Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Síða 28
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988.
^28
Eftir fimm ára hvild frá sjóbis-
nessnum gerði hin þekkta leik-
kona Ann Margret sér litið fyrir
og brá undir sig betri fætinum
að nýju í Caesarshöllinni í Las
Vegas við mikinn fögnuð við-
staddra. Þar mun hún skemmta
■pv 13 kvöld í röð og er karlpeningur-
inn vist í röðum eftir miðum á
sýningarnar enda er hún talin
með kynþokkafyllri kvenmönn-
um. Simamynd Retuer
Grímuball í Vitanum
Yfir 200 manns . (Hafnfirðingar)
sóttu grímuball í Vitanum á dögun-
um. Ballið var haldið á JC-daginn en
kjörorð hans var „Æskulýðsmár.
Ballið var auglýst fyrir Hafnfirð-
inga á aldrinum tveggja til sex ára
og komu 124 börn og um 90 fullorðn-
ir. Að sögn skemmtu allir sér hið
besta, bæði börn og fullorðnir. Lög-
reglan kom á staðinn og fræddi þau
yngstu um umferðina og gaf þeim
endurskinsmerki. Diskótekið Dísa
lék létt lög við mikinn fögnuð áheyr-
enda.
Grímuklæddu Hafnfirðingarnir skemmtu sér hið besta í Vitanum.
Brigitte Nielsen, þessi danskættaða, fyrrverandi eiginkona Stallones, hefur
að undanförnu gengist undir viðamiklar rannsóknir vegna gruns um krabba-
mein. Hún hefur upp á síðkastið verið í slagtogi við Mark Gastineau, fræg-
an, amerískan fótboltakappa. Til að vera henni til halds og trausts í rann-
sóknunum hætti hann öllum afskiptum af fótbolta og hugsar núna eingöngu
um Brigittu stna. Hjónaleysin hafa ekki lengi komið fram opinberlega eða
frá því rannsóknin hófst. í gær veittu þau sjónvarpsviðtal í morgunþættinum
„Good Morning America" þar sem Brigitte lýsti sjúkdómssögunni.
Anna prinsessa, dóttir Elísabetar Englandsdrottningar, féll af baki á laugar-
daginn. Prinsessan var að etja kappi við aðra knapa, konungborna og al-
menning, þegar hún féll af hesti sínum Canon Class. Prinsessan slapp
alveg ómeidd og stökk á fætur til að hjálpa öörum knapa sem einnig féll
af baki. Eins og flestir vita er hestamennska ensku konungsfjölskyldunni í
blóö borin. Anna er einna vönust og hefur hlotið nokkrar byltur um ævina
-Án alvarlegra afleiðinga.
Feita Fergie og
bamið afskræmd
Bretamir eru álls ómseykir við að
afskræma sitt eigiö kóngafólk. Nú
þegar hafa verið gerðar brúður af
Fergie og dótturinni og er ekki hægt
að segja annað en að framleiðendum
þáttanna Spitting Image hafi tekist
að draga fram það ljótasta úr báðum.
Fergie mun vera sú eina úr kónga-
fjölskyldunni sem hefur haft húmor
fyrir þessum þáttum og kippir sér
því ekkert upp við það hvemig farið
er með fjölskyldu hennar. Hins vegar
má alveg eins búast við að ekkert
verði kveikt á kassanum í höllinni í
þessari viku því þar mun Fergie birt-
ast í fyrsta sinn með barniö. Allir eru
jú viðkvæmir fyrir bömunum sín-
um. í þáttunum er hún kölluð „Fattie
Fergie“.
•................................ —
Aðstandendum þáttanna Spitting Image hefur sannarlega tekist að draga
fram allt það Ijótasta í Söru Ferguson og dóttur hennar.
Sviðsljós
Ólyginn
Kiefer
Sutherland
sonur leikarans Donalds Suther-
land, hefur nú sagt skilið við eig-
inkonu sína Camillu eftir aðeins
14 mánaða hjónaband. Á þeim
hjónakornum er 19 ára aldurs-
munur, hann er 22 ára en hún 41,
og höfðu fyrir átta mánuðum
eignast dóttur. Ástæðuna fyrir
skilnaðinum segir Kiefer vera að
hann sé ekki neinn fjölskyldu-
maður. Sumir vina hans segja að
hann hafi verið farinn að drekka
fullmikið. Kiefer er sonur Don-
alds og annarrar konu hans,
Shirley Douglas. Þau skildu þeg-
ar Kiefer var 4 ára. Móðir hans
flutti til Kanada þegar hann var
átta ára og eftir það sá hann föður
sinn ekki oft. Engu að síður er
hann eins og vasaútgáfa af föður
sínum, ekki bara í útliti heldur
einnig háttalagi.
Richard
Chamberlain
hinn ókrýndi konungur sjón-
varps mini-seríanna virðist einn-
ig vera hinn ókrýndi konungur
mini-ástarsambandanna. Cham-
berlain, sem nú er 53 ára, hefur
eina ferðina enn fallið fyrir konu.
Nú er það spænska leikkonan
Agata Lis. Þessi 35 ára gamla leik-
kona leikur á móti honum í nýj-
ustu mynd hans. Hann hefur átt
í mörgum ástarsamböndum,
einkum við mótleikkonur sínar
sem virðast alltaf gufa upp jafn-
óðum og tökurnar er búnar. Sagt
er að hann hafi fallið fyrir Rachel
Ward þegar þau léku saman í
Þymifuglunum, einnig fyrir Tar-
yn Power þegar þau léku saman
í Tyrone’s daughter og fyrir Jac-
lyn Smith er þali léku saman í
Bourne Identity. Þá er bara að
bíða og sjá hvort hann muni end-
ast eitthvað með Agötu.
Bruce Willis
lítur út eins og api þessa dagana
en ekki eins og hann sé að hefja
leik að nýju í Moonlighting. Að
undanförnu hefur hann lítið ver-
ið að hugsa um útlit sitt vegna
þess að hann hefur verið upptek-
inn af eiginkonunni Demi Moore
og dótturinni Rumer. Þær munu
víst báðar góla hátt mæðgurnar
ef faðirinn er ekki vel á verði í
kringum þær. En úr þessu verður
fljótlega bætt því þegar Bruce
tekur til við að leika David Addi-
son að nýju mun hann klippa hár
sitt og raka skeggið. Þær mæðgur
munu víst sáttar við það vegna
þess að hann vinnur jú fyrir
brauði heimilisins.