Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988.
25
Afmæli
Hilmar E. Guðjónsson
Hilmar E. Guðjónsson, fulltrúi hjá
Fóöurblöndunni hf., Holtsbúð 48,
Garðabæ, er fimmtugur í dag.
Hilmar fæddist í Skarðshlíð í
Austur-Eyjafjallahreppi í Rangár-
vallasýslu en ólst upp í Vestmanna-
eyjum til tíu ára aldurs og síðan í
Reykjavík. Hann bjó í Reykjavík til
1970, á Seltjarnarnesi 1970-80 og í
Garðabæfrál980.
Hilmar lauk stúdentsprófi frá VÍ
1961 og hóf þá skrifstofustörf hjá
Hampiðjunni hf. þar sem hann
starfaði til ársins 1967 er hann gerð-
ist fulltrúi hjá Fóðurblöndunni hf.
Hann starfaði þar til 1983 en gerðist
þá aðalbókari Garðabæjar og gegndi
því starfi til 1988 er hann tók aftur
við sínu fyrra starfi hjá Fóðurblönd-
unni hf.
Á yngri árum vann Hilmar að
æskulýðsstörfum á vegum KFUM.
Hann sat í stjórn Kristilegra skóla-
samtaka, í stjórn Skógamanna
KFUM og í stjórn Landssambands
Gídeonsfélaga. Þá var hann gjald-
keri fyrstu sóknarnefndar Árbæjar-
safnaðar og situr nú í sóknarnefnd
Garðasóknar. Hann var formaður
Selkórsins á Seltjamarnesi um
skeið og hefur starfaö í Frímúrara-
reglunni undanfarin ár.
Kona Hilmars er Ólöf Magnús-
dóttir, bankagjaldkeri og húsmóðir,
f. 23.4.1944, dóttir Sesselju Sigúrðar-
dóttur og Magnúsar Kr. Guðmunds-
sonar, fyrrv. kaupmanns.
Börn Hilmars og Ólafar eru:
Magnús Guðjón, f. 28.12.1963, bif-
reiðastjóri í Reykjavík en unnusta
hans er Ingibjörg Erlendsdóttir, og
Haukur, f. 13.3.1972, nemi í foreldra-
húsum.
Hilmar átti sjö alsystkini en sex
þeirra eru á lífi. Systkini hans:
Sveinn, f. 30.6.1924, d. 30.5.1983, b.
í Skarðshlíð og síðar símstöðvar-
stjóri á Stokkseyri, en ekkja hans
er Kristín Hróbjartsdóttir og eign-
uðust þau sex börn; Hjörleifur, f.
28.9.1925, forstjóri í Reykjavík,
kvæntur Ingibjörgu Snæbjörnsdótt-
ur en þau eiga þrjú böm; Guöni
Ragnar, f. 24.9.1927, bankagjaldkeri
á Hellu, kvæntur Þórunni Jónas-
dóttur en þau eiga þrjár dætur;
Tómas, f. 25.4.1929, b. og kaupmaður
í Skarðshlíð, kvæntur Kristínu
Jónsdóttur en þau eiga fimm börn;
Sigríður, f. 27.11.1932, húsmóðir í
Reykjavík, gift Kristni Alexanders-
syni en þau eiga tvö börn; Anna, f.
5.8.1936, húsmóðir og skrifstofu-
maður í Vík í Mýrdal, gift Finni
Bjarnasyni en þau eiga fimm börn,
og Jakob Ó:.kar, f. 28.10.1940, full-
trúi í Reykjavík, kvæntur Jónínu
Karlsdóttur en þau eiga þrjár dætur.
Hilmar var tekinn í fóstur nokk-
urra mánaða gamall af móðurbróð-
ur sínum, Guðjóni Sveinssyni, f.
31.8.1898, d. 25.5.1968, þáverandi
útgeröarmanni í Vestmannaeyjum,
og konu hans, Mörtu Eyjólfsdóttur,
f. 20.4.1898, en hún og Jón, faðir
Hilmars, vora systrabörn. Hefur
Hilmar síöan kennt sig við fóstur-
föður sinn.
