Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. Utlönd Botha þreyttur á gagnrýni Botha, forseti Suöur-Afríku, beindi í gær orðum sínum að vest- rænum ríkjum og sagöi að þau ættu aö hætta þrýstingi sínum gagnvart Suður-Afríku til að knýja fram breytingar. Búist haföi verið við aö Botha rayndi í ávarpi sínu á ráðstefnu stjórnarflokksins annað hvort greina frá hvort blökkumannaleið- toganum Mandela yrði sleppt eða hvort hann hygðist boða kosning- ar. Forsetinn gerði hvorugt. Þess í staö mótmælti hann þrýstingi ut- anlands frá og afskiptum erlendra aðila af innanríkismálum Suður- Afríku. Forseti Suður-Afríku, P. W. Botha. Simamynd Reuter Hér má sjá er sovésku geimskuhunni Byl var skotið á loft. Simamynd Reuter Geimferð sovésku geimskutlunnar Byls, sem skotið var á loft í gær, tókst með ágætum og lenti hún við Baikonur geimstöðina í morgun eftir að hafa farið tvo hringi umhverfis jöröu. Geimskutlan var ómönnuð. Fréttamenn Tass fréttastofunnar sovésku sögðu að geimskutlan hefði lent eins og flugvél á þar til gerðri lendingarbraut um tólf kílómetra frá þeim stað þar sem henni var skotið á loft. Gcimskoti Byls var frestað fyrir tveimur vikum vegna bilana í skotpalli. Ameríkuríki þinga litanríkisráðherra Bandaríkjanna, George Shultz, ávarpaði í gær þing Bandalags Ameríkuríkja. Simaraynd Reuter Georg Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, lagöi áherslu á það í ræðu sinni á þingi Bandalags Ameríkuríkja, sem nú er haldið í San Salvad- or, að nauðsyn væri á efnahagsumbótum í Suöur-Ameríku. Hins vegar yrði að gæta þess aö þær yrðu ekki of haröar. Margir ræðumanna voru sammála um að gífurlegar skuldir Suður-Ameríkuríkja ógnuðu efnahag ríkjanna og gætu leitt til stjómmálalegs ójafhvægis á svæðinu. Geimskutlan Bylur lent Samkomulag nálgast Unnið var að þvi fram á nótt aö reyna aö fá Kúbu, Angóla og Suð- ur-Afríku til að komast að sam- komulagi um hvenær heimfór kú- banskra hermanna frá Angóla eigi að hefjast og hvenær sjálfstæði Namibíu skuli viðurkennt. Fundir hafa farið fram í Genf í Sviss síðastliðna fjóra daga milli bandarísks milligöngumanns og fulltrúa frá Kúbu, Angóla og Suö- ur-Afríku. Utanríkisráöherra Suöur-Afríku, Pik Botha, sagði snemma í gær að deiluaðilar nálguðust samkomulag frá þvi að síðasti fúndur var hald- inn i New York fyrir fimm vikum. Vonast er eftir að brátt náist sam- komulag um sjálfstæði Namibiu. Andrei Sakharov, einn þekktasti andófsmaður Sovétríkjanna, átti í gær fund með Reagan Bandaríkjaforseta. Símamynd Reuter Gorbatsjov til Bandaríkjanna Steinuim Böðvarsdóttir, DV, Washington: Michael Gorbatsjov, leiðtogi Sovét- ríkjanna, mun koma í vináttuheim- sókn til Bandaríkjanna í byrjun næsta mánaðar, að sögn háttsettra bandarískra embættismanna. Gor- batsjov mun meðal annars ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í höfuðstöðvum þess í New York og að öllum líkindum eiga fund með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og George Bush varaforseta og næsta forseta Bandaríkjanna. Sovétríkin hafa enn ekki tilkynnt opinberlega um fyrirhugaða heim- sókn Gorbatsjovs en starfsmenn bandaríska utanríkisráðuneytisins staðfestu að hann væri væntanlegur. Þá staðfestu þeir einnig að líklegt væri að Reagan og Gorbatsjov myndu ræða saman. Það yrði að öll- um líkindum síðasti fundur leiðtoga stórveldanna áður en Reagan lætur af embætti forseta þann 20.janúar næstkomandi. Fréttin um væntanlega komu Gor- batsjovs kemur á sama tíma og einn þekktasti andófsmaður Sovétríkj- anna, Andrei Sakharov, er staddur í einkaheimsókn í Bandaríkjunum. Sakharov átti fund með Reagan for- seta í gær og bar meðal annars lof á baráttu forsetans fyrir auknum mannréttindum í Sovétríkjunum. Sakharov var sendur í útlegð til Gorky í Sovétríkjunum í sjö ár árið 1980. Honum var sleppt fyrir tæpum tveimur árum að tilstuölan Gor- batsjovs. En hann hefur haldið bar- áttúnni fyrir auknum mannréttind- um áfram og notaði tækifærið til þess í viðræðum sínum við Reagan í gær. Hann minnti forsetann á að fleiri pólítískir andófsmenn væru enn í haldi í Sovétríkjunum. Hann nefndi meðal annars Vasif Melyanov sem var handtekinn fyrir átta árum fyrir að mótmæla útlegðardómi Sak- harovs. Reagan viðurkenndi í gær að mannréttindamál væru enn þrándur í götu samskipta stórveldanna en lagöi áherslu á að miklar framfarir hefðu átt sér stað í stjórnartíð Gor- batsjovs. Sakharov ræddi einnig um pólítískar framfarir undir stjórn Sovétleiötogans en kvaöst ekki of bjartsýnn á framtíð umbótastefnu Gorbatsjovs. Talsmaður Hvíta hússins sagði að Reagan og Sakharov heföu einnig rætt um geimvarnaáætlun Banda- ríkjanna. Sakharov hefur lýst sig andvígan henni og gaf í skyn að hann teldi áætlunina hindra afvopnunar- viðræður stórveldanna. Sakharov er í þriggja vikna heim- sókn í Bandaríkjunum og heldur' heim á leið til Sovétríkjanna síðar í þessum-mánuði. Hægri, vinstri, snú í Færeyjum I Færeyjum er enn óljóst hvernig landsstjóm tekur við völdum. í þing- kosningunum í síðustu viku féll vinstri meirihlutinn á Lögþinginu og flestir bjuggust við borgaralegri landsstjóm. Þaö er hins vegar óvíst hvort borgaraflokkarnir geti komið sér saman um stjómarsáttmála. Fólkaflokkurinn, sem er hægri- flokkur, er með umboö til stjórnar- myndunar. Jegvan Sundstein, for- maður flokksins, sagði í samtali við DV að hann stæði i viðræðum bæði við vinstri flokkana og borgaraflokk- ana um myndun samsteypustjórnar. Fólkaflokkurinn er stærsti flokkur- inn í Færeyjum með átta þingmenn á Lögþinginu af 32. „Það em tveir kostir sem aðallega eru í athugun. Annars vegar sam- starf til hægri með Sambandsflokkn- um (7 þingmenn), Sjálfsstýrisflokkn- um (2) og Kristilega fólkaflokknum (2) og fá hreina hægristjóm. Hinn möguleikinn er samstarf með Þjóð- veldisflokknum (6) og Stjálfsstýris- flokknum og Kristilega fólkaflokkn- um og leggja þá áherslu á aukna heimastjóm og fá breytingu í sam- skiptum við Dani,“ segir Sundstein. Sundstein sagði Fólkaflokkinn, Kristilega fólkaflokkinn og Sjálfs- stýrisflokkinn tilbúna til að ræða við Jegvan Sundstein, formaður Fólka- flokksins, athugar möguleika á ólik- um stjórnarmynstrum. Sambandsflokkinn og Þjóðveldis- flokkinn um myndun samsteypu- stjórnar. Viðræður færu fram í dag og á morgun og myndi þá skýrast hvaða leið yrði valin. DV bar undir Sundstein þær fregn- ir aö Þjóðveldisflokkurinn, Sam- bandsflokkurinn og Jafnaðarflokk- urinn (7) reyndu að mynda sam- steypustjórn. Hann sagði það rétt að þessir flokkar heföu átt í viðræðum, en taldi ósennilegt að þeir næðu sam- an. Þrátt fyrir stjórnarmyndunarviö- ræður telja færeyskir stjórnmála- menn ekki ástæðu til að sitja heima í Færeyjum öllum stundum. Þannig er Atli Dam, núverandi lögmaöur og formaður Jafnaðarmanna, staddur í Moskvu þessa dagana og Pauli Ell- efsen, formaöur Sambandsflokksins, var í Kaupmannahöfn í vikunni. í kosningabaráttunni var vara- formaður Fólkaflokksins, Oli Brakk- mann, áberandi. Hann þykir hægri- sinnaðastur stjórnmálamanna í Fær- eyjum og var haft eftir framámönn- um Sambandsfokksins að ekki kæmi til greina að starfa með Brakkmann. „Allir flokkar í Færeyjum hafa lát- iö í ljós efasemdir um Brakkmann," segir Sundstein, „hann er hins vegar í okkar flokki og kemur til með aö starfa með okkur.“ Nú er Brakkmann ekki í stjórnar- myndunarviðræðum með þér fyrir hönd Fólkaflokksins, heldur þrír aðr- ir flokksmenn. Hvers vegna? „Það er vegna þess að flokkurinn kaus mig og þrjá aöra, en ekki Brakk- mann,“ segir Sundstein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.