónhstarskólanna í Rvík 1982-1983. Hjálmar hefur verið í stjóm íslenskrar tónverkamið- stöðvar frá 1984 og formaður Tón- skáldafélags íslands frá 1988. Hjálm- ar hlaut starfslaun Reykjavíkur- borgar th þriggja ára frá 1988. Hjálmar hefur samið: Jón Leifs, Ice- landic Composer: Historical Back- ground, Biography, Analysis of Selected Works, Comell háskólan- um 1980 (meistaraprófsritgerð), Tónsmiðar fyrir einleikshljóðfæri, kammertónverk, sönglög, kórverk pg raftónhst. Meðal verka hans eru: í svarthvítu (1978) fyrir einleiks- flautu. Sex sönglög við ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson (1978-1979) fyrir söngrödd og litla kammersveit. Rómanza (1981) fyrir flautu, klarí- nett og píanó. Corda Exotica (1981- 1982) fyrir blandaðan kór og píanó. Gloría (1982) fyrir blandaðan kór. Canto (1982) fyrir blandaðan kór og hljóðgervil. Fimm prelúdíur (1982- 1984) fyrir píanó. Tríó (1983-1984) fyrir klarínett, selló og píanó og Credo (1987) fyrir blandaðan kór. Þá hefur hann samið tónlist við fjölda leikrita og sjónvarpskvik- mynda. Hjálmar kvæntist 18. ágúst 1977 Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, f. 13. ágúst 1952, mannfræðingi og fyrrv. alþingismanni. Þau skildu. Foreldrar hennar era Kristmundur E. Jónsson, verslunarmaður í Rvík, og kona hans, Sigríöur Júlíusdóttir. Sonur Hjálmars og Sigríðar er Ragnar, f. 18. september 1978. Systur Hjálmars eru Anna Áslaug, f. 7. nóvember 1946, gift Ludwig Hoff- mann, prófessor í píanóleik við Tón- hstarháskólann í Munchen, og Sig- ríður, f. 31. október 1949, skólastjóri Tónlistarskóla ísafjarðar, gift Jón- asi Tómassyni tónskáldi. Foreldrar Hjálmars era Ragnar H. Ragnars, d. 1987, söngstjóri og skólastjóri Tónhstarskólans á ísafirði, og kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Föðurbróðir Hjálmars var Torfi, faðir Magnúsar, fyrrv. hæstaréttardómara. Ragnar var sonur Hjálmars, b. á Ljótsstöðum í Laxárdal, bróður Árna, fööur Gunn- ars, prests í Kópavogi og afa Þórs Vilhjálmssonar prófessors. Annar bróðir Hjálmars var Sigurður, afi Jónasar Jónssonar búnaðarmála- stjóra. Hjálmar var sonur Jóns, b. á Skútustöðum, Árnasonar. Móðir Jóns var Þuríður Helgadóttir, b. á Skútustöðum, Ásmundssonar, ætt- fóður Skútustaðaættarinnar. Móðir Ragnars var Áslaug, systir Ragn- heiðar, móður Snorra skálds og Torfa, fyrrv. tollstjóra. Áslaug var dóttir Torfa, skólastjóra í Ólafsdal, Bjarnasonar og konu hans, Guö- laugar Zakaríasdóttur. Móðurbróðir Hjálmars er Böðvar, b. á Gautlöndum. Sigríður er dóttir Jóns Gauta, b. á Gautlöndum í Mý- vatnssveit, bróður Hólmfríðar, móður Málmfríðar Sigurðardóttur alþingismanns. Jón var sonur Pét- urs, ráðherra á Gautlöndum, bróðir Rebekku, ömmu Jóns Sigurðssonar ráðherra. Pétur var sonur Jóns, al- Hjálmar H. Ragnarsson þingismanns á Gautlöndum, Sig- urðssonar, ættfóður Gautlandaætt- arinnar og konu hans, Sólveigar Jónsdóttur, prests í Reykjahhð, Þor- steinssonar, ættfóður Reykjahlíðar- ættarinnar. Móðir Jóns Gauta var Þóra Jónsdóttir, b. á Grænavatni, Jónassonar og konu hans, Hólm- fríðar Helgadóttur, systur Þuríðar, móður Hjálmars á Ljótsstöðum. Móðir Sigríðar var Anna Jakobs- dóttir, systir Björns, stofnanda íþróttaskólans á Laugavatni. Andlát Halldór Bjamason Halldor Bjamason, fyrrum bóndi í Króki í Gaulverjabæjarhreppi, lést mánudaginn 31.10. sl., en hann hefði orðið hundrað ára í gær, hefði hann lifað. Hahdór fæddist í Túni í Hraun- gerðishreppi og ólst þar upp. Árið 1916 hóf hann búskap í Króki í Pört- um og bjó þar fram á áttunda ára- tuginn. Kona Halldórs var Lilja Ólafs- dóttir, f. 27.8.1892 á Eyrarbakka, en hún var dóttir Ólafs Bjarnasonar, b. í Efri-Steinsmýri í Meðallandi, Gissurarsonar og Helgu Maríu Þor- varðardóttur prests Jónssonar síð- ast á Prestbakka á Síðu. Böm Halldórs og Lilju eru: Stefán Helgi, gjaldkeri í Hafnarflrði; Bjarni (eldri) skólastjóri og b. á Skúmstöð- um í Landeyjum; Ólafur, handrita- fræðingur hjá Árnastofnun; Ingi- björg; Guðfinna sem er látin en var húsfreyja á Efri-Brúnavöllum; Bjami (yngri) sem er látinn; PáU Axel, b. í Syðri-Gróf; Gísli, b. í Króki; Guðmundur, járnsmiður á Selfossi; og Helga María, húsmóðir í Hvera- gerði. Systkini Halldórs vora ellefu og komust þau öll tU fullorðinsára. Þau voru: Guðmundur, 1875-1953, b. í Túni; EUnborg, 1876-1964, húsfreyja á Arnarstöðum; Kristín, 1877-1963, húsfreyja í Hróarsholti; Eiríkur, 1881-1966, b. í MiklaholtsheUi; Ein- ar, 1885-1942, járnsmiðurí Reykja- vík; Guðrún, 1886-1967, húsfreyja á Laugum; Stefán, 1886-1906, drukkn- aði af kútter Ingvari á Viðeyjar- sundi; Ingibjörg, 1890-1970, hús- freyja á Brú við Stokkseyri og í Reykjavík; Hólmfríður, 1891-1981, húsfreyja á Svertingsstöðum í Mið- firði; Guðmundur, f. 1896, járnsmið- ur í Reykjavík, en hann er einn systkinanna eftir á lífi. Foreldrar Halldórs voru Bjami Eiríksson 1842-1897, b. í Túni og Guðfinna Guðmundsdóttir 1853- 1943. Bjarni var sonur Eiríks, b. á Kílhrauni og í Túni, Bjarnasonar, b. í Árbæ og Hjálmholti, Stefánsson- ar, b. í Heiði og Árbæ, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ætt- fóður Víkingslækjarættarinnar. Kona Eiríks var Hólmfríður, dótt- ir Gests, b. í Vorsabæ, Guðnasonar í Gerðum í Landeyjum Fihppusson- ar í Miðkrika Jónssonar. Móðir Hólmfríðar var Sigríður Sigurðar- dóttir, systir Bjarna riddara. Móðurforeldrar Halldórs vora Guðmundur Tómasson, b. í Hróars- holti, langafi Emils Jónssonar ráð- herra, og kona hans Elín Einars- dóttir, hreppstjóra í Hróarsholti, Brandssonar í Hróarsholti Pálsson- ar. Kona Einars var Vilborg Jóns- dóttir, b. í Geldingaholti, Jónssonar Gissurarsonar í Tungufehi Odds- sonar í Jötu í Ytrihrepp Jónssonar. Móðir Vilborgar var Elín Sigurðar- dóttir í Geldingarholti Jónssonar Magnússonar í Bræðratungu, en kona Sigurðar var Vilborg Jóns- dóttir. Guðmundur, móðurafi Halldórs, var sonur séra Tómasar Guðmunds- sonar Bárðasonar í Villingaholti og Guðlaugar, uppeldisdóttur mag. Bjarna, skólameistara í Skálholti. Til hamingju með daginn! Rolbrún Matthíasdóttir. 60 ára Ránarbraut 9, Vik í Mýrdal. Gunnar Guðjónsson, Geir Sigurðsson, Vatnsendabletti 131, Kópavogi. Höföabraut 12, Akranesi. Valgeir Guðmundsson, Miðtúni 35, ísafirði. 50 ára Jónatan Sigtryggsson, Borgarflöt 3, Stykkishólmi. Kristrún Baldursdóttir, Stórholti 9, Akureyri. Reynir Þorsteinsson, Bakkaseli 9, Reykjavík. Ásta Marteinsdóttir, Fífuhvamrai 21, Kópavogi. Vilbczgai Stefánsson, Hólalandi 18, Stöðvarfirði. Rannveig Jónasdóttir, Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavík. Anna Stefonía Einarsdóttir, Sigtúni 3, Patreksfirði. María Angantýsdóttir, Víðigrand 24 Sauðárkróki. 40 ára Sigiu-ður Haraldsson, Fögrukinn 15, Hafnarfiröi. Leifur Halldórsson, Núpasíðu 8D, Akureyri. Sigrún Lind Egilsdóttir, Vífilsmýrum, Mosvallatireppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.