Foreldrar Hilmars voru Jón Hjör-
leifsson, b. ogoddviti í Skarðshlíð,
Hilmar E. Guðjónsson.
f. 12.7.1898, d. 23.7.1973, og kona
hans, Guðrún Sveinsdóttir húsmóð-
ir, f. 25.8.1897, d. 15.5.1983.
Hilmar tekur á móti gestum á
heimili sínu á afmælisdaginn, milli
klukkan 17og20.
Óli B. Jónsson
Óli B. Jónsson, knattspyrnuþjálfari
og fulltrúi hjá Vegagerð ríkisins, til
heimilis að Marklandi 2, Reykjavík,
ersjötugurídag.
Óli fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp á Bráðræðisholtinu í vestur-
bænum.
Hann hóf starfsævina þrettán ára
við uppskipun úr togurum en vann
síðan verslunarstörf hjá Jes Zimsen
og veiðarfæradeild Geysis. Þá starf-
aði Óli um skeið hjá Essó en hefur
nú verið starfsmaður Vegagerðar
ríkisins í allmörg ár.
Óli stundaði nám í íþróttakennslu
og útskrifaðist sem íþróttakennari
árið 1946. Hann hóf knattspymu-
þjálfun 1944 og þjálfaði meistara-
flokk KR í fjölda ára en hann var
knattspyrnuþjálfari í þrjátíu ár. Þá
var hann landsliðsþjálfari öðru
hverju. Óhætt er að fullyrða að eng-
inn knattspyrnuþjálfari hér á landi
hefur náð jafngóðum árangri en Óli
gerði KR-inga aö íslandsmeisturum
sjö sinnum, auk þess sem bæði Vals-
menn og Keflvíkingar urðu íslands-
meistarar undir hans stjóm. Sjálfur
lék hann knattspymu í tuttugu ár
en þeir bræðurnir, fjórir að tölu,
hafaallirorðiðíslandsmeistarar .
með meistaraflokki KR, þar af Óh
þrisvarsinnum.
Öll félagsstörf Óla hafa snúist um
KR og Knattspyrnusamband ís-
lands. Hann sat í tæknideild KSÍ í
fjölda ára og var formaður hennar
um árabil. Öli leikur nú golf af full-
um krafti.
Kona Óla er Guðný Guðbergs-
dóttir, skrifstofumaður á Landspít-
alanum, f. 30.3.1922, dóttir Guðbergs
G. Jóhannssonar, sjómanns í Hafn-
arfirði, og Maríu Guðnadóttur en
þauerubæðilátin.
Börn Óla og Guðnýjar eru: Hólm-
fríður María hárgreiðslumeistari, f.
19.9.1946, gift Guðmundi Hallvarðs-
syni, formanni Sjómannafélags
Reykjavíkur en þau eiga þrjú börn;
Jón Már rafeindavirki, f. 6.10.1948,
kvæntur Björgu Sigurðardóttur en
þau eiga tvo syni; Jens Valur, ráð-
gjafi hjá SKÝRR, f. 24.10.1948,
kvæntur Ólöfu Hjartardóttur en
þau eiga eina dóttur.
Systkini Óla eru: Sigurjón Jóns-
son járnsmíðameistari, f. 26.4.1909;
Hákon I. Jónsson málarameistari,
f. 1.11.1912; Soffía B. Jónsdóttir hús-
Asa Asmundsdóttir
Ása Ásmundsdóttir, Grettisgötu
75, Reykjavík, er sextug í dag. Ása
er fædd í Rvík og ólst upp í Mjóa-
firði eystra. Hún er húsmóðir í Rvík
og starfsmaður á Droplaugarstöð-
um. Foreldrar Ásu voru Ásmundur
Ásmundsson, pípulagningamaður
og skákmeistari í Rvík, og Fanney
Friðriksdóttir. Fósturforeldrar Ásu
voru Ásmundur Þorleifsson, b. og
sjómaður í Mjóafirði eystra og kona
hans, Guðrún Hannesdóttir. Hún og
sambýlismaður hennar taka á móti
gestum á heimili sínu íöstudaginn
18. nóvember eftir kl. 17.
Asa Asmundsdóttir.
Óli B. Jónsson.
móðir, f. 3.11.1916; Guðbjörn Jóns-
son klæðskerameistari, f. 19.3.1921;
og Valgerður Ó. Jónsdóttir, f. 17.7.
1914, d. 23.3.1929.
Foreldrar Óla voru Jón Jónsson
afgreiðslumaður, f. 20.11.1881, d.
10.4.1963, og kona hans, Þórunn H.
Eyjólfsdóttir húsmóðir, f. 20.6.1884,
d. 12.12.1954.
Óli er í Bandaríkjunum um þessar
mundir.
Guðfinna Ásta Þorgilsdóttir
Guðfinna Ásta Þorgilsdóttir hús-
móðir, Grundarhóli 2, Bolungarvík,
erfertugídag.
Guðfinna Asta fæddist í Skaga-
firðinum og ólst þar upp. Maður
hennar er Bjarni Einar Kristjánsson
verkamaöur, f. 27.8.1953, sonur
Kristjáns Bjarnasonar og Guðjónu
Sumarliðadóttur.
Börn Guðfinnu eru: Kjartan T.
Gunnarsson, f. 8.11.1967; Þorlaugur
Gunnarsson, f. 21.1.1969; Gunn-
hildurL. Gunnarsdóttir, f. 11.2.1973;
Kristján G. Bjarnason, f. 25.9.1976;
María F. Bjarnadóttir, f. 16.10.1977,
og Sigurður F. Bjarnason, f. 4.2.1985.
Systkini Guðfinnu eru: Ragnheið-
ur, f. 5.1.1939; Páll, f. 26.7.1940;
Haukur, f. 27.12.1943; Hreinn, f. 21.3.
1944; Anna, f. 4.4.1945; Guðmundur,
f. 1.10.1946, og hálibróðir, sam-
mæðra, Sigurður Sigurlaugsson, f.
23.4.1933.
Foreldrar Guðfinnu voru Þorgils
Pálsson, b. aö Eyrarlandi í Skaga-
firði, f. 25.10.1901, d. 7.9.1984, og
kona hans, Sigríður Sigurðardóttir,
f. 21.12.1905, d. 13.2.1983.
Guðfinna Asta Þorgilsdóttir.
.Inn fliiAmnnHsenn,
nr Álíheimum 68, Reykjavík. 33 d' d Falk Konrad Kinskv,
Magnúsína S. Jónsdóttir, Eiríksgötu 29, Reykjavík. Snorrabraut 5,. R«ytjav,k. ^
90 ára 50 ára
Eymundur Björnsson, ^ Hjarðamesi, Nesjahreppi. SkW^KÓpaS. Björn Arnórsson,
_ „ Hólabergi 72, Reykjavík. 85 ára Grétar Haraldsson,
Lalandi 23, Röykjiívík. Karl Frímannsson, Gunnfríður Sigurðardóttir, Reynimel 48, Reykjavík. Hellisbraut 5, Neshreppi.
QQ QfQ Birtingakvísl 36, Reykjavík.
Helgi M.S. Bergmann, 40 dFd
7C Ako Stekkjargerði 3, Akureyri. 0,0 Stella María Vilbcres.
Björg Guðmundsdóttir, ^elbæ ReyKjavík. Aðalgötu 15, Siglufirði. ‘■’man ',onsstm’ , , Dalbraut 18, Suðuríjarðarhreppi.
„ Árni J. Gunnlaugsson, /U ara Nökkvavogi 32, Reykjavik.
Kristjana V. Ketilsdóttir, Margrét Agústa Agústsdóttir, Laugarbrekku 13, Húsavík. Fjölnisvegi 20, Reykjavík. Lisbet Sigurðardóttir,
Víðivöllum 15, Selfossi. 60 ára Bjarni Eyjólfsson, Sæbóli 42, Ryrnrsvpit.
Kristján Jónsson, Þóra Ragnardóttir, Strandbergi, Húsavík. Háteigi 3, Akranesi.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir