Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Skattlagt en ekki skoríð Fjárlagafrumvarpið einkennist ekki af sköttum og skurði, eins og gjarna er haldið fram í umræðunni um þau, heldur af sköttum og óskhyggju. Niðurskurður opinberra útgjalda er lítill í frumvarpinu, svo sem við mátti búast af fólki, sem lítið skyn ber á peninga. Ríkisstjórnir hafa þau þægindi umfram stjórnendur fyrirtækja og heimila að geta náð jafnvægi gjalda og tekna með því að auka skattheimtu. Aðrir aðilar verða að haga útgjöldum í samræmi við tekjur og skera niður útgjaldaóskir í samræmi við þann raunveruleika. Þessi ríkisstjórn er lík þeim, sem lögðust upp á þjóð- ina á undan henni. Hún hefur htið beitt niðurskurði, hinni venjulegu aðferð heimila og fyrirtækja, við að ná jöfnuði í sínum rekstraráformum. Þeim mun ótæpilegar notar hún forréttindi sín sem skattheimtumanns. Með fj árlagafrumvarpinu ætlar ríkisstjórnin að koma hlutfalli skatttekna af landsframleiðslu upp í tæplega 27%. Það er aukning um hálft annað stig frá þessu ári og tæplega íjögurra stiga aukning frá í fyrra, þegar hlut- deild skatttekna var um 23% af landsframleiðslu. Þetta er miklu alvarlegri breyting en menn vilja vera láta. Eðlilegt er, að tekjur ríkisins séu í tiltölulega föstu samhengi við tekjur þjóðarinnar. Veruleg og varanleg röskun á því hlutfalli mun valda slæmum hnekki á lífs- kjörum heimila og rekstrarkjörum fyrirtækja. Við þurfum sízt á slíku að halda núna, þegar laun hafa verið fryst, þegar fyrirtæki fara unnvörpum á haus- inn eða draga saman seghn og þegar atvinna fer ört minnkandi. Við slíkar aðstæður á ríkið að ganga á und- an með góðu fordæmi, en ekki sýna ótímabæra græðgi. Öðru máh gegndi, ef allt væri í lukkunar velstandi úti í þjóðfélaginu. Ef horfur væru á batnandi Qárhag heimila og fyrirtækja og á rífandi þenslu í atvinnulíf- inu, væri afsakanlegt, að ríkið tæki til sín aukinn hluta um tíma. En allt stefnir því miður í hina áttina. Ekki er heldur víst, að upp gangi ahar ráðagerðir fjár- lagafrumvarpsins um aukna skatta. Ráðherrum okkar er ókunnugt um hagfræðireglu, sem segir, að grunnur ofnýtts skattstofns hafi tilhneigingu til að minnka, svo að tekjurnar aukast ekki, heldur minnka jafnvel. Hækkun á vörugjaldi, benzíngjaldi og innflutnings- gjaldi bifreiða mun ekki skila sér í auknum tekjum ríkis- sjóðs. Hún mun hins vegar skila sér í minni innflutn- ingi, sem er gott og gagnlegt út af fyrir sig, en kemur ekki ríkissjóði sem shkum að neinum notum. Ennfremur er ekki sjáanlegt, að samkomulag sé mihi stjórnarflokkanna um aha hina nýju skattheimtu. Ef ekkert verður til dæmis af fyrirhuguðum skatti á happ- drætti, er líklegt, að ríkisstjórnin verði að fmna aðra skattheimtu í staðinn, úr því að hún vill ekki spara. Óskhyggja fjárlagafrumvarpsins kemur fram í ýms- um myndum. Gert er ráð fýrir, að svoköhuð vinnuafls- notkun ríkisins dragist saman um 2,5% á næsta ári. Gamalkunnar eru slíkar hugmyndir um niðurskurð yfirvinnu og um brottvísun lausráðins starfsfólks. FuUyrðingar málsvara ríkisstjórnarinnar um niður- skurðarstefnu fjárlagafrumvarpsins fá ekki staðizt, enda er þegar ljóst, að frumvarpið felur í sér umtals- verða og skaðlega aukningu á hlut ríkisbúsins í þjóðar- búinu. Raunveruleikinn á svo eftir að verða enn verri. Jafnvægi kemst ekki á þjóðarhag fyrr en ríkisstjórn- ir fara að reka ríkisbúið sparlega, alveg eins og skyn- samt fólk rekur heimih og fyrirtæki í landinu. Jónas Kristjánsson Þankar um menntun v embættismanna í 5. gr. laga um Hæstarétt, nr. 75/1973, er það gert að skilyrði fyrir skipun í embætti hæstaréttardóm- ara að umsækjandi hafi lokið emb- ættisprófi í lögum með fyrstu ein- kunn. Dómar Hæstaréttar eru lykt- ir máls og okkur finnst rétt að velja í stöðurnar vel menntaða lögfræð- inga. Við erum sammála um að góð einkunn úr lagaskóla veiti vís- bendingu um þaö. Nú á dögum eru þó lyktir máls í Hæstarétti minna virði en margar aðrar úrlausnir embættismanna um dagfarsleg málefni fólks. Kem- ur þar til að dómar Hæstaréttar í einkamálum hljóta að koma seint, kannski 5 árum eftir byrjun þrætu, þannig að venjuiegt fólk kysi held- ur að gefa á kjaftinn og láta þar við sitja. Það er iðulega gert en kann að leiða til ákæru ríkissaksóknara. í heild virðast dómstólar í öllum löndum vera langt á eftir sinni samtíð og vandamálum líðandi stundar. Kerfið er ævagamalt, allt frá árinu 0 í Rómaborg, eða enn eldra. Margt hefur breyst síðan en kerfið lítið. Kerfið er því sniðgengiö af flestum, bæöi einstaklingum og þjóðum - gefið á kjaftinn eða farið í stríð. Kerfið sýnist nú á dögum henta stórfyrirtækjum sem hafa efni á að bíða. Hver metur það? Það sem að fólki snýr í daglegu lifi eru lögreglumenn á götunum, sýslumenn og lögreglustjórar, lög- reglumenn á skrifstofum, ríkissak- sóknari og sakadómarar. Alhr þessir menn hafa mikil völd. Ljóst dæmi um völd lögreglumanna er VIII. kafli laga um meðferð opin- berra mála, nr. 74/1974. Lögreglumenn geta handtekið okkur og stungið okkur í steininn. Dómsúrskurð þarf ekki til ef þeir standa mann að refsiverðri hegð- un. Hver metur það? Lögreglumað- ur. Þeir geta handtekið mann ef hann er grunaður um brot og gefur lögreglumanni ekki skýrslu um nafn sitt og heimilisfang eða reikar um heimilislaus. Hver metur það? Lögreglumaður. Þeir geta handtekið mann sem veldur hneyksli á almannafæri, þ.e.a.s. ef hann hneykslar lögreglu- manninn. „Lögreglumaður skal hverju sinni meta, hvort nauðsyn sé á handtöku þegar í stað, t.d. vegna hættu á undanskoti sakar- gagna, flótta sakaðs manns, fram- haldi refsiverðrar háttsemi“ o.s.frv. „Handteknum manni er heimilt eftir handtöku að hafa sam- band við ættingja eða aðra vanda- menn, nema sérstök ástæða sé til að ætla að það muni torvelda rann- sókn máls.“ Hver metur það? Lög- reglumaður. „Rétt er lögreglu- mönnum án dómsúrskurðar að leita manns, sem handtaka skal, á heimih hans, í sjálfs hans húsi eða skipi, eða í húsi, sem stendur opið almenningi, svo og í öörum húsum eða skipum, ef honum er veitt þangað eftirfor, eða hætta er á því, aö hann spilli sakargögnum eða komi sér undan, ef beöið er dóms- úrskurðar.“ Hver metur það sem máh skiptir í þessu sambandi? Lög- reglumaður. „Nú verður handtekinn maður, sem sakaður er um refsivert at- hæfi, ekki þegar í stað leiddur fyrir dómara og er þá heimilt að hafa hann í haldi uns til dómara næst, enda sé kyrrsetning hans og ein- angrun nauðsynleg vegna rann- sóknar málsins." Hver metur þessa hluti? Rétt. Mat á menntun Það sýnist því veigameira að hafa vel menntaða lögreglumenn en vel menntaða hæstaréttardómara. Hvemig eru þeir menntaðir? Líka má spyrja: Hvemig er þeim borg- KjáUarinn Hörður R. Ólafsson hæstaréttarlögmaður að? Það er ósanngjarnt að ætlast th þess að við getum ráðið góða menn og vel menntaða th starfa sem oft á tíðum eru lífshættuleg og andstyggileg, t.d. aðkoma að slö- suðum mönnum og látnum, bjástur alls konar viö drakkna menn og hættulega, friðarstihing á heimh- um, o.s.frv. Hver vih fara í spor lögreglumanna fyrir skítakaup? Um menntun lögreglumanna seg- ir svo í 33. gr. laga nr. 74/1974: „Hver, sem skipaður er lögreglu- maður, skal hafa lokið prófi, er sýni, að hann sé þeim kostum bú- inn og hafi þá kunnáttu, sem nauð- synleg er til starfans. Skulu þeir einir valdir th starfans, sem telja má valinkunna og vandaöa.“ Hér verða strax erfiðleikar á ferðinni: Hvemig er hægt að segja um tví- tugan pilt að hann sé vahnkunnur og vandaður? Ég veit að th er lögregluskóh í Reykjavík. Um námstíma og náms- efni veit ég ekki. Kennari þar er Sturla Þórðarson, fuhtrúi lögreglu- stjóra síöan 15. júní 1971. Hann varð stúdent frá MR 1964 með II. einkunn, 6,64 og cand. juris frá Háskóla íslands 12. júni 1971 meö I. einkunn, 199 'A stig, sem er góð fyrsta einkunn. Þar kennir einnig Böðvar Bragason lögreglustjóri. Hann varð stúdent frá MA 1960 með II. einkunn, 6,36, og cand. juris frá Háskóla íslands 28. janúar 1966 með I. einkunn, 196 stig. Svo fremi aö þessir menn hafi tíma th að sinna námi lögreglumanna ætti lögfræðilegri menntun þeirra að vera vel borgið. Rannsóknarlögreglustjóri ríkis- ins er Bogi ísak Nilsson. Hann varð stúdent frá VÍ1961 með I. einkunn, 7,09, og cand. juris frá Háskóla ís- lands 10. febrúar 1968 með I. ein- kunn, 215 2/2 stig. í lögfræði er ekki oft gefin öllu hærri einkunn. Rann- sóknarlögregla ríkisins er eins konar alríkislögregla, sérmenntuð til rannsóknar sakargagna. Þegar lögreglumenn hafa lokið rannsókn sinni fer málið til ríkis- saksóknara til ákvörðunar um hvort efni séu th ákæru. Ríkissak- sóknari er í sporum stefnanda í einkamálum. Hann er umboðs- maður okkar allra. Umbjóðandi hans erum við. Hann tekur ákvörð- un um hvort við vhjum að mál sé höfðað á hendur sakbomingi fyrir hönd okkar ahra. Hann getur ekki spurt okkur hvert út af fyrir sig en verður að fara eftir aímennum reglum um sekt og málsbætur. Þær er að finna í almennum hegningar- lögum og refsiákvæðum sérstakra laga, svo sem tollalaga, áfengislaga, o.fl. o.fl. Oftsinnis kemur það fyrir að við rjúkum upp í dagblöðum og segjum að þetta eða hitt máhð eigi að rann- saka og dæma, þessum eða hinum eigi að stinga inn. Nú era dagblöðin stundum tahn túlka almenningsá- htið, vhja okkar allra sem er vit- leysa - dagblöðin túlka ekki annað álit en þess sem skrifar! Mál þessi verður ríkissaksóknari að skoða eins og önnur mál sem hann fær eftir venjulegri og hepphegri leið- um og gefur stundum út ákæra og stundum ekki. Dagblaðaleiðin er óheppheg að því leyti að henni fylg- ir pressa á dómarann að dæma eins og hann heldur aö almenningur vhji að dæmt sé. í Ameríku era mál oft flutt frá austurströndinni th vesturstrandarinnar til að koma í veg fyrir að fordómar almennings hafl áhrif á niöurstöðu dómarans. Dómarar era menn eins og við. Ríkissaksóknari er Hallvarður Helgi Einvarðsson. Hann varð stúdent frá MR 1952 með II. ein- kunn, 6,62, og cand. juris frá Há- skóla íslands 27. maí 1958 með I. einkunn, 194 2/3 stig. Ég efa ekki að hann hafl á aö skipa ágætum lögfræðingum sér th aðstoöar. Ríkissaksóknari stefnir, ákærir, fyrir okkur, sakadómari dæmir. Sakadómari er Gunnlaugur Eggert Briem. Hann varð stúdent frá MR 1943 með I. einkunn, 8,08 stig, og cand. juris frá Háskóla íslands 21. maí 1949 með I. einkunn, 207 'A stig. Hann kann að velja sér aðstoðar- menn. En honum er ætlað að framfylgja kerfi sem er með öhu ótækt: Ríkis- saksóknari ákærir en sakadómari rannsakar - og dæmir. Ríkissak- sóknari leggur heiður sinn við að ákæran sé rétt og muni leiða til sakfehingar - á sama hátt og lög- menn stefna ekki í einkamálum nema þeir séu svo th vissir um að vinna máhð. Sakadómarar era menn. Þeir vhja gjarnan þóknast ríkissaksóknara og rannsaka máhð í því skyni að ná fram sakfelhngu. Þeir rannsaka máliö ekki th að fá sökunaut sýknaðan. Vandaðir og valinkunnir Sakadómarar geta ahs ekki htið hlutlaust á málavöxtu. Viö verðum að sjá til þess að þeir geti það með því að láta aðra safna gögnum til að leggja fyrir þá. Þetta kostar pen- inga. Við veröum aö borga þá. Það hefur þannig gengið ýmislegt á áður en málið kemur th Hæsta- réttar íslands. Hæstaréttardómara er óþarft að kynna - þar eru ein- göngu vandaðir og valinkunnir menn með fyrstu einkunn í lögum og hana ekki af lægri gráðunum. Ýmislegt hefur getaö fariö úrskeið- is. Og Hæstiréttur verður að leið- rétta það. Og hann gerir það eins og skot því þessi mál hafa forgang þar fyrir þrasi milli nágranna. Þannig viljum viö hafa þaö. Þessir þankar á sunnudags- morgni byrjuðu með þönkum um lögreglumenn. Viö skulum hugsa um tvö atriði: menntun lögreglu- manna - og kaup, og vanda saika- dómara, að þurfa að klæðast tveim- ur kápum. Allt annað er í nokkuð góðu lagi. Hörður Rist Ólafsson „Nú á dögum eru þó lyktir máls í Hæstarétti minna virði en margar aðr- ar úrlausnir embættismanna um dag- farsleg málefni fólks.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.