Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. Fréttir Böðvar Bragason, lögreglustjóri 1 Reykjavík: Margt sem ekki á að birtast opinberlega - er ekki sáttur við birtingu skýrslu Lögreglufélagsins „Ég skila ráöherra greinargerö um skýrsluna í dag. Ég er á þeirri skoðun að æði margt í þessar skýrslu Lögreglufélags Reykjavík- ur eigi ekki erindi í íjölmiðla, eðli málsins samkvæmt. Skýrslan í heild hefði betur verið rædd milli þeirra sem hlut eiga að máli ráður en menn báru slíkt á torg. Ég var erlendis þegar þeir birtu skýrsl- una. Þessi skýrsla barst til tveggja yflrmanna hér skömmu áður en blaðamannafundurinn var haldinn. Hún var því í engu rædd við starfs- menn hér - og það kom mér á óvart því ég tel aö málefni lögreglunnar eigi að reyna að leysa áður en farið er að ræða þau á opinberum vett- vangi,“ sagði Böðvar Bragason, lög- reglustjóri í Reykjavík. „Ég vissi að Lögreglufélagið var meö í vinnslu skýrslu um stöðu lögreglumála. Ég er frekar hlynnt- ur því að Lögreglufélagið skuli velta þessum málum fyrir sér. En ég hef alltaf sagt, seint og snemma, að menn verða fyrst og fremst að ræða saman. Það er grundvöllur allra góðra lausna. Þaö fmnst mér ekki hafa gengið eftir í þessu efni. Enda eru í skýrslunni atriði sem ég tel vafasamt og varasamt að birta þvi ég er alfarið á móti megin- niðurstööu skýrslunnar að lögregl- an í Reykjavík sé það illa komin að ekki sé hægt að sinna nema neyðarútköllum. Ég er alfarið á öndverðum meiði um það mál. Ef svo væri komið - þá hefði ég átt að vera búinn að tilkynna slíkt fyr- ir langa löngu - eða þegar ég teldi að þannig væri komið. Hitt er annað að það sama hrjáir okkur og aðrar ríkisstofnanir; við fáum ekki allt það sem við biðjum irni. En það er langt því frá að stofn- unin sé að verða óstarfhæf," sagði Böðvar Bragason. Hann sagðist hafa barist fyrir aukinni íjárveit- ingu til lögreglunnar svo bæta mætti við mannafla og tækjakost. Síðast sagðist hann hafa gengið á fund fj árvei tinganefndar. Böövar sagðist vilja með öllum mætti efla starflögreglunnar. . -sme Fer lögreglustjóri oft til útlanda? - sex sinnum á þessu ari, segir Böðvar Bragason „Það hefur lengi verið verkefni lögreglustjórans í Reykjavík að sinna norrænu samstarfi. Það eru fundir lögreglustjóra á Norðurlöndum og það eru einnig fundir á vegum út- lendingaeftirlitsins. Þetta er helstu störfm út á við. Þessir fundir eru tvisvar á ári. Mér er mjög ljúft að upplýsa það að utanferðir mínar í ár eru sex á vegum embættisins," sagði Böðvar Bragason. „Ég held að þetta sé í alveg sama fari og forveri minn, Sigurjón Sig- urðsson, geröi. Eitt af því sem lög- reglustjóri gerði var að fara á fund lögreglustjóra í höfuðborgum Evr- ópu. Ég felldi þetta niður eftir að ég fór á slíkan fund fyrir þremur árum. Ég taldi mig ekki hafa þörf fyrir að mæta á þá fundi,“ sagði Böðvar Bragason. -sme Læknamálin: Brutum ekkert samkomulag - segir Amar Guðmundsson „Við eltum ekki ólar við þessi ummæli. Viö brutum ekkert sam- komulag. Málið er komið til ríkis- saksóknara og við höfum ekkert fleira um það að segja,“ sagði Arn- ar Guðmundsson, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Gunnar Ingi Gunnarsson, yfir- læknir á Heilsugæslustöðinni í Árbæ, sagði í DV í gær að Rann- sóknarlögreglan heföi brotið munnlegt samkomulag þegar framkvæmd var rannsókn á reikn- ingsgerðum læknis við sömu heils- gusæslustöð. Gunnar Ingi segir aö samkomulag hafi verið gert um aö aðeins sá læknir sem sætti rann- sókn fengi að skoða sjúkraskrár. Nú hefur verið upplýst að Rann- sóknariögreglan haföi lækni með sér víö rannsóknina. Sá læknir skoðaði sjúkraskrámar ásamt lækninum sem sætti rannsókninni. Læknir sá, sem Rannsóknarlög- regla kvaddi til, hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann hafi skoöað sjúkraskrárnar. Yfir- lýsing læknisins verður líklega lögð fram í fógetarétti þar sem tek- ist er á um hvort Ríkisendurskoð- un fái aðgang að sjúkraskrám Heil- sugæslustöðvarinnar í Grindavík eða ekki. Þegar hefur því verið lýst yfir af hálfu beggja aöila að úr- skuröi fógetaréttar verði áfrýjað til Hæstaréttar. -sme Kikt í búðarglugga á Laugavegi. Ekki er þvi að treysta að veðrið sé blitt svona rétt fyrir jólin og því betra að búa sig vel. DV-mynd Brynjar Gauti 2,4 prósent verðbólga Framfærsluvísitala hækkaði um 0,2 prósent í byrjun desember frá fyrra mánuði. Þessi hækkun jafn- gildir 2,3 prósent árshækkun. í verðkönnun kauplagsnefndar kom í ljós að brauö og kjöt hafði hækkað en grænmeti og ávextir lækkað. Matvöruliður vísitölunnar hækkaði þvi nánast ekkert. Fatnaður hækkaði hins vegar og einnig rekst- ur eigin bíls og þjónusta ýmiss kon- ar. Vegna lækkunar á fjármagns- kostnaði lækkaði húsnæðisliður vísi- tölunnar. Samkvæmt framfærsluvísitölu jafngildir verðbólga undanfarinna þriggja mánaða um 2,4 prósent verð- bólgu á ársgrundvelli. Hins vegar hefur vísitalan hækkað um 20,6 pró- sent á undanfornum tólf mánuðum. -gse Á þessari töflu má sjá verðbólguna á undanförnum tólf mánuðum miðað við hækkun framfærsluvisitölu. Línan sýnir verðbólguna miðað við vísitölu síðustu þriggja mánaða. Súlurnar sýna hins vegar hækkun undanfarinna tólf mánaða. Amarflug hf: Starfsfólk fundar um tillögu að launalækkun „Það kom fram tillaga frá einum starfsmanni um að starfsfólk taki á sig launalækkun til að létta undir með rekstri félagsins. Viö höfum rætt þetta mál en það er hvergi út- rætt og er raunar á viðkvæmu stigi. Þess vegna vil ég ekkert frekar um málið segja eins og er,“ sagði Björg Gunnsteinsdóttir en hún á sæti í stjóm starfsmannafélags Amarflugs hf. Tillagan gerir ráð fyrir að starfs- fólk taki á sig 10 prósent launalækk- un til þess að létta undir með félaginu í þeim fj árhagserfiðleikum sem það er í um þessar mundir. Að vonum ríkir ekki einhugur um málið hjá starfsfólki. Björg sagðist ekki þora að segja til um hvort næðist að af- greiða málið frá starfsmönmnn í dag en það yrði gert fljótlega. -S.dór Hofsóshreppur skuldar 33 milljómr umfram eignir: Sveitarstjórnin svipt fjárforráðum og fjárhaldsstjórn skipuð af ráðuneytinu Sveitarstjorn Hofsóshrepps hefur verið svipt fiárforráðum og mun fé- lagsmálaráðherra skipa íjárhalds- stjóm. Auk þess hefur félagsmála- ráðuneytið farið fram á greiðslu- stöðvun í þijá mánuði og haft sam- band við skiptaráðanda vegna þess. Hofsóshreppur óskaði fyrir skömmu eftir fjárhagsaðstoð í formi styrks eða láns frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á grundvelli ákvæða sveitarstjómarlagarina þar um. Eftir athugun endurskoðunarfyrirtækis á fjármálum hreppsins kom í ljós aö skuldir hans voru það miklar að fjár- framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga myndi engan veginn duga til að rétta stöðu hreppsins við svo ein- hveiju næmi. Var einnig ljóst að greiðslustöðvun næðist ekki nema því aðeins að annarri grein sveitar- stjómarlaganna yrði beitt en hún kveöur á um að skipa eigi fjárhalds- stjórn fyrir hreppinn. Félagsmála- ráðuneytið skipar tvo menn í fjár- haldsstjóm, þar af formann, og sam- band sveitarfélaga einn. Skuldir hreppsins nema tæplega 55 milljónum króna sem jafngildir um 200 þúsund króna skuld á hvem íbúa. Skuldir umfram eignir nema um 33 milljónum króna. Mun hreppurinn hafa ráðist í mun meiri fjárfestingar en hann gat staðið undir á undan- fórnum ámm og því fór á þennan veg. Um 30 ár em liðin síðan gripiö var til svipaðra aðgerða en það var 1 máli Kaldrananeshrepps í Stranda- sýslu. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.