Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. 7 Fréttir Hafskipsmálið á rekspöl: Sextán mönnum birt ákæra í gær Jónatan Þórmundsson, sérskip- aður ríkissaksóknari í málum er tengjast gjaldþroti Hafskips hf., hefur gefið út ákæru á hendur 16 einstaklingum. Af fyrrverandi fyr- irsvarsmönnum Hafskips hf. og starfsmönnum félagsins hefur eft- irtöldum borist ákæra: Björgúlfi Guðmundssyni, fyrr- verandi forstjóra, Ragnari Kjart- anssyni, fyrrverandi stjómarform- anni og fjármálalegum fram- kvæmdastjóra, Páli Braga Kristj- ánssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs, Þórði Hilmarssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra áætlunardeildar, Áma Ámasyni, fyrrverandi fjár- málastjóra, og Sigurþóri Guð- mundssyni, fyrrverandi aðalbók- ara. Auk þess hefur Helga Magnús- syni, fyrrverandi endurskoðanda Hafskips hf„ borist ákæra. Þrír fyrrverandi bankastjórum Útvegsbankans hefur borist ákæra: Ólafur Helgason, Láms Jónsson og Haildór Guðbjamason. Auk þess hefur fyrrverandi aðstoðarbanka- stjóra, Axel Kristjánssyni, og fyrr- verandi endurskoöanda, Inga R. Jóhannssyni, verið birt ákæra í málinu. Loks hefur fyrrverandi bankar- áðsmönnum Útvegsbankans verið birt ákæra í málinu: Valdimar Indriðasyni (D), fyrrver- andi formanni bankaráösins, Kristmanni Karlssyni (D), Garðari Sigurðssyni (G) og Arinbimi Krist- inssyni (A). Hefur sérskipaður rík- issaksóknari með bréfi til forseta efri defidar Alþingis leitað sam- þykkis þingdeildarinnar til máls- höfðunar á hendur fimmta fyrrver- andi bankaráðsmanni Útvegsbank- ans, Jóhanni Einvarðssyni (B), sem nú á sæti í efri deild Alþingis. Þrír bankastjórar, sem Hallvarð- ur Einvarðsson ákærði í málinu, þeir Ármann Jcikobsson, Bjarni Guðbjömsson og Jónas Jónasson Rafnar, hafa ekki orðið fyrir ákæm nú. Átta menn, sem ekki hafa fyrr verið ákærðir, hafa bæst í hóp þeirra ákærðu en það eru hinir 4 bankaráðsmenn Útvegsbankans, endurskoðandi hans og þrír starfs- menn Hafskips, þeir Ámi, Þórður og Sigþór. Ef Jóhann Einvarðsson verður sviptur þinghelgi verður hann sá níundi sem ekki hefur ver- ið ákærður fyrr í málinu. Hefur málinu nú verið visað til dómsmeðferðar við Sakadóm Reykjavíkur og mun Jónatan Þór- mundsson, sérskipaður ríkissak- sóknari, annast sókn málsins fyrir dómstólum. Gunnlaugur Briem yfirsakadórn- ari mun skipa þrjá dómara í málinu þar af einn formann. Að þeirri skip- an lokinni mun ljóst veröa hvenær málið verður þingfest í sakadómi. -hlh Ragnar Kjartansson, fyrrverandi stjómarformaöur: Hafsjór milli ákæru og fallins dóms — léttír eftir þriggja ára gíslingu „Þaö kann að vera þversögn í því þegar ég segi að mér sé raikill léttir að málið skuh vera komið á þetta stig eftir allan þann drátt sem veriö hefur. Það má segja að viö höfum verið í nokkurs konar gíslingu í þijú ár aö bíöa eftir ákærunni," sagði Ragnar Kjartansson, fyrrver- andi stjómarformaður ogfjármála- legur framkvæmdastjóri Hafskips hf„ við DV stuttu eftir að honum hafði verið birt ákæra i Hafskips- málinu í gær. Sagðist Ragnar hafa átt von á aö Jónatan Þórmundsson sópaði verulegum hluta málsins út af borðinu og sagði ýmsar breytingar vera frá ákæm Hallvarðs Ein- varðssonar. „Það er vert að vekja athygli á að þetta er eins og að búa við réttar- farslegt lottó eða rússneska rúl- lettu. Hallvarður ákærir 11 menn, 3 af þeim detta út en 9 bætast við. f fyrri ákæru vorum við ákærðir fyrir fölsun á reikningum félagsins þar sem skipin væm ofmetin á 130-140 mfiljónir. Nú er sagt aö þau hafa verið ofmetin á 40 milljónir. Ég átta mig ekkert á hvaöa forsend- ur em þar að baki. Ég get líka nefnt að í ákæru Hallvarðs fékk ég 148 fjárdráttarupphæðir en nú eru þær orðnar 12. Það nemur um 10 pró- sentiun af þeirri innstæðu sem ég taldi mig hafa átt inni hjá félaginu.“ Ragnar sagðist annars eiga eftir að átta sig betur á innihaldi ákæ- runnar og ráðfæra sig við lögfræð- ing sinn. Þetta væru hans fyrstu viðbrögð. „Mér kemur mest á óvart að ekki virðist vera gerður greinarmunur á góðri trú og vísvitandi rangfærsl- um. Ég hélt að þetta væm undir- stöðuatriði í refsilöggjöfimú. Eins velti ég fyrir mér að ef fyrirtækið er visvitandi að biekkja Útvegs- bankann hvers vegna veriö sé að ákæra bankaráð og bankastjóra. Þetta er frekar akademískt hjá honum Jónatani og ég vísa í þvi sambandi til þeirra ummæla hans að þetta séu jú bara ákærur. Þaö sé hafsjór á milli ákæm fallins dóms.“ -hlh Mynd frá athafnasvæði Hafskips hf. í austurhluta Reykjavíkurhafnar, tekin 1982 þegar allt lék í lyndi og forráða- menn félagsins höfðu ekki ástæðu til annars en vera stórhuga. DV-mynd GVA Jón Magnússon lögmaður: Hneyksli ef ríkissaksóknari heldur stöðu sinni „Þið ættuð að snúa ykkur að því af hverju dómsmálaráðherra krefst ekki afsagnar Hallvarðar Einvarðs- sonar. Þaö liggur fyrir að hann gríp- ur til fruntalegra rannsóknaraðferða og það liggur fyrir að bróðir hans er ákærður. Maðurinn hefur mjög mis- farið með það umboð sem honum var. falið. Hann gegnir viðkvæmasta embættinu innan réttarkerfisins þar sem hann er opinber ákærandi. Mér finnst það meiriháttar hneyksli ef þessi maður á að halda stöðu sinni,“ sagði Jón Magnússon, lögmaður og verjandi Ragnars Kjartanssonar, viö DV. „Þetta er aðalmálið í dag. Ætlar dómsmálaráðherra virkilega að líða það hneyksh að þessi maður haldi áfram stöðu sinni?“ -hlh Eflir þrjú ar frá gjaldþroti Hafskips: Lokakaflinn hafinn nteð birtingu ákæra Með ákærum þeim sem Jónatan Þórmundsson, sérskipaður ríkissak- sóknari í málum er tengjast gjald- þroti Hafskips hf„ hefur máhð kom- ist á rekspöl en tæp þrjú ár eru liðin frá gjaldþroti Hafskips í desember 1985. Rannsókn Rannsóknarlögreglu ríkisins á Hafskipsmálinu hófst í maí 1986 þegar sex af æðstu yfirmönnum Hafskips voru handteknir, sá sjöundi stuttu seinna, og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Voru sjömenning- amir þá grunaðir um auðgunarbrot, sKjalafals, rangan framburð og eyð- ingu sönnunargagna. Var gjaldþrot Hafskips kallað gjaldþrot aldarinnar þar sem rétt innan við milljarður fór í súginn. Útvegsbankinn hafði lengi haldið Hafskipi gangandi með lánafyrir- greiðslum og þegar upp var staðið var talið að bankinn heföi tapað um 600 milljónum á viðskiptum sínum við Hafskip. Lánveitingar bankans áttu að hafa grundvallast á upplýs- ingum um stöðu fyrirtækisins frá forsvarsmönnum þess en síðar kom í ljós að lánsgrundvöllurinn var ekki eins traustur og menn höföu ætlað. Voru Hafskipsmenn sakaðir um blekkingar í garð bankans, auk veru- legs tjármálasukks í rekstri fyrir- tækisins er birtist í ýmsum myndum. Albert Guðmundsson, fyrrverandi ráðherra, var stjómarformaður í Hafskipi frá 1979 til 1983 og formaður bankaráðs Útvegsbankans frá 1981 til 1983 þegar hann varð ráðherra. Tengdist hann óhjákvæmilega mál- inu náið vegna formennsku í báðum stjórnum á nær sama tíma. Angar af Hafskipsmálinu em síðan fyrir- greiöslur hans fyrir Guðmund J. Guðmundsson, er komu af stað mikl- um styr á sínum tima, og Hallvarð Einvarðsson. Hallvarður Einvarðsson stjórnaði rannsókn málsins framan af sem rannsóknarlögreglustjóri. Hallvarð- ur varð síðar ríkissaksóknari og fékk því það hlutverk að birta ákærur í málinu. Það gerði hann á miðju síð- asta ári og kom þá strax fram krafa um frávísun ákæranna af hálfu lög- manna ákærðu og krafa þess efnis að Hallvarður Einvarðsson væri vanhæfur sem ríkissaksóknari í mál- inu. Þótti Hallvarður tengjast málinu á ýmsa vegu er ekki þótti tryggja óhlutdrægni. Haföi hann stjórnað rannsókn þess í fyrstu og þegið lána- fyrirgreiðslu fyrir milligöngu Al- berts Guðmundssonar. Var Hall- varður dæmdur vanhæfur í saka- dómi og í hæstarétti og þá vegna þess að bróðir hans, Jóhann Ein- varðsson, sat í bankaráði Útvegs- bankans og ekki þótti tryggt að óhlut- drægni yrði gætt vegna þess. Var ákæmm Hallvarðs í málinu vísað frá. I ágúst á síðasta ári skipar dóms- málaráðherra síðan Jónatan Þór- mundsson sem sérstakan saksókn- ara í Hafskipsmálinu. Sagði hann við upphaf starfs síns sem slíkur að fyrri rannsókn yrði öll endurmetin og þá sérstaklega þeir þættir málsins er tengdust áætlana- og reikningagerð skipafélagsins og mati á skipum og eignum. Fyrir rúmu ári hófst rann- sókn Rannsóknarlögreglunnar á málinu að beiðni Jónatans. Var talað við alla aðila á ný og fleiri en í fyrri rannsókn. Hefur Jónatan haft Tryggva Gunnarsson lögmann sem aðstoðarmann og aðstöðu í húsnæði Þjóðskjalasafnsins í gömlu Mjólkur- stöðinni. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.