Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Blaðsíða 8
8
>; HgsMgssn .si miOAOuiaiaw
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Viðskipti
Það stefnir í hörkuslag
á milli Habitat og Ikea
Þaö stefrilr nú í hörkuslag á milli
Habitat og Ikea eftir að Kron yfirtek-
ur Habitat-umboöiö um mánaðamót-
in febrúar mars af Kristjáni Siggeirs-
syni hf. Bæði Habitat og Ikea selja
húsgögn og búsáhöld. Engu aö síður
er samkeppni þessara verslana aö-
eins angi af stærri hasar, stríðinu á
milli Hagkaups og Kron en Hagkaup
er með Ikea-vörur á íslandi.
Habitat inni við Sundin blá
Kron verður með Habitat verslun
inni við Sund, í sama húsi og Mikli-
garöur er núna til húsa. Sú verslun
verður opnuð um mánaðamótin fe-
brúar og mars. Það er í stíl Habitat
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverótryggð
Sparisjóðsbækur ób. 2-4 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2-4.5 Lb
6 mán. uppsogn 2-4,5 Sb
12 mán. uppsogn 3,5 5 Lb
18mán. uppsögn 8 Ib
Tékkareikningar, alm. 0.5 1 Allir
Sértékkareikningar 0.5 3.5 nema Vb Bb
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 1-2 Vb
6mán. uppsogn 2-3,5 Sp.Ab,-
Innlán með sérkjörum 3.5-7 Vb.Bb Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-8 Lb
Sterlmgspund 10,50 Ub
Vestur-þýsk mork 11,25 3,75 4,25 Ab.Sb
Danskar krónur 7-8 . Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 11-12 Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupqenqi
Almennskuldabréf 12,5 18 Sp.Bb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr ) 14,5 17 Bb
Utlan verötryggö
Skuldabréf 8 8,75 Vb
Utlán til framleiðslu
ísl. krónur 12 17 Lb.Sb,-
SDR 9-9,25 Bb Allir
Bandarikjadalir 10,5 10,75 nema Bb Úb.Sb,-
Sterlingspund 13,50- Sp Sb.Sp
Vestur-þýskmörk 13,75 6.5 6,75 Sb.Sp,-
Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á
MEÐALVEXTIR mán.
óverðtr. des. 88 17.9
Verðtr. des. 88 8.7
VÍSITOLUR
Lánskjaravisitala des. 2274 stig
Byggingavisitalades. 399,2 stig
Byggmgavísitala des. 124,9 stig
Húsaleiguvisitala Engin hækkun 1. okt.
Verðstoðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,386
Einingabréf 2 1,925
Einingabréf 3 2,207
Fjolþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,580
Kjarabréf 3.386
Lífeyrisbréf 1 702
Skammtimabréf 1.182
Markbréf 1.793
Skyndibréf 1,037
Sjóðsbréf 1 1,627
Sjóðsbréf 2 1,370
Sjóðsbréf 3 1,161
Tekjubréf 1,576
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
að vera í stóru húsnæði með nóg af
bílastæðum fyrir utan.
Habitat er breskt merki, en Ikea
sænskt. Bæði hafa verið með geysi-
lega útþenslu á síðustu árum á al-
þjóðlegum markaði. Ikea er nýkomið
inn á bandaríska markaðinn og er
spáð velgengni. Habitat hefur verið
þar í nokkur ár og vegnað vel.
Habitat til íslands 1980
Það var áriö 1980 sem Habitat kom
til íslands og hafði Kristján Siggeirs-
Margir þeirra sem búa í skuld-
lausu húsi halda að þeir búi þar
ókeypis. Svo er ekki. Á tímum hárra
raunvaxta er fólk aö fórna umtals-
verðum upphæðum meö því að vera
með milljónir bundnar í of stóru
húsi. Er betra að hafa rúmt um sig
eða kjósa önnur lífsins gæði, eins og
minni vinnu og íleiri ferðalög?
í bæklingi Landssambands lífeyris-
sjóða er komiö skemmtilega inn á
þessi mál í kaflanum Skuldlaust hús-
næði. Yfirskriftin er einföld. Hún er
þessi: Býr maður ókeypis í skuld-
lausu húsi?
Bæklingurinn svarar þessu svona:
„Háir vextir auka húsnæðiskostnað
verulega, eins og þeir sem eru að
borga af lánum vegna íbúðarkaupa
þekkja manna best.
„Hvað kemur það mér viö? - ég
borga enga vexti,“ kann sá að spyrja
sem býr í skuldlausu eigin húsi. í
fasteign sinni á hann bundna mikla
fjármuni. Þeir mega teljast verð-
tryggðir - en hver borgar honum
vexti af þeim?
Gróflega reiknað kostar hver millj-
son hf. umboðið. Ástæöan fyrir því
að hann selur núna er sú að Habitat
þarf stærri verslun en hún er í við
Laugaveginn í húsnæði Kristjáns
Siggeirssonar. Ætlunin var alltaf að
Habitat færi upp á Hesthálsinn þar
sem Kristján Siggeirsson er með
stóra verslun og verksmiðju. Umsvif-
in í skrifstofuhúsgögnum og öðrum
húsgögnum undir merkinu Káess
hafa á hinn bóginn verið svo mikil
að ætlunin er hjá Kristjáni Siggeirs-
syni hf. að einbeita sér að þeim.
ón sem bundin er í íbúðarhúsnæði
allt að 8.500 krónur á mánuöi miðað
við algenga vexti sem buðust á spari-
fé árið 1988 - t.d. 8 til 8,5 prósent
vexti af spariskírteinum og yfir 10
prósent á bankabréfum.
Af 4 milljónum bundnum í íbúð
má því reikna með um 380 þúsund
króna vaxtatapi á ári. Við það má
bæta 80 til 130 þúsund króna útgjöld-
um vegna fasteignagjalda (0,5%), við-
halds (0,5%), trygginga, afskrifta
(1%) og ef til vill eignaskatts (1,2%).
Samtals þýðir þetta 35 til 40 þúsund
krónur á mánuði í útlögðum kostn-
aði og eða glötuðum vaxtatekjum
(fórnarvöxtum)"
Loks segir í kaflanum: „Flestir
standa frammi fyrir ákvörðun um
hversu rúmt þeir skuli búa. Margur
sem býr stórt eða hyggur á stækkun
mundi kannski fremur kjósa önnur
lífsins gæði; minni vinnu, fleiri
ferðalög og svo framvegis ef hann
hugleiddi hversu dýrt húsnæði er -
líka skuldlaust húsnæði."
-JGH
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Ikea hyggur líka á enn frekari land-
vinninga í sölu húsgagna og búsá-
halda hér á landi. Þegar hafa þeir
Hagkaupsmenn tryggt sér land undir
framtíðarverslun Ikea, í Smára-
hvammi í Kópavogi. Línan er skýr,
stórt húsnæði og feikimikið bíla-
stæði. Þetta er bæði Ikea og Habitat
stíllinn og honum verða Hagkaup og
Mikligarður að sinna.
Conran upphafsmaðurinn
Það er Englendingurinn Terence
Conran sem stofnaði Habitat. Síðan
þá hefur mikiö vatn runnið til sjávar
og fjöldi verslana aukist. Það eru 25
Habitat verslanir í Frakklandi og 55
Sala hlutabréfa
í Almennum
er langt komin
Hjalti Geir Kristjánsson, stjórnar-
formaöur Almennra trygginga, segir
að salá hlutabréfa í Almennum
tryggingum hf. gangi mjög vel og sé
langt komin. Það hlutafjárútboð, sem
nú stendur yfir, tengist sameiningu
Almennra trygginga og Sjóvá sem
formlega verður gengið frá snemma
á næsta ári.
„Hlutafjárútboðið er um 32 milljón-
ir króna að nafnvirði en hlutabréfin
eru seld með 20 prósent álagi,“ segir
Hjalti Geir Kristjánsson.
Um 250 hluthafar eiga í Almennum
tryggingum. Hlutijárútboðinu núna
á að vera lokið í janúar. Það nær ein-
göngu til núverandi hluthafa. Eftir
útboðið nemur hlutafé Almennra
trygginga um 90 milljónum króna að
nafnvirði. -JGH
í heimalandinu Englandi. Ikea er
nýkomið inn á Bretlands- og Banda-
ríkjamarkað. Ikea er ráðandi í
Þýskalandi. Og að sjálfsögðu er Ikea
ráðandi í heimalandinu Svíþjóð.
Staða Ikea er líka sterk á öðrum
Norðurlöndum.
Þrátt fyrir mikla samkeppni eru
vörur Habitat og Ikea ekki beint lík-
ar. Margir lýsa samkeppninni þann-
ig aö Habitat-vörur séu aðeins dýrari
en Ikea. Á móti komi að gæðin séu
aðeins meiri.
Stríðið rétt að byrja
Bæði Ikea og Habitat eru þræl-
þekkt merki hérlendis. Með yfirtöku
Kron á Habitat verða bæði merkin
meira í sviðsljósinu, stríðið er rétt
að byrja. Þetta er ekki bara hasar á
milli Ikea og Habitat heldur ekki síð-
ur Hagkaups og Kron, risanna á
matvælamarkaðnum í Reykjavík.
-JGH
Hjalti Geir Kristjánsson, stjórnar-
formaöur Almennra trygginga.
Þeir sem búa í allt of stórum skuldlausum húsum eru að fórna miklum
vaxtatekjum. Af hverjum 4 milljónum bundnum i ibúö má reikna með um
380 þúsund króna vaxtatapi á ári. Margir sem búa stórt vildu hugsanlega
eyöa þessum peningum fremur í önnur lífsins gæði eins og minni vinnu
og fleiri ferðalög.
Þröstur Ólafsson, forstjóri og stjórnarformaður Kron. Hann hefur staðið i
ströngu að undanförnu, aukið samstarfið á milli Kron og Miklagarðs, tekið
JL-húsið á leigu til 10 ára og nú er það yfirtaka á Habitat-umboðinu af
Kristjáni Siggeirssyni hf.
Trygging gleymdist
Tryggingafélagið Trygging hf.
gleymdist í frétt DV í gær um sam-
ráð tryggingafélaga í útboöi hjá VR.
Félögin voru með nákvæmlega eins
grunntölur í tilboöum sínum í út-
boði VR en skilmálar voru mis-
munandi.
Tryggingafélögin, sem höfðu
samráð, eru Trygging hf., Sjóvá,
Samvinnutryggingar, Almennar
tryggingar og Tryggingamiðstöðin.
Þau mynda meö sér samband
slysatryggjenda. Stundum er
Brunabót inni í samstarfinu og
stundum ekki. Brunabót var eina
félagið sem var með sérstöðu í
VR-útboðinu og bauð ekki á sömu
nótunum og hin tryggingafélögin.
-JGH
Landssamband lífeyrissjóöa:
Þú býrð ekki ókeypis
í skuldlausu húsnseði