Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. 9 Utlönd Palestínumenn lýsa yfir stofnun ríkis í nótt var lýst yfir stofnun sjálfstæös ríkis Palestínumanna á þingi Þjóðar- ráðs Palestínumanna í Alsír. Yassír Arafat, leiðtogi PLO, tilkynnti stofn- un sjálfstæðs ríkis eftir þriggja daga fund Þjóðarráðsins. Höfuðþorg ríkis- ins er Jerúsalem, en ísraelar telja þá borg höfuðborg sína. Þjóðarrá^ið samþykkti einnig að ályktun Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 242 um alþjóðlega friðarráðstefnu um málefni Mið- Austurlanda. Ályktun Sameinuðu þjóðanna er frá árinu 1967 og segir í henni aö virða skuli rétt allra ríkja á svæðinu og að flóttamannavanda- málið verði leysa á réttlátan hátt. Með því að samþykkja ályktun SÞ viðurkennir Þjóðarráð Palestínu- manna tilverurétt Ísraelsríkis. Um tíma var tvísýnt hvort ályktunin yrði samþykkt á þinginu, en hingað til hafa samtök Palestínumanna ekki viðurkennt Ísraelsríki. Ríkisstjórnir ísraels hafa hingað til ekki viljað ræða við samtök Palestínumanna, meðal annars vegna þess að Palest- ínumenn hafa ekki viðurkennt ísra- elsríki. Að mati fréttaskýrenda er sam- þykkt Þjóðarráðsins snjöll pólitík. ísraelar og helstu stuðningsmenn þeirra, Bandaríkjamenn, eru núna í þeirri aðstöðu að verða að setjast við samningaborð með fulltrúum Palest- ínumanna, ellegar missa þá litlu til- trú sem heimsbyggðin hefur á friðar- vilja þeirra. Fyrstu viðbrögð ísraelsmanna voru neikvæð. Yitzhak Shamir, for- sætisráðherra ísraels, sagði að sam- þykkt Þjóðarráðsins væri pólitískt áróðursbragð. Shamir er um þessar mundir að koma saman ríkisstjórn Yassír Arafat tilkynnti í nótt stofnun Jerúsalem sem höfðuðborg. og verður að styðjast við öfgaflokka í ísraelskum stjórnmálum. Hann ætti óhægt um vik að fallast á nokkuð það sem frá samtökum Palestínumanna kemur þótt hann annars vildi. Enn- fremur er innanlandsástand ótryggt í ísrael vegna uppreisnarástands á svæðum Palestínumanna. Búist er við að Palestínumenn á vesturbakk- sjálfstæðs ríkis Palestínumanna með Simamynd Reuter anum og Gazasvæðinu muni fagna yfirlýsingu Þjóðarráðsins með and- ófsaðgerðum. Viðbrögð bandarískra stjórnvalda voru varkár. Sú yfirlýsing var gefm út af hálfu utanríkisráðuneytisins að stjórnvöld myndu ekkert segja um samþykkt Þjóðarráðsins fyrr en full- ur texti samþykktarinnar bærist. Hermenn í viðbragðsstöðu Mikill fjöldi ísraelskra hermanna er nú í viðbragðsstöðu á vesturbakkan- um og Gazasvæðinu þar sem Palest- ínumenn bjuggu sig undir í gær- kvöldi að fagna yflrlýsingu um sjálf- stætt ríki. Starfsmaður hjálparstofn- unar Sameinuðu þjóðanna sagði að í gærkvöldi hefðu Palestínumenn á Gazasvæðinu farið upp á húsþök og blásið í flautur. Einnig mátti sjá flug- «ldum skotið á loft. Þetta var þó að- eins sögð æfmg og er búist við aðal- fagnaðarlátunum í dag. ísraelsmenn dreifðu í gær flugmiðum þar sem Palestínumenn voru varaðir við að efna til hópgöngu. Einn Palestínumaður beið bana í gær þegar hann var skotinn af ísra- elskum hermanni með plastkúlu. Fimm Palestínumenn særðust í átök- um við ísraelska hermenn, að sögn heryfirvalda. Hermennirnir hófu skothríð þegar kastað var flöskum að þeim. Um tólf hundruð lögreglumenn munu vera á verði í austurhluta Jerúsalemborgar í dag og leysa upp fundi ef fleiri en tíu koma saman til að fagna sjálfstæðisyfirlýsingunni. Gefið hefur verið í skyn að lögreglan muni einnig loka af svæði eða setja á útgöngubann sums staðar í austur- hluta Jerúsalem. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israelskir lögreglumenn i viöbragðsstöðu í austurhluta Jerúsalem þar sem búist er við fagnaðarlátum araba vegna sjálfstæðisyfirlýsingar Palestínu- manna. Símamynd Reuter Chaim Herzog, forseti ísraels, af- henti i gær Yitzhak Shamir, leiðtoga Likud-bandalagsins og forsætisráð- herra fráfarandi stjórnar, umboð til stjórnarmyndunar. Simamynd Reuter ísraels, sem fengið hefur umboð til stjórnarmyndunar, bauð í gær Shim- on Peres utanríkisráðherra að ræða við sig í dag um myndun nýrrar sam- steypustjórnar. Peres þáði boðið en líst ekki allt of vel á að taka þátt í stjórnarsamstarfi með Likud-banda- laginu, að því er aðstoðarmenn hans segja. Likud-bandalagið, sem er andvígt afhendingu herteknu svæðanna, og Verkamannaflokkur Peresar, sem er fylgjandi eftirgjöf gegn friði, voru i samsteypustjórn frá árinu 1984 þar til kosningar fóru 'fram nú, 1. nóv- ember síðastliðinn. Meðlimir Verkamannaflokksins eru ekki sammála um hvort flokkur- inn eigi að taka þátt í samstarfi með Likud-bandalaginu. Yitzhak Rabin varnarmálaráðherra telur það þó skárra en að Likud-bandalagiö myndi hægri stjórn með flokkum klerkanna sem eru í oddaaðstöðu. Þeir lýstu yfir stuðningi við Likud- bandalagiðífyrradag. Reuter Kohl heilsar Simon Wiesenthal i New York í gær Simamynd Reuter Kohl ber blak af Jenninger í afmæliskvöldverði í New York til heiðursnasistaveiöaranum Sím- oni Wiesenthal varði Helmuth Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, Philipp Jenninger sem varð að segja af sér forsetaembætti þýska Sambandsþingsins eftir að hann flutti umdeilda ræðu um helgina til að minnast gyðingaofsókna nas- ista. Kohl sagði í gær að Jenninger væri eindreginn andstæðingur ein- ræöishyggju og hann stæöi framar- lega í flokki þeirra sem græddu þau sár sem nasistar veittu gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. Wisenthal, sem verður áttræður í lok ársins, tók undir vörn Kohls og taldi að Jenninger hefði með ræðu sinni ekki ætlað að taka und- ir sjónarmið nasista en þannig var ræða Jenningers túlkuö af mörg- um. Wisenthal er gyðingur og hann er þekktastur fyrir það að hafa uppi á stríðsglæpamönnum nasista og koma þeim undir manna hend- ur. Reuter f00AB231 ISIANDS HVERVANN? 1.346.184 kr. Vinningsröð í 45. leikviku: 2X1-X12-X11-X11 12 réttir = 942.329 kr. Þrír voru með 12 rétta-og fær hver í sinn hlut kr. 314.105,- 11 réttir = 403.855 kr. 72 voru með 11 rétta-og fær hver í sinn hlut kr. 5.609,- -ekkibaraheppni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